Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 1
f seei jiota .ii fluoAt IÍM ÍT 1995 KNATTSPYRNA ÞRIÐJUDAGUR 11.APRIL BLAÐ i fflmSmSmm Rúnar út- nefndur maður leiksins RUNAR Krist- insson, landsliðs- maður í knattspyrnu, var útnefndur maður leiks- ins, eftir sigurleik Ör- gryte gegn Norrrkjöping, 2:1, í Gauta- borg í gær- kvöldi. 3000 áhorfendur sáu Rúnar eiga stórleik — stjórna liði sínu eins og herforingi — skora sig- urmarkið eftir glæsilegan einleik, en áður hafði ' hann lagt upp jöfnun- armarkið. Rúnar fékk fjóra af fimm möguiegum í einkun hjá blaðinu Ex- pressen. Rúnar er einn af fimm ís- lendingum sem leika með sænsk- um liðum. ísfirðingar sigur- sælir á ísafirði ÍSFimiING AR voru sigursælir á Skíðamóti ís- lands sem lauk á ísafirði á sunnudaginn. Heima- menn unnu til ellefu gullverðlauna af þeim 18 sem í boði voru. Ásta S. Halldórsdóttir var sigur- sælust allra keppenda mótsins, varð fjórfaldur meistari. Hún hefur nú unnið alls 20 íslands- meistaratitla frá því 1987 og er óumdeilanlega fremsta skiðakona íslands frá upphafi. Daníel Jakobsson frá Ólafsfirði varð hlutskarpastur göngumanna og varð þrefaldur meistari. Mótið þótti takast vel á hinu nýja og glæsilega skíða- svæði Isfirðinga í Tungudal þar sem veðrið lék við mótsgesti alla fjóra keppnisdagana. ■ Allt um mótið / C6,67 og C8. Ásgeir hefur valið Chilefaranna ÁSGEIR Elíasson, landsliðsþjálfari, hefur valið sextán leikmenn sem fara til Chile, þar sem leik- ið verður gegn Chilemönnum í Temuco 22. apríl. Átta leikmenn sem leika með erlendum liðum, eru í landsliðshópnum: Guðni Bergsson, Bolton, Rúnar Kristinsson, Örgryte, Hlynur Birgisson, Arnór Guðjohnsen og Hlynur Stefánsson, Örebro, Þorvaldur Örlygsson, Stoke, Eyjólfur Sverrisson, Besiktas og Arnar Gunnlaugsson, Niimberg. Aðrir leikmenn í hópnum eru Birkir Kristins- son, Fram, Friðrik Friðriksson, ÍBV, Kristján Jónsson, Bodö/Glimt (ekki er endanlega búið að ganga frá félagaskiptum hans í Framj, Sigur- steinn Gíslason og Sigurður Jónsson, IÁ, Izudin Daði Dervic og Guðmundur Benediktsson, KR, Arnar Grétarsson, Breiðabliki. Landsliðið heldur utan 18. apríl og kemur aftur 24. apríl. Helgi Sigurðsson i fótbrotnaði HELGI Sigurðsson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, ristarbeinsbrotnaði á æfingu lijá Stuttg- art á laugardaginn. Helgi lenti í samstuði við félaga sinn og missteig sig illa á vinstri fæti. Hann verður frá æfingum í átta vikur og leikur því ekki meira með Stuttgart á keppnistímabil- inu. Helgi var fluttur strax á sjúkrahús og skor- inn upp — hann verður útskrifaður af sjúkrahús- inu á morgun. Ágætt hjá Hall- dóri og Hjalta TVEIR íslenskir karatemenn kepptu á Opna hol- lenska meistaramótinu um helgina. Halldór Svav- arsson vann tvær fyrtu glimurnar en tapaði fyrir Þjóðverjanum Uysal í þriðju glíniu. Hjalti Ólafsson byijaði einnig nyög vel og vann fyrstu glímuua mjög örugglega. í næstu umferð mætti liann heima- manni sem virtist auðvel bráð en sá hollenski náði að sigra Iljalta, sem fékk uppreisnarglimu sem hann tapaði á dómaraúrskuði, 5:6. Morgunblaðið/Golli Rúnar kom, sá og sigraði Skoraði sigurmark Örgryte, 2:1, gegn Nörrköping í Gautaborg ígærkvöldij RÚNAR Kristinsson sló heldur betur í gegn þegar hann lék sinn fyrsta leik með Örgryte í sænsku úrvalsdeildinni ígær- kvöldi. Rúnar kom, sá og sigr- aði — hann stjórnaði leik liðs- ins gegn Norrköping, lagði upp jöfnunarmark og skoraði sigur- mark Gautaborgarliðsins, eftir mikinn einleik, 2:1. Eg get ekki annað en verið mjög ánægður, enda reiknuðu ekki margir með sigri okkar gegn hinu sterka iiði Norrköp- ing. Það sást I þess- um leik að við erum á réttri leið,“ sagði Rúnar, sem stjóm- aði leik Örgryte eins og herforingi — byggði upp. leik liðsins, skipaði fyrir þegar aukaspyrnur voru tekn- Frá Grétari Eyþórssyni i Svíþjóð ar og stjórnaði einnig varnarvegg, þegar andstæðingarnir fengu auka- spyrnur við mark Örgryte. Leikmenn Norrköping skoruðu fyrsta mark leiksins á þriðju mín. seinni hálfleiksins. Rúnar lagði upp jöfnunarmark Örgryte á 60 mín„ þegar hann átti glæsilega sendingu á Markus Allbáck, sem skoraði. Aðeins fimm mín. síðar skoraði Rúnar sigurmarkið — fékk knöttinn fyrir utan vítateig, lék á þijá varn- armenn, sendi knöttinn síðan í gegnum klofið á fjórða leikmannin- um — þrumaði knettinum síðan úr þröngri stöðu við markteigshorn, yfir Lars Erickson, landsliðsmark- vörð, 2:1. Leikurinn var mikill sigur fyrir Rúnar, sem var allt í öllu í liði Ör- gryte og eftir leikinn kepptust fréttamann að ræða við Rúnar. Örebro gerði jafntefli, 0:0, á úti- velli gegn Trelleborg á sunnudag-i. inn. Arnór Guðjohnsen og Hlynur Stefánsson léku með Örebro, en; Hlynur Birgisson er ekki orðinn; löglegur með ljðinu. Hann verður: löglegur með Örebro í vikunni og getur því leikið með um næstu helgi. Kristófer Sigurgeirsson var ekki í leikmannahópi Frölunda, sem tap- aði, 1:3, fyrir Hammarby. i NIUIMDIMEISTARATITILLIMJARÐVIKIINIGA A FIMMTAN ARUM / C2rC4,C5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.