Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 12
KORFUKNATTLEIKUR Jordan snýr aftur MICHAEL Jordan lék fyrsta leik sinn með Chicago í NBA-deild- inni í 656 daga er liðið mætti Indiana á heimavelli sínum á sunnudaginn. Þó svo að Chicago hafi tapað leiknum 103:96 eftir f ramlengingu sýndi Jordan að hann hefur litlu gleymt. Hittnin var að vísu ekki eins og hún var fyrir tveimur árum, en líkamlegt ástand kappans er mjög gott og með meiri leikæfingu rata skotin ofaní. Hann lék samtals í 43 mínútur. Jordan sagðist ánægður með að vera mættur i slaginn á ný. „Tímasetningin á skotunum er ekki alveg eins og hún var Frá en það kemur. Þetta Gunnari er aðeins fyrsti leik- Valgeirssyni urinn og ég þarf smá í Bandaríkjunum t;ma til að ná rétta taktinum aftur. Ég er ekki ánægður með að tapa fyrsta leiknum en er þó sáttur við minn leik,“ sagði Jord- an á blaðamannafundi eftir leikinn. Hann hitti aðeins úr sex skotum af 28 utan af velli. „Ég snéri aftur einungis vegna þess að ég hef yndi af leiknum. Ég er ekki að gera þetta peninganna vegna því ég fæ jafn mikið hvort sem ég spila eða ekki. Ástæðan fyrir því að ég hætti á sínum tíma var sú að ég var orðinn mjög þreyttur og ég ætlaði ekki að byija aftur. En aðstæður hafa breyst og ég var orðinn hungraður í að fá að spila aftur. Ég vildi gera eitthvað jákvætt fyrir körfuboltann því umræðan hefur verið svolítið neikvæð í NBA-deiIdinni síðan ég hætti.“ Jordan, sem er 32 ára, byrjaði Reuter JORDAN valdl aö vera númer 45 eins og í hafnaboltanum en gamla númerlö hans, 23, var sett á heiðurstall og má enginn nota þaö hjá félaginu framar. frekar illa og hitti ekki úr fyrstu sex skotum sínum. Og skoraði fyrsta stigið sitt úr víti þegar 8 mínútur voru eftir af fyrri hálfleik en síðan bætti hann sex stigum við fyrir hálfleik. Hann náði sér ekki á flug eins og hann var þekktur fyrir — að hanga í loftinu og leggja boltann í körfuna. Hann notaði mest stökkskot í leiknum. „Hann fór rólega af stað og var svolítið hikandi. Það eru að- eins þrír leikmenn í liðinu sem hafa leikið áður með honum og það hafði sitt að segja,“ sagði Phil Jackson, þjálfari Bulls. „Hann kemur til með að leika mun betur og það sama á við um liðið.“ Indiana byijaði betur og komst í 13:2 og leiddi með tíu stigum í hálfleik, 47.37. Indi- ana hafði forystu í leiknum allt þar til Scottie Pippen jafnaði, 92:92, með þriggja stiga körfu þegar 19 sekúndur voru eftir og tryggði fram- lenginu. En gestirnir voru sterkari á enda- sprettinum og unnu 103:96. Chicago hitti aðeins úr tveimur af 13 skotum sínum í fram- lengingunni. Pippen var stigahæstur í liði heimamanna með 21 stig en Reggie Miller gerði 28 stig fyrir Pacers. Chicago á 17 leiki eftir í riðlakeppninni og segir Jackson, þjálfari, að stefnan sé að komast upp í 5. sæti í riðlinum, en liðið er núna í sjötta sæti. Ef röðin verður eins og hún er nú myndi Chicago mæta New York í fyrsta leik í úrslitum og það vilja Jackson og félagar helst ekki. „Kóngurinn" er kominn til baka PHIL Jaekson, þjálfari Chicago Bulls, tilkynnti formlega á æfingu á laugardag að Michael Jord- an myndi spiia gegn Indiana á sunnudaginn. „Það er búið að ganga frá öllu og „HANN“ er kominn til baka,“ var það eina sem þjálfarinn sagði um endurkomu hans við blaðamenn. Jordan vildi sjálf- ur byrja sl. fimmtudag i leik gegn Milwaukee, en stóðsjt ekki læknisskoðun. Miðar seldust á 65 þúsund krónur UPPSELT var á leik Chicago og Indiana fyrir tveimur vikum síðan, en þá átti enginn von á að Jordan myndi spila. Þegar fréttist að hann myndi spila fóru miðar á 1.000 dollara, cða 65 þúsund krónur, á svörtum markaði. Daginn fyrir leik þurfti að bæta við aðstöðu fyrir 200 blaðamenn vegna endurkomu Jordans og komust færri blaða- menn að en vildu. Þénar um tvo milljarða á ári ÞEGAR Jordan hætti fyrir 18 mánuðum var hann samningsbundinn Chicago út þetta keppn- istímabil og það næsta. Hann fær 4 miljjónir dollara (260 milljónir íslenskar krónur) á ári fyrir þann samning og skiptir ekki máli hvort hann spilar eða ekki. Talið er að hann þéni um 30 milljónir dollara, eða um tvo miiyarða is- lenskra króna á ári í formi auglýsingatekna. Hann var stigahæsti leikmaður NBA-deiIdarinn- ar sjö ár í röð og með hæsta meðalskor allra leikmanna frá upphafi með 32,3 stig í leik. Lottóvinningurtil NBC-sjónvarpsins EFTIR að það fréttist að Jordan hyggðist byrja aftur í körfuboltanum hækkuðu verðbréfin í þeim fyrirtækjum sem hann hefur auglýst fyrir um tvær miUjónir doUara á einni viku. „Þetta er eins og vinna í lottóinu," sagði einn forráðamanna NBC- sjónvarpsstöðvarinnar, sem hefur einkarétt á beinum útsendingum frá NBA-deildmni. HANDKNATTLEIKUR / HM 95 ENGLAND: 111 121 211 X221 ITALIA: 221 X1X 21X X11X Morgunblaðið/Sverrir Verdlaunagripirnir afhjúpadir EFTIR tæplega s]ö vlkur hefst HM í handknattleik á íslandl. Á laugardaglnn voru 50 dagar í fyrsta leik og af því tllefni var sérstök hátíö í Kringlunni. M.a. voru verAlaunagripir HM 95, sem Jens Guðjónsson gullsmlöur hannaðl, afhjúpaðlr og á myndinnl til hllAar skoAa gestir gripina en á efri myndlnni afhendir Ólafur B. Schram, formaAur HSÍ, Blrgi ísleifi Gunn- arssyni, seölabankastjóra, gullpening, eins og velttur verAur fyrir 1. verAlaun á HM, til varAvelslu í safni bankans.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.