Morgunblaðið - 14.01.1995, Side 1
MENNING
USTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 14. JANÚAR 1995 BLAÐ{
LEIKMYNDIR í
verkum Mamets
eru yfirleitt ein-
faldar enda þarf
tungumálið og
vandi leiksins at-
hyglina helst
óskipta.
SSKILNINGUR, hvar,
eða, annar skilningur,
hvar, sagði ég, í leikriti,
mismunandi skilningur,
kannski, túlkun skilurðu, auðvitað,
kynja, fáránlegt, ólíkra hópa, nei,
þú verður að segja mér, segja mér
hvað þú átt við, fyrirgefðu, nei,
ég var að spyrja þig, allt í lagi,
ég veit hvernig þér líður: Tvíleikur-
inn Oleanna eftir David Mamet
verður frumsýndur á Litla sviði
Þjóðleikhússins föstudaginn 20.
janúar. Tungumál og vald eru lyk-
ilorð í leikritinu, sem fjallar um
samskipti ungrar konu í háskóla
og kennara hennar á miðjum aldri
og breikkandi framabraut. Áhorf-
andinn veit ekki alveg hveiju hann
á að trúa, það er erfitt að taka
afstöðu því orðin þýða fleira en
eitt, staðan er hvikul og hlutverk-
in snarsnúast.
„Ég bara skil þetta ekki,“ segir
námskonan unga í upphafi leik-
ritsins, örvingluð og brotin inni á
skrifstofu kennarans. „En þú ert
greind," svarar kennarinn öruggur
í sínum stóra stól með athyglina
við sjálfan sig, betra starf og nýrra
hús. „Ég elska þig líka, elska þig,“
segir hann svo við konuna sína
sem hringir út af húsinu og
„treystu mér bara, þetta verður
allt i lagi, ég get ekki talað núna.“
Hann leggur frá sér skjalatöskuna
og frestar því smástund að hitta
konuna og fasteignasalann í hús-
inu, hvað vill þessi taugaveiklaða
stelpa í rauninni? Kannski ætti
hann að segja henni smávegis af
sjálfum sér, allir hafa einhvern
tímann verið óöruggir, gefa henni
skammt af því sem hann hefur
lært. Annars var verkefnið hennar
vonlaust. Bara gersamlega von-
laust.
Hún getur ekki fallið í þessum
áfanga. Búin að sitja í tímum og
taka glósur, leggja mikið á sig,
vill vita um einkunnina. Af hveiju
grípur hann alltaf fram í, hún
verður að ná, hún verður að skilja
hvað er verið að segja, hann verð-
ur að skilja það sem hún segir.
En þetta er vonlaust, fáránlegt,
JÓHANN Sigurðarson leikur kennara og Elva Ósk Ólafsdóttir nemanda
hans i Oleönnu.
Oleanna
eftir David
Mamet
verður
frumsýnd í
Þjóðleik-
húsinu 20.
janúar