Morgunblaðið - 13.05.1995, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.05.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. MAÍ 1995 D 3 HM I HANDKIMATTLEIK Hvað sagði Bogdan Kowalczyk, fyrrum landsliðsþjálfari? Islendingar koma tvíefld- ir til leiks gegn Sviss „ÉG held að eftir þetta tap gegn Kóreu muni íslenska liðið koma tvíeflt til leiks gegn Sviss. íslenska landsliðið hefur oftast náð sér vel á strik eftir tap- leiki, — það hefur að minnsta kosti oftast verið þannig í þann tíma sem ég hef þekkttil liðs- ins,“ sagði Bogdan Kowalczyk, fyrrum landsliðsþjálfari íslands eftir leikinn gegn Suður-Kóreu. Bogdan sagði að úrslitin í gær hefðu ekki átt að koma á óvart. „Við höfum alltaf átt í vand- ræðum með þá. Þeir hafa öðru vísi gabbhreyfingar en flest þau lið sem íslenska liðið leikur gegri. Þessi leikur var eins og aðrir erfíðir leik- gir í heimsmeistarakeppni, annað lið- ið átti góðan dag en hitt slæman.“ - Hvað brást hjá íslenska liðinu? „Það er mjög erfítt fyrir mig að tala um hvað hefur brugðist því Ég veit ekki hvað þjálfarinn hefur :?sagt fyrir leikinn. Hvað hann lagði 'fyrir leikmenn sína, þannig að það er erfitt fyrir mig að dæma um það.“ - Hvað með Suður-Kóreuliðið. Heldurðu að það eigi eftir að kom- ast langt í keppninni? „Ég á frekar von á því að það dali þegar á líður. Leikmenn þess eru frekar lágvaxnir og það er erf- itt að berjast alltaf gegn hærri leik- mönnum. Þegar menn sem eru um 180 sentimetrar þurfa að berjast gegn spilurum sem eru tiu senti- metrum hærri, í hverjum einasta leik, þá verða þeir þreyttir. Önnur lið koma svo til með að læra betur inn á leikstíl þeirra.“ - Hvað með leik íslands gegn Sviss? „Möguleikarnir eru út af fyrir siggóðir. Svisslendingar spila frek- ar hægan sóknarleik og það á ágætlega við okkur. Sviss spilar raunverulega góðan handbolta fyrir þjálfara til að lesa, þeir leika ein- faldan og hægan handbolta sem auðvelt er fyrir þjálfara að lesa. &eir spila leik sinn án þess að gera mörg mistök og þeir spila mjög jngað. Við vinnum Sviss yfirleitt alltaf, en oftast hefur það bara verið með einu eða tveimur mörkum. Leikur- inn verður erfiður en hefðin er fyr- ir því að við vinnum á morgun og ég spái því að það gerist. “ - Hvað með endanlegan árangur íslendinga í mótinu? „Það er mjög erfitt að segja til um þetta eftir aðeins fjóra leiki. Það á margt eftir að gerast. Alsír Morgunbladið/Gunnlaugur Rögnvaldsson HETJUR Suður-Kóreumanna Sik-hyung Lee, márkvörður og skyttan Kyung-shin Yoon fagna slgrlnum yflr íslendingum. Þelr léku báðlr vel og sérstaklega var Lee íslendlngum erfiður. Islenska liðið þoldi ekki álagið HONG Seong-peo, þjálfari Kóreumanna, hældi íslenska liðinu og sagði það gott. „Islenska liðið lék undir miklu álagi og ég held að það hafi ekki staðið undir henni. Það var að gera allt of mörg mistök í sókninni. Fyrir leikinn taldi ég jafna möguleika á sigri og við vor- um staðráðnir í að leggja allt í þennan leik. Allir stákarnir í mínu liði léku vel en enginn eins vel og Lee í markinu sem varði mörg skot úr opnum færum,“ sagði þjálfarinn. vann Danmörku og það spáði því enginn að það mundi gerast. Eftir sjötta leik fer þrek og þol leikmanna að skipta mjög miklu máli og þá fer að sjást hvaða lið koma best undirbúin,“ sagði Bogdan Kow- alczyk, fyrrum landsliðsþjálfari ís- lands. ■ ÞULURINN í Laugardalshöll notaði skemmtilega aðferð við _að tilkynna hverjir skora mörk ís- lands. Þegar einhver skorar kallar þulurinn fomafn viðkomandi í hát- alarakerið, en áhorfendur svara með því að kalla föðurnafn leik- mannsins. Skemmtileg nýbreytni. ■ FRIÐRIK Guðmundsson móttökustóri erlendra gesta hjá HSI og fyrrverandi formaður sam- bandsins er getspakur maður. Fyr- ir leikinn í_ gær sagði hann blaða- manni að Island myndi tapa með þremur mörkum og sagði hvernig. Tölumar gengu reyndar ekki alveg eftir, þó litlu munaði, en marka- munurinn var réttur. ■ EINN af forráðamönnum IHF kom í gær til Friðriks og var nokk- uð niðri fyrir og sagðist vera með vandamál; hann hefði tekið vit- lausa tösku í Hafnarfirði daginn áður. Friðrik sagði að það væri alls ekki vandamál, hvort það væru gleraugu í töskunni og hvað mað- urinn já við. Friðrik rétti þá kapp- anum töskuna, því starfsmenn HM höfðu uppgötvað að IHF-maður ætti hana og sent út á Hótel Sögu. Málið leyst snaggaralega. ■ A-KL ÚBBURINN átti fímm ára afmæli í gær, en í honum eru dyggustu stuðningsmenn íslenska landsliðsins og hafa meðlimir hans fylgt liðinu á stórmót undanfarin ár. ■ LÖGREGLAN á keppnistöðun- um stendur sína vaktir og miðaldra lögregluþjónn sem var í Laugar- dalshöllinni í gær sagði að um 20 lögregluþjónar væra í og í kringum Höllina daglega. Hann sagði í léttum tón að það væri sleg- ist um að fá að vera inni því þá gætu menn fylgst með leikjunum. „En þeir ráða ekkert við okkur gömlu brýnin,“ sagði hann. ■ ÞAÐ eru þrettán svissneskir áhorfendur sem fylgjast grannt með góðu gengi síns liðs og í gær hvöttu þeir liðið áfrarn með því að kalla á íslensku. „Áfram Sviss!“ heyrðist hljóma um Höllina og einnig „Beijast!" ■ EKKERT jafntefli hefur enn orðið í heimsmeistarakeppninni og er það nokkuð sérstakt. Litlu mun- aði þó í gær er Tékklendingar unnu Slóvena 23:22. Slóvenar vora í sókn síðustu 25 sekúndumar en tókst ekki að jáfna. Mikil vonbrigði Ballið er rétl að byija Þegar lagt var af stað í HM var vitað að pressan mikil á Sigmundur Ó. ' Steinarsson skrífar vitað að pressan yrði „strákunum okkar“ við að leika á heima- velli, enda íslend- ingar þekktir fyrir að vera kröfuharð- ir. Spennan hefur verið mikil í kringum landsliðið, eins og í kringum öil lið sem leika á heimavelli í heimsmeistara- keppni. Sú pressa á eftir að halda áfram, en við tapið gegn Suður- Kóreumönnum losnaði um ákveðna spennu hjá landsliðs- mönnum íslands — spennuna sem myndast við það að leika leik eft- ir leik án þess að tapa, því allir íþróttamenn vita að sá dagur rennur upp sem þeir verða að láta í minni pokann — og það kemur ávallt. dagur eftir þann dag. Ballið er rétt að byija, dansinn verður stiginn áfram. Það er betra að misstíga sig f upphituninni, en þegar út í alvöruna er komið; út- sláttarkeppnina — þar sem tap þýðir dauða. Það var enginn sem reiknaði með að íslenska landslið- ið færi taplaust f gegnum heims- meistarakeppnina. Það er alltaf sárt að tapa, en tap þýðir ekki heimsendi. Erfíðleikar sem koma oft upp hjá flokkaíþróttamönnum, eru til að vinna á. Það er ekki neinn einn sem vinnur þá vinnu, heldur er það vinna liðsheildarinn- ar — að menn þjappi sér saman, ákveðnir að halda áfram að gera sitt besta. Dansinn heldur áfram að duna í Laugardalshöllinni í dag — það koma margir til að sækja þann „dansleik" og ég efa ekki að dansinn muni halda áfram fram eftir kvöldi. íslenska liðið hefu.' nú þegar tiyggt sér rétt til að leika í 16-liða úrslitum — þá hefst alvaran. Það vita „strákarn- ir okkar" manna best - og til að árangur náist, verða menn að styðja við bakið á þeim. -sagði ÞorbegurAðalsteinsson, landsliðsþjálfari „ÞETTA eru mikil vonbrigði og það þýðir ekkert að vera velta sér upp úr þessum úrslitum eftir á. Það er nýtt verkefni framundan, leikurinn á móti Sviss og það er það sem skipt- ir máli í dag,“ sagði Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálf- ari eftir þriggja marka tapið gegn Suður-Kóreu. orbergur sagði að þeir hefðu farið mjög vel yfir leiki kór- enska liðsins í keppninni og vissu því að hveiju þeir gengu. „Það eru ýmsar skýringar á þessu tapi. í fyrsta lagi náðum við ekki að ráða hraðanum eins og við ætluðum okk- ur. í öðru lagi réðum við ekki við skytturnar hjá þeim og í þriðja lagi klúðruðum við allt of mörgum dauðafærum." „Við náðum aldrei í þá. Þeir fengu að skjóta eins og þeir vildu og maður á móti manni er hlutur sem hver og einn verður að gera. Þeir eru rosalega snöggir maður á móti manni, með snöggar gabb- hreyfíngar sem við réðum ekki við.“ - Þessi úrslit þýða að þið verðið að vinna Sviss með fjögurra marka mun ef þið ætlið að ná fyrsta sæt- inu í riðlinum eins og að var stefnt. Er ekki of mikill pressa á ykkur fyrir leikinn á móti Sviss? „Jú, auðvitað setur þetta mikla pressu á okkur eins og hefur reynd- ar verið fyrir alla leikina í keppn- inni. Við verðum bara að sigra og ætlum okkur að gera það. Það eru tveir sterkir einstaklingar í sviss- neska liðinu, Baumgartner og Rub- in, og við finnum vonandi lausn á að stoppa þá.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.