Morgunblaðið - 30.03.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 30. MARZ 1995 D 7
SUNNUDAGUR 2/4
Kosningavaka
Stöðvar2og
Bylgjunnar
Undanfarna mánuði hefur verið
unnið sleitulaust að undirbún-
ingi fyrir kosningavöku Stöðvar
2 og Bylgjunnar og nú er verið
að reka smiðshöggið á verkið.
Um 60 manns, þar af fleiri en
20 fréttamenn, munu vinna við
að koma tölunum sem fyrst til
áhorfenda Stöðvar 2 og hlust-
enda Bylgjunnar en rásir þess-
ara miðla verða samtengdar.
Upphitunin og sjónarmið
unga fólksins
Kosningabaráttan hefur stig-
magnast á síðustu vikum og á
sama tíma hefur upphitun
Stöðvar 2 og Bylgjunnar fyrir
alþingiskosningamar orðið um-
fangsmeiri. Mesta athygli hafa
líklega vakið beinar útsending-
ar frá opnum borgarafundum á
Selfossi, Akureyri, í Kópavogi
og Reykjavík undir stjórn Elín-
ar Hirst og Stefáns Jóns Haf-
stein, en þau verða bæði áber-
andi í kosningasjónvarpi Stöðv-
arinnar. Með borgarafundunum
hefur kjósendum verið gefinn
kostur á að komast í návígi við
frambjóðendur ogþar hefur oft
verið ansi líflegt um að litast.
Áður en Stefán hellir sér út
í starfið við sjálfa kosningavök-
una ætlar hann að kynna sér
viðhorf íslenskra ungmenna til
þjóðmálanna og stjórnmálanna
í þætti sínum Sjónarmið á
fimmtudagskvöld.
„Það er athyglisvert að heyra
sjónarmið unga fólksins sem
kýs nú í fyrsta sinn til Alþingis,
því þetta eru þeir kjósendur
sem eru að gera upp hug sinn
til stjórnmálanna og fylgjast því
náið með þjóðmálunum, auk
þess sem atkvæði þessa hóps
geta skipt sköpum þegar talið
er upp úr kössunum," segir
Stefán Jón.
Á föstudagskvöld hittast for-
menn flokkanna á lokaspretti
kosningabaráttunnar í beinni
útsendingu Stöðvar 2 og Ríkis-
sjónvarpsins. Þar gefst þeim
síðasta tækifærið til að koma
stefnumálum sínum á framfæri
við kjósendur þegar innan við
hálfur sólarhringur er þangað
til kjörstaðir verða opnaðir og
má búast við fjörugum umræð-
um. Sljórnendur umræðna
verða Bogi Ágústsson, frétta-
sljóri Sjónvarps, og Elín Hirst,
fréttasljóri Stöðvar 2, sem seg-
ist eiga von á líflegum en grein-
argóðum umræðum sem leiði
kjósendur í allan sannleikann
um það sem er ólíkt og líkt með
þeim flokkum sem bjóða fram á
landsvísu.
Kosningavakan
Klukkan 21.30 að kvöldi kjör-
dags hefst kosningavaka Stöðv-
ar 2 og Bylgjunnar en fyrstu
talna er að vænta upp úr klukk-
an tíu. Eins og áður segir starfa
um 60 manns að kosningavök-
unni og Stöðvarmenn eru stað-
ráðnir i að tjalda öllu sem til
er. „Við verðum með beina út-
sendingu frá öllum talninga-
stöðum um leið og tölur birtast,
“ segir Karl Garðarsson frétta-
maður sem hefur lagt gjörva
hönd á plóginn við undirbúning-
inn. „Rætt verður við frambjóð-
endur í beinni útsendingu frá
• hinum ýmsu kjördæmum,
fréttamenn okkar verða á ferð
og flugi hér í höfuðborginni þar
sem kosningavökur flokkanna
verða heimsóttar og rætt verð-
ur við bæði sigurvegarana og
þá sem orðið hafa undir í barátt-
unni.“
Karl hefur verið laus við
fréttavaktir síðustu vikurnar til
að geta einbeitt sér að undir-
búningi kosningasjónvarpsins
ásamt Elínu Sveinsdóttur út-
sendingarstjóra, enda þarf
mikla samliæfingu til að allt
gangi upp þegar á hólminn er
komið. „Það er nýmæli að við
verðum með beinar útsendingar
úr öllum átta kjördæmum lands-
ins en þetta er hægt núna með
tilkomu ljósleiðarasambands,“
segir Karl og er rokinn á fund
með útsendingarsljóra.
Mikil áhersla verður lögð á
myndræna framsetningu þeirra
tölulegu upplýsinga sem fylgja
kosningum, en um þá hlið mála
Um 60 manns koma að útsendingunni með einum eða öðrum hætti.
sjá grafískir hönnuðir Stöðvar
2, Tölvumyndir og OZ. Milli
þess sem tölurnar streyma inn
verða málin skeggrædd og tal-
naglöggir menn spá í spilin.
Sérfræðingar um íslensk stjórn-
mál fara yfir nýjustu tölur
ásamt fréttamönnum og ekki
má gleyma formönnum flokk-
anna sem koma tvisvar í sjón-
varpssal á kosningakvöldið -
þegar fyrstu tölur verða birtar
um klukkan 22.15 og aftur laust
eftir miðnætti þegar línurnar
verða væntanlega farnar að
skýrast. „Það er mikill hugur í
okkar fólki,“ segir Elín Hirst
fréttastjóri. „Búið er að ganga
frá öllum lausum endum ogþað
má sjá glampa í augum okkar
fréttamannanna sem bíðum nú
bara eftir að stóra stundin renni
upp.“
En kosningavökur væru varla
nema svipur hjá sjón ef engin
væru skemmtiatriðin og auðvit-
að verður slegið á létta strengi
þegar færi gefst. Það eru engir
aðrir en liðsmenn Imbakassans
sem tilreiða létt spaug á kosn-
ingavökunni og um tónlistaratr-
iðin sér ein athyglisverðasta
hljómsveit landsins sem ber hið
hógværa nafn „Skárren ekk-
ert“. Kosningavaka Stöðvar 2
og Bylgjunnar hefst sem áður
segir klukkan 21.30 að kvöldi
kjördags en dagskrárlok eru
óákveðin.
UTVARP
RÁS I
FM 92,4/93,5
8.07 Morgunandakt: Séra Bragi
Friðriksson prófastur flytur.
8.15 Tónlist á sunnudagsmorgni
- Messa í G-dúr eftir Franz Schu-
bert. Lucia Popp, ádolf
Dallapozza og Dietrich Fischer-
Dieskau syngja með kðr og
hljómsveit Útvarpsins í
Múnchen; Wolfgang Sawallisch
stjórnar.
- Fantasía i C-dúr ópus 80 fyrir
píanó, kór og hljómsveit eftir
Ludwig van Beethoven. Daniel
Barenboim leikur á píanó með
John Alldis kórnum og Nýju fíl-
harmóniusveitinni í Lundúnum;
Otto Klemperer stjórnar.
9.03 Stundarkom í dúr og moll.
Þáttur Knúts R. Magnússonar.
(Einnig útvarpað að loknum
fréttum á miðnætti.)
10.03 Vídalfn, postillan og menn-
ingin. 8. j)áttur. Umsjón: Dr.
Sigurður Ami Þórðarson.
10.45 Veðurfregnir.
11.00 Messa í Seltjarnarneskirkju.
Séra Solveig Lára Guðmunds-
dóttir prédikar.
12.10 Dagskrá sunnudagsins.
12.45 Veðurfregnir, auglýsingar
og tónlist.
13.00 Heimsókn. Umsjón: Ævar
Kjartansson.
14.00 „Svo sem eins og spegill
fyrir mannlífinu“. Um list í forn-
öld. Umsjón: Svavar Hrafn Sva-
varsson.
15.00 Með sunnudagskaffinu
- Sinfónia númer 1 í G-dúr eftir
Carl Philipp Emanuel Bach.
Franz Liszt Kammersveitin leik-
ur, Konsertmeistari er János
Rolla.
- Strengjakvartett nr. 5 í C-dúr
eftir Joseph Martin Kraus. Lys-
ell-kvartettinn leikur.
- Sinfónía númer 25 í g-moll
KV183 eftir Wolfgang Amadeus
Mozart. Fílharmóníuhljómsveit-
in í Vin leikur; James Levine
stjórnar.
16.05 Erindaflokkur á vegum „fs-
lenska málfræðifélagsins".
Lokaerindi: Hagnýting málvfs-
inda. Ari Páll Kristinsson flytur.
16.30 Veðurfregnir.
16.35 Almennur framboðsfundur
vegna Reykjaneskjördæmis.
Fulltrúar allra framboðslista í
Reykjaneskjördæmi flytja stutt
ávörp og sitja fyrir svörum.
Fundarstjórar: Valgerður A. Jó-
hannsdóttir og Broddi Brodda-
son.
18.50 Dánarfregnir og auglýsingar.
19.30 Veðurfregnir.
19.35 Frost og funi. Helgarþáttur
bama. Umsjón: Elísabet Brekk-
an.
20.20 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
21.00 Hjálmaklettur. Svipmynd af
Álfrúnu Gunnlaugsdóttur. Um-
sjón: Jón Hallur Stefánsson.
(Áður á dagskrá sl. miðviku-
dag.)
22.07 Tónlist á síðkvöldi.
- Þrjú sönglög eftir Henri Ðuparc.
Sigríður Gröndal syngur; Anna
Guðný Guðmundsdóttir leikur á
píanó.
- Tveir dansar fyrir hörpu og
hljómsveit eftir Claude Debussy.
Vera Badings leikur á hörpu
með Concertgebouwhljómsveit-
inni (Amsterdam; Bernard Hait-
ink stjórnar.
22.27 Orð kvöldsins: Unnur Hall-
dórsdóttir flytur.
22.30 Veðurfregnir.
22.35 Litla djasshornið. Viðar Al-
freðsson og félagar leika djass-
lög af plötunni „Spilar og spil-
ar“.
23.00 Frjálsar hendur. Umsjón:
Illugi Jökulsson.
0.10 Stundarkorn í dúr og moll.
Þáttur Knúts R. Magnússonar.
(Endurtekinn þáttur frá
morgni.)
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
Fróttir ó RÁS 1 og RÁS 2 kl. 8, 9.
10, 12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.10 Funi. Helgarþáttur barna.
Umsjón: Elísabet Brekkan. 9.03
Sunnudagsmorgunn með Svavari
Gests. 11.00 Urval dægurmálaút-
varps liðinnar viku. 13.00 Þriðji
maðurinn. Gestur er Þórhallur
Guðmundsson miðill. Umsjón: Árni
Þórárinsson og Ingólfur Margeirs-
son. 14.00 Helgarútgáfan. 16.05
Dagbókarbrot Þorsteins J. 17.00
Tengja. Umsjón Kristján Sigur-
jónsson. 19.32 Milli steins og
sleggju. 20.30 Úr ýmsum áttum.
Andrea Jónsdóttir. 22.10 Frá Hró-
arskelduhátíðinni. Ásmundur Jóns-
son og Guðni Rúnar Agnarsson.
23.00 Heimsendir. Margrét Blön-
dal og Sigurjón Kjartansson. 24.10
Margfætlan - Þáttur fyrir ungl-
inga. 1.00 Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns.
NÆTURÚTVARPID
1.00 Næturtónar. 1.30Veðurfregn-
ir. Næturtónar hljóma áfram. 2.00
Fréttir. 2.05 Tangó fyrir tvo. Svan-
hildur Jakobsdóttir. 3.00Nætur-
tónar 4.00 Þjóðarþel. 4.30 Veður-
fregnir. 4.40 Næturtónar. 5.00
Fréttir. 5.05 Stefnumót með Ólafi
Þórðarsyni. 6.00 Fréttir, veður,
færð og flugsamgöngur. 6.05
Morguntónar. Ljúf lög í morguns-
árið. 6.45 Veðurfréttir.
ADALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
10.00 í upphafi. Þáttur um kristi-
leg málefni. 12.00 Bjarni Arason.
16.00 Inga Rún. 19.00 Magnús
Þórsson. 22.00 Lffstindin. 24.00
Ókynnt tónlist.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Morguntónar. 8.00 Ólafur
Már Björnsson. 13.00 Halldór
Backman. 17.15 Við heygarðs-
hornið. Bjarni Dagur Jónsson.
20.00 Sunnudagskvöld. Ljúf tónlist
með Erlu Friðgeirsdóttur. 24.00
Næturvaktin.
Fréttir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BR0SIÐ
FM 96,7
10.00 Gylfi Guðmundsson 13.00
Jón Gröndal og Tónlistarkrossgát-
an. 16.00 Helgartónlist. 20.00 Pál-
ína Sigurðardóttir 23.00 Nætur-
tónlist.
LINDIN
FM 102,9
8.00 Tónlist. 9.00 Kirkjudagskrá.
11.00 Tónlist. 13.00 Kirkjudag-
skrá. 15.00 Tónlist. 17.00 Kirkju-
dagskrá. 19.00 Tónlist. 22.00 Ró-
legt og fræðandi.
SÍGILT-FM
FM 94,3
9.00 Ténlaikar. 12.00 1 hádeginu.
13.00 Sunnudagskonsert. 16.00
fslenskir tónar. 18.00 Ljúfir tónar.
20.00 Tónleikar. 24.00 Næturtón-
leikar.
FM 957
FM 95,7
10.00 Helga sigrún. 13.00 Ragnar
Bjarnason. 16.00Sunnudagssið-
degi með Jóhanni Jóhannssyni.
19.00 Ásgeir Kolbeinsson. 22.00
Rólegt og rómantískt. Stefán Sig-
urðsson.
X-ID
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
13.00 Henní Ámadóttir. 17.00
Hvíta tjaldið 19.00 Rokk X. 21.00
Sýrður rjómi. 24.00 Næturdag-
skrá.