Morgunblaðið - 11.05.1995, Side 8
vmsram/JoviNNUUF
FIMMTUDAGUR 11. MAÍ 1995
Fólk
Verslunar-
sijóri hjá Byko
f! GÚSTAF B.
Ólafsson, bygg-
ingafræðingur, hef-
ur tekið við starfí
verslunarstjóra í
verslun BYKO í
Hafnarfirði. Gú-
staf er fæddur árið
1959. Hann lauk
prófi í byggingafræði frá B.T.H. í
Horsens 1989. Síðastliðin 4 ár hefur
hann starfað sem framkvæmdastjóri
hjá Fit hf. Gústaf er kvæntur Björk
Steingrímsdóttur.iðjuþjálfa, og
eiga þau þijú börn.
Þórður Hilmarsson, framkvæmdastjóri Globus-vélavers er for-
maður hins nýstofnaða Félags íslenskra vinnuvélainnflytjenda.
Félag íslenskra
vinnuvélainnflytjenda
með stórsýningu
FÉLAG íslenskra vinnuvélainn-
flyljenda efndi nýlega til stórr-
ar sýningar á vinnuvélum á
Þróttarplaninu í Reykjavík. Þar
sýndu fyrirtækin Brimborg hf.,
Globus-vélaver, Kraftvélar,
Merkúr hf. og Vélar og þjón-
usta hf. vinnuvélar frá öllum
helstu vélaframleiðendum
heims.
Markmið Félags íslenskra
vinnuvélainnflytjenda er að
tryggja að samkeppnisskilyrði
og þar með vélainnflutningur
verði á hveijum tíma jafn hag-
stæður og gerist í helstu ná-
grannalöndum okkar. Jafn-
framt vill félagið stuðla að því
að vinnuvélaeigendum gefist
kostur á að fá að fá yfirsýn
yfir framboð vinnuvéla á ís-
lenska markaðnum með sem
auðveldustum hætti, segir í
frétt.
Landsins mesta úrval af ræstivögnum og
moppuvögnum ósamt öllum fylgihlutum.
Verö fró kr. 16.996 /“ m/vsk. stgr.
RETTARHALSI 2*110 REYKJAVIK • SIMI: 91-875554
T o r g i ð
Ferðamannaverslun
FERÐAMANNAVERSLUN er líklega
í hugum margra íslendinga fyrst og
fremst sala á lopapeysum og þess
háttar vörum t.d. í Rammagerðinni.
Þessi ímynd kemur heim og saman
við tölur yfir endurgreiðslur á virðis-
aukaskatti til ferðamanna á leið úr
landi þar sem stærstur hluti þeirra
hefur verið vegna ullarvara. Þær
tölur gefa einnig til kynna að hlutur
verslunar i'þeim 17 milljörðum sem
erlendir ferðamenn eyddu hér á
landi á síðasta ári sé mjög lítill.
Töluverðir möguleikar virðast vera
vera fyrir hendi á þessu sviði og inn-
an Samtaka verslunar eru menn full-
ir áhuga á að leita leiða til að örva
þessi viðskipti. I því sambandi er
horf til vaxandi fjölda erlendra ferða-
manna sem líklega verða yfir 200
þúsund á þessu ári. Haukur Þór
Hauksson, framkvæmdastjóri Borg-
arljósa, hefur kannað þessi mál fyrir
samtökin. Á opnum fundi um þessi
mál í gær lýsti hann því yfir að mikl-
ir möguleikar væru til aukinna við-
skipta við erlenda ferðamenn. Versl-
unin í landinu þyrfti að taka frum-
kvæðið og leita samstarfs við aðra
hagsmunaaðila.
Haukur vakti athygli fundar-
manna á því að í Flugstöðinni væru
einungis 2 verslanir sem reknar
væru undir handarjaðri ríkisins. Með
markvissum breytingum mætti hins
vegar skipta stóru svæði flugstöðv-
arinnar í sölubása og bjóða ótal
verslunarfyrirtækjum að bjóða fram
þjónustu sína á ýmsum sviðum.
Þetta gæti skapað mörg viðskipta-
tækifæri auk þess sem það gæfi
ferðamanninum tilfinningu fyrir því
sem í vændum væri. Þá mætti með
betra skipulagi við mótttöku
skemmtiferðaskipa skapa ferðafólki
meiri tíma í miðbænum. Haukur
varpaði fram þeirri hugmynd að
sett yrði á fót svonefnd „Tax-free"
verslun í miðbæ Reykjavíkur. Sú
verslun myndi þjóna hinum almenna
ferðamanni, skemmtiferðaskipum,
sjómönnum og erlendum kaup-
sýslumönnum. Loks þyrfti að vera
handbær bæklingur fyrir ferðamenn
um hvaða möguleikar væru fyrir
hendi í verslunum.
„Ég held við getum verið sam-
mála um það að grundvöllur undir
verslun við erlenda ferðamenn hefur
aukist á síðustu misserum. Frjáls-
ræði í gjaldeyrisiviðskiptum hefur
aukist, verðlag í verslunum hefur
stórlækkað og ferðamönnum hefur
stórfjölgað. Þó eru nokkur Ijón í
veginum. Vörugjald á margar al-
gengar verslunarvörur gerir þá
vöruflokka síður fýsilega fyrir er-
lenda ferðamenn, sérstakur skattur
á verslunar- og skrifstofuhúsnæði
leggst hart á verslunina, trygging-
argjald á verslun er mun hærra á
iðnað en útgerð," sagði Haukur.
Magnús Oddsson, ferðamála-
stjóri, hvatti verslunarmenn einnig
til dáða í sínu erindi og benti á að
verslun væri orðin afþreying að
hluta. Það þyrfti að skapa ferða-
mönnum enn frekara tilefni til versl-
unar. „Ferðamönnum þarf að kynna
sérstaklega þá þætti þar sem ís-
lensk verslun er samkeppnishæf við
þeirra heimalönd, hvort sem það er
í gæðum, sérstöðu vörunnar eða
verði. Vitum við það? Hefur það
verið kannað í hvaða þáttum við
erum betri en samkeppnislöndin.
Til þess að erlendir og innlendir
ferðamann noti hér peninga þarf að
tryggja aðgengi þeirra. Opnunartími
verður að vera í samræmi við þarfir
gestanna. Hver man ekki hér fyrir
örfáum árum þegar gestir lömdu
utan allar hurðir á Laugaveginum á
laugardögum. Flestir erlendir gestir
eru í Reykjavík um helgar. Þeir vilja
versla og gera það ekki nema fá
tækifæri til þess." Magnús gat þess
að Islensk verslun hefði nýlega haf-
ið samstarf við Ferðamálaráð með
því að fá áheyrnarfulltrúa í ráðinu.
Það er greinilegt að ýmislegt má
færa til betri vegar til að auka áhuga
erlendra ferðamanna á því að versla
hérlendís og nægir þar að benda á
jafn einfalt atriði og bætta aðstöðu
fyrir fólksflutningabíla í miðbænum.
Þá þarf að tryggja að ferðamenn fái
virðisaukaskatt endurgreiddan með
einföldum hætti þegar þeir yfirgefa
landið. Hátt vöruverð hlýtur þó alltaf
að vera stærsta hindrunin og því
felst stærsta verkefnið í því að auka
úrval gæðavarnings á samkeppnis-
hæfu verði. KB
Við sjáum um
hraðsendingarnar
á HM 95
90 afgreiðslustaðir um land allt
Viðtökustaðir sendinga eai á póst- og Æ
símstöðvum um land allt og í Hraðflutnings-
deildinni, Suðurlandsbraut 26,108 Reykjavík.
í>ar eru veittar allar nánari upplýsingar
í síma 550 7300, fax 550 7309.
Opið frá kl. 8:30-18:00 alla virka daga
FORGANG SPÓSTUfí og á laugardögum frá kl. 9:00-12:00.
PÓSTUR OG SÍMl
PJÚNUSTUAÐILI HM 1995