Morgunblaðið - 15.02.1995, Page 1
+
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
B
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MIÐ VIKUDA GUR 15. FEBRUAR 1995
BLAÐ
EFNI
Aflabrögð
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipanna
Markaðsmál
0 Útflutningur á
óunnum ísuðum
botnfiski dregst
stöðugt saman
Greinar
7 Jón Heiðar
Ríkharðsson
og Sveinbjörn
Jónsson
MJÖLVINNSLAN HAFIN
WM
h P' ‘ífe-í
Morgunblaðlð/Muggur
Óheimilt að veita Ammassat
undanþágu frá veiðibanni
Sjávarútvegsráðherra
segist ekki bijóta lög
ÞORSTEINN Pálsson sjávarút-
vegsráðherra segir að óheimilt
sé samkvæmt lögum að veita
East-Greenland Codfish, sem
gerir út loðnuskipið Ammassat,
undanþágu frá loðnuveiðibanni sunnan 64°30’N og eftir 15 febrúar. Græn-
lenska heimastjórnin hefur sent formlega beiðni til sjávarútvegsráðuneytisins
um þessa undanþágu og styður sjávarútvegsnefnd Alþingis, auk nokkurra fiski-
mjölsframleiðenda hér á landi, þá umleitan á þeii’ri forsendu að það þjóni hags-
munum íslands. „Það er verið að mæla með því að ráðuneytið bijóti lög og jafn-
vel þótt sjávarútvegsnefnd Alþingis leggi það til er mér að sjálfsögðu með öllu
óheimilt að bijóta lög og alþjóðasamninga sem ísland er aðili að,“ segir Þorsteinn.
+
í tilefni af því að grænlenska heima-
stjórnin hefur óskað eftir breytingum
á þríhliða samningi íslands, Grænlands
og Noregs um loðnuveiðar úr sam-
eiginlegum stofni landanna segir Þor-
steinn hins vegar að næsta skref í
málinu verði að leita eftir afstöðu sjó-
mannasamtakanna og útvegsmanna
sem hafí jafnan fylgst grannt með
umræddum samningum.
Aflanum landað á íslandi
Einar Hallsson framkvæmdastjóri
East-Greenland Codfish er vonsvikinn
yfir afstöðu sjávarútvegsráðherra og
vonar að málið verði tekið til endur-
skoðunar hið fyrsta. „í raun er verið
að beina þeim tillögum til ráðherra að
hann endurskoði þessi lög í heild og
við gerðum okkur grein fyrir því að
málið þyrfti að fara fyrir Alþingi. Það
sem við vonuðum var að Alþingi veitti
ráðherra heimild til að gefa undanþágu
frá_ þessum lögum.“
í greinargerð sem Einar sendi ráðu-
neytinu vegna umleitunarinnar kemur
fram að sakir tímatakmarkana hafi
félaginu ekki tekist að veiða nema
brot af aflaheimildum. Vertíðina
1993-94 hafi Ammassat einungis náð
að veiða 13 þúsund tonn af loðnu fyr-
ir 15. febrúar en hafði heimildir til að
veiða 25 þúsund tonn. Á sömu vertíð
var mismunurinn á því sem íslensk
loðnuskip veiddu og kvótanum 69 þús-
und tonn.
Öllum afla grænlensku útgerðarinn-
ar hefur verið landað á íslandi og seg-
ir Einar að sú staðreynd sé íslending-
um mjög í hag. Á yfirstandandi vertíð
hefur félagið aflaheimildir upp á 45
þús. tonn og verði þeim afla öllum
landað á íslandi geti það aukið útflutn-
ingsverðmæti íslands um meira en einn
milljarð króna.
íslendlngar í áhöfn
Matthías Bjarnason formaður sjáv-
arútvegsnefndar Alþingis segir að
nefndin mæli einróma með því að sjáv-
arútvegsráðuneytið veiti East-Green-
land Codfish undanþáguna sakir þess
að aflanum sé skipað á land og hann
unnin hér á landi sem stuðli að auknum
útflutningi þjóðarinnar.
Bæjarráð Eskifjarðar er einnig með-
al þeirra aðila sem lýst hafa yfir stuðn-
ingi við beiðni Grænlendinganna en
nokkrir Eskfirðingar eru í áhöfn Anun-
assat og munu þeir missa vinnuná frá
og með deginum í dag.
Fréttir
Þau þjónusta
gúmmíbátana
• HJÓNIN Svana Anita
Högnadóttir og Ingi Páll
Karlsson eiga og reka
Gúmmíbátaþjónustuna í
Vestmannaeyjum. Þau sjá
um skoðanir og viðgerðir á
gúmmíbátum og björgun-
argöllum Eyjaflotans og
annarra þeirra báta og
skipa sem eftir þjónustu
þeirra leita. Bæði hafa þau
réttindi til að annast slíkar
skoðanir og er Svana eina
konan á íslandi sem hefur
réttindi til slíks og ein af
fjórum eða fimm konum í
heiminum sem hefur náð
sér í þau réttindi./3
Venus fer
til Póllands
• ÁKVEÐIÐ hefur verið að
frystitogarinn Venus fari í
viðgerð og breytingar hjá
Nauta skipasmíðastöðinni í
Gdansk í Póllandi. Skipið
verður Iengt og innréttað
upp á nýtt, íbúðir og
vinnsludekk og fleira.
Kostnaður er áætlaður með
öllu allt að 430 miiyónir
króna. Venus fer í marz og
verður vinnu við skipið lok-
ið að áliðnum ágúst, stand-
ist áætlanir. Tilboð í endur-
bætur á Venusi bárust frá
Póllandi, Danmörku, Fær-
eyjum og Islandi, en það
lægsta frá Nauta-stöðinni í
Gdansk./4
Nýr lás fyrir
fléttað tóg
• FYRIRTÆKIÐ Grip sf. í
Keflavík hefur nú hannað
og sett á markað lás fyrir
fléttað tóg, sem mikið er
notað í stóru Gloríutrollun-
um og víðar í útveginum.
Með lásnum, sem kallast
Grip og er steyptur úr áli,
er á einfaldan hátt hægt að
skeyta saman endum án
þess að hnýta þá./8
Fiskur úr dós
vinsælastur
• VIÐ FYRSTU sýn virðist
ný skoðanakönnun um fisk-
neysluvenjur Bandaríkja-
manna gefa íslenskum út-
gerðarmönnum tilefni til
bjartsýni; 94 af hundraði
aðspurðra kváðust borða
fisk. En ekki er allt sem
sýnist: Vinsælast er að
borða fisk úr dós og fæstir
leggja sér fisk reglulega til
munns./8
Markaðir
Lítið flutt
utan óunnið
• BOTNFISKAFLI okkar
íslendinga þetta fiskveiðiár-
ið hefur að stærstum hluta
komið til vinnslu hér heima,
það er til vinnslu í landi eða
úti á sjó. Botnfiskaflinn
þetta tímabil varð, frá fyrsta
september til loka janúar,
varð alls 164.164 tonn sam-
kvæmt aflatölum Fiskistofu.
Uppistaða afglans er þorsk-
ur og karfi. Tæplega 50.000
tonn af þorskinum komu til
vinnslu í landi, 13.300 voru
fryst eða söltuð um borð í
vinnsluskipum, 1.200 tonn
fóru utan í gámum og siglt
var með 318 tonn, sem er
minna en nokkru sinni í
mörg ár.
Ráðstöfun botnfiskafla
Sept. 1994-jan. 1995
0 20 40 60 80 100 Þús.
lonn
Gámar
| | Þorskur
Kartl
[ [Aðrarleg
SAMTALS 64.587 jn qoo c.q cqa 1
164.1641. tonn tonn tonn \
Karfinn mikið
frystur um borð
Ráðstöfun botnfiskafla
Sept. 1993- jan. 1994
Alm.
löndun
Vinnslu-
skip
Gámar
Slgling
0 20 40 60 80 100 Þús.
tonn
H..........1'
SAMTALS 80.461 37.481 8383? I
171.7741. tonn tonn tonn |
%
| 1 Þorskur
[Jkarfl
[~]Aðrarleg
• RAÐSTOFUN botn-
fiskaflans var með svipuð-
um hætti á saina tímabili
síðasta fiskveiðiár. Heldur
lægra hlutfall þorsksins fór
þá til vinnslu í landi, en
hlutfall vinnsluskipa var
svipað. Þá fór líka mun
meira utan í gámum og með
fiskiskipum, þó ekki teljist
það mikið á mælikvarða
áranna í kringum 1990.
Karfinn fer eins og nú
meira í frystingu um borð
í vinnsluskipunum en í
Iandi./6