Morgunblaðið - 28.03.1995, Qupperneq 1
AÐSENDAR
GRBNAR
blaðC
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
ÞRIÐJUDA G UR 28. MARZ 1995
Almannatryggingar, líf-
eyrissjóðir og skattkerfið
Almannatrygginga-
kerfið
í ÁRSBYRJUN
1994 gengu í gildi ný
lög um almannatrygg-
ingar og lög um félags-
lega aðstoð. Þau ná
yfir það svið sem al-
mannatryggingalögin
gömlu spönnuðu áður.
Helsta breytingin er sú
að lífeyrisbótum er
skipt upp í almanna-
tryggingabætur og fé-
lagslegar bætur. Al-
mannatryggingabætur
má nú greiða úr landi
en félagslegar bætur
ekki, auk þess sem félagslegu bæt-
urnar flokkast undir heimildabætur.
Bætur félaglegrar aðstoðar eru
mæðra- og feðralaun, barnalífeyrir
vegna skólanáms eða starfsþjálfun-
ar ungmennis á aldrinum 18-20
ára, umönnunarbætur, endurhæf-
ingarlífeyrir, makabætur, ekkju- og
ekklabætur, ekkjulífeyrir, heimilis-
uppbót, sérstök heimilisuppbót, upp-
bætur vegna sérstakra aðstæðna,
uppbót vegna reksturs bifreiðar og
bifreiðakaupastyrkir. Með þessum
nýju lögum og í kjölfar gildistöku
EES-samningsins og nýs Norður-
landasamnings í ársbyijun 1994
urðu allnokkrar breytingar á al-
mannatryggingunum og þeim regl-
um sem um þær gilda.
Samspil almannatrygginga
og lífeyrissjóða
Lífeyristryggingar almanna-
trygginga eru greiddar öllum elli-
Sigbjörn
Gunnarsson
og örorkulífeyrisþeg-
um samkvæmt lögum,
en lífeyrissjóðir greiða
lífeyri einungis til fé-
lagsmanna og fara
greiðslur eftir tekjum
þeirra og hve lengi þeir
hafa greitt í sjóðinn.
Ellilifeyrir einstakl-
ings sem aldrei hefur
greitt í lífeyrissjóð, hef-
ur engar aðrar tekjur
og á litlar eignir nemur
rúmlega 55 þús. kr. á
mánuði, ef niðurfelling
á afnotagjöldum útvarps
og síma er meðtalin.
Hafi sami maður
greitt í 25 ár í lífeyris-
sjóð af 80 þús. kr. mánaðarlaunum
fær hann samtals í greiðslur frá
almannatryggingum og lífeyrissjóði,
eftir að staðgreiðsla hefur verið
dregin frá 69 þús. kr. á mánuði, en
hafði rúmlega 66 þús. kr. á meðan
hann var í fullu starfi. Hann hækk-
ar í launum við það að hætta að
vinna. Hann nýtur þess að mjög litlu
leyti að hafa greitt í lífeyrissjóð í
25 ár vegna þess að hann þarf að
greiða skatta og lífeyrir almanna-
trygginga skerðist.
Refsað fyrir aðild að
lífeyrissjóðum
Ef þessi sami maður hefði greitt
í 50 ár i lífeyrissjóð af 80 þús. kr.
mánaðariaunum fær hann samtals
í greiðslur frá almannatryggingum
og lífeyrissjóði, eftir að staðgreiðsla
hefur verið dregin frá 71 þús. kr. á
mánuði. Fyrir 25 viðbótarárin hækk-
uðu greiðslur til hans úr lífeyrissjóðn-
Fyrir ofan 55 þús. kr.
tekjumörk virka
staðgreiðsla og lækkun
tekjutryggingar saman
þannig, segir Sigbjörn
Gunnarsson, að ein-
staklingurinn heldur að-
eins eftir 10-20% af við-
bótartekjum sínum.
um um 21.600 kr. á mánuði, en
bætur almannatrygginga voru skert-
ar um 18 þús. kr. á mánuði á móti.
Þessi þijú dæmi sýna í hvers
konar ógöngur kerfið er komið.
Fyrir ofan 55 þús. kr. tekjumörk
virka staðgreiðsla og lækkun tekju-
tryggingar saman þannig að ein-
staklingurinn heldur aðeins eftir
10-20% af viðbótartekjum sínum.
Alþýðuflokkurinn hefur undirbúið
tillögur að umfangsmiklum breyt-
ingum á þessu sviði í því skyni að
gera lífeyriskerfið skilvirkara og
koma samspili almannatrygginga
og lífeyrissjóða í betra horf. Það
þarf að gera í samstarfí við aðila
vinnumarkaðarins og um þær þarf
að nást víðtæk pólitísk samstaða.
Höfundur er alþingismaður fyrir
Alþýðuflokkinn í
Norðurlandskjödæmi eystra og
formaður fjárlaganefndar.
Ný kynslóð kvenna
haslar sér völl í
Sjálfstæðisflokknum
FRAMBÆRILEG-
AR konur úr atvinnulíf-
inu, sem skipa mörg af
efstu sætum framboðs-
listanna um allt land,
er eitt af fjölmörgum
styrkleikamerkjum
Sjálfstæðisflokksins í
komandi alþingiskosn-
ingum. Þessi staðreynd
er engin tilviljun. Sífellt
fleiri konur eru að átta
sig á því, að baráttan
fyrir jafnrétti kynjanna
verður ekki háð undir
gunnfánum sérstakra
kvennaframboða.
Reynslan af Kvenna-
listanum undanfarin
tólf ár hefur kennt að
Þórdís
Sigurðardóttir
sérframboð kvenna er timaskekkja.
Það er áberandi hvað konur eru
að sækja fram innan raða Sjálfstæð-
isflokksins. Þessi stóra og öfluga
fjöldahreyfing, Sj álfstæðisflokkur-
inn, er í stöðugri endumýjun og
ýmis teikn eru á lofti um að í fram-
tíðinni muni konur hasla sér enn
frekar völl í fremstu víglínu undir
merkjum Sjálfstæðisflokksins. En
hvernig og hvers vegna munu konur
ná árgangri innan Sjálfstæðisflokks-
ins í framtíðinni?
Jafnréttisbaráttan mun fara fram
í stjórnmálaflokki, þar sem konur
og karlar vinna saman á jafnrétt-
isgrundvelli.
Konur munu verða í betri aðstöðu
til að vinna að framgangi jafnrétt-
ismála í Sjálfstæðisflokknum
vegna þess að hann er stærsti og
áhrifamesti stjómmálaflokkurinn.
í nýrri kynslóð forystumanna
Atvinnustefna til framtíðar
SKÝR merki um efnahagsbata
eru nú óðum að koma fram. Eftir
þrengingartíma undanfarinna ára
eru íslensk fyrirtæki að rétta úr
kútnum og skila nú umtalsverðum
hagnaði. Þegar upp er staðið þá em
áhrif samdráttarins minni en flestir
bjuggust við.
Það má hveijum manni vera ljóst
að ef ekki hefðu komið til stórtæk-
ar og víðfeðmar aðgerðir síðustu
ríkisstjórnar, undir forystu Sjálf-
stæðisflokksins, væri öðmvísi um
að litast. Gera má ráð fyrir að fyr-
ir okkur hefði það sama legið og
frænda okkar í Færeyjum: Stórauk-
ið atvinnuleysi og fjöldagjaldþrot
fyrirtækja og einstaklinga.
Atvinnulífið eflt
Með niðurfellingu aðstöðugjalds
og lækkun tekjuskatts fyrirtækja
hefur tekist að forða fjölmörgum
fyrirtækjum frá falli. Fjármunirnir
hafa haldist innan fyrirtækjanna
og þessa fjármuni hafa fyrirtækin
getað notað til að bæta skuldastöðu
sína. Þessar skattalækkanir hafa
einnig gert fyrirtækjum kleift að
veita fjármunum til
uppbyggingar og auk-
innar verðmætasköp-
unar.
Skýrustu merkin
um áhrif skattalækk-
unarinnar koma fram
í þeim kjarasamning-
um sem nýlega voru
gerðir á almennum
vinnumarkaði. Ef
skattalækkunin hefði
ekki komið til er tæp-
ast við því að búast
að af almennum launa-
hækkunum hefði get-
að orðið. Þannig er
ljóst að lækkun skatta
á fýrirtæki skilar sér
Guðmundur
Kristinn Oddsson
ávallt með einum eða öðrum hætti
í vasa launþega, fyrr eða síðar.
Minna
atvinnuleysi
Þegar fjármunir eru ekki teknir
út úr rekstri fyrirtækja í formi
skatta geta fyrirtækin einbeitt sér
að frekari þróun með þeim fjármun-
um sem sparast. Aukin þróun er
grunnforsenda ný-
sköpunar og Ijölgunar
atvinnutækifæra.
Ég tel það öruggt
að sú skattalækkun á
fyrirtæki sem gerð var
á síðasta kjörtímabili
eigi eftir að fjölga
störfum á vinnumark-
aði. Það er beinlínis
hugsanavilla að ætla
sér að auka skatta á
fyrirtæki eins og
vinstriflokkarnir hafa
viljað. Þannig drögum
við allan mátt úr at-
vinnulífmu og stöðvum
þróun. Það kæmi einn-
ig til með að fæla er-
lenda fjárfesta frá.
Sjálfstæðisflokkinn áfram
Það er ljóst að það er öllum til
góðs ef hér er öflugt atvinnulíf. Til
þess að svo megi verða þarf að hlúa
að því og einnig þarf fjárhagslegt
umhverfi þess að vera því vinsam-
legt. Undir forystu Sjálfstæðis-
flokksins hefur ríkisstjórninni tekist
Með stefnu sinni í at-
vinnumálum, segir Guð-
mundur Kr. Oddsson,
hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn lagt grunninn að
öflugu atvinnulífí.
að forða atvinnulífinu frá falli. Ef
áframhaldandi þróun á að verða er
fullvíst að það takist ekki nema
Sjálfstæðisflokkurinn hljóti umboð
kjósenda.
Kosningaloforð stjórnarand-
stöðuflokkanna um stórbætt at-
vinnulíf byggjast á óskhyggju. En
óskhyggjan skilar okkur engu þeg-
ar upp er staðið. Til þess að byggja
upp öflugt atvinnulíf þarf raunhæf-
ar og markvissar leiðir. Og því er
valkosturinn skýr: Sjálfstæðisflokk-
inn áfram í stjórn.
Höfundur býr í Reykjavík.
Sj álfstæðisflokksins,
undir forystu Davíðs
Oddssonar, sækja kon-
ur af enn meiri krafti
fram til áhrifa í þjóð-
málaumræðunni.
Innan raða Sjálfstæðis-
flokksins er mikið af
konum sem standa
körlum fyllilega á
sporði í hvaða málum
sem er.
Sj álfstæðisflokkurinn
er nútima stjómmála-
hreyfing sem veðjar á
framtíðina með konum
ekki síður en körlum.
Það er stefna Sjálf-
stæðisflokksins að tak-
ast á við hið hrópandi
launamisrétti kynjanna sem nýleg
kjarakönnun leiddi áþreifanlega í
ljós. Sjálfstæðiskonur verða að sjá
til þess að tekið verði á þessu máli
Reknm skynsamlegt
velferðarþjóðfélag, seg-
ir Þórdís Sigurðar-
dóttir, fjármagnað af
sterku atvinnulífí.
af einurð og festu og vinna ötullega
að því að Sjálfstæðisflokkurinn verði
leiðandi flokkur í þessu mikilvæga
hagsmunamáli.
Sjálfstæðismenn eru bjartsýnir á
framtíðina og ræður þar myndarleg-
ur árangur ríkisstjórnar Davíðs
Oddssonar miklu um. Ríkisstjóminni
hefur tekist að ná viðvarandi stöðug-
leika í efnahagsmálum og sömuleiðis
halda vöxtum lágum. A sl. fjórum
árum hafa matarútgjöld iækkað um
11% og vaxtagjöld um 12%. Og stöð-
ugleikinn er besta kjarabótin. Islend-
ingar mega ekki vera of fljótir að
gleyma langvarandi skeiði óðaverð-
bólgu sem tók ekki enda fyrr en
núverandi ríkisstjórn tók á efnahags-
málunum af röggsemi.
Tökum ekki mark á gylliboðum
vinstri flokka sem myndu óhjá-
kvæmilega hafa í för með sér skatta-
hækkanir og erlendar lántökur. Velj-
um frekar trausta ríkisstjórn undir
forystu Sjálfstæðisflokksins heldur
en stjórn fjögurra, jafnvel fímm,
vinstri flokka þar sem hver höndin
er uppi á móti annarri. Um afleiðing-
ar af slíkum vinstri stjómum þarf
ekki að fjölyrða frekar því þjóðin
hefur margsinnis sopið seyðið af
óstjórn þeirra. íslendingar eiga ekki
enn einu sinni að þurfa að vera til-
raunastofa fyrir vinstri stjórnir. Rek-
um heldur skynsamlegt velferðar-
þjóðfélag, fjármagnað af sterku at-
vinnulífi undir stjórn fiokks sem hef-
ur sýnt hvers hann er megnugur.
Tryggjum bömum okkar betri framtíð
með því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Höfundur er flugumferðarstjóri
og skipar 18. sætið á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.