Morgunblaðið - 10.02.1995, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1995 D 7
FERÐALÖG
ðendanleg fjðlbreytnl
á skfðasvæðinu
við Kirchberg
FLUGLEIÐIR hófu flug til Salz-
borgar í Austurríki 4. febrúar og
fljúga þangað alla laugardaga til
11. mars. í tengslum við flugið
bjóða Flúgleiðir skíðapakka með
gistingu í Kirchberg í Tíról og ís-
lenska fararstjórn.
Kirchberg er ákaflega fallegur
bær þar sem lífið á veturna snýst
um skíði og aðrar vetraríþróttir.
Skíðalönd Kirchberg og Kitzbúhel
eru hin sömu og þar finna allir
brekkur við sitt hæfi. Lyftur og
kláfar eru 65 talsins, skíðabrekk-
urnar um 200 km að lengd og
gönguskíðaleiðir jafnlangar. Það
tekur góðan skíðamann um tvo
mánuði að kynnast öllum brekkun-
um og þeim leiðum sem hægt er
að velja sér á svæðinu. Fjöibreytn-
in er nánast óendanleg.
Brekkurnar eru allar merktar
þannig að skíðamenn vita hvort
þeir eru að leggja í auðvelda, miðl-
ungs eða erfiða brekku. Þá ér
hægt að renna sér tugi kílómetra
á einum degi í svokölluðu skíða-
safaríi.
Lyftukort fást í ýmsum útgáfum
en sem dæmi má nefna að 6 daga
kort kostar rúmar 11 þús. kr. og
13 daga kort 19.500. Lyftukortin
gilda einnig í skíðarútur sem aka
á milli Kirchberg og Kitzbúhel all-
an daginn og fram á kvöld.
I boði er skíðakennsla fyrir alla
og mjög góð aðstaða er fyrir böm-
in. Skíðaskóli fyrir böm frá 4ra
ára aldri er við fjallsræturnar og
þar er vel hugsað um þau allan
daginn í skemmtilegu umhverfi.
Kennslá fyrir börn með hádegis-
verðarhléi frá kl. 9.30-15 í skíða-
skólanum Total kostar t.d. 3.100
kr. á dag og 7.450 í 5 daga. Hádeg-
ismatur og gæsla kostar um 500
kr. á dag. Dæmi um verð fyrir
kennslu fullorðinna er 3.400 á
dag, 7.140 kr. í 3 daga og 7.760 í
5 daga. Kennt er á gönguskíði í
minnst fjögurra manna hópum.
Kennsla á dag kostar um 3.700
krónur og um 5.600 kr. fyrir tvo
daga.
Ekki má gleyma mat og drykk
sem hvort tveggja er hægt að nálg-
BÖRNIN verða ekki svikin af skíðaferð til Austurríkis. Að-
staða er öll eins og best verður á kosið, skíðakennsla við allra
hæfi og ekki spillir fyrir að veðrið er næstum alltaf gott.
ast fyrir hóflegt verð nánast á
hveiju horni og hverri brekku. Og
fyrir þá sem ekki hníga niður úr
þreytu strax eftir kvöldmat er úr
ýmsu að velja. í Kirchberg em fjöl-
mörg kaffíhús, öldurhús og dans-
staðir þar sem hægt er að skemmta
sér fram undir morgun. Þar verða
ýmsar óvæntar uppákomur eins
og sú sem austurríska dagblaðið
Kleine Zeitung sagði frá fyrir
skömmu. Þá lá litlu barni mikið á
að komast í heiminn. Móðir þess
sat og hafði það huggulegt á kaffi-
húsi i Kirchberg þegar hún fékk
hríðir. Og hún komst ekki langt
því að innan fárra mínútna var
drengurinn fæddur.
Flugleiðir bjóða gistingu á hótel-
um, gistihúsum eða íbúðahótelum
sem eru öll í göngufæri við skíðar-
útur og/eða skíðalyftur. Tekið er
á móti Flugleiðafarþegum á flug-
vellinum í Salzburg af austurríska
fararstjóranum og skíðakennaran-
um Rudi Knapp. Hann hefur aðset-
ur í Kirchberg og skipuleggur
skoðunarferðir þaðan. í boði er
m.a. skoðunarferð um Hahnenk-
amm-svæðið, skíðasafarí í einn
dag, skíðaferð á stuttum skíðum
(sk. ,,big-foot“-skíðum) og sleða-
kvöld. Rudi hefur mikla reynslu
af fararstjórn með íslenskum
ferðamönnum og talar prýðilega
íslensku.
Flugleiðir hafa gefið út bækling
um skíðaferðir til Austurríkis og
þar eru allar upplýsingar um gisti-
möguleika, bílaleigubíla, verð o.fl.
Gréta Ingþórsdóttir
\
ca eða Víetnam,
fari eða i"-"—
Hönnunarnám
og afsláttarkort
í ár er í boði námskeið eða
lengra nám í hönnunarskólanum
Istuto Europeo di Design í Mílanó
sem einnig má stunda í Róm,
Madrid eða Toledó. Kennd er
m.a. fatahönnun, skart-
gripasmíði, leikmynda- .
hönnun, tölvu- og sjón- -
varpsgrafík og iðn
hönnun. Bækling-
ur um skólann
kemur út
mars.
Sem fyrr
býður FS
fargjöld
fyrir
ungt
fólk
og námsmenn, s.s. Kilroyfargjöld-
in sem gilda í langan tíma og eru
sveigjanleg. Einnig er að fá að-
gang að Countdown afsláttar-
klúbbnum og næst þá ýmis konar
afsláttur víðs vegar í heiminum.
Þetta kort er fyrir fólk á öllum
aldri. Ennfremur tvö alþjóðleg
afsláttarskírteini fyrir ungt fólk
og námsfólk; ISIC er alþjóðlegt
námsmannaskírteini og G025
sem er alþjóðlegt afsláttarskír-
teini.
Ferðir með Encounter
Overland
Ferðir með Encounter Overland
eru vinsælar hjá FS. Þetta eru
safaríferðir um Afríku, Asíu og
S-Ameríku; 70 ferðir, stuttar og
langar.
Ferðast er í sérbúnum trukkum
og allir hjálpast að við störf svo
sem eldamennsku og matarinn-
kaup. Þá eru ferðir um önnur
fjarlæg lönd t.d. Víetnam og
einnig eru Kúbuferðir,
borgarferðir og FS selur In-
terrail kortið sem gildir um
ákveðin svæði í Evrópu í allt
að 30 daga. ■
j.k.
Kók til Norður-Kóreu
FORSVARSMENN Coca Cola-
fyrirtækisins eru nú að þreifa
fyrir sér hjá Norður-Kóreu-
mönnum um að setja upp verk-
smiðju þar í landi inn-
an tíðar. Engin niður-
staða hefur verið birt,
en viðræður fóru fram
milli Park Gil Yon,
fulltrúa N-Kóreu hjá
Sameinuðu þjóðunum
og yfirmönnum fyrir-
tækisins í Atlanta ný-
lega.
Coca Cola er fáan-
legt á stærstu hótelun-
um í Pyongyang og í
dollarabúðum og eitt-
hvað á svarta markað-
inum. En það er hvorki auglýst
né hefur fyrirtækið neinn um-
boðsmann í landinu. „Við erum
til í að fara hvert á land sem
er, jafnvel á Norðurpólinn ef
við héldum að við gætum selt
vöru okkar,“ er haft eftir Ric-
hard Nicholas, eins fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins.
Frá þessu segir í Far
Eastern Economic
Review. Bætt er við að
Norður-Kórea hlyti að
verða meiriháttar
prófsteinn á markaðs-
stefnu fyrirtækisins,
því erfitt gæti reynst
að fá fólk til að kaupa
drykk sem það tengir
samstundis hinum
úrgu og úrkynjuðu
Vesturlöndum, að
dómi markaðsfræð-
inga í Suður-Kóreu. En
forráðamenn Coke eru hvergi
bangnir og benda á að þeir
hafi brotið niður ýmsa múra
og taka þá Kina sem nýjasta
dæmið. _
Ferðamanna-
Mönusta
í Gambíu í rúst
í DÖNSKUM blöðum er sagt frá
því að ferðamannaþjónusta í
Gambíu hafi gersamlega hrunið
eftir að byltingin var gerð í landinu
í júlí. Hún fór fram án blóðsúthell-
inga en engu að síður standa nú
hótelin auð og á ströndunum sést
ekki sála.
Síðustu árin hefur Gambía ekki
getað tekið á móti öllum þeim
ferðamönnum sem vildu koma til
landsins, einkum frá Skandinavíu,
en nú er öldin önnur. 1993-94
komu 150 þús. ferðamenn til lands-
ins en fólk í ferðaþjónustu spáir
því að í ár verði gestir varla yfír
30 þúsund.
FARÐU þínar eigin leiðir
heitir bæklingurinn frá
Ferðaskrifstofu stúdenta
1995 enda er þar fjallað um
ýmsar ferðir utan alfaraleiða
og fítjað upp á ýmsum nýj-
ungum. Árið 1995 er 15.
starfsár ferðaskrifstofunnar
sem annast einnig almenna
ferðaþjónustu, hvort sem eru
orlofs- og viðskiptaferðir.
Jamalca og klúbbur 18-30
Geta má ferða til Jamaica
m í Karíbahafi og einnig eru
£ ferðir með Klúbb 18-30 til
þekktra sólarstaða Miðjarð-
arhafsins, Ibiza, Korfu, Ró-
£| dos, Krít og Kos. Markmið
£ þeirra er að menn njóti lífsins
ftU en minna lagt upp úr gisti-
stöðum og þjónustu.
DANS og hljómlist er í háveg-
um höfð i Gambíu eins og er
í öllum V-Afríkuríkjunum.
Skandinavar, einkum Danir og
Svíar, hafa sótt til Gambíu síðan
1965 og hefur landið verið kallað
Karabía Afríku vegna ómengaðs
sjávar og fagurra stranda. ■
Morgunblaðið/JK
Frá Damaskus.
British flir-
ways aftur
til Damascus
TALSMAÐUR British Airwa-
ys hefur greint frá því að á
árinu muni flugfélagið hefja á
ný reglulegt flug til Damascus
á Sýrlandi eftir tíu ára hlé.
Haft var eftir aðalfram-
kvæmdastjóra BA að vegna
breytinga í pólitísku landslagi
og loftslagi Miðausturlanda
væri talið eðlilegt að taka
Damascus inn á áætlun. Eng-
um blandaðist hugur um að á
næstu árum mundi vaxa mjög
eftirspurn farþega til Miðaust-
urlanda. BÁ ákvað fyrir
nokkru að hefja einnig ferðir
til Beirút og Ámman.
Víetnam elnnig i sjónmálí
Þá eru að hefjast samningar
um flug BA til Víetnams, sem
án efa verður það einstaka
land í þessum heimshluta sem
hvað hröðust ferðamanna-
fjölgun verður til á næstu
árum. ■