Morgunblaðið - 21.03.1995, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995
c
3
KORFUKNATTLEIKUR H HANDBOLTI
Sigri „stolið"
meistaralega
„BORGNESINGAR eru rosalega
erfiðir á heimavelli, spila agað
og vel,“ sagði Teitur Órlygsson
leikmaður Njarðvíkinga eftir að
Njarðvíkingar sigruðu Borgnes-
inga naumlega, 79:80, f öðrum
leik liðanna í undanúrslitum úr-
valsdeildarinnar í körfuknattieik
í Borgarnesi á sunnudaginn.
Þeir slógu okkur út af laginu í
seinni hálfleik og náðu góðu
forskoti og við voru heppnir að missa
þá ekki lengra frá
Theodór okkur. En við gáf-
Þórðarson umst ekkert upp og
skrifar tókum áhættuna á
að brjóta og stoppa
þannig klukkuna, þeir klikkuðu síð-
an á vítum og Frikki kláraði þetta
síðan með því að setja niður 3ja stiga
skot alveg í restina," sagði Teitur.
„Við getum verið stoltir af
frammistððu okkar í þessum leik,“
sagði Tómas Holton leikmaður og
þjálfari Skallagríms. „Við unnum
upp 10 stiga forskot í seinni hálfleik
og settum okkur í stöðu til að vinna
leikinn með frábærri liðsheild og
frábærum stuðningi áhorfenda. En
síðan hentum við sigrinum frá okkur
á síðustu sekúndunum og af því
verðum við að læra og gera betur
næst.“
Borgnesingar höfðu í fullu tré
gegn Njarðvíkingum nær allan fyrri
hálfleikinn og var leikurinn jafn og
spennandi. Undir lokin vildi boltinn
ekki ofaní hjá Borgnesingum og liðs-
menn Njarðvíkur voru eldfljótir upp
í sóknina og refsuðu grimmilega,
komust síðan framúr og náðu 11
stiga forskoti fyrir leikhlé, 38:49.
Allt var í járnum fram undir miðj-
an síðari hálfleikinn en þá fóru hlut-
irnir að ganga upp hjá liðsmönnum
Skallagríms. Þar fóru fremstir þeir
Tómas, Ermolinskíj og Henning.
Borgnesingarnir náðu að saxa á for-
skot Njarðvíkinga og síðan að kom-
ast yfir þegar 3 mínútur voru eftir.
Heimamenn voru síðan yfir næstu
mínúturnar og virtust Njarðvíkingar
ekki eiga neitt svar við leik liðsins.
Teitur örlygsson náði þó að minnka
muninn en Skallagrímur var tveimur
stigum yfir þegar 4 sekúndur voru
eftir af leiktímanum. Þá fékk Friðrik
Ragnarsson boltann og náði að skora
3ja stiga körfu fyrir Njarðvíkinga
og gerði þar með út um leikinn.
Láðin mætast þriðja sinni í kvöld,
í Njarðvík, og með sigri komast ís-
landsmeistarar Njarðvíkinga í úrslit.
Morgunblaðið/Bjami
MARK Allen Mltchell, nýjl Bandaríkjamaðurinn í llöi Grlndvík-
Inga, lék ágætlega í lelknum í Keflavík. Það var aðelns annar
lelkur hans með llðinu því Mltchell kom til Grindavíkur í síð-
ustu viku, eftir að Frank Booker var látinn fara.
Keflvfldngar jöfnuðu
gegn Grindvfldngum
„ÉG var alveg rosalega stress-
aður og get varla lýst því hvern-
ig mér leið þegar fyrra skotið
geigaði, en svo hitti ég úr
seinna skotinu og það var góð
tilfinning," sagði Kristján Guð-
laugsson leikmaður Keflvíkinga
eftir að hann hafði tryggt liði
sínu sigur gegn Grindvíkingum
í öðrum leik liðanna í undanúr-
slitum íslandsmótsins. Villa var
dæmd á Grindvíkinga þegar 1,7
sekúnda var eftir af leiknum
og staðan 89:89. Kristjáni mis-
tókst í fyrra skotinu, en hitti
úr því síðara 90:89, - og leik-
tíminn rann út án þess að
Grindvíkingum tækist að svara.
í hálfleik var staðan jöfn 46:46.
Þetta var annar leikur liðanna
í undanúrslitunum og er staðan
jöfn 1:1 en það lið sigrar sem
fyrr sigrar í þrem leikjum og
mætast liðin í þriðja leik í
Grindavík í kvöld.
Leikurinn í Keflavík var jafn oj
spennandi frá fyrstu til síðusti
mínútu og góð stemmning meða
1.100 áhorfend;
Björn sem fylgdust mei
Blöndal honum. Grindvík
skrifarfra ingar náðu góður
kafla í upphafi fyri
hálfleiks og náðu þá.ll stiga for
skoti og virtust vera að stinga ai
en Keflvíkingar svöruðu með þ\
að setja 14 stig í röð og komust
þar með inn í leikinn að nýju. Loka-
mínúturnar voru æsispennandi,
Grindvíkingar náðu 4 stiga for-
skoti þegar um 2 mínútur voru
eftir og virtust líklegir til sigurs,
en heimamenn voru ekki á þeim
buxunum og með feiknagóðri bar-
áttu tókst þeim að knýja fram sig-
ur.
„Þetta var hálf klaufalegt hjá
okkur í lokin, því við vorum komn-
ir með góða stöðu en gerðum þá
mistök nokkrum sinnum mistök í
vörninni sem kostuðu okkur sigur-
inn í leiknum,“ sagði Friðrik Rún-
arsson þjálfari Grindvíkinga eftir
Ieikinn. „Ég vil þakka ungu
strákunum hvernig fór því þeir
voru hvergi hræddir og voru tilbún-
ir til að taka af skarið þegar á
þurfti að halda. Eins munaði mikið
um að Burns setti nú 23 stig en
aðeins 8 í Grindavík,“ sagði Jón
Kr. Gíslason þjálfari og leikmaður
Keflvíkinga.
Bestir í liði Keflavíkur voru
Lenear Burns, Davíð Grissom,
Kristján Guðlaugsson, Sverrir Þór
Sverrisson, Albert Óskarsson Jón
Kr. Gíslason og Gunnar Einarsson.
Hjá Grindvíkingum var Guðmundur
Bragason mjög góður, Helgi Jónas
Guðfinnsson og Nökkvi Már Jóns-
son voru góðir í fyrri hálfleik. Guð-
jón Skúlason og Mark Allen Mitc-
hell voru einnig ágætir.
Konur stjórna
hjá Skallagrími
Morgunblaðið/Theodór
ÞÆR eru þrjár konurnar sem
stjórna körfuknattleiksdeild
Ungmennafélgsins Skallagríms
í Borgarnesi, Sólrún Rafnsdóttir
sem er formaður, Ingibjörg
Hargrave gjaldkeri og Anna
Steinssen ritari. Auk þeirra eru
tveir meðstjórnendur, Gísli Hall-
dórsson og Bjarni Steinarsson —
og er stjórnin á myndinni hér
til hliðar.
Það var kátt á hjalla hjá
stjórninni er Morgunblaðið leit
við á hádegisfund í Brúarnesti
í Borgarnesi. Aðspurðar hvort
stjórn deildarinnar væri ekki
álíka mikið mál og heimilisrekst-
ur sögðu konurnar að þetta
væri heldur meira mál og segja
mætti að pottarnir væru bæði
fleiri og miklu stærri, veltan
fyrir sl. keppnistímabil hjá deild-
inni hefði t.d. skipt iniHjónum
króna og væri álíka mikil og hjá
litlu fyrirtæki.
Aðspurð um fjáröflun sögðu
stjórnarmenn að reksturinn
væri léttari núna en á síðasta
keppnistímabili. Miklu munaði
núna að hafa komist i úrslit.
Annars væri það misskilningur
að fjáröflunin byggðist einvörð-
ungu á sölu aðgöngumiða, þar
kæmi fleira til. Körfuknattleiks-
deildin væri aðallega studd fjár-
hagslega af Sparisjóð Mýrasýslu
og Mjólkursamlagi Borgfirðinga
en auk þeirra kæmi einnig
stuðningur frá bæjarstjórn
Borgarbyggðar svo og fjölmörg-
um fyrirtækjum í héraðinu. Þá
aflaði deildin einnig tekna með
gos- og sælgætissölu á Ieikjum
og sölu á fatnaði og varningi
merktum deildinni.
Sólrún Rafnsdóttir formaður
sagði að í vetur hefðu um 180
manns æft körfubolta á vegum
deildarinnar, þjálfun yngri
flokka stæði ekki fjárhagslega
undir sér en stefnan væri líka
að styrkja ungviðið því þaðan
kæmu leikmenn framtíðarinnar.
Eyjamenn
öruggir
meðsæli
M.deild
Eg bjóst ekki við að þetta mundi
ganga svona fljótt — að við
yrðum komnir upp þegar við eigum
■■■■■■ þijá leiki eftir i úrsli-
Sigfús Gunnar takeppninni. Við
Guðmundsson fórum mjög afslapp-
skrifar frá aðir í þessa úrslita-
keppni, höfðum allt
að vinna en engu að tapa,“ sagði
Erlingur Richardsson ÍBV eftir að
eyjamenn höfðu sigrað Fram 21-19
í Eyjum á sunnudagskvöld og
tryggt sér þar með réttinn til að
leika í 1. deild á ný eftir eitt ár í
2. deildinni.
ÍBV tók ekkert stig með sér í
úrslitakeppnina, þannig að dæmið
leit ekkert allt of vel út fyrir Eyja-
menn, en þeir hafa svo sannarlega
verið á toppnum á réttum tíma
undir stjórn Sigurðar Gunnarssonar
þjálfara. ÍBV hefur sigrað í öllum
sjö leikjum sínum í úrslitakeppn-
inni, og þrátt fyrir að enn séu eftir
þrír leikir eru Eyjamenn öruggir
með 1. deildar sæti á næsta tímabili.
Leikurinn gegn Fram var í járn-
um allan tímann. Það var nauðsyn-
legt fyrir Framara að fá stig úr
þessum leik og baráttan var til stað-
ar hjá þeim, en það dugði ekki til
Eyjamenn höfðu frumkvæðið undir
lokin og sigruðu með tveimur mörk-
um, 21-19.
Það var enginn sem stóð uppúr
í liði ÍBV, liðið í heild lék vel og
hefur svo verið um flesta leiki þess
í úrslitakeppninni. í þessum leik
voru alls tíu leikmenn sem komust
á markaskoraralistann. Zoltan Bel-
any, sem hefur verið atkvæðamest-
ur Eyjamanna og var það einnig í
þessum leik, gat lítið leikið vegna
meiðsla; haltraði inná til að taka
vítaköst og lék reyndar nokkrar
mínútur en var svo studdur útaf.
Hjá Fram var Hilmar Bjarnason
einna bestur.
RAÐSTEFNUR
Samskipti fjölmiðla
og stjómenda
íþróttamóta
ÓLYMPÍUNEFND íslands, Samtök
íþróttafréttamanna og HM’95 efna
til ráðstefnu um samskipti stjóm-
enda íþróttamóta og fjölmiðla næst-
komandi föstudag.
Fyrirlesarar verða tveir: Audun
Tjomsland, sem var blaðafulltrúi á
Vetrarólympíuleikunum i Lille-
hammer á síðasta ári og Samúel
Örn Erlingsson, starfandi deildar-
stjóri íþrótta á Ríkisútvarpinu.
Eins og yfirskrift ráðstefnunnar
ber með sér, þá verður einkum fjall-
að um hvernig samskipti geta orðið
sem best á milli þeirra aðila innan
íþróttahreyfingarinnar sem stjórna
íþróttamótum annars vegar og
fjölmiðlafólks hins vegar. Til ráð-
stefnunnar er boðið forystumönnum
í íþróttahreyfingunni, íþróttafrétta-
mönnum og öðru áhugafólki um
þessi mái.
Að loknum erindum þeirra Aud-
uns og Samúels verður ráðstefnu-
gestum gefinn kostur á að bera upp
spurningar.
Ráðstefnan verður á föstudag, 24.
febrúar, sem fyrr segir, í fundarsal
ÍBR í íþróttamiðstöðinni í Laugardal
(húsi 1) og hefst kl. 16.30. Þátttaka
í ráðstefnunni er ókeypis, en vegna
takmarkaðs rýmis er óskað eftir
því, að þátttakendur skrái sig ekki
síðar en í dag, þriðjudag, á skrif-
stofu Ólympíunefndar, í símum
687380 eða 813377.