Morgunblaðið - 08.04.1995, Page 2
2 B LAUGARDAGUR 8.' APRÍL 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KOSIMINGAR 8. APRÍL
Vont er þeirra ranglæti
- verra er þeirra réttlæti
MENNTAMÁLA-
RÁÐHERRA hefur í
undangenginni kosn-
ingabaráttu vikið sér
undan óþægilegum
spurningum um afleið-
ingar laga um LÍN.
Ráðherra fékk sig
jafnvel til þess að saka
námsmenn um að
dreifa röngum tölum
um afleiðingar laga
um LÍN og skrökva
þannig að frambjóð-
endum annarra flokka,
í rökræðum frambjóð-
enda á Reykjanesi í
Ríkissjónvarpinu 26.
mars síðastliðinn. Námsmenn gera
eðlilega kröfu um að yfírmaður
menntamála í landinu dragi þessi
stórkarlalegu ummæli til baka og
svari rökum með rökum. Ólafur
Einarsson tekur þann kostinn að
misskilja allt og alla í Morgunblaðs-
grein á fímmtudag og sendir svo
gott sem gamja grein um afleiðing-
ar laga um LÍN til endurbirtingar
í blaðinu.
Hlutfallstölur
skekkja skýra mynd
Eins og ráðherra
vitnar til sendi Lána-
sjóður íslenskra náms-
manna tölur um lán-
þegafjölda eftir kjör-
dæmum til fjárlaga-
nefndar þingsins. Þar
kemur fram að náms-
mönnum skráðum í
V estíj arðakj ördæmi
fækkar langmest eða
um tæp 40% á meðan
fækkun á Norðurlandi
er um eða undir 20%.
Dagur B. Það er helmings mun-
Eggertsson ur £ þróun lánþega-
fjölda í þessum kjördæmum. Þessi
mikli munur á þróun lánþegafjölda
milli kjördæma kemur þó hvergi
fram ef fjöldi lánþega í kjördæminu
er athugaður sem hlutfall af heild-
arfjölda lánþega.
Á Vestfjörðum
hefði námsmönnum
„Lygi, haugalygi og tölfræði" þurft R,ð fsekka, UITl
í grein ráðherrans kveður við
gamalkunnan tón. Þar er lögð höf-
uðáhersla á það að námsmönnum
hefur aftur tekið að fjölga. Gumað
er af geysilegri fækkun lánþega
og reynt að sýna fram fram á með
hlutfallstölum að hin nýju lög hafi
ekki bitnað sérstakleg illa á ein-
stökum lánþegahópum. Hlutfalls-
tölur eru augljóslega ekki fallnar
til að skýra þessa umræðu. Það
sést meðal annars á því að náms-
mönnum á Vestfjörðum hefði þurft
að fækka um meira en 50% til
þess að það kæmi fram i hlutfalls-
tölum ráðherra. Það er haft eftir
fyrrum forseta Bandaríkjanna að
til væru þtjár leiðir til að bera á
borð blekkingar: lygi, haugalygi og
tölfræði. Víkjum að því seinna.
Kjarninn í stuttu máli
Afleiðingar breyttra laga um
LÍN eru í stuttu máli þær að mikil
fækkun varð í hópi námsmanna á
háskólastigi í kjölfar gildistöku
laga um Lánasjóð íslenskra náms-
manna frá 1992 eða alls um 1.000
námsmenn heima og erlendis. Þessi
fækkun varð þvert á allar spár um
stöðuga fjölgun í námi á háskóla-
stigi um komandi ár. Fækkun varð
í íslenskum skólum þrátt fyrir að
fjöldi íslenskra námsmanna erlend-
is hefði hrakist þaðan frá námi og
fækkun varð þrátt fyrir viðvarandi
atvinnuleysi og ládeyðu á vinnu-
markaði.
meira en 50%, segir
Dagnr B. Eggertsson,
til þess að það kæmi
fram sem fækkun í hlut-
fallstölum ráðherra.
Þurfti Vestfirðingum að
fækka um 50 prósent?
Raunar hefði Vestfirðingum á
lánum þurft að fækka um meira en
50% til að fækkunar yrði vart í
tölum ráðherrans. Þessir sömu hlut-
fallsútreikningar hafa t.d. verið not-
aðir til að breiða klaufalega yfír það
að tala einstæðra foreldra á lánum
hefur hrunið úr 740 niður í 431 frá'
gildistöku laganna. í reikningum
ráðherrans kemur þetta fram sem
örlítil sveifla milli 7 og 8% af heildar-
Qölda lánþega. Það eru þessar
breytingar sem ráðherrann hefur
geð í sér til að kalla „að stuðla að
eðlilegri sókn íslenskra námsmanna
í lánshæft framhaldsnám og stuðla
að jafnrétti til náms“.
Sanngirni bíður birtingar
Dagblöð landsins eru ekki öf-
undsverð af því hlutskipti að skila
umræðu þessara kosninga til kjós-
enda. Komið getur fyrir að greinar
frambjóðenda og jafnvel ráðherra
þurfí að bíða lengur birtingar.
Menntamálaráðherra birtir rök sem
hafa verið marghrakin á síðustu
vikum, tölur sem hefur verið vísað
frá sem tölfræðilegri ónákvæmni
og villandi gögnum. Menntamála-
ráðherra hefur sjálfsagt skrifað
aðra grein þar sem alvarlegar ásak-
anir hans í garð námsmanna eru
dregnar til baka. Hann hefur sjálf-
sagt sent frá sér undirtektir eða
mótrök við málflutningi okkar. Birt-
ingar þeirrar greinar er beðið í of-
væni.
Til skýringar:
Hér eru birtar tölur frá LÍN um
lánþegaljölda í tveimur kjördæmum
þar sem fækkun er tvöfalt meiri í
öðru þeirra án þess að það komi
fram sem breytt hlutfall af heildar-
lánþegafjölda. Þá aðferð notar
menntamálaráðherra þó sem mæli-
stiku á þróun lánþegafjölda og dreg-
ur af því ályktanir um að sama
þróun sé alls staðar á landinu. Einn-
ig er birt samsvarandi dæmi um
þróun ijölda einstæðra foreldra á
námslánum.
Mismikil fækkun lánþega milli
kjördæma við breytt lög um LÍN
Norðurl. vestra Vestfírðir
Úr 161 í 123 Úr 128 í 78
23,60% fækkun 39,06% fækkun
Hlutfall af heildarfj. lánþega fyr-
ir og eftir breytingar
Norðurl. vestra Vestfirðir
3% óbr. 2% óbr.
Fækkun einstæðra foreldra frá
breytingum til 1994.
’91-’92 ’92—’93 ’93-’94
740 487 431
Alls 42% fækkun
Hlutfall af heildarfj. lánþega hjá
einstæðum foreldrum
’91-’92 ’92-’93 ’93-’94
8% 7% 7%
Höfundur er fráfarandi formaður
Stúdentaráðs Háskóla íslands.
Jóhanna berst fyrir
jafnrétti kynjanna!
JÓHANNA Sigurð-
ardóttir hefur með
margvíslegum aðgerð-
um beitt sér fyrir því
að ná fram jafnrétti
kynjanna. Hún beitti
sér m.a. fyrir sérstakri
framkvæmdaáætlun
sem snýr að öllum
ráðuneytum og kveður
á um aðgerðir til að
ná fram jafnrétti kynj-
anna. Nýleg könnun
um launamun kynj-
anna var m.a. gerð á
grundvelli þessarar
áætlunar. Þar er einn-
ig að fínna ákvæði um
að hlutur kvenna í nefndum á veg-
um ríkisins skuli hafa náð 30% í
lok gildistíma áætlunarinnar, sem
er 1997. Þjóðvaki - hreyfing fólks-
ins - leggur mikla áherslu á að
ná fram kerfisbundnu starfsmati á
störfum ríkisstarfsmanna. í fram-
Jóhanna Sigurðardóttir
hefur með margvís-
legum aðgerðum beitt
sér fyrir jafnrétti kynj-
anna segir Kristín
Björk Jóhannsdóttir.
Hún hvetur fólk til að
kjósa Þjóðvaka.
kvæmdaáætluninni um jafnrétti
kynjanna er kveðið á um slíkt
starfsmat til að framfylgja ákvæð-
um jafnréttislaga um að greiða
skuli konum og körlum jöfn laun
fyrir jafnverðmæt og sambærileg
störf, en þar átti ekki síst að leið-
rétta kjör láglaunastéttanna sem
vinna umönnunar- og uppeldis-
störfin.
Ný jafnréttislöggjöf
Sérstaklega ber einnig að nefna
nýja jafnréttislöggjöf, þar sem fam-
ar eru nýjar leiðir til að stuðla að
jafnrétti kynjanna. Þar er að finna
ákvæði sem opna konum leiðir til
að ná fram rétti sínum í launamál-
Kristín Björk
Jóhannsdóttir
um og ýmsum rétt-
indamálum. Má þar
nefna að kveðið er á
um að sérstaklega
skuli bæta stöðu
kvenna til að ná fram
jafnrétti ogjafnri stöðu
kvenna og karla á öll-
um sviðum. Þar segir
einnig að kynjum skuli
með stjómvaldsað-
gerðum tryggðir jafnir
möguleikar til atvinnu,
launa og menntunar.
Einnig að sérstakar
tímaabundnar aðgerð-
ir, sem ætlaðar eru til
að bæta stöðu kvenna
til að koma á jafnrétti og jafnri
stöðu kynjanna, séu heimilar. Með
þessu ákvæði er veitt heimild til
aðgerða sem em konum sérstak-
lega til hagsbóta á ákveðnum svið-
um. Þannig gæti verkalýðshreyf-
ingin beitt sér fyrir sérstökum að-
gerðum til að ná fram launajafn-
rétti kynjanna, líkt og Lára V. Júl-
íusdóttir lögmaður og frambjóðandi
Þjóðvaka hefur reifað. Þjóðvaki -
hreyfíng fólksins telur brýnt að all-
ar leiðir verði kannaðar til að ná
fram jafnrétti í launum og að í
samráði við verkalýðshreyfinguna
eigi sérstaklega að skoða þetta
ákvæði til að ná fram því sjálfsagða
réttlætismáli sem sömu laun fyrir
sambærileg störf er.
Trúverðug sveit
forystukvenna
í Reykjavík skipa 4 konur fímm
efstu sætin á lista Þjóðvaka. Allar
hafa þær beitt sér mjög í jafnrétt-
ismálum: Jóhanna, Ásta R. Jó-
hannesdóttir, Lára V. Júlíusdóttir
fyrrv. framkvæmdastjóri ASÍ og
Guðrún Árnadóttir fyrrv. fram-
kvæmdastjóri BSRB, en Lára og
Guðrún hafa báðar verið formenn
Kvenréttindafélags íslands. Ég
hvet fólk til að kjósa Þjóðvaka, því
í forystusveit Þjóðvaka er fólk sem
er staðráðið í að beita sér fyrir
jafnrétti í eigna- og tekjuskipting-
unni í þjóðfélaginu, m.a. að jafna
launamun kynjanna.
Höfundur skipar 17. sæti
Þjóðvaka íReykjavík.
Skilgreiningarvandi
vinstrimanna
þ.e. að öll hreyfíng hefyist frá
miðju.
Þessi nýja Höllustaðalógík er í
fullu samræmi við títtnefndan skil-
greiningarvanda íslenskra vinstri-
manna og hætt við að tími hugsan-
legrar félagshyggju fímmfætlu
ríkisstjómar fari í deilur um skil-
Einföld rök tala skýru máli
Námsmenn taka undir það að
fækkun lánþega þarf ekki í öllum
tilvikum að þýða að fólk hrekst úr
námi eða treystir sér ekki í það.
Við bendum hins vegar á það að
stórir hópar þurfa nauðsynlega á
lánum að halda, ekki síst barna-
fólk, einstæðir foreldrar og náms-
menn utan af landi. Þó að nú hafí
aftur fjölgað í skólum skiptir það
litlu í þessari umræðu, þegar það
er staðreynd að fækkun lánþega
er mest í þessum hópum. Þessir
hópar halda áfram að minnka þrátt
fyrir að námsmönnum sé aftur far-
ið að fjölga í lánshæfu námi. Ljóst
er að breytt lög um LÍN hafa haft
í för með sér breytta samsetningu
námsmannahópsins, þessu fólki í
óhag. Barnafólki hefur fækkað um
34% og einstæðum foreldrum um
42%. Vestfirðingum og námsmönn-
um af Austfjörðum fækkaði svo
um 35-40%. Þetta fínnst okkur
alvarlegt og undan þessum stað-
reyndum getur enginn skotið sér
með því að segja að tölur Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna séu
rangar.
NOKKRU fyrir
þinglok voru haldnar
eldhúsdagsumræður á
Alþingi þar sem for-
ystumenn stjórnmála-
flokkanna tjáðu sig
um stjómmálaástand-
ið. Olafur Ragnar
Grímsson fór þar mik-
inn og fann núverandi
ríkisstjóm allt til for-
áttu. Samkvæmt pól:
itískum kokkabókum
Alþýðubandalagsins
er það hin mesta
óhæfa og dæmi um
getuleysi ríkisstjórn-
arinnar að hafa haldið
verðbólgunni í eins stafs tölu allt
kjörtímabilið, náð jákvæðum við-
skiptajöfnuði þrjú ár í röð, snúið
vörn í sókn gegn atvinnuleysinu
og hafið niðurgreiðslu erlendra
skulda.
Svona árangri em vinstrimenn
ekki vanir enda skilgreina þeir
árangur út frá allt öðrum forsend-
um. í augum vinstrimanna er
árangur í stjórnmálum allt annar,
s.s. að sitja sem lengst (eða styst),
hafa sem mest ítök í
atvinnulífinu, sitja í
sem mestum sjóðum
og síðast en ekki síst
að vera fyrstir til að
slíta stjórnarsamstarfi
þegar í óefni er komið.
En skilgreiningar-
vandi vinstrimanna á
ekki einungis við um
pólitískan árangur
heldur líka um þá
sjálfa og hvar þeir eru
staddir í hinu pólitíska
litrófi á vinstri
vængnum. Þessi mikli
og alvarlegi vandi var
augljós þegar formað-
ur Alþýðubandalagsins lýsti með
mikilli geðshræringu sögulegu
framboði alþýðubandalagsfólks,
félagshyggjufólks, óháðra og ann-
arra vinstrimanna undir merkjum
G-listanna í landinu í áðurnefndum
eldhúsdagsumræðum. Ólafur var
sem sagt búinn að gefast upp á
því að fínna samnefnara á liðið
enda ekki furða eftir alla þá geij-
un, þreifingar og sameiningartil-
raunir sem á undan höfðu gengið
Vinstrímenn sundrast
í nafni sameiningar,
að mati Jóns Kristins
Snæhólms, sem
segir þá ósammála
um utanríkismál, land-
búnaðarmál og sjávar-
útvegsmál.
undir merkjum félagshyggjunnar
og endað með stofnun Þjóðvaka.
Nú er félagshyggjan ekki leng-
ur samnefnari ekta vinstrimanna.
Ekki síðan framsóknarmenn fóru
að nota orðið um sjálfa sig og það
því einungis brúkað þegar rætt
er um endurreisn stjórnarhátta
síðasta kjörtímabils þ.e. fjögurra
eða fimm flokka félagshyggju-
stjórn undir forystu Framsóknar-
flokksins. Þessi súrrealismi er vel
hugsanlegur þá sérstaklega eftir
að framsóknarmenn komu með
nýja eðlisfræðilega uppgötvun,
greiningu á aðsteðjandi vanda og
aðgerðir gegn honum.
Já, ágætu landsmenn, það er
ekki hægt að segja að við eigum
leiðinlega vinstrimenn eins og
Norðmenn og.Svíar. Okkar vinstri-
menn eru sífellt að endurskoða
stefnu sína og búa til nýja, sundr-
ast í nafni sameiningar og stofna
nýja flokka og félög. Forystumenn
íslenskra vinstrimanna eru líka
allir sjálfskipaðir forystumenn
sameinaðra félagshyggjuafla á ís-
landi í framtíðinni og því mjög
trúverðugir til að starfa saman af
heilindum og trúnaði eins og dæm-
in sanna. Þeir eru sammála því
að vera gjörsamlega ósammála um
veigamestu stjórnmál dagsins í
dag s.s. um utanríkismál, landbún-
aðarmál, sjávarútvegsmál og iðn-
aðarmál og hætt við að framtíð
okkar íslendinga verði æði dökk
undir þeirra stjórn.
Því segi ég við ykkur, kæru
landar mínir: Ef vinstrimaður
verður við stjórnvölinn á þjóðar-
skútunni næsta kjörtímabil skul-
um við öll fara í land!
Höfundur er sagnfræðingur.
Jón Kristinn
Snæhólm