Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 5
MÖRGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 B 5
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
ÍSLANDSMEISTARARNIR Magnús Scheving, Anna Jónsdóttir og
Karl Jónsson sigursæl eftir erfíða keppni.
Taugaspenna
hjá kvenfólkinu
ANNA Sigurðardóttir varð sig-
urvegari í kvennaflokki í þolfimi.
Fimm keppendur tóku þátt í
kvennaflokki og skilaði Anna
bestu æfingunum að mati dóm-
ara. Hún fékk 33,50 stig en Irma
Gunnarsdóttir varð í öðru sæti.
Mikil taugaspenna var í þessum
flokki og nokkuð um smá-
vægileg mistök í æfingunum. Anna
^^■■1 sagði að margir
þættir hafi valdið
Eðlson Þessari miklu
skrífar spennu. „Við vorum
allar undir miklu
álagi og það var búið að byggja upp
mikla spennu með því að segja að
þetta væri sá flokkur sem væri mest
spennandi. Það jók svolítið spennuna
að við náðum ekki að æfa atriði okk-
ar á sviði fyrir keppnina og það kom
eitthvað fyrir í æfingum hjá okkur
öllum. Irma rann á hendinni og Þór-
anna lenti í svipuðum vandræðum.
Ljósin voru sterk og það var stundum
erfítt að gera sér grein fyrir hvað
sneri fram þegar maður var á svið-
inu. Ég ruglaðist í æfingunni hjá mér
og Ásdís þurfti að hætta snemma
vegna meiðsla. Ég held að Guðrún
[Gísladóttir] hafi verið sú eina sem
fór í gegn um sína rútínu án teljandi
mistaka," sagði Anna.
Ekki bætti úr skák að allir kepp-
endur mættu á sama tíma, klukkan
átta_ um kvöldið og biðin reyndist
ansi löng fyrir kvenfólkið sem steig
á svið þremur tímum síðar.
Anna var þriðja til að stíga á svið
í kvennaflokki og sagðist ekki hafa
fylgst með þeim sem á undan voru.
„Ég varð að passa mig á að horfa
ekki á hina keppendurna því ég átti
nóg með sjálfa mig, að halda einbeit-
ingunni og muna æfinguna. Það «r
hætt við að ég hefði orðið mun
spenntari hefði ég kannski séð góða
hluti hjá öðrum sem ekki hefði verið
í minni rútínu,“ sagði Anna.
„Ég stefndi að sigri en það kom
mér samt á óvart að lenda í fyrsta
sætinu. Eftir að ég hafði lokið mínu
atriði kom fólk til mfn og sagði að
ég hefði verið mjög góð og mundi
líklega lenda í fyrsta eða öðru sæti.
Yfirleitt hlusta ég lítið á svoleiðis því
þeir sem tala við mig eru yfírleitt
vinir og því kannski stundum full
hlutdrægir," sagði Anna.
Mjög spennandi
Mér fannst keppnin mjög spenn-
andi og var ekki viss með
hvar ég væri í röðinni fyrr en úrslitin
voru tilkynnt. Mér fannst ég allt eins
geta verið í fyrsta til síðasta sæti,“
sagði Irma Gunnarsdóttir, 28 ára
leiðbeinandi í djassbailett og líkams-
rækt hjá JSB sem hafnaði í öðru sæti
í kvennaflokki.
„Ég er .hins vegar mjög ánægð
með að ná öðru sætinu. Ég æfði ekki
mikið fyrir mótið og var mest ein að
æfa og sá ein um að setja æfínguna
saman. Ég hafði hug á því að fá hjálp
frá Magnúsi Seheving en hann hafði
mikið að gera svo ekkert varð af því.“
Irma fékk einn heilan í mínus á
Suzuki mótinu í fyrra fyrir æfingu
sem var á bannlista en hún sagðist
hafa verið ákveðin í að ekkert slíkt
kæmi fyrir hana núna en reyndar
hefðu reglurnar verið mun frjálslegri
núna.
Bakgrunnur Irmu er nokkuð öðru-
vísi en flestra annarra keppanda. Hún
stundaði fimleika á yngri árum hjá
Gerplu en hefur síðan stundað jass-
ballett og dans og var meðal annars
fastur dansari hjá íslenska jass-
bailettflokknum.
„Ég held hins vegar að mig vanti
meiri reynslu í að keppa. Ef við fengj-
um fleiri mót í þolfimi værum við
æfðari í að keppa. Það er alltaf viss
skjálfti í manni og reyndar vorum
við fæstar fullkomlega ánægðar með
okkur hlut á mótinu. Ég gerði tvö
mistök á gólfinu sem var mjög sleipt
í keppninni," sagði Irma.
KÖRFUKIMATTLEIKUR
Bikarmeistararanir
úr leik í Grindavík
ÞAÐ var sannkölluð bikar-
stemmning í íþróttahúsinu í
Grindavík á sunnudagskvöld
þegar bikarmeistarar undan-
farinna tveggja ára voru lagðir
af velli af heimamönnum. Ur-
slitin réðust ekki fyrr en á síð-
ustu mínútunni og húsið hrein-
lega sprakk þegar Grindvíking-
ar þustu inn á völlinn til að
fagna sínum mönnum eftir
83:80 sigur.
Leikurinn sjálfur var æsispenn-
andi og hefði sómt sér sem
úrslitaleikur, stemmningin var slík á
mmi áhorfendapöllunum.
Frímann Hann var í járnum
Ólafsson allan tímann og þrátt
skrifarfrá fyrir að heimamenn
Grindavik leiddu framan af
voru Keflvíkingar aldrei langt und-
an. Undir lok leiksins var síðan jafnt
á mörgum tölum en heimamenn voru
sterkari á endasprettinum og unnu
í leik þar sem sigurinn gat allt eins
verið Keflvíkinga.
Nökkvi Már Jónsson átti frábæran
leik í liði Grindvíkinga. Hann var
eins og klettur í vörninni og víta-
hittni var frábær, 15 stig úr 16 skot-
um, Guðjón Skúlason og Guðmundur
Bragason voru einnig mjög góðir i
baráttuglöðu liði. Helgi Jónas átti
góða spretti en hann lék veikur, var
búinn að vera með 39 stiga hita um
daginn.
Jón Kr. Gíslason sýndi enn og
sannaði hversu mikilvægur hann er
Keflavíkurliðinu því ásamt því að
halda uppi leik liðsins hélt hann því
á floti í stigaskorinu. Sigurður Ingi-
mundarson, Albert Óskarsson og
Davíð Grissom áttu einnig góðan
leik. Lenear Burns var nánast ekki
með í þessum leik því hann var kom-
inn með 3 villur eftir 7 mínútna leik
og gat lítið beitt sér eftir það.
Guðmundur Bragason fyrirliði
Grindvíkinga var í skýjunum eftir
leikinn. „Þetta var frábært, það er
búið að vera takmarkið öll þessi ár
að komast í Höilina. Það verður
virkilega gaman að takast á við það
í draumalejknum, Grindavík gegn
Njarðvík. Ég er mjög sáttur við
þennan leik því [Frank] Booker var
í banni og Helgi Jónas leikur með
38 til 39 stiga hita og við vorum í
vandræðum með að koma með bolt-
ann upp. Þetta sýnir karakterinn í
liðinu að við náum að stöðva Burns
ásamt því að halda öðrum niðri.“
„Menn voru samtaka að fara í
þennan leik og sýna baráttuvilja.
Þeir spiluðu inn á vellinum eins og
sá sem valdið hefur og stjórnuðu
leiknum. Þó Keflvíkingar næðu
tveggja stiga forskoti einu sinni í
seinni hálfleik þá sýndum við gríð-
arlegan karakter með því að jafna
og komast yfir á nýjan leik. Strák-
arnir sýndu það frá fyrstu mínútu
að þeir ætluðu í Höllina,“ sagði Frið-
rik Rúnarsson, þjálfari Grindvíkinga.
„Þetta var hörkuleikur og ég er
mjög svekktur með úrslitin. Það má
segja að við töpum þessu á vítalín-
unni. Ég er óhress með dómgæsluna
í þessum leik og fannst þeir halla
heldur á okkur. Það var engu líkara
en þeir hafi ætlað að hafa þennan
leik Kanalausan. Við náðum að
minnka muninn í seinni hálfleik en
héldum einfaldlega ekki höfði,“
sagði Jón Guðmundsson liðstjóri
Keflvíkinga.
Haukar
íham
- en Njarðvíkingar
of stór biti
LEIKUR Hauka og Njarðvíkinga
varð ekki leikur kattarins að
músinni eins og margir spáðu.
Haukarnir höfðu ekki bara í
fuliu tré við efsta lið deildarinn-
ar heldur voru yfir 77:76 þegar
tæpar tvær mínútur voru til
leiksloka. En klaufaskapur
þeirra á lokamínútunum,
ásamt öryggi Njarðvíkinga,
gerðu vonir þeirra um úrslita-
leik í bikarkeppninni að engu
með 79:83 tapi. „Það var visst
vanmat og þegar við komumst
nokkrum stigum yfir, vorum við
of vissir um okkur,“ sagði
Njarðvíkingurinn Ronday Rob-
inson.
Haukamenn áttu einn af sínum
bestu leikjum í vetur og voru
þokkalega sáttir við úrslitin. „Þetta
var mjög tæpt og
hefði unnist með
S}ffn smáheppni í lokin en
skrífar eS var mJ°g ánægð-
ur með okkar leik,
sérstaklega varnarleikinn," sagði
Reynir Kristjánsson þjálfari Hauka
eftir leikinn og bætti við: „Við höf-
um bara spilað annan eins leik í
vetur, góð stemmning náðist í vörn-
inni og menn skutluðu sér á hvern
lausan bolta.“
Hægt og bítandi náðu Njarðvík-
ingar að komast yfir þó bilið yrði
aldrei mikið. Haukar áttu erfitt
uppdráttar í sókninni og hittnin
ekki upp á sitt besta. En Pétur
Ingvarsson fór á kostum og þegar
6 mínútur voru til leikshlés, komust
Haukar yfir og héldu stöðunni
37:33 í leikhléi. Ekki minnkaði bar-
áttan eftir hlé en Haukar lentu í
villuvandræðum og Njarðvíkingar
náðu tíu stiga forskoti. Hafnfirðing-
ar náðu engu að síður að rífa sig
upp og komast yfir. En Ronday kom
Njarðvík í 78:79 og fékk vítaskot
að auki. Haukur létu dæma á sig
skref í næstu sókn og þegar Valur
Ingimundarson skoraði tvö stig fyr-
ir gestina, var sigurinn í höfn.
„Það var ömurlegt að komast
svona nálægt sigri en ég er samt
Morgunblaðið/Golli
RONDAY Robinson, var stigahæstur Njarðvíkinga og leggur hér
knöttlnn í körfu Hauka. Sigfús Gizurarson og Óskar F. Pétursson
koma engum vörnum við.
ánægður með okkar Ieik. Þetta var
góður árangur gegn liði eins og
Njarðvík og gefur vonandi tóninn
fýrir okkur í Islandsmótinu þar sem
baráttan um sæti í úrslitakeppninni
stendur yfir,“ sagði Sigfús Gizurar-
son, sem var stighæstur Hauka með
27 stig. Pétur var góður framan
af en sást lítið eftir hlé. Breiddin í
liðinu var ekki mikil en baráttan
fleytti því langt, næstum alla leið,
og eiga leikmenn hrós skilið fyrir
það.
Njarðvíkingum tókst engan veg-
inn að hrista heimamenn af sér.
„Við spiluðum illa. Öll pressan var
á okkur og við vorum stressaðir frá
fyrstu mínútu til þeirrar síðustu svo
að ég er ánægður með sigurinn.
Það hefði svo sem verið týpískt að
tapa þessum leik miðað við gott
gengi okkar í vetur. Ég vil fá Kefla-
vík í úrslitum því þar höfum við
harma að hefna síðan í fyrra,“ sagði
Valur sem átti ágætan leik. Teitur
var einnig góður og Kristinn Ein-
arsson skilaði sínu þó að hann virk-
aði þungur. Ronday var góður en
hefur átt betri leiki Ástþór Ingason
hélt Pétri Haukamanni niðri í síðari .
hálfleik. )
KR-stúlkur
íúrslit
Stúlkurnar í KR náðu fram hefnd-
um þegar þær slógu Grindvik-
inga úr bikarkeppninni í körfuknatt-
leik, 67:51. Grindvik-
Frímann inSar byijuðu betur
Óiafsson og það virtist koma ,
skrifarfrá KR á óvart — náð
Gríndavík tólf stiga forskoti, en
þegar KR-stúlkurnar fóru í gang
náðu þær yfirhöndinni og sigurinn
var aldrei í hættu. Helga Þorvalds-
dóttir spilaði mjög vel fyrir KR og
Elínborg var föst fyrir í vörninni en
Stefanía var best heimastúlkna.