Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 11.04.1995, Blaðsíða 8
8 C ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 SKÍÐAMÓT ÍSLANDS Daníel sýndi læríföður sínum í tvo heimana DANÍEL Jakpbsson, sem keppir fyrir Ólafsfjörð, sýndi læriföður sínum, Einari Ólafs- syni, í tvo heimana í 30 km göngunni á sunnudaginn. Hann var rúmlega tveimur mínútum á undan Einari. „Ég hefði aldrei getað sætt mig við að tapa fyrir Einari," sagði Daníel sem varð jafnframt sigurvegari f göngutvíkeppni. Hann fagnaði því þremur titl- um á þessu móti því hann var einnig í sigursveit Ólafsfirð- inga í boðgöngu. Danfle sagði að það hafi verið svolítið erfitt að halda damp- inum í göngunni. „Það var létt að gefast upp en ég var ákveðinn í að selja mig dýrt ég hefði ekki getað látið það spurjast að tapa fyrir læriföðumum. Eg var búinn að taka hálfa mínútu af honum í fyrsta hring (5 km) en síðan var hann farinn að síga ansi mikið á mig í öðrum hring. Þá var ég að hugsa um að hætta, en ákvað að reyna að gefa aðeins í og gefast ekki upp og það tókst. Einar gekk mjög vel og má segja að hann hafi verið hálfr.r sigurvegari í dag. Það er mjög gott hjá honum að vera ekki nema einni og hálfri mínútu á eftir mér í svona langri göngu þegar hann er búinn að æfa aðeins í þrjá mánuði,“ sagði Daníel. „Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt mót. Þó ég hafi tapað fyrir Gísla í 15 kílómetra göngunni held ég að það sé bara gott fyrir skíðaíþróttina. Það gef- ur Gísla aukið sjálfstraust, hann verður betri og hvetur hann enn frekar til dáða. Það er líka gott að ég fæ þá meiri samkeppni og það er af hinu góða. Ég er því mjög sáttur við árangurinn,“ sagði göngukappinn. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson AUÐUR Ebenezerdóttir vann tvenn gullverðlaun á Skíðamóti íslands. Hún hefur unnlð fleirl íslandsmeistaratitla f göngu en nokkur önnur skfðakona. Tvöfalt hjá ísfirðingum ÍSFIRÐINGAR unnu tvöfalt í 15 km göngu pilta 17-19 ára með hefðbundinni aðferð á sunnudaginn. Hlynur Guð- mundsson varð fyrstur, tæpri mínútu á undan félaga sínum, Arnari Pálssyni. Gísli Harðar- son, sigurvegari í 10 km göngunni á fimmtudag, varð þriðji og um fimm mínútum á eftir Hlyni, sem varð jafnframt sigurvegari í göngutvíkeppni, þ.e.a.s. samanlögðum árangri úr göngunum tveimur. Veður var hreint frábært á f safirði á sunnudaginn eins og reyndar alla mótsdagana. Svo gott var veðrið að starfsmenn gengu um á stuttbuxu. Einar bik- armeistari EINAR Ólafsson frá ísafirði varð bikarmeistari SKÍ 1995 í göngu karla, en það er sameig- inlegur árangur úr bikarmótum vetrarins. Hann hlaut samtals 85 stig, en 25 stig eru gefin fyrir sigur í hverju móti. Hauk- ur Eiríksson, Akureyri, varð annar með 80 stig og Kristján Hauksson, Ólafsfirði, þriðji með 73 stig. Arnar Pálsson, ísafirði, varð bikarmeistari SKÍ í flokki pilta 17-19 ára. Hann hlaut 70 stig, eða jafn mörg og Hlynur Guð- mundsson, en þar sem Arnar var ofar í fleiri mótum telst hann bikarmeistari. Akur- eyringurinn Gísli Harðarson varð þriðji. Helga Margrét Malmquist frá Akureyri varð bikarmeistari í göngu kvenna. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson Daníel þrefaldur íslandsmeistari DANÍEL Jakobsson frá Ól- afsflröl varö slgursælastur allra í göngu á Skíðamóti íslands. Hann varö þrefald- ur melstarl; í 30 km göngu, tvíkeppni og boögöngu. Hér gengur hann tll slgurs í 30 km göngunnl. Á minnl mynd- Inni óskar Einar Ólafsson lærlsveinl sfnum tll ham- ingju með sigurlnn. Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson. Auður lofaði skóla stjóranum gulli Auður Ebenezerdóttir, göngu- kona frá ísafírði, var að vonum ánægð með sigurinn í göngu kvennna á landsmótinu á sunnudag. „Ég varð að sigra því annars hefði ég fengið skammir frá skólastjóranum og skólafélög- unum,“ sagði Auður eftir sigurinn í 7,5 km göngu með hefðbundinni aðferð. Hún er í Iþróttakennara- skól- anum á Laugarvatni og átti erfitt með að fá frí úr skólanum til að keppa á landsmótinu og því lofaði hún skólastjóranum gulli ef hún fengi að fara og stóð við það. Gullin urðu reyndar tvö því hún vann líka í göngutvíkeppni, það er samanlagður árangur úr göngunum tveimur, 5 km og 7,5 km. Auður, sem er sigursælust ís- lenskra kvenna í göngu frá upp- hafi, sagði að það hafí verið mjög gott að ganga, bæði veðrið og færið eins og best verður á kosið. Svava Jónsdóttir frá Ólafsfírði, sem sigraði í 5 km göngunni, byijaði gönguna mjög vel og var komin 20 sekúndum á undan Auði eftir þrjá kílómetra. Auður ákvað þá að taka á öllu sínu og náði að hrista Svövu af sér og kom tveimur og hálfri mínútu á undan henni í mark. „Ég held að Svava hafí sprengt sig og því var þetta ekki eins erf- itt og ég bjóst við — ég fékk auka- kraft er ég frétti að ég væri að saxa á forskot hennar. Eg passaði mig á því að stífna ekki upp eins og í fyrri göngunni. Ég er mjög sátt við þennan árangur á mótinu, þetta er alltaf jafn gaman,“ sagði •Auður sem útskrifast úr Iþrótta- kennaraskólanum í vor.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.