Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 C 9
KIMATTSPYRNA
mm m Reuter
A flugi
LEIKMENIM Arsenal eru komnir í undanúrsllt Evrópukeppni bikarhafa, en hafa ekki verið í
miklum ham á heimavígstöðvum undanfarið. Hér er Glenn Helder „á flugi“ eftir að Robbie
Elliot hjá Newcastle braut á honum á St. James’ Park um helgina.
Fyrsti sigur Atletico
í La Coruna f 24 ár
ARGENTÍNUMAÐURINN Alfio
Basile, fyrrum landsliðsþjálf-
ari Argentínu, sem er átjándi
þjáifarinn sem hefur stjórnað
Atletico Madrid á átta árum,
er að gera góða hluti hjá iið-
inu. Hann stjórnaði þvftil sig-
urs í La Coruna, þar sem það
vann sinn fyrsta leik á Riazor-
leikvellinum í 24 ár.
La Coruna varð fyrir áfalli eftir
aðeins tíu mín., þegar fyrirlið-
inn og leikstjórnandinn Francisco
Fran varð að fara af leikvelli,
meiddur á hné. Heimamenn réðu
gangi leiksins, en gestirnir léku
varnarleik og voru skyndisóknir
þeirra hættulegar. Manolo Sanchez
skoraði sigurmark Atletico með
skalla. Gestirnir léku tíu síðustu
tólf mín., eða eftir að Toni Munoz
var rekinn af leikvelli.
Barcelona varð að sætta sig við
markalaust jafntefli gegn Valencia
á heimavelli, þar sem 68 þús.
áhorfendur voru ekki yfir sig
ánægðir. Real Madrid stefnir að
meistaratitlinum á Spáni — það
var Ivan Zamorano sem skoraði
sigurmark, 1:0, liðsins gegn
Espanol. Þetta var tuttuguasta og
fyrsta mark hans á keppnistímabil-
inu. Real Madrid lék án Michael
Laudrup og Fernando Hierro, sem
voru veikir. Paco Buyo, markvörð-
ur, lék sinn 500. deildarleik fyrir
Madridar-liðið.
Stoichkov settur í bann
BULGARSKI landsliðsmaðurinn Hristo Stoichkov hjá Barcelona,
lék ekki með liðinu gegn Valencia um helgina, þar sem Johan
Cruyff, þjálfari, setti hann í fimmtán daga keppnisbann vegna
yfirlýsinga eftir að Barcelona féll úr Evrópukeppninni í sl. viku.
Stoichkov hefur sagt að Cruyff hafi gert mistök þegar hann lét
danska landsliðsmanninn Michael Laudrup fara til Real Madrid.
Búlgarinn mun ekki missa af öðrum Ieik en gegn Valencia, þar
sem ekki er leikið á Spáni fyrr en um þar næstu helgi, þar sem
Spánverjar leika landsleik í næstu viku. Stoichkov segist hafa hug
á að ljúka keppnisferli sínum hjá Barcelona.
Blackbum í
MANCHESTER United mátti
sætta sig við tap, 2:0, gegn
Liverpool á Anfield Road á
sunnudag og hefur Blackburn
náð sex stiga forskoti í barátt-
unni um Englandsmeistaratitl-
inn. „Það var slæmt að tapa
þessari viðureign. Við höfum
aðeins náð einu stigi út úr
tveimur síðustu leikjum okkar
— fyrir fáeinum dögum gerð-
um við jafntefli við Tottenham
heima og nú kom tapleikur.
Við þurftum á sigrum að halda
í báðum viðureignunum,"
sagði Alex Ferguson, fram-
kvæmdastjóri Manchester
United.
Jamie Redknapp skoraði fyrra
mark Liverpool, eftir fyrirgjöf
frá Robbie Fowler á 25 mín. Að-
eins stuttu síðar bjargaði Peter
Schmeichel meistaralega skoti frá
Fowler. Andy Cole, sem á við
meiðsli að stríða — og bytjaði á
varamannabekknum hjá United,
var sendur inná í seinni hálfleik.
Leikmenn United gerðu harða hríð
að marki Liverpool og þurfti mark-
vörðurinn David James tvisvar að
taka á honum stóra sinum. Fimm
mín. fyrir leikslok gerðu leikmenn
Liverpool út um leikinn þegar
Michael Thomas sendi knöttinn til
Steve McManaman, sem skaut að
marki — Steve Bruce, fyrirliði
United, varð þá fyrir því óhappi
að stýra knettinum framhjá
Schmeichel.
Blackburn lagði Chelsea-að velli,
2:1. Gestirnir fengu óskabyijun
þegar Mark Stein skoraði eftir
aðeins þijár mín., en Alan Shearer
náði að jafna fyrir Blackburn —
skoraði sitt hundruðusta deildar-
mark. Hann lagði síðan upp sigur-
markið sem fyrirliðinn Tim Sher-
wood skoraði.
Bruce Grobbelaar lék ekki í
markinu hjá Southamptön, sem
tapaði 0:3 fyrir Nottingham Forest
á City Ground. Hollendingurinn
Bryan Roy skoraði tvö mörk og
Stan Collymore eitt.
Peter Beardsley tryggði New-
castle sigur, 1:0, gegn Arsenal á
St. James’ Park, þegar hann skor-
aði glæsilegt mark af 25 m færi
á síðustu mín. leiksins. Vince
Bartram, markvörður Arsenal, átti
ekki möguleika á að veija.
Jiirgen Klinsmann skoraði
sigurmark Tottenham, 1:0, gegn
Leicester á 82. mín. og hefur hann
skorað 24 mörk fyrir liðið í vetur.
Tottenham hefur aðeins tapað
þremur leikjum af 24 síðan Geny
Francis tók við stjórninni af Ossie
Ardiles í nóvember.
Þjóðveijinn Uwe Rössler skoraði
tvö mörk fyrir Manchester City,
sem var undir 0:2 gegn Sheff.
Wed. á heimavelli. Paul Walsh
skoraði þriðja markið og leikmenn
City fögnuðu sigri, 3:2.
Law hrósar Shearer
ALAN Shearer skoraði hundraðasta mark sitt í deildarkeppninni,
þegar Blackburn vann Chelsea. Hann hefur skorað 77 mörk fyrir
Blackburn í 95 leikjum, en þess má geta að hann skoraði ekki
nema 23 mörk fyrir Southampton í 105 leikjum. Denis Law, fyrrum
markverðahrellir hjá Manchester United, hrósaði Shearer mikið.
„Hann er besti miðherjinn í ensku knattspyrnunni — mjög yfirvegað-
ur og kraftmikill leikmaður, sem hefur mikla hæfileika til að skora
frábær mörk. Þá er hann miklu meira en markaskorari, því að
hann er leikmaður liðsheildarinnar. Ég hefði svo sannarlega viljað
leika við hliðina á honum,“ sagði Law, sem skoraði 236 mörk í 293
leikjum.
Shearer er mjög hamingjusamur hjá Blackburn. „Við leggjum
mikið upp úr því að skemmta okkur. Það er mikil barátta í liðinu
og leikmenn eru tilbúnir að leggja hart að sér.“
Glenn Hoddle, framkvæmdastjóri Chelsea, gat akki annað en
hrósað Shearer, eftir að hann skoraði 30. deildarmark sitt í vetur,
með skalla. „Shearer er mjög sterkur skallamaður, þá er hann
sterkur með knöttinn og vinnur vel fyrir lið sitt.“
góðri stöðu
United tapaði á Anfield
ROBBIE Fowler lék vel með Liverpool gegn Manchester Un-
ited. Hér er hann, t.v., í baráttu um knöttinn við Lee Sharpe,
sem var skipt út af í leikhléi í stað Andys Coles.
■ FINNSKI framheijinn Jari Lit-
manen skoraði þijú mörk fyrir Aj-
ax, sem vann Nijmegen 5:1 í hol-
lensku deildarkeppninni.
■ STEPHANE Chapuisat, sviss-
neski framheijinn snjalli hjá Dort-
mund í Þýskalandi meiddist mjög
illa á hné á æfingu á föstudaginn;
krossbandið og annað liðbandið
slitnuðu auk þess sem liðþófi
skemmdist. Hann verður frá keppni
í a.m.k. hálft ár og jafnvel í átta
mánuði.
■ BANDARÍSKI landsliðsmaður-
inn Wynalda lék um helgina fyrsta
leikinn fyrir Bochum síðan hann
meiddist á haustdögum. Liðið
komst úr fallsæti í fyrsta skipti í
langan tíma eftir 2:1 sigur í Frei-
burg.
■ JUVENTUS á Ítalíu hefur
áhuga á að kaupa Mario Basler
frá Werder Bremen í Þýskalandi,
skv. fréttum þýskra blaða.
■ LOTHAR Matthaus, fyrirliði
Bayern Miinchen, sem meiddist
illa í vetur, kom á óvart í viðtali
um helgina er hann sagðist stefna
að því að verða tilbúinn í úrslitaleik-
inn í Evrópukeppni meistaraliða 24
maí í Vínarborg. Þegar hann sleit
hásin var talið öruggt að hann yrði
ekki meira með í vetur — jafnvel
að ferillinn væri á enda. Og hvað
úrslitaleikinn varðar á Bayern eftir
að mæta Ajax í undanúrslitum!
■ CIRIACO Sforza, svissneski
landsliðsmaðurinn hjá Kaiserslaut-
ern vill fara frá félaginu. Mestar
líkur eru taldar á að Bayern Miinc-
hen næli í hann.
■ BENFICA lagði Chaves að velli
1:0 í Portúgal. Liðið lék án mark-
varðarins Michel Preud’homme,
sem var í leikbanni. Þá voru tveir
leikmenn liðsins reknir af leikvelli
— Paulo Pereira og Claudio Can-
iggia.
■ SAUTJÁN ára piltur lét lífíð í
kjölfar óláta sem brutust út eftir
leik Galatasaray og Fenerbache
í tyrknesku deildinni í knattspyrnu
um helgina. Fenerbache vann 3:0
en sumir stuðningsmenn Galatas-
aray sættú sig ekki við það og létu
öllum illum Iátum. Pilturinn, sem
var stuðningsmaður Fenerbache,
var fluttur á sjúkrahús en þar tókst
ekki að bjarga lífi hans.