Morgunblaðið - 24.05.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
MIÐVIKUDAGUR 24. MAÍ 1995 C 5
. V
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
fleiks 09 bætti síðan öðru marki vlð um mlðjan seinnf hálfleik. Hér
iraldur Ingólfsson heldur utan um hann og Dejan Stjoic tekur þátt í
tarsson til hægri er ékkert nema vonleysið.
vömina með öruggum sigri
óðu ífærum
Hvað eftir annað skall hurð nærri
hælum en sem fyrr var Kardaklija sem
óyfirstíganlegur þröskuldur og heima-
menn náðu aðeins að bæta einu marki
við - Ólafur fyrirliði afgreiddi boltann
snyrtilega í netið eftir sendingu Sig-
urðar Jónssonar um miðjan hálfleik-
inn. Ekki bætti úr skák fyrir Blika
að Arnar Grétarsson fékk að sjá rauða
spjaldið skömmu eftir hlé og 10 að-
komumenn áttu ekkert í 11 heima-
menn.
Hverki var veikur hlekkur í liði
Skagamanna. Vissulega reyndi lítið á
Þórð í markinu en hann var öruggur
í öllum aðgerðum sínum. Varnarmenn-
irnir hleyptu varla bolta eða manni
framhjá sér, miðjumennirnir stjórnuðu
spilinu, vængmennirnir voru ógnandi á
köntunum og Stjoic óð í færum auk
þess sem aðrir fengu sín tækifæri en
erfiðlega gekk að skora. Að öðrum
ólöstuðum var Sigurður Jónsson
fremstur meðal jafningja en Ólafur
Þórðarson átti einnig mjög góðan leik,
Kári Steinn kemur sterkur inn og var
öflugur, Haraldur hættulegur og svo
mætti áfram telja. Valinn maður í
hvetju rúmi og varamennirnir tilbúnir
ia færin
haldið. Öllu skiptir að fá öll stigin' og
við höldum vonandi áfram á sömu
braut.“
Logi sagði að í raun hefði ekkert
komið sér á óvart. „Ég þekki mótherj-
ana og veit hvar við stöndum. Ég held
að þetta hafi verið opinn og skemmtileg-
ur leikur og næst eru það Keflvíkingar."
þegar á þarf að halda. Mjög sterk liðs-
heild.
Erfitt hjá Blikum
Kardaklija bjargaði Breiðabliki frá
stórtapi með frábærri markvörslu en
hann átti ekki möguleika á að koma í
veg fyrir mörk Ólafs. Hins vegar voru
félagar hans nánast úti á þekju en þó
tókst varnarmönnunum að stöðva
nokkrar sóknir Skagamanna. Liðið
skapaði sér engin marktækifæri og
verður að gera betur ef ekki á illa að
fara.
1«f%Eftir að tveir Skaga-
■ menn höfðu skallað f
slá á sömu mínútunni og Karda-
klija hafði varið vel langskot frá
Sigurði Jónssyni fengu heima-
menn aukaspymu hægra megin
rétt við miðlínu á vallarhelmingi
Breiðabliks. Boltinn barst til Har-
aldar Ingólfssonar á vinstri
vængnum og hann sendi fyrir
markið. Þar var Ólafur Þórðar-
son mættur á fjærstöng og skor-
aði af öryggi af stuttu færi.
2«#\Sigurður Jónsson fékk
■ \Jboltann rétt innnan
miðlínu vinstra megin á vallar-
helmingi Breiðabliks á 65. mínútu.
Hann sendi hárnákvæmt á Ólaf
Þórðarson sem var rétt við víta-
teigshornið fjær, vamannaður
reyndi að ná af honum boltanum
en Ólafur hafði betur og átti ekki
í erfiðleikum með að skora í horn-
ið niðri, hægra megin við Kard-
aklija.
FH-ingar með tak
á KR-ingum
KR-INGAR héldu að skellurinn
gegn Skagamönnum (0:5) í
Meistarakeppninni í síðustu
viku hafi verið slys, en eftir
leik liðsins í gegn FH-ingum í
1. umferð íslandsmótsins ígær
komust þeir að því svo var
ekki. FH kom íVesturbæinn
og hafði með sér öll þrjú stigin
eins og þeir hafa reyndar gert
undanfarin fjögur ár. Jón Erling
Ragnarsson gerði eina mark
leiksins á 8. mfnútu og var sig-
urinn sanngjarn. Leikurinn var
tilþrifalítill og vorbragur á hon-
um eins og vellinum sjálfum.
Oskabyijun FH-inga sló KR-
inga alveg út af laginu. Þeir
náðu sér aldrei á strik og stöðvuð-
ust flestar sóknar-
lotur þeirra á vel
skipulagðri vörn
Hafnfirðinga eða þá
Stefáni í markinu
sem kann jgreinileg vel við sig á
KR-velli. „Eg hef aðeins einu sinni
tapað hér á KR-velli síðustu fimm
árin. Það er alltaf gaman að spila
á KR-vellinum því það er svo góð
stemmning. Ég finn mig vel á þess-
Valur B.
Jónatansson
skrifar
0« *f| Jón Erling Ragnars-
■ I son sendi boltann inn
fyrir vörn KR á Hörð Magnús-
son sem skaut í stöng á 8. mín-
útu. Þaðan barst boltinn aftur
út í vítateiginn og þar var Jón
Erling flótastur að átta sig og
sendi boltann í vinstra mark-
hornið með viðkomu i vamar-
manni KR þar sem boltinn
breytti aðeins um steftiu.
um velli, næ upp góðri einbeit-
ingu,“ sagði Stefán markvörður.
FH-ingar höfðu baráttuna um-
fram KR-inga, sem héldu að þetta
kæmi allt af sjálfum sér. Leikur liðs-
ins, sem þjálfarar og forráðamenn
1. deildar félaganna spáðu meistar-
atitli, olli miklum vonbrigðum. Al-
gjört hugmyndaleysi í sókninni og
vörnin átti það til að opnast upp á
gátt.
FH-ingar léku yfirvegað, byggðu
á sterkum varnarleik og skyndi-
sóknum. Þessi leikaðferð heppnað-
ist fullkomlega. Þeir létu KR-ingana
vera meira með boltann og biðu
aftarlega á vellinum og lokuðu
þannig öllum leiðum að markinu.
Jón Sveinsson sjómaði varnarleikn-
um eins og herforingi og skyndi-
sóknirnar voru hættulegar með þá
Hörð Magnússon og Jón Erling
fremsta í flokki.
KR-ingar fengu ekkert einasta
marktækifæri í fyrri hálfleik, en „
þijú í seinni. Fyrst Hilmar tvívegis
með stuttu millibili en í bæði skipt-
in var bjargað, vörnin í fyrra skipt-
ið og síðan varði Stefán meistara-
lega í horn. Mínútu fyrir leikslok
átti Bibercic skalla eftir sendingu
Hilmars, sem Hallsteinn bjargaði á
línu á elleftu stundu. FH-ingar
fengu einnig sín færi í síðari hálf-
leik og átti Hörður tvö ágæt skot
sem fóru rétt framhjá og Hallsteinn
átti skot sem Kristján varði í horn.
Vörn FH var góð og eins Stefán
í markinu. Miðjumennirnir unnu
geysilega vel fyrir liðið óg eins
framheijarnir, sem mátti aldrei líta
af. Góð barátta og góð liðsheild
skóp sigurinn öðru fremur.
KR-ingar voru nánast á hælun-
um allan leikinn og ekki heil brú í
leik liðsins. Það voru helst að Heim-
ir Guðjónsson og Hilmar reyndu að
skapa eitthvað.
■ BJARKI Péturssoníékk skurð
á augabrún í meistarakeppninni í
síðustu viku og lék ekki með ÍA í
gærkvöldi.
■ GUNNLAUGUR Jónsson kom
inn á hjá ÍA þegar stundarfjórðung-
ur var til leiksloka og stóð sig vel
í fyrsta 1. deildar leik sínum.
■ FH-INGAR fögnuðu sigri á
KR-velIi og þegar komið var inn í
búningsklefa þeirra eftir leikinn *
hlómaði söngur; „Hann á afmæli í
dag, hann á afmæli í dag.“ Afmæl-
isbarnið var Viðar Halldórsson,
fyrrum landsliðsmaður úr FH, sem
hélt upp 42 ára afmælið í gær.
„Þetta var góð afmælisgjöf,“ sagði
hann um sigurinn á KR-velli.
■ LEIKMENN KR köstuðu rósum
til stuðningsmanna sinn í KR-stúk-
unni fyrirleikinn í gærkvöldi. Menn
höfðu það á orði eftir leikinn að lík-
lega hafi þetta verið í fyrsta og
síðasta sinn sem KR-ingar bjóða
upp á rósir fyrir heimaleiki.
■ SALHI Heimir Porca, leikmað-
ur KR, tók út leikbann í gær og lék
því ekki með liðinu. Guðmundur
Benediktsson lék heldur ekki með,
en hann er meiddur.
■ ATLI Eðvaldsson var spurður
eftir leik ÍBV gegn Val og 4:0 tap
Fram gegn Leiftri orðinn kunn,
hvernig legðist í sig fá Fram í
næsta leik. Atli svaraði: „Særð dýr
geta komið tvíefld til baka.“
■ ATLI var einnig spurður hvern-
ig honum gengi að ná liði sínu nið-
ur á jörðina eftir svo stóran sigur.
Aftur var Atli með svör á reiðum
höndum og svaraði því til að „það
hefði í gegnum alla Islandssöguna
verið séreinkenni á Eyjamönnum
hve erfitt sé að halda þeim niðri"
og uppskar hlátur frá fullum sal
af Eyjamönnum.
■ FYRIRLIÐI Vals færði fyrirliða
ÍBV blómvönd fyrir leik liðanna til
minningar um Lárus Jakobsson,
faðir Tommamótsins og fyrrum
framkvæmdastjóra ÍBV.
Morgunblaðið/Þorkell
HILMAR Björnsson, KR-ingur og FH-ingurinn Ólafur B. Steph-
ensen kljást hér um knöttlnn á KR-velli í gær.
Þetta er orðin hefö
- sagði Ölafur Jóhannsson, þjálfari FH-inga
^Jlafur Jóhannesson, þjálfari
^^FH-inga, var ánægður með
sigurinn á KR-velli. „Þetta
er óskabyijun í mótinu. FH hefur
ekki tapað á KR-velli í fjögur ár
og við ætluðum okkur ekki að taka
upp á því núna. Þetta er orðin
hefð. Við lögðum dæmið þannig
upp að leika aftarlega og spila síð-
an inn á ákveðna veikleika í KR-lið-
inu og það tókst. Þeir voru meira
með boltann en vörnin var sterk
hjá okkur og mikil barátta í liðinu
og hún skóp sigurinn öðru fremur.
Við æltum okkur að vera með í
toppslagnum í sumar og þetta er
byijunin á því,“ sagði Olafur.
Vorum í vandræðum meö
einföldustu atriði
Guðjón Þórðarson, þjálfari KR-
inga, átti erfitt með að skýra tap
KR-inga. „Ég veit varla hvað ég
á að segja. Það er ljóst að menn
voru í vandræðum með að vinna
einföldustu grundvallar atriði eins
og senda boltann stutt á milli sín.
Við komumst aldrei í takt við leik-
inn. Þetta er nánst sama sagan
og gerðist upp á Skaga í meistara-
keppninni. Leikmenn vinna ekki
vinnuna sína og klára ekki að leysa
úr einföldustu atriðum. Ég veit
ekki hvort leikmenn eru svona yfir
sig spenntir eða hvað.“
„Leikur liðsins olli mér geysilega
miklum vonbrigðum. Sérstaklega
vegna þess hvernig ég var búinn
að vinna með leikmönnum síðan á
fimmtudaginn. Ég var búinn að
fara yfir ákveðin atriði og leggja
upp ákveðna þætti, en það virtist
alveg sama það klikkaði nánast
allt sem verið var að biðja um. Ég
verð bara að fara niður í tíma-
kennsluna aftur ef ég á að ná þessu
á flot. Það er ljóst að það verður
að vera töluverð breyting á leik
liðsins fyrir næsta leik. Við erum
að fara að leika við Leiftur sem
bytjaði mótið mjög vel og eigum
því nijög erfiða ferð fyrir höndum
til Ólafsfjarðar," sagði Guðjón.
Þormóður Egilsson, fyrirliði KR,
sagði að leikmenn liðsins hafí ekki
gert það sem þeir áttu að gera.
„Kannski var skortur á sjálfstrausti
í liðinu eftir leikinn á móti Skaga-
mönnum, ég veit það ekki. En það
er varla hægt að afsaka þetta tap.
Þetta var einfaldlega lélegt hjá
okkur og við-náðum ekki saman.“