Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
WmwwJW$Stíb
1995
SUND
ÞRIÐJUDAGUR21. MARZ
BLAÐ
C
Bryndís í
landsliðið
BRYNDÍS Ólafsdóttir, sundkona
úr Ægí, er kominn á ný í landslið-
ið í sundi og mun keppa með
landsliðinu á Smáþjóðaleikunum
í Lúxemborgí maí. Sautján sund-
menn fara til Lúxemborgar. Ey-
dís Konráðsdóttir og Berglind
Daðadóttir, Keflavík, Elín Sigurð-
ardóttir og Birna Björnsdóttir,
SH, Þorgerður Benediktsdóttir,
Óðni, Lára Hrund Bjarnadóttir,
Margrét Vilborg Bjarnadóttir,
Bryndís Ólafsdóttir og Hildur
Einarsdóttir, Ægi. Logi Jes Krist-
jánsson, IBV, MagnúsKonráðs-
son, Keflavík, Óskar Örn Guð-
brandsson, ÍA, Arnar Freyr Ólafs-
son, Þór, Ómar Þorsteinn Árna-
son, Óðni og Richard Kristinsson,
Sigurgeir Þór Hreggviðsson og
Magnús Már Ólafsson, Ægi. Þeir
sundmenn sem eru í afreks-
mannabópi Sundsambandsins eru
Eydís, Elín, Arnar Freyr, Magnús
Már, Magnús Konráðsson, Logi
Jes pg Sigurgeir Hreggviðsson
og Óskar Örn Guðbrandsson, sem
syntu sig inn í hópinn í Vest-
mannaeyjum. Þjálfarar eru þeir
Martin Rademecher, Keflavík, og
Auðunn Eiríksson, Óðni.
Þrjú Islandsmet
EYDÍS Konráðsdóttir frá Kefla-
vík var ótvíræður sigurvegari á
Meistaramóti íslands í sundi
innanhúss sem f ram fór í Vest-
mannaeyjum um helgina. Hún
vann besta afrek mótsins í
kvennaflokki, setti þrjú ís-
landsmet og náði auk þess lág-
marki á Evrópumelstaramótlð.
Meistaramótið / C4
KORFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar
Var Rússum byrlað eitur?
Fimm leikmenn CSKA Moskvu fluttir á sjúkrahús skömmu fyrir leik
Formaður rússneska körfuboltafélags-
ins CSKA Moskva sagði í gær að
leikmönnum sínum hefði verið byrlað eit-
ur fyrir leik liðsins gegn gríska liðinu
Olympiakos í átta liða úrslitum Evrópu-
keppni meistaraliða í Aþenu fyrir helgi.
Gríska liðið vann 79:54 en fímm leikmenn
CSKA foru fluttir á sjúkrahús skömmu
áður en viðureignin hófst og fylgdust
þeir þar með leiknum í sjónvarpi.
Að sögn formannsins fengu leikmenn-
irnir allt í einu krampa og svimaði eftir
að hafa drukkið vatn og sjálfur sagðist
hann hafa fengið höfuðverk eftir að
hafa'fengið sér aðeins einn sopa af vatn-
inu. Hann sagði að vatnið hefði verið
tekið til rannsóknar og blóð- og þvag-
sýni tekin af leikmönnunum. Yfirlýsing
yrði gefin út þegar niðurstöður lægju
fyrir, sennilega í dag, en hann vildi ekki
kenna gestgjöfunum um. „Við ætlum
ekki að saka gestgjafana. Allar flöskurn-
ar voru innsiglaðar en þeir eiga jafn
marga óvini og vini í Grikklandi. Þetta
er spurning um peninga," sagði hann.
CSKA gat aðeins teflt fram fimm
mönnum og þrír menn luku leiknum þar
sem tveir voru farnir af velli eftir að
hafa fyllt villukvótann.
Einarreynirfyrir
sér á atvinnu-
mannamótum
EINAR Sigurgeirsson ætlar að reyna fyrir sér
á atvinnumótaröðunum í tennis næsta haust.
Einar hefur æft í Þýskalandi frá því í haust hjá
klúbbi í Karlsruhe en kom hingað til lands og
keppti á Meistaramóti TSÍ í TciinishöIIin ni um
helgina.
„Það fylgja þessu m ikil ferðalög og ég kem
til með að sækja mót í Afriku og Asíu og freista
þess að fá ATP-punkta sem gefa mér rétt til
að leika á stærri mótum," sagði Einar sem
hyggst reyna fyrir sér á „Satelite-mótaröðinni.
Ég á að minnsta kosti þrjú til fjögur mjög góð
ár eftir og mig langar að sjá hvað ég kemst
langfc"
Atvinnumótaraðirnar sem viðurkenndar eru
og veita styrkleikastig Alþjóða-tennissambands-
ins eru þrjár og misjafnar að styrkleika, „Sate-
l itc-mótiu" eru þau veikustu en þeir sem ná
góðum árangri í þeim mótum fá styrkleikastig
og eiga möguleika á að keppa á mótum á „Chal-
langing rb'ðinni," síðan er mót í „World-series"
og sterkari spilararnir í þeirri deild fá rétt til
að keppa á risamótunum sem gjarnan eru nefnd
„Grand slam".
„Ég hef verið að æfa stift upp á síðkastið og
það þýðir ekkert að fara út í þetta öðru vísi en
í toppformi. Mér hefur gengið þokkalega, unnið
þrjú peningamót í Frakklandi en á ennþá ekki
möguleika á sama árangri í Þýskalandi þar sem
mótin eru sterkari þar," sagði Einar.
¦ Einar / C2
¦ Meístaramótið / C7
Guðni með Bolton á Wembley
Spurning hvernig
ég verð klæddur
GUÐNI Bergsson skrifaði í gær undir rúmlega
eins árs samning við enska félagið Bolton Wand-
eres sem leikur í 1. deildinní og á góða mögu-
leika á að komast upp í úrvalsdeildina þvi liðið
er f öðr u sætí deildarinnar.
„Ég skrifaði undir í dag og er mjög feginn
að þetta er búið, það var kominn timi á að eitt-
hvað kæmist á hreint í þessu máli því ég er
búiiin að vera hér úti í einar níu vikur," sagði
Guðni í samtali við Morgunblaðið í gær.
Guðni var spurður hvort hann færi á Wembl-
ey en þar leikur Bolton til úrslita við Liverpool
í deildarbikarkeppninni 2. apríl. „Já, ég fer á
Wembley, það er bara spurning hvernig ég verð
klæddur, hvort ég verð sitjandi eða hlaupandi.
Annars geri ég ekkert frekar ráð fyrir að leika
mikið á þessu tunabiU. Vönún hefur leikið vel
að undanförnu og ég á því allt eins von á að
þurfa að bíða talsvert eftir leik og naga þvi
ekki neglurnar þó ég leiki ekki á Wembley, þó
óneitanlega yrðiþað gaman," sagði Guðni.
Landsleikur við
Færeyinga 2. júlí
KSÍ hefur verið í viðræðum víð Knattspyrnusam-
band Færeyja og eru Færeyingar tilbúnir að
leika landsleik hér á landi sunnudaginn 2. júli.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins vill KSÍ
leika á Austfjörðum en það er háð samkomulagi
heimamanna. Eins er verið að kanna möguleika
á því að íslenska U-21s árs liðið leiki við b-lið
Færeyinga í Færeyjum á sama tíma. Það færi
þá héðan á laugardegi, Færeyingar tækju sömu
flugvél til baka, færu heim strax eftír leik og
íslenski hópurinn nýtti ferðina til 1 slands.
ÓmaríStjörnuna
ÓMAR Sigtryggsson gekk um helgina frá fé-
lagaskiptum úr Fram í Srjörnuna sem er í 2.
deild. Knatts'pyrnumaðurinn er i námi i Banda-
rikjunum en kemur heim í lok apríl. Hann
kemur í staðinn fyrir Bjarna Benediktsson sem
meiddist í fyrra og virðist vera úr leik.
KÓRFUKNATTLEIKUR: MICHAEL JORDAN AFTUR MEÐCHICAGOIIMBA / C12