Morgunblaðið - 31.03.1995, Síða 4
4 D FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1995
DAGLEGT LÍF
ÞRÁTT fyrir nýja tækni og
stöðugar framfarir á sviði lækna-
vísindanna hefur ekki enn tekist
að fínna lyf gegn skalla. Skalli
hrellir margan karlinn og efalítið
fyllast sumir skelfílegri örvænt-
ingu þegar hárunum tekur að
fækka.
Af og til koma á markaðinn
ýmis lyf eða krem, sem framleið-
endur lofa í hástert og segja afurð-
ina frábært undralyf. í auglýsing-
um eru gjarnan sýndar myndir af
körlum fyrir og eftir meðferð.
Þeir sem eru ginnkeyptir fyrir
auglýsingum af þessu tagi verða
fljótlega daufír í dálkinn því
sprettan verður ekki eins og vonir
stóðu til.
Náttúrulegt
efni
í þeirri von að öll él birti upp
um síðir er hér látin flakka lausleg
þýðing á „skallagrein", sem nýver-
ið birtist í „The European Magaz-
ine“. Þar segir að finnskir húðsjúk-
dómasérfræðingar hafí uppgötvað
náttúrulegt efni sem auki hárvöxt-
inn. Heimildir blaðsins um niður-
stöður tilraunar með efnið birtust
í húðsjúkdómatímaritinu
„Dermatology News“, sem gefíð
er út á ensku og frönsku. Ár-
angurinn virðist ekki amaleg-
ur, því meðferðin er sögð
hafa heppnast í 90% tilvika
gegn sumum gerðum
skalla. Mánaðarskammtur
af lyfínu kostar sem sam-
svarar 4.500 íkr. og
merkjanlegur árangur
verður ekki ljós fyrr en
eftir a.m.k. sex mánuði.
Umrædd skallameð-
ferð uppgötvaðist fyrir
einskæra tilviljun þegar
Allan Lassus prófessor við
húðsjúkdómastofnunina í
Helsinki þróaði efnasamsetn-
ingu sem samanstóð að mestu
Sköllóttir
vona að efni úr
fiskabrjóski auki hárvöxt
leyti af brjóski úr djúpsjávarfisk-
um. Þessa formúlu notaði hann til
að lækna sólarskaddaða húð en
uppgötvaði að þeir sem voru í slíkri
meðferð fengu jafnframt aukinn
hárvöxt.
Þegar Lassus reyndi efnasam-
setninguna á körlum með arfgeng-
an skalla hætti_ hárlos innan
tveggja mánaða. Árangurinn varð
IMEÐFERÐINNI
hætti hárlos hjá
körlum með arf-
gengan skalla
innan tveggja
mánaða.
enn betri á þeim sem voru með
blettaskalla því flestir fengu auk-
inn hárvöxt í einhverjum mæli.
Meðferð vlð
blettaskalla?
Ástæðan fyrir þessum góða ár-
angri er óljós. Einkum á Lassus
erfítt með að átta sig á hvers
vegna meðferðin virkaði mmmmm
á blettaskalla, því sjúk-
dómurinn á rætur að
rekja til truflunar í
sjálfsofnæmiskerfí
líkamans. Niður-
stöðumar stað-
festa eldri
samanburð-
arrannsókn-
ir, sem birt-
ust í „Journal
Intemational
Medical Rese-
arch“ (Tímarit
A alþjóðalækna-
rannsókna) í
| fyrra. í henni
fólst að tveir
hópar ungra
karla vom rann-
sakaðir eftir að
annar hópurinn
tók skammtinn í
sex mánuði en hinn
fékk lyfleysu.
95% úr fyrri hópn-
um fengu að meðal-
tali 38% aukinn hár-
vöxt og hárlos hætti
hjá öllum eftir tvo mán-
uði. í ljós kom að eftir
því sem lengra var um
Efni úr brjóski
djúpsjávar-
fiska tii lækn-
ingar á sól-
arskaddaóri
húó, jók hár-
vöxt sjúklinga.
liðið frá því skalli myndaðist því
erfiðara reyndist að koma hár-
vexti af stað á ný.
Þeir sem þátt tóku í rannsókn-
inni innbyrtu töflur og bám krem,
sem innihélt sama virka efnið, á
skallann. Þegar hársvörður þeirra
var rannsakaður með hátíðnihljóð-
bylgjum kom í ljós að innra lag
húðarinnar hafði þykknað. Lassus
segir að slíkt haldist í hendur við
aukinn hárvöxt þar sem sams kon-
ar frumur era í innra lagi hársins.
Einnig leiðir hann getum að því
að meðferðin-örvi blóðrásina og
þannig nærist hársekkurinn betur.
Fæðubótarefnl
Framleiðendur efnisins, sem ber
nafnið „Viviscal" á meginlandi
Evrópu en „Nourkrin“ í Bretlandi,
segja að sé lyfíð tekið sem fæðu-
bótarefni, geti meðferðin ráðið bót
á næringarskorti sem kunni að
valda hormónatmflunum.
tmmmm Jean Paul Ortonne,
yfirmaður húðsjúk-
dómadeildar Pasteur-
sjúkrahússins í Nice í
Frakklandi, segir að til-
gátan um næringargild-
ið veki margar spurn-
ingar. „Við vitum ekki
enn nægilega mikið um
það líffræðilega samspil
sem veldur skalla. Það
er ólíklegt að hann orsakist í öllum
tilfellum af næringarskorti og við
höfum ekki haldbærar sannanir til
að fullyrða að hann tengist horm-
ónatraflunum."
Hormónabreytingar
Hormónabreytingar á og eftir
meðgöngu geta leitt til skalla eins
og Barbara Pröstbacka stofnandi
sænsku skallasamtakanna fékk að
reyna, en hún missti hárið eftir
fæðingu þriðja barns síns. í næsta
mánuði er að vænta niðurstöðu
ársprófunar á „Viviscal" á félög-
um í samtökunum, sem flestir era
konur. Pröstbacka segist í byijun
hafa verið afar vantrúuð á árang-
ur, eða þar tii hún sá að hár tók
að vaxa aftur á sumum, sem misst
höfðu augnhárin og allt hár á lík-
amanum.
Hveijar sem niðurstöður til-
raunarinnar verða er Lassus treg-
til að fullyrða eitthvað sem
gæti vakið falskar vonir um árang-
ur meðferðarinnar. „Þetta er ekk-
ert töfraefni og mun áreiðanlega
ekki hjálpa öllum. Við verður að
gera umfangsmeiri rannsókn-
ir áður en hægt er að sanna
lækningamáttinn," segir
Lassus. ■
Þýtt og endursagt/vþj
í góðu kynlífi
ber mikið á innileika
„KJARNINN að góðu kynlífi er
ekki eingöngu það sem margir
halda, að fá fullnægingu og ris við
löngun. Slíkt er ekki forsenda inni-
legs eða góðs kynlífs. í góðu kyn-
lífí ber mikið á innileika eða nánd.
Nánd felur í sér kjark, að þora að
opinbera sig fyrir makanum,“ seg-
ir Jóna Ingibjörg Jónsdóttir
hjúkranar-, og kynfræðingur en
hún heldur fyrirlestur um kynlíf á
vegum Sólstöðuhópsins í Norræna
húsinu á morgun kl 13.
„Að mínu áliti felur gott kynlíf
í sér að vera einlægur og hreinskil-
inn og að einstaklingarnir í par-
sambandinu hafi þann þroska að
geta opinberað sínar innstu til-
finningar. í góðu kynlífi skiptir
ytri umgjörðin minna máli en
hvernig tilfinningaleg líðan er
gagnvart maka og hvernig tengsl-
in eru.“
Áhugaleysi konunnar
algengasta umkvörtunarefnið
Jóna Ingibjörg segir að sumir
þoli ekki nándina, þeir beinlínis
forðist hana. Hún er ekki frá því
að konur skynji frekar mikilvægi
hennar en karlmenn þó þeir séu
alveg jafnhæfir og þær til að upp-
lifa hana. „Konur skilja mikilvægi
þess að halda utanum og skynja
maka sinn með.snertingu og nánd
án þess endilega að um mök sé
að ræða. Karlmenn virðast hins-
vegar stundum telja að kynmökin
séu öll sú nánd sem þarf.“
- Algengustu vandamál para?
„Áhugaleysi í kynlífí. Langoft-
ast er það konan sem missir áhug-
ann. Ég hef sjaldan fengið til mín
par þar sem hann er áhugalaus."
Það er ekki hægt að þröngva
áhuga upp á neinn og skýringar
fyrir áhugaleysi era mismunandi.
Mörgum hættir hinsvegar til að
líta á áhugaleysi sem veiki og
meðhöndla það þannig. Ég hef
kosið að hafna þeirri skilgreiningu,
þetta kann að vera tímabil í lífi
konunnar sem hún þarfnast fyrir
sjálfa sig. Sé makinn nógu sterkur
til að skilja það og styrkja sig á
meðan þá kann það aftur að flýta
fyrir breytingum."
Umræðan ð lágu planl
Til að umræða um kynlíf verði
eðlileg telur Jóna Ingibjörg að
þurfí viðhorfsbreytingu. Lítið er
talað um mikilvægi kynferðislegr-
ar löngunar og erótíkur því um-
ræðan snýst strax upp í klárn og
kynlífsfíkn. „Okkur skortir að
geta talað um heilbrigðu hliðina
á kynlífí og það er afturhvarf til
miðalda að gera alla kynhegðun
sjúklega.“
í fyrirlestri sínum á morgun
ræðir hún auk nándar í kynlífí um
hugmyndir almennings og fræði-
manna á því hvað telst vera gott
kynlíf. Þá talar hún um hvað stuðli
að nánd og hvað ekki t.d. hug-
myndafræði kynlífsfíknar. ■
grg
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 31. MARZ 1995 D 5
DAGLEGT LÍF
F erskt hrátt
og fiskilega gott
GEFÐU mér hann hráan, segir
japanskur vinur Daglegs lífs við
íslenska veitingamenn þegar hann
fær sér físk hjá þeim. Og heima
hjá þessum heiðursmanni kemur
ekki annað til greina. Það albesta
af öllu þykir þar nýr fiskur, fínt
skorinn, en að öðru leyti eins og
hann kemur úr sjónum. Aðeins
með japanskri piparrót og soja-
sósu. Sashimi, eins og þetta heitir
í Japan, er vissulega gott, hreint
og ómengað prótín með fíngerðu
bragði. Engin furða þótt japanskir
sælkerar spyiji af hveiju í ósköp-
unum við eldum fískinn á íslandi.
Þeim fínnst það algjör óþarfi, enda
er fískurinn hér nógu ferskur til
að færa upp á disk án frekari til-
færinga. Góðir hnífar til að skera
hann skipta mestu, er sagt í Jap-
an, og blaðinu lék forvitni á að
vita hvað íslenskir sérfræðingar
legðu til málanna. Úlfar Eysteins-
son og Rúnar Marvinsson voru
heimsóttir.
Sítrónubað Við Tjörnina
Sítrónur og appelsínur era
galdurinn við hrámetið -sem
Rúnar Marvinsson veitinga-
maður Við Tjömina býður.
Rúnar hefur hráan físk sem
til er hveiju sinni á sínum
forréttalista, stundum fisk-
tartar og jafnvel hrogn. Hann
kýs að sítrussjóða fískinn ein-
hver augnablik fyrir fram-
reiðslu og setur gjama tvær
eða þijár tegundir saman á
disk: Ysu, lax og steinbít til
dæmis. En látum hann um
að lýsa aðferðinni:
„Ég útbú lög úr ferskum
sítrónusafa með örlítilli soja-
sósu, kannski þurra hvítvíni
og hvítlauk og legg munnbita
af einni físktegundinni í
hann. í aðra skál set ég físk
í ferskan engifer, appelsínus-
afa og ef til vill svolítið greip. Svo
er hægt að gera enn einn löginn
úr blöndu af hinum tveimur og
setja í hann þriðja fiskinn, alltaf
skorinn í litla bita eða þunnar
sneiðar sem fólk rúllar upp.
Ég hef fískinn aðeins í mariner-
ingu hálfa til eina mínútu, hann
hefur þá tekið bragð og er tilbúinn
á diskinn. Þar set ég yfírleitt með
honum saxaðan rauðlauk og litla
skál með nýrri piparrót eða þeirri
grænu japönsku, wasabi, og svo
soja. Auðvitað má bjóða hvaða
sjávarfang sem er á þennan hátt.
A diskinum sem ég útbjó fyrir blað-
ið er til dæmis skelfiskur, sem
hefur aðeins heimsótt sítrasbað:
Lítill smokkfískur, þunnt skomar
lúðukinnar, skelflettar rækjur,
auðvitað ósoðnar, og svo hörpu-
diskur sneiddur niður. Þarna hefði
vel mátt bæta við humri og
RÚNAR Marvinsson á veit-
ingahúsinu Við Tjörnina, bú-
inn að skera til hráa fiskinn í
eldhúsinu.
ÚLFAR Eysteinsson notaði pijóna að
japönskum sið og sagði það stórminnka
hættuna á að borða yfir sig.
kannski laxi til að fá lit á diskinn.“
Rúnar býður líka oft upp á fisk-
tartar; rifínn hráan físk eins og
ýsu eða lax. Hann má blanda með
reyktum eða söltuðum físki og
saltfisktartar eins og hér er sýndur
á mynd hefur reyndar verið vin-
sæll Við tjömina. Saltfískurinn er
saxaður niður og blandaður blað-
lauk, kapers, tómötum og hvítlauk,
öllu fínt skomu, í hlutföllum eftir
því sem hugur girnist.
Loks er vert að geta um hrogn,
sem Rúnar hefur stundum á mat-
seðlinum. Hann setti regnbogasil-
ungskavíar í litla skál fyrir ljós-
myndarann og skreytti kringum
hana með grænmeti. Hrygnan er
kreist á vorin og Rúnar hefur fryst
hrogn og átt fram á sumar. Áður
bragðbætir hann þau með nálægt
tveim matskeiðum af salti og einni
af sykri í hvert kíló.
SALTFISKTARTAR Tjarnarinnar. REGNBOG ASILUN GSKAVÍ AR Við Tjörnina.
grænu piparrótinni
blandaðri saman við,
hafði Úlfar með hrá-
metinu sósu úr jap-
önsku Mirin-víni með
svolítlum fínt klippt-
um graslauk út í.
Morgunblaðið/Kristinn
í HRÁMETISVEISLU Þriggja frakka hjá Úlfari var þunnt skorinn hrár fiskur
eða sashimi, hrátt hvalkjöt, hrossalundir, nautakjöt og lamb, ósoðnar og ópillaðar
rækjur og loðnuhrogn og svo sushi og nori-rúllur.
BLANDAÐUR hrár fisk-
ur að hætti Rúnars og
félaga.
Ulfar Ey-
steinsson og
RúnarMor-
vinsson
heimsóttir
Hrámetl að japönskum hættl
fyrir auga og munn
Úlfar Eysteinsson matreiðslu-
meistari á Þrem frökkum hefur
hrátt hvalkjöt á matseðlinum og
þann físk sem hann á nýjastan
hveiju sinni. Hann ber þetta fram
með sojasósu og wasabe að jap-
önskum hætti og segir ekki betri
megranarmat til. En þótt menn séu
ekki í megran fínnst þeim ábyggi-
lega gaman að smakka hrámeti
hjá Úlfari, sem tekur vel í óskir
um slíka framreiðslu. Hann bauð
Daglegu lífí upp á fallegt hlaðborð
af hráum fiski og kjöti, sem Jónas
Þór í Gallerí kjöti hafði verkað.
Það var fitusprengt innra læri af
nauti, hrossalundir og kryddlegið
lamb, allt saman skorið í þunnar
sneiðar. Úlfar lét í lok máltíðarinn-
ar bregða því kjöti sem eftir var
aðeins á pönnu, í 37 sekúndur,
sagði hann, með engifer, hunangi,
soja og hvítlauk.
Óneitanlega var Úlfar síðan
stoltur af hvalkjötinu sínu og hafði
auk þess útbúið sashimi úr heilli
hrárri rækju og sneiddum hörpu-
disk, þunnt skomum lúðubitum og
steinbít. í sushi-bitum, hráum fiski
á hrísgijónakúlum, hafði hann
m.a. reyktan lax og loðnuhrogn,
sem ekki vora síður góð ein og
sér. Hann sagði enda suma sjó-
menn vilja hrognin með kanil og
ijóma.
Auk sojunnar, með bita af
Valáfiski
vandað
Úlfari fínnst ekki
allur fiskur henta
jafn vel hrár. Hann
segir karfa til dæmis
verða að vera
splunkunýjan, ann-
ars komi þráabragð af fitunni, og
keila sé of þétt fyrir þessa fram-
reiðslu. Ýsa sé á hinn bóginn held-
ur laus í sér og hann taki löngu
fram yfir þorsk. Ný lúða undir tíu
kílóum sé góð hrá og rauðspretta
sömuleiðis, steinbítur og skötusel-
ur geti líka verið ljúffengir að
ógleymdum laxi og loks skelfiski.
Fisktartar eða fínsaxaður hrár
fiskur er yfírleitt bestur úr sporð-
stykki að sögn Úlfars en kryddleg-
inn fiskur má ekki vera of laus og
þunnur. Hann er stundum í boði
hjá Úlfari, en almennt segir hann
marineringu geymsluaðferð frekar
en matreiðslu. Ef svo ber undir
sýrir hann þó físk í fjóra tíma eða
svo í þessum legi: Sítrónusafa, olíu,
svolitlu ediki og hvítlauk auk
þriggja tegunda af pipar. Síðan er
fískbitunum ef til vill aðeins bragð-
ið á pönnu örskamma stund áður
en þeir era bomir fram með rist-
uðu brauði. ■
Þ.Þ.
Streitunni
andað úr maganum
MARGIR þekkja hvemig spenna
í hversdeginum getur tekið sér
bólfestu í maganum með neikvæð-
um áhrifum á einbeitingu, skap
og orku. Þessa gætir ekki síst hjá
fólki sem snemma hefur vanið sig
á að draga magann inn, segir Elisa-
beth nokkur Cratchfíeld, eigandi
líkamsræktarinnar Homebodies í
New York. Cratchfíeld ráðleggur
þriggja skrefa öndun, djúpa og
meðvitaða í nokkrar mínútur, til
að losa um spennuna:
Sittu bein(n) í stól
með iljar á gólfinu og
handleggi hangandi
niður með hliðum. Hall-
aðu höfðinu aftur á bak
og settu aðra höndina
á magann. Andaðu
djúpt inn gegnum nef-
ið, svo loftið fylli lung-
un (skref eitt), og þenji
út efri hluta magans
(skref tvö) og þann
neðri (skref þrjú).
Finndu hvernig brjóst-
kassinn og maginn
stækkar. Bíddu nokkr-
ar sekúndur, andaðu svo frá þér
— andvarpaðu upphátt — og láttu
höfuðið og líkamann falla slakan
fram á við. Réttu þig
síðan rólega upp og
endurtaktu þrisvar eða
fjórum sinnum, með
einbeitingu að því að
losa spennu úr maga
við hveija útöndun.
„Djúp öndun róar
hugann, sem hjálpar
til að slaka á vöðvum
líkamans og draga úr
þeirri spennu sem
streita veldur,“ segir
Richard Villella, einn
eigenda jógastöðvar-
innar Yoga Zone í New
York. „Það losnar um magavöðv-
ana og þú verður rólegur, skýr og
endurnærður." ■
Góða
nótt og
sofðu rótt
og KOddnr
Þekking Reynsla Þjónusta
fálkinn
SUÐURLANDSBRAUT 8 • S: 581 4670
ÞARABAKKA - MJÓDD • S: 567 0100
Heimilistækjadeild Fálkans • Heimilistækjadeild Fálkans
UMBOÐSAÐILAR UM LAND ALLT:
Akranes: Versl. Perla • Borgarnes:
Kf. BorgfirÖinga • Ólafsvík: Lilabúðin •
Patreksfjöröur: Ástubúö • Bolungarvík: Versl.
Hólmur • Drangsnes: Kf. Steingrímsfj. • Hólmavík:
Kf. Steingrímsfj.* Hvammstangi: Kf. V-Húnv.»
Blönduós: Kf. Húnvetninga • Siglufjöröur:
Apótek Siglutjaröar • Ólafsfjöröur: Versl. Valberg •
Akureyri: Versl. Vaggan • Húsavík: Kf. Þingeyinga •
Egílsstaöir: Kf.Héraösbúa • Eskifjöröur: Eskikjör •
Höfn: Húsgagnaversl. J.A.G. • Hvolsvöllur:
Kf. Rangæinga • Porlákshöfn: Rás hf.
Vestmannaeyjar: Eyjakaup hf. • Garöur:
Raflagnavinnust. Siguröar Ingvarssonar •
Ketlavík: Bústoö hf.« Reykjavik: Barnaheimur,
FatabúÖin, Versl. Hjóliö (Eiöistorgi).
Heimilistækiadeild Fálkans • Heimilistækiadeild Fálkans • Heimilistækiadeild Fálkans