Morgunblaðið - 05.05.1995, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 B 3
DAGLEGT LÍF
' " a T m ','- \
| f J H I \)
Morgunblaðið/grg
Á fjórða tug islenskra karlmanna sátu karlaráðstefnuna. Þeir voru frá tvítugu og fram á sjötugsaldur
Noregi og Danmörku, sýndu líka ein-
dreginn vilja til áð halda þessu starfi
áfram og stuðla að því að fleiri karl-
aráðstefnur yrðu haldnar."
Mlklð óunnlA í málefnum karla
„Mér fannst merkilegt að sjá og
skynja hversu mikið er að gerast í
karlaumræðu. Jafnframt kom glöggt
í ljós hversu ótrúlega mikið er óunn-
ið í málefnum karla“, sagði Sigurður
eftir ráðstefnuna.
„Það er alveg ljóst að umræða um
jafnrétti hefur lengi verið háð á for-
sendum kvenna og karlar hafa verið
hikandi. í framhaldi af þessari ráð-
stefnu höldum við áfram að vinna
að afmörkuðum málefnum karla,
þessi hópur sem fór saman til Stokk-
hólms.
Það eru skýr skilaboðin af ráð-
stefnunni hvort sem var frá konum
eða körlum að jafnréttisbaráttan er
fyrir bæði kynin. Jafnrétti á sem
flestum vígstöðvum kemur báðum
kynjum til góða. Karlmenn megi
ekki líta svo á að þeir séu að gefa
eftir og öfugt.“
Sigurður er á því að fyrir utan
leikmyndahönnuður, voru meðal
sautján þátttakenda á námskeið-
inu. Þær sögðust hafa kynnst nýj-
um möguleikum í meðferð ýmissa
efna og kærkomið tækifæri hefði
gefíst til að bera upp ýmis vanda-
mál við sérfræðingana, sem virtust
kunna ráð við öllu.
Smáatrlðln
Fyrir leikmann er forvitnilegt
tengsl við herskyldu, sem er á hinum
Norðurlöndunum, hafi íslenskir karl-
menn fundið fyrir samkennd með
meðbræðrum sínum. Hann sagði að
það hafði verið fróðlegt að fá stað-
festingu á því hvað íslendingar
standi langt að baki nágrannaþjóð-
unum með ýmis réttindi karla og það
sé forgangsmál að sækja aukinn rétt
fyrir feður.
Ofbeldl hefur ekkert meA
karlmennsku aA gera
Á Norðurlöndunum er þegar búið
að koma upp meðferðarstofnunum
fyrir karla sem beita ofbeldi. íslend-
ingar standa langt að baki nágranna-
þjóðum hvað það varðar, en í haust
mun íslenska karlanefndin gangast
fyrir kynningarátaki um ofbeldi og
karla. „Við munum vinna að því að
koma á fót skipulegu meðferðarkerfi
fyrir þá einstaklinga sem beita of-
beldi og afla okkur upplýsinga á
Norðurlöndum þar sem töluverð
reynsla er komin á þessi mál. Fyrir-
byggjandi fræðsla er einnig nauðsyn-
leg. Það þarf að komast til skila að
ofbeidi er óásættanlegt og hefur ekk-
að kynnast vinnunni sem fram fer
að tjaldabaki. Að ótal smáatriðum
þarf að hyggja, t.d. eru efni, sem
notuð eru í búninga og leiktjöld,
oft lituð og þá þarf velja liti, fljót-
andi eða duft, m.a. með tilliti til
ljós-, þvotta- og slitþols. Meðhöndl-
un sviðsgólfs fyrir ballettsýningar
er með öðrum hætti en ef um leik-
rit er að ræða. Núningurinn verður
mun meiri og þá þarf að mála
ert með karlmennsku að gera.“
í lok ráðstefnunnar í Stokkhólmi
var það tekið saman í nokkra punkta
hvað það er sem karlmennimir setja
í forgang.
1. Það á að vera sjálfsagt að foreldr-
ar fái sameiginlegt forræði yfir böm-
um sínum.
2. Báðum foreldmm á að gefast
kostur á að fá launað fæðingarorlof.
Foreldrar eiga að geta ráðstafað
fæðingarorlofi eftir aðstæðum.
3. Bæði kyn eiga að sinna her-
skyldu. Ekkert land á að fangelsa
þá sem neita að sinna herskyldu.
4. Ráða á fleiri karlmenn á leikskóla
og í'yngstu bekki grunnskóla.
5. Rannsaka á hvers vegoa strákum
gengur verr í skólum en stelpum.
6. Ofbeldi og karlmenn er mála-
flokkur sem ber að rannsaka frekar
og öllum karlmönnum á Norðurlönd-
um á að bjóðast að fara í meðferð
beiti þeir ofbeldi.
7. Karlmenn lenda frekar en konur
í slysum og þá sérstaklega vinnuslys-
um. Það ber að rannsaka nánar.
Guðbjörg R. Guðmundsdóttir
gólfið með sérstakri málningu og
annarri aðferð.
Hlín og Hulda Kristín sögðu að
hyggja þurfti að þessum atriðum
og ótal öðrum. Þær sögðust, eins
og aðrir þátttakendur, vera orðnar
hafsjór af fróðleik og ýmsar hug-
myndir hefðu vaknað, sem vonandi
skiluðu sér inn í leikhúsin. ■
vþj
,,Sannur karl-
maður er sannur ég“
„ÉG VAR fyrir nokkrum árum
ráðvilltur sem karlmaður, hafði enga
hugmynd um hvemig ég átti að vera.
Hvaða hegðun átti ég að sýna, hvaða
kröfur gat ég gert? Þegar ég fór í
sambúð var ég óöruggur í hlutverki
mínu sem maki, faðir og karlmað-
ur,“ segir Axel Guðmundsson, einn
þátttakenda frá íslandi.
Ölll straumhvörfum í lífl mínu
Axel segist hafa átt erfiða æsku
og það hafi leitt hann til sjálfsskoð-
unar. „Fyrir sjö árum fór ég á nám-
skeið hjá manni sem
heitir Terry Cooper og
rekur Spectrum-
stofnunina í London.
Síðan hef ég reglulega
sótt hjá honum nám-
skeið og í fyrra hélt
hann námskeið um
karla og tilfinningar.
Þessir dagar ollu
straumhvörfum í lífi
þeirra 20 íslensku karla
sem tóku þátt í nám-
skeiðinu. Eg var með
miklar væntingar, vildi
fá uppskrift að því
hvernig ég ætti nú að
vera sannur karimaður.
Svarið var afar einfalt,
í Stuttu máli þá var
sannur karlmaður sannur ég, hvernig
sem ég var og er. Ég átti að sleppa
hlutverkunum sem lék. Auðvitað var
það síðan heilmikil vinna að frnna
út hver ég var og er.“
Marglr karlmenn ráAvllltir
Axel segir að á umræddu karla-
námskeiði hafi það runnið upp fyrir
honum að það voru margir karlar á
sama báti og hann — ráðvilltir. Og
vegna þess hve auðvelt það er að
ná áttum og hve gefandi og dýr-
mætt það er þá vildi hann miðla
reynslu sinni, gefa öðrum tækifæri
á að öðlast sömu reynslu og hann.
Dijúgur tími Axels á ráðstefnunni
fór því í að kynna aðra ráðstefnu sem
verður haldin á íslandi næsta sumar
undir nafninu: „Men for men“. Það
er breska stofnunin Spectrum sem
hafði frumkvæði að henni og þar
verður fjallað um karlmenn og til-
finningar.
LangþráA fyrsta skref
„Þessi ráðstefna er langþráð skref
í málefnum karla og virðingarverð
sem slík. Að mínu mati endurspegl-
aði ráðstefnan nákvæmlega stöðu
karlmannsins í dag með því að vera
mjög vitsmunaleg og fara lítið inn á
tilfínningasviðið en það var líka gam-
an að finna fyrir þeirri karlavakningu
sem er að fara af stað.“
Axel segist hafa hitt marga menn
á þessari ráðstefnu sem höfðu svip-
aðan bakgrunn og hann og upp kom
sú hugmynd að fara af
stað með gerð myndar
um stöðu karlmannsins
í dag og karlavakning-
una sem er að hefjast í
heiminum.
Hann hefur unnið við
kvikmyndagerð og mik-
ill hugur í mönnum um
að láta verða af þessari
hugmynd.
„Mér fannst líka upp-
örvandi að sjá á þessari
ráðstefnu í Stokkhólmi
að karlastarfíð sem ég
hef tekið þátt í heima á
íslandi jafnast á við það
besta á Norðurlöndum
og einnig að uppgötva
að það sama er í gangi
þar. Þessi ráðstefna fyllti mig því
eldmóði og ég er ákveðinn í að virkja
þá orku.
Karlar hlttast tll aA
auka auAlegAarvitund
Axel er m.a. í klúbbi með karl-
mönnum sem hittast reglulega til að
treysta vináttuböndin en ekki síður
til að auka auðlegðarvitund. Hvað
felst i því?
„Við hittumst mánaðarlega og
skoðum okkur sjálfa, sérstaklega
með tilliti til peningaviðhorfa. Við
skoðum hvemig viðhorf okkar ráða
auðlegð okkar eða hvernig þau hafa
áhrif á tekjur okkar. „Á ég skilið að.
verða ríkur? Þarf ég að verða ríkur?
Til að skoða þetta betur sýslum
við með sameiginlegan sjóð sem við
söfnum í og er nokkurs konar per-
sónulegur lífeyrissjóður okkar. Þar
koma upp öll viðhorf okkar og reyn-
ir virkilega á gagnkvæmt traust."
Axel Guðmundsson
F oreldrar þurfa að
ala saman upp sterka einstaklinga >
„ÞAÐ var áhugavert að sjá hversu
mikið er að gerast í málefnum karla
og sjá hve langt hin Norðurlöndin
hafa náð með ýmis réttindamál karla,
s.s. fæðingarorlof fyrir þá og athvarf
fyrir karla sem beita
ofbeldi,“ _ segir Einar
Sveinn Ámason, einn
ráðstefnugesta í Stokk-
hólmi.
„Það var full þörf á
að hittdst og fá tæki-
færi til að bera okkur
saman við aðrar Norð-
urlandaþjóðir og sjá
hvar við, íslenskir karl-
menn, stöndum." Einar
Sveinn vinnur hjá
ménntamálaráðuneyt-
inu og starfar í bakhópi
um jafnréttismál á Veg-
um þess sem skal fylgj-
ast méð framkvæmd 10.
gr. jafnréttislaga um að
ekki skuli mismuna
kynjum og veita skuli
fræðslu á öllum stigum grunnskóla-
náms um jafnrétti.
- Heldur þú að þessi ráðstefna
muni breyta einhveiju í jafnréttisum-
ræðunni?
„Ég vona þáð. Það eina sem mér
fannst vanta var meiri umræða um
jafnréttismál í skólakerfinu því þar
er verið að vinna allskonar tilrauna-
starf. Það er hinsvegar hugur í þeim
körlum sem ráðstefnuna sóttu. Það
er meiningin að fylgja einstökum
málum eftir og sumum þeirra strax.
Það er t.d. aðkallandi að fá í gegn
að feður fái launað fæðingarorlof,
Tíðarandinn er að breytast og ungir
feður vilja fá að tengjast bömum sín-
um frá upphafi. Þeir líta hlutverk
sitt öðrum augum en
þeirra feður gerðu. Feð-
ur hafa verið að taka
sumarfrí í kringum fæð-
ingu barnsins síns til að
geta verið heima ög
þetta er óviðunandi."
VIA þurfum nð
starfa saman
Einar segir að nú
þurfi íslensku karlarnir
að ræða hvernig þeir
vilji sjá þróunina fram-
undan í jafnréttisbarátt-
unni hvað þá varðar.
„Það þýðir ekkert að
einblína á það hvemig
konur vílja hafa menn.
Þannig gengur það bara
ekki. Við þurfum að
vinna þetta saman en menn geta
ekki gengið inn í mynd sem konur
búa til og karlar verða núna að finna
sínar eigin leiðir inn í þessi nýju hlut-
verk sem skapast hafa með breyttum
aðstæðum í þjóðfélaginu.
Lykilatriðið er að karlar sem konur
þurfa að vera jöfn á öllum sviðum,
vera sterk og starfa saman að því
að byggja upp sterka og jákvæða
einstaklinga. Þá líður okkar vel og
auðveldara verður að leysa öll mál.
Einar Sveinn
Árnason
I
I
I
nmommm