Morgunblaðið - 20.05.1995, Blaðsíða 6
B 15 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
KORFUKNATTLEIKUR / NBA
Reuter
MICHAEL Jordan er hér í baráttu vlð Nick Anderson úr OrlandollAinu en Chicago er úr leik.
Jordan úr leik
Chicago með Michael Jordan
fremstan í flokki er úr leik í
úrslitakeppni NBA eftir tap
108:102 fyrir Orlando í fyrrinótt.
Á sama innbyrtu David Robinsson
og félagar í San Antonio fjórða
sigur sinn á Lakers 100:88 og þar
með eru Los Angeles úr leik, eins
og Chicago. Meistararnir frá sl. ári
Houston Rockets eru hins vegar
enn með í baráttunni eftir að þeim
tókst að leggja Phonenix 116:103.
Því verður um hreinan úrslitaleik
að ræða á milli þessara tveggja liða
í Phonenix á laugardagskvöldið.
Leikur Orlando og Chicago var
jafn fram á lokasekúndur. Denis
Scott skoraði eitt stig úr vítakasti
þegar 27 sekúndur voru eftir og
Michael Jordan rauk upp með
knöttin en missti hann frá sér og
Orlandomenn fóru upp og
Hardaway fékk tvö vítaköst þegar
12 sekúndur voru eftir. Úr þeim
skoraði hann og staðan því
106:102. Shaquille O’Neal innsigl-
aði síðan sigur á lokasekúndinni
með troðslu, lokatölu 108:102 og
Orlando komið áfram.
„Við sýndum þolinmæði og gerð-
um þá hluti sem þurfti að gera til
að sigra hér í kvöld,“ sagði Saqu-
ille O’Neal að leikslokum. Hann og
félagar hans bíða nú úrslita í leik
Indiana og New York því þeir
mæta sigurvegarnum úr þeim leik
í næstu umferð úrslitakeppninnar.
Shaq var stigahæstur í liði Orlando
með 27 stig og 13 fráköst. Denis
Harper og Hardaway skoruðu 21
stig hvor og Nick Anderson 18.
Þeir þrír síðasttöldu hittu allir úr
fjórum þriggja stiga körfum.
„Þegar ég kom aftur til leiks þá
var það til þess að komast alla leið
og sigra og það var einnig stefna
allra í liðinu,“ sagði Michael Jordan
vonsvikinn að leikslokum. Hann
skoraði 24 stig, en Scottie Pippen
var stigahæstur iiðsmanna Chicago
með 26 auk þess sem hann tók 12
fráköst.
„Við höfum trú hver á öðrum
og við treystum hver öðrum og það
er lykilatriði. Eftir að vera komnir
1:3 undir höfum við jafnað," sagði
Sam Cassel, leikmaður Houston að
leiklokum eftir sigur, 116:103 á
Phoneix. Houston liðið hefur á
þessu og tímabilinu í fyrra sýnt
mikinn styrk á úrslitastundum í
úrslitakeppninni og oft snúið vonlít-
illi stöðu upp í sigur. Nú er það
bara spurningin hvort þeim tekst
það einu sinni enn.
Hákeem Olajuwon átti stórleik
og skoraði 30 stig, sendi 10 stoð-
sendingar, tók 8 fráköst og varði
fimm skot. Clyde Drexler er að ná
sér á strik eftir veikindi gerði 20
stig og Sam Cassel 16, þar af 8 í
fjórða leikhluta. Hjá Phoenix fór
Charles Barkley fór hamförum í
fyrsta leikhluta og skoraði þá 27
stig, en fór sér rólega eftir það og
lauk leiknum með 34 stig og tók
17 fráköst.
Tólf stig frá David Robinsson
fyrir San Antonio á síðustu fimm
mínútunum gegn Lakers, í 88:100
sigri, gerðu gæfumuninn og færðu
Spurs einu hænufewti nær úrslita-
leikjunum, en þangað hafa þeir
ekki komist í tólf ár. David skoraði
31 stig í leiknum og fór í fylgingar-
bijósti félaga sinna. Sean Elliot
setti persónulegt met í úrslita-
keppni skoraði 26 stig. „Þetta var
sigurleikur íbúa í San Antonio og
nú er þeim óhætt að fagna og hald
aveislur," sagði Denis Rodman sig-
urreifur að leikslokum. Hann skor-
aði tólf stig og náði 16 fráköstum.
Campbells var stighæstur í Lakers
liðinu með 21 stig, Dedric Ceballos
skoraði 16. Nick Van Exel sem
vann fímmta leikinn fyriur Lakers
var gætt mjög vel og skoraði ein-
ungis 13 stig.
HESTAR
Hinn hreini tonn
og skeidtöltid
HINN meinti heimssöngvari Garðar Hólm fórtil útlanda til að
finna hinn hreina tón sönglistarinnar en hafði ekki erindi sem
erfiði. Hestamenn glíma við það flesta daga ársins að finna hinn
hreina tón töltsins með misjöfnum árangri. Töltið er óumdeilan-
lega mikilvægasta og dýrmætasta gangtegund íslenska hests-
ins. Þegar keppnistímabil hestamanna er nú að hefjast fyrir al-
vöru er full ástæða til að hvetja hina margvíslegu dómara hesta-
mennskunnartil dáða og benda sérstaklega á mikilvægi þess
að töltið sé rétt dæmt.
Oft hefur viljaða brenna við að
hestar og knapar fái góðar
einkunnir fyrir skeiðtölt eða bundið
tölt eins og margir kjósa að kalla
það. Veruleg bót hefur verið gerð
á mati töltsins í kynbótadómum hin
síðustu ár en líklegast má gera enn
Aðeins það besta
fyrir
íþróltamenn
markmenn
veiöimenn
stangveiðimenn
SÆVARKARL
M ... ■ ' —
Bankastræti 9, s. 13470.
betur. Nýlega mátti til dæmis sjá
hross fá 8 fyrir skeiðtölt í kynbóta-
sýningu. í gæðingakeppni, sérstak-
lega í keppni alhliða gæðinga, hefur
mjög oft mátt sjá hesta fá frá 7,8
upp í t.d. 8,3 fyrir skeiðbundið tölt
en í leiðbeiningum fyrir gæðinga-
dómara segir að hesti sem sýni ein-
göngu skeiðtölt skuli ekki gefa
hærri einkunn en 7,0. Einkunn 7,5
er meðallag í gæðingakeppni. Ekki
sýnist ástandið betra hjá íþrótta-
dómurum. Nýlega mátti sjá á móti
hest sem fór á greinilegu skeiðtölti
fá 4,5-5,0-5,7 hjá þremur dómur-
um. Einkunn 5 í íþróttakeppni er
meðallag en í leiðbeiningum segir
að sé um óhreinan gang (skeiðtölt)
að ræða eigi ekki að gefa hærra
en 4,0 en mögulegt að fara í 4,5
sýni knapi mjög góða reiðmennsku.
Af þessum dæmum má sjá að
dómurum er afar tamt að halda
fyrir annað augað þegar hreinleiki
töltsins er metinn. Er ekki laust við
að upplifa megi söguna um nýju föt
keisarans víða á hestamótum í þess-
um efnum. Er þetta vissulega baga-
legt, sérstaklega þegar hestar fá
yfír meðallag fyrir skeiðtölt í kyn-
bótadómi. Þegar fylgst er með
Hestalán
Morgunblaðið/Valdimar
BÆTA þarf hreinleika tðltsins í ræktun íslenskra hrossa svo almenningur eigi betrl möguleika
aA eignast góAa töltara lausa vlA blndlngsvandamál eins og SigurAur Pálsson ungur og upp-
rennandl reiAmaAur hefur veriA svo lánsamur aA elgnast. Hesturinn heitir Freyr.
hestakosti frístundareiðmanna al-
mennt séð má glöggt sjá að á ís-
landi er verið að rækta alltof gang-
söm hross þar sem vantar upp á
hreinleika töltsins. Órækasta vitnið
þar um er án efa það magn sem
skeifnaframleiðendur eða innflytj-
endur selja af tíu millimetra fram-
fótaskeifum. Það er ekki að ástæðu-
lausu að menn járna hrossin þyngri
að framan.
Eina tiltæka ráðið til að stuðla
að auknum hreinleika töltsins er
að dómarar og þá ekki eingöngu
kynbótadómarar fari að líta fránum
augum þegar hreinleiki töltsins er
metinn. Bestur árangur næst ef
allir aðilar taka höndum saman.
Árangurinn skilar sér til ræktenda
í formi seljanlegri hrossa, til útreið-
arfólks í formi færri vandamála og
fleiri ánægjustunda á hestbaki og
til keppenda sem betri árangur í
keppni. Boltinn er nú hjá dómurum.