Morgunblaðið - 13.05.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 13.05.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995 D 9 HM í HANDKNATTLEIK HAFNARFJ. ■ RÚSSNESKA landsliðið í handknattleik mun líklega ekki tefla fram Valeriy Gopin í heims- meistarakeppninni. Eftir að fé- lagslið hans vann sér sæti í úrslita- keppninni á Italíu varð ljóst var að Gopin mundi aðeins ná að spila síðustu tvo eða þrjá leiki Rússa á mótinu. ■ LÍNUMAÐURINN sterki hjá Rússum, Dmitri Torgovanov, meiddist á hné í leik gegn Slóven- íu. Línumaðurinn hefur harkað af sér og hefur leikið með liðinu síðan. ■ SVISSNESKIR áhorfendur hafa sett svip á leiki Sviss í keppn- inni. Þeir eru um 20 talsins, allir eins klæddir og sitja alltaf á sama stað í stúkunni. í gær voru þeir á sínum stað og hvöttu svissneska liðið og stundum á íslensku: „Áfram Sviss“ svo að það færi ekkert á milli mála hvað þeir væru að hrópa. ■ ROLF Dobler, markvörður svissneska liðsins, fékk skot í and- litið um miðjan fyrri hálfleik gegn Ungveijum og fékk við þáð blóð- nasir og varð að fara af leikvelli. En hann kom aftur inná með bóm- ul í nösunum og varði vel sem eft- ir var leiks. ■ BIRGIR Björnsson, fyrrum landsliðskappi og FH-ingur, skartar nú glóðarauga. Haukar vilja meina að það hafí hann feng- ið þegar reynt var að koma honum í Haukabúning en starfsmenn í Kaplakrika hafa þurft að klæðast Haukabúningum eftir að hörgull varð á búningum fyrir starfsmenn mótsins. Satt er hinsvegar að Birgir datt niður úr stiga í Kapla- krika þegar hann var að hengja upp auglýsingar. ■ ROMAN Becvár, fyrirliði Tékklands, fékk fyrir leikinn gegn Króötum á fimmtudaginn blóm- vönd frá HM-nefndinni. Tilefnið er að hann lék þá hundraðasta landsleik sinn, sem er samanlagt með gömlu Tékkóslóvakíu og Tékklandi hinu nýja. ■ BORIS Jarak, hornamaðurinn knái í liði Króatíu, leikur ekki meira á heimsmeistaramótinu því hann meiddist í leiknum gegn Rússlandi í gær. Það brotnaði andlitsbein fyrir ofan augnabrún en það er ekki talið alvarlegt því ekki urðu nein innvortis meiðsli. Topuðu Russar viljandi gegn Króatiu? Mikil umræða spannst meðal handboltaspekúlanta í leik- hléi hjá Rússum og Króötum í Hafn- arfirði í gær, þegar staðan var 14:9 fyrir Króata og allar líkur á að þeir myndu leggja heimsmeistarana að velli, hvort Rússar myndu tapa viljandi gegn Króötum. Ástæðan var sú að þegar staðan í riðlinum á Akureyri er skoðuð og gert ráð fyrir að heimsmeistararnir vinni sinn riðil í Hafnarfirði, eru talsverð- ar líkur á að Rússland mæti Hvíta- Rússlandi I 8 liða úrslitum. Að vísu eru nokkur „ef“ í þess- ari spámennsku. Ef Rússar lenda í fyrsta sæti i sínum riðli fá þeir í 16-iiða úrslitum fjórða liðið í A- riðli úr LaugardalshöIIinni, sem yrði liklega Ungverjaland. En næst í 8-liða úrsiitum, ef þeir vinna.fengju þeir sigurvegara viðureign 2C, sem gæti orðið Frakkland eða Þýska- land, og 3D, seni að öllum líkindum Hvíta-Rússland því Svíar og Spán- verjar virðast raða sér í efstu sætin á Akureyri. Víst er að fyrrum sam- heijar og félagar frá Sovétríkjunum vilja forðast í lengstu lög að þurfa slá hvom annan út. Ef hinsvegar Rússar lenda í öðru sæti í Hafnarfírði, fá þeir Jiðið í þriðja sæti í A-riðli, líklega ísland, Sviss eða Kóreu í 16-liða úrslitum. Sigurvegari þess leiks mætir svo, í 8-liða úrslitum, sigurvegará úr leik 1C (Þjóðveijar eða Frakkar) og 4D, sem iíklegast verða Egyptar. En hvað segir Vladimír Maxímov þjálfari Rússa um þessar vangavelt- ur: „Enn er ekki raunhæft að velta þessum möguleikum fyrir sér. Það fer eftir þvf hvemig íslendingum gengur, hvaða mótheija við fáum í framhaldinu í 16-liða úrslitum. Það em alls konar möguleikar í stöðunni og ég tel að þetta verði ekki Ijóst fyrr en á síðasta degi.“ MorgunDiaoio/öjarni ndnKsson MARTIN Setlík áttl mjög góðan leik með Tékkum — þessi mynd er tákræn fyrlr leikinn, þar sem Setlík rífur sig lausan og skorar. Tékkar á toppinn Tékkar skelltu sér á topp B-riðils með naumum sigri, 23:22, á Slóvenum, sem hafa enn ekki hlotið stig. „Ég var hrædd- Stefán ur v*ð að mínir menn Stefánsson myndu ekki komast skrifar af stað eftir góða síð- ustu leiki en það gekk. Nú ætlum-við að hvíla vel fyr- ir erfiðan leik gegn Rússum," sagði þjálfari Tékka, Vladimir Haber. Tékkar byrjuðu af miklum krafti og Michal Tonar og Martin Setlík sýndu skemmtilegar rispur. En byrj- unin góða varði aðeins í 5 mínútur, þá koðnuðu liðsmenn niður hægt og rólega á meðan Slóvenar tóku við sér með öguðum og skipulegum sóknarleik og náðu yfrrhöndinni. Eftir mikinn baming eftir hlé vökn- uðu Tékkar upp við vondan draum og gerðu sér grein fyrir að þeir vom að missa af lestinni. Þeir tóku á.sig rögg og náðu aftur forystunni en S16- venar virtust ekki megna að halda í við þá - voru ekki langt frá því en Tékkar voru komnir á skrið og unnu með einu marki, 23:22. Tékkar sýndu -styrk sinn með því að komast aftur inní leikinn og verð- launin voru góð - þriðji sigurinn í röð og efsta sæti riðilsins eftir tap Rússa gegn Króatíu síðar um daginn. Það voru samt bara tveir menn sem héldu lífi í liðinu þar til það tók við sér á ný, Pavel Raska markvörður og Vladimir Suma. „Eftir skelfrlega meðferð í síðasta leik, tapinu gegn Kúbu, var erfitt fyrir okkur að komast af stað en ég er sáttur við mitt lið í dag. Tékkar eru betra lið,“ sagði þjálfari Slóvena, Miro Pozun. Króatar lögðu Rússa Morgunblaðið/Bjami Eiríksson ÞESSI unga stúlka fagnar og skemmtir sér konunglega í Kaplakrika í gær — gleöln skín úr andliti hennar. Börn og unglingar hafa mætt til leiks máluð í andliti, til að hvetja „sín“ lið til dáða, í leikjum B-riðils í Hafnarfirði. „Við getum unnið alla og sýndum í dag hvað við getum spil- að vel, bæði ívörn og sókn,“ sagði Lukic Zlatko, þjálfari Króata ÓTRÚLEGT slen hvfldi yfir Rússum i gær þegar þeir mættu Króötum í Hafnarfirði. Rússneska vélin komst aldrei í gang en Króatar léku sinn besta leik í keppninni og unnu heimsmeistarana örugglega, 25:20, en sigurinn var síst of stór og aldrei í hættu. Króatar öryggið uppmálað réðu ferðinni frá fyrstu mínútu með markvissum sóknarleik og hreyfanlegri vörn, Stefán sem &af Rússum Stefánsson enSan frið og rússn- skritar eska stórskyttan Vasily Kudinov komst varla í skotfæri. Rússar, sem oft bíða eftir að andstæðingarnir eigi slæma kafla, máttu bíða í 60 mínútur eftir slíkum kafla Króata en hann kom ekki og í leikhléi var staðan 14:9. Eftir hlé bifaðist rússneska vélin en Króatar voru fljótlega komnir á ferðina og höfðu að auki gott for- skot. Rússar virtust játa sig sigr- aða um miðjan hálfleik, þegar and- stæðingarnir gerðu fjögur mörk í röð, bg virtust ekki hafa af því neinar verulegar áhyggjur. Þeir reyndu þó að halda einhverju af andlitinu með því að gera þijú síð- ustu mörkin en sigur Króata var stór, sérstaklega ef haft er í huga að þeir voru að spila við heims- meistarana. „Við getum unnið alla og sýndum í dag hvað við getum spilað vel, bæði í vörn og sókn. Það lið er best sem getur spilað í sextíu mínút- ur af fullum krafti og ekki síst haldið einbeitingunni allan þann tíma. Við duttum aðeins niður í nokkrar mínútur en ég vona að við verðum enn betri í næsta leik. Það má einnig benda á að undirbúning- ur okkar var mjög lítill og raunar lauk honum hér í Hafnarfirði," sagði Lukic Zlatko þjálfari Króatíu eftir leikinn. Margir leikmenn áttu frábæran dag, skyttan Slatko Saracevic átti hvert þrumuskotið af öðru sem rússnesku risunum í vörninni tókst ekki að sjá við og Irfan Smajlagic sneri oft laglega á þá í horninu og í hraðaupphlaupuni. Iztok Puc átti góða kafia og Valter Matosevic í markinu lokaði því um tíma en allt liðið vann vel saman fyrir sigrinum. Oft fara Rússar hægt af stað en keyra svo yfir andstæðingana en þeir lögðu aldrei af stað í gær og vantaði allann áhuga. Andrey Lavrov í markinu var litil fyrirstaða og Pavel Soukossian varði mun betur. Kudinov þarf sína flugbraut til að komast í skotfæri en fékk aidrei frið til að komast á flugtaks- hraða og aðrir voru langt frá sínu besta. Það var bara Dimitriy Filippov sem sýndi nokkra takta þegar hann skellti sér inn úr horn- inu og fiskaði vítaköst. „Maður lærir mest af tapi og ég vona að þetta verði betra næst,“ sagði Vlad- imir Maximov þjálfari Rússa salla- rólegur á blaðamannafundi eftir leikinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.