Morgunblaðið - 13.05.1995, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 13.05.1995, Blaðsíða 10
10 D LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ KÖRFUKIMATTLEIKUR Barkley og Johnson fóruá kostum REGGIE Miller tryggði Indiana sigur, 97:95, í íramlengingu gegn New York íþriðja leik lið- anna 2. umferð úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik ífyrrakvöld. Indiana leiðir nú 2:1. Á sama tíma héit Phoenix áfram sigur- göngu sinni gegn Houston með stórsigri, 118:94. Eftir tvo leiki leiðir Phoenix 2:0, en það er sama staða og kom upp f fyrra þegar þessi lið áttust við í úrslitakeppni NBA. Þá sigraði Phoenix í tveimur fyrstu leikjunum, leikmenn Houston bitu í skjaldarrendur íframhaldinu og sigruðu, og urðu að lokum meistarar. Phoenix menn voru það öruggir þegar þriðja leikhluta lauk að tveir stigahæstu menn þeirra í leiknum, Charles Barkley og Kevin Johnson, léku ekkert með ífjórða leikhiuta. Leikmenn New York leiddu með ellefu stiga mun þegar nokkuð var liðið á fjórða leikhluta en Indi- ana gaf hvergi eftir og jafnaði, 88:88, og kreisti út framlengingu. Þar skoraði Derek Harper fyrstu stigin fyrir New York, en leikmenn Indiana undir stjóm Reggie Miller skoruðu átta stig í röð og náðu forystu 96:90. Reggie Miller skoraði flest stig Indiana, 26 stig og tók 11 fráköst og Rik Smits kom næstur með 21 stig og níu fráköst. Patrck Ewing gerði flest stig leikmanna New York, 11, en hann varð að yfirgefa völlinn með sex villur, þremur mínútum áður en venjulegum leik- tíma lauk. Phoenix Suns byrjaði af fullum krafti gegn Houston og hafði náð sextán stig forskoti þegar fyrsta leikhluta j^uk. Skotanýtingin var líka eftir því; leikmenn Phoen- ix voru með 56% nýtingu á sama tíma og andstæðing- anna í Houston var aðeins 29%. Barkley og félagar héldu sínu striki það sem eftir lifði leiks og gáfu hvergi eftir. Hakeem Olajuwon skoraði 25 stig fyrir Houston og Robert Horry kom honum næstur með 20 stig. Charles Barkley og Kevin Johnson voru stigahæstir hjá Suns, Barkley skoraði 30 stig og Johnson 29. Þess má geta að þeir félagar skor- uðu 21 af 25 stigum liðs síns í þriðja leikhluta. NBA Leikir aðfaramótt föstudags: Indiana — New York..... 97: (Indiana leiðir 2:1) Phoenix — Houston......118: (Phoenix leiðir 2:0). 95 91 Reuter REGGIE Mlller tryggðl Indlana slgur í þriðju vlðurelgn Indlana og New York í fyrrakvöld. Með sigrinum náðu hann og félag- ar hans í Indiana-liðinu yflrhöndlnni, 2:1, í baráttunni gegn Patrick Ewing og félögum í New York. Hörmung á ísafirði UM HELGINA Knattspyrna Litla bikarkeppnin Úrslitaleikur Litlu bikarkeppninnar verð- ur á Akranesi á morgun og hefst kl. 18. Þar mætast lið íslandsmeistara LA. og iið FH. Golf Rangármótið Fyrsta mótið sem gefur stig til landsliðs verður haldið á Hellu um helgina. Leikn- ar verða 36 holur, 18 holur í dag og 18 á morgun. Opna Benetton Benetton-mótið verður haldið í Leirunni á sunnudaginn og verða leiknar 18 holur. Landsbankamót Mótið verður á sunnudaginn hjá Golf- klúbbi E)júpavogs og verða leiknar 18 holur. Grafarholtið opnar Fyrsta mót sumarsins á Grafarholtsvelli QR verður í dag, en þá opnar völlurinn formlega. Leiknar verða 18 holu högg- leikur til æfíngar fyrir Hvítasunnubikar- inn go 32 bestu komast áfram í holu- keppni. Um kvöldið verður vorblót GR og hefst það kl. 20. Almenningshlaup Húsasmiðjuhlaupið Hið árlega HÚBasmiðjuhlaup verður í dag og hefst kl. 12.30 við verslun Húsasmiðj- unnar í Hafnarfirði. Hlaupnir verða 3,5 :km og hefst það hlaup klukkan 13, en 10 kílómetra hlaupið og hálfmaraþonið ■hefst kl. 12.30. Skráning er á staðnum milli klukkan 9 og 12. Smárahlaupið Á> sunnudaginn verður Smárahlaupið í Kópavogi. Lagt verður upp frá Smára- skóia kl. 13 og hægt að velja milli 2,5 km og 5 km hlaups. Skráning á keppnis- dag frá 11 til 12.45. Snóker Síðara stigamót snókermanna verður í dag og hefst kl. 10 með riðlakeppni. Átta manna úrslit verða síðan á morgun og hefjast kl. 12 á Ingólfsbilliard. Íslenska landsliðið tapaði öðru sinni gegn Dönum á jafn mörgum dög- um. í gær mættust liðin á ísafirði og var þetta fyrsti landsleikurinn í körfu þar vestra. Úrslitin urðu 53:81, eftir að staðan í leikhléi hafði verið 25:42 fyrir Dani. Jafnt var framan af, ísland 16:12 yfir en þá var eins og allt færi í ba- klás og Danir sigldu framúr. Það gekk allt á afturfótunum og hittnin var ömurieg, verri en nokkru sinni hjá íslensku landsliði. „Vonandi er þetta botninn hjá okk- ur,“ sagði Torfí Magnússon eftir leik- inn og bætti við að nú lægi leiðin upp á við og toppnum yrði að ná áður en Evrópukeppnin hæfíst. Skotnýtingin var léleg og sagði Torfi að hann hefði ekki séð landslið- ið skora bara tvær þriggja stiga körf- ur síðan þriggja stiga línan var fund- in upp. Tvær þriggja stiga körfur í 25 tilraunum! Hræðilegt. Innan teigs fóru 8 skot niður af 23, utan teigs voru það 6 af 15 og meira að segja gekk illa á vítalín- unni, þar hittu menn úr 19 skotum af 31. Enginn náði tveggja stiga tölu í stigaskorun. Jón Kr. gerði 9 stig, Hermann og Jón Amar 8 stig hvor, Herbert 7, Valur 6, Guðmundur 4 og þeir Marel og Falur 2 hvor. Teitur og Sigfús téku ekki með, komust ekki vestur af persónuleegum ástæðum. Hjá Dönum var Mikkel Langager stigahæstur með 19 stig, Joachim Jerichow gerði 15 ogF. Danielsen 14. Morgunblaðið/Kristinn GUÐMUNDUR Bragason og félagar í landsllðlnu náöu sér ekkl á strik I fyrsta körfuknattleiks- landsleiknum sem fram fer á ísafirði. „Bréfber- inn“ fékk flest stig í lið ársins KARL Malone, framherji Utah Jazz, sem hefur viður- nefnið „bréfberinn“, var efst- ur á blaði þegar lið ársins I NBA-deildinni í körfuknatt- leik var tilkynnt í gær. Þetta er í sjöunda sinn sem Malone er valinn og fékk hann lang- flest atkvæði, 102 í fyrsta lið og 519 stig, en það er hópur fjölmiðlamanna um gervöll Bandaríkin sem kýs. David „aðmlrálí“ Robinson frá San Antonio — sem þykir sigurstranglegur í vali á leik- manni ársins í NBA — var næstur í röðinni í atkvæða- greiðslu fjölmiðlamannanna, með 86 atkvæði í fyrsta lið og 479 stig. Aðrir voru Scottie Pippen frá Chicago Bulls með 451 stig, John Stckton úr Utali Jazz með 447 — sem báðir fengu 73 at- kvæði í fyrsta liðið — og An- femee Hardaway úr San Antonio Spurs með 394 stig og 55 atkvæði. Gefin eru fimm stig fyrir atkvæði í fyrsta liðið, þrjú fyrir annað liðið og eitt fyrir atkvæði í þriðja lið. Annað liðið samanstendur af Charles Barkley úr Phoen- ix, Shawn Kemp frá Seattle Supersonics, Shaquille O’Ne- al úr Orlando, Gary Payton frá Seattle og Mitch Rich- mond frá Sacramento. í þriðja liðinu em Dennis Rodman frá San Antonio, Detlef Schrempf úr Seattle, Reggie Miller frá Indiana og Clyde Drexler og Hakeem Olajuwon frá Houston. Beint úr mennta- skóla í NBA? KEVIN Gamett, mennta- skólapiltur úr Farragutskól- anum í Chicago, hefur ákveð- ið að reyna að komast beint innf NBA deUdina; sleppa því að fara i háskólalið, en gefa þess í stað kost á sér i hið árlega NBA-val. Fara þarf 20 ár aftur í tímann eftir slíku fordæmi. Gamett, sem leikur í stöðu miðherja, þykir mikið efni og blaðið USA Todiiy tilnefndi hann sem leikmann ársins i menntaskólakeppninni. Ke- vin, sem er 2,08 metrar og 98 kíló, hugðist leika í há- skólakeppninni og komu fjór- ir skólar til greina, en snérist síðan hugur. Verði hann hins vegar ekki vaUnn, þegar NBA-valið fer fram 28 .júní, hefur hann enn rétt til að leika með háskóla- liði næsta vetur, svo fremi hann ákveði það innan þrjátíu daga frá valinu, og ráði sér ekki umboðsmann. Flestir ungir leikmenn kjósa að fara fyrst í háskóla til að öðlast reynslu en Kevin virðist þegar hafa gert upp hug sinn. „Ég veit að þetta verður stærsta ákvörðun í lífi mínu en ég er hinsvegar tilbúinn. Eg veit líka að að ég verð með bestu leikmönn- um í heiminum,“ sagði hann í bréfi til David Stern fram- kvæmdastjóra NBA. Kevin fer beint í fyrstu umferð þeg- ar valið verður í deildina og félag sem velur hann, sernur við hann til ársins 2.000.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.