Morgunblaðið - 24.05.1995, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 24.05.1995, Qupperneq 8
 KORFUKNATTLEIKUR BBBBMWWWB Dómaramir björg- uðu heimamönnum ÍSLAND tapaði 78:87 fyrir Sviss í gærkvöldi í æsispennandi ieik þar sem dómararnir, frá Skotlandi og Spáni, virtust staðráðnir í þvífrá upphafi að heimamenn ættu að sigra. Dómurunum tókst ætlunarverk sitt þó svo munurinn var ekki mikill. Villurnar í leikn- um segja ef til vill mest um vilja dómaranna. í fyrri hálfleik voru dæmdar 13 villur á ísland en aðeins 5 á Sviss og í síðari háif- l^ik voru tölurnar 13-8. JÓN Kr. Gíslason, fyrlrliðf landsliðsins, lék sinn 150. lands- leik í gærkvöldi — gegn Svfss. Islendingar byijuðu leikinn mjög vel. Vömin var þétt og vel hreyf- anleg og sóknarleikurinn skipulagður enda tóku heima- Skúli Unnar menn leikhlé eftir Sveinsson þijár mínútur, en þá skrifarfrá var staðan 9:3. Eftir Sviss leikhléið komu heimaménn ákveðnir til leiks og tókst að jafna 16:16 er rúmar 7 mínútur voru liðnar. Með mikilli hjálp þeirra gráklæddu tókst Sviss að komast yfír 20:22, en íslensku leikmennimir sýndu aðdánunarverða ró og yfírveg- un þrátt fyrir mótlætið sem þeir mættu hjá dómumnum og komust yfír aftur, en Sviss hafði 40:42 yfir í leikhléi. Sama baráttan hélt áfram í síðari toðm FOLX ■ GUÐMUNDUR Bragason lék í gær sinn 100. lndsleik. Honum voru ekki afhent blóm fyrir leikinn þar sem þjálfararnir töldu rétt að bíða með það og tmfla ekki einbeit- ingu Guðmundar fyrir leikinn. ■ ÞAÐ vora fleiri blómaleikir, án blóma í gær, því fyrirliðinn Jón Kr. Gíslason lék í gær 150. landsleik sinn. ■ HELGI Bragason dæmdi leik Kýpur og Rúmeníu í gær og stóð sig með ágætum, en leikurinn var alls ekki auðdæmdur þó svo munur- inn á liðunum hafí verið nokkur. ■ KEPPT er í tæplega hálfs árs gömlu íþróttahúsi, Istituto Elvetico, sem er um leið skólahús og er kennsia á fullu þessa dagana og mikið íjör þegar krakkarnir em í frímínútum. Iþróttasalurinn, sem er á annarri hæð hússins, er með parketi og er mjög mjúkt gólfíð, ekki ósvipað því sem er í Valsheimilinu. ■ ÞAÐ rúmast 8.500 áhorfendur í sæti í höllinni en alls má koma þar fyrir um 12.000 áhorfendum. ■ TVEIMUR leikjum verður sjón- varpað, leik Sviss og Austurríkis og leik heimamanna og Portúgals. ■ RÚMENAR gátu ekki mætt með sína bestu menn í mótið að þessu sinni. Muresan sem leikur með Bul- lets í NBA komst ekki, en hann er 2,30 metrar á hæð, og svo er annar leikmaður þeirra að reyna að komast að í NBA. ■ ÍSLAND virðist vera eina liðið sem fer alveg eftir reglum varðandi skóbúnað og annað. Leikmenn verða að vera í eins skóm, en hjá sumum liðum em svartir, rauðir og hvítir skór, en íslensku strákarnir eru allir í svörtum skóm. hálfleik og liðin skiptust á um að leiða. Teitur fór útaf með fimm villur er 12 mínútur voru eftir og þetta var stöðug barátta við dómarana, sérstaklega þennan frá Spáni. Þegar fimm mínútur voru eftir var staðan 62:73 en hafði verið 56:53 sjö mínút- Tim áður. Á þessum kafla skutu menn dálítið fyrir utan en skotin duttu ekki og menn voru ekki nógu ákveðnir við að fara í sóknarfráköst- in. Það var því fátt sem benti til að íslendingar gætu sigrað. En með góðum leikkafla, l-2-l-l pressuvöm og síðan 1-2-2 vöm tókst að vinna boltann og skora þijár þriggja stiga körfur. Staðan oriðin 77:80 þegar 1,25 mín. var til leiks- loka. Þá leist þeim spænska ekkert á blikuna og tók til sinna ráða, dæmdi villu á Guðmund þegar greinilega átti að vera uppkast og þegar Sviss tapaði knettinum dæmdi hann aftur jafn fáránlega villu og Svissarar bmgðust ekki á vítalínunni, en þar voru þeir með 78% nýtingu. íslendingar léku vel, en þeir réðu því miður ekki við dómarana. Það vom þó nokkrir þættir sem hefðu mátt vera betri. Nýtingin í þriggja stiga skotum var 34% og er svo sem í lagi. Eftir að Svisslendingar breyttu yfir í svæðisvörn í lok fyrri hálfleiks gekk erfiðlega að skapa nógu góð færi fyrir skytturnar. Boltinn gekk of hægt fyrir utan þannig að bak- verðir þeirra vom alltaf mættir í skytturnar okkar. Það gekk líka erf- iðlega að koma boltanum inn í teig- inn þar sem Guðmundur átti skín- andi leik. Vörnin var ágæt en það er erfitt að leika vörn ef annar dóm- arinn vill að þegar mótheijinn nálgat sé dreginn út rauður dregill og mann- Torfi Magnússon landsliðsþjálf- ari var að vonum ekki ánægð- ur eftir tapið gegn Sviss í gær og á blaðamannafundi eftir leikinn, þar sem þjálfarar liðanna mættu var hann beðinn um að segja álit sitt á leiknum á ensku. „Hva, viljið þið ekki að ég tali ítölsku?" spurði Torfi og vitnaði þar til þess að þjálfari Sviss er ítali og spænski dómarinn ræddi lengi við hann fyrir leikinn og virtust þeir miklir vinir. „Vörnin var trúlega ekki nægi- lega góð, alla vega voru dæmdar á okkur margar villur þannig að Svisslendingar fengu bónus snemma í leiknum. í sókninni gekk inum hjálpað upp að körfunni. Það var með ólíkindum hvað Spánveijinn gat dæmt á. Með þessu móti fengu Svisslendingar bónus um miðjan fyrri hálfleikinn. Svissneska liðið lék vel og þá sér- staklega Mrazek sem var hreint óstöðvandi og réðu íslensku strák- arnir ekkert við hann. Vörn Sviss var sterk eftir að þeir breyttu í svæðsivörnina og í sókninni gekk okkur erfiðiega að koma boltanum inn í teiginn og lékum allt of langt frá körfunni. Skytturnar komust aldrei vel í gang og gerðu ekki það sem þeim er ætlað að gera — að skora Fyrir keppnina sagði ég að þetta væri líklega leikurinn sem skipti öllu máli hvað varðar möguleika okkar á að komast áfram í keppn- inni. Við ætlum samt ekki að gef- ast upp og við verðum að vinna annanðhvort Rúmena eða Portúg- ali, en það verður erfitt, eins og allir leikir hér,“ sagði Torfi. Morgunblaðið bað þjálfarana að segja álit sitt á dómurunum. Mario þeim vel að leysa þau vandamál sem íslenska liðið reyndi að leggja fyrir þá. Það er ljóst eftir þetta tap að róð- urinn verður erfiður því íslenska liðið þarf helst að vinna alia leikina sem eftir eru til að tryggja áframhald í Evrópukeppninni. Þó gæti dugað að vinna annað hvort Rúmeníu eða Port- úgal og sigra Kýpur og Skotland eins og okkar strákar eiga að gera. de Sisti, þjálfari Sviss varð fyrri til. „Ég er ekki vanur að tala um dómarana en þegar þeir dæma tíu sinnum skref á lið mitt þá held ég að það sé eitthvað að. Dómararnir virðast ekki fylgjst með þeim breyt- ingum sem gerðar hafa verið. Þeir hafa kanski lesið þær, en þeir dæma ekki eftir þeim. Þeir vita ekkert um FIBA reglur. Hvað viðkemur vill- unum sem þeir voru að dæma þá getur verið að þeir hafi haldið að- eins með okkur.“ Torfi vildi hins vegar ekki tjá sig um dómarana: „Ég tala aldrei um dómarana opinberlega. Ég vona bara að þeir geri alltaf sitt besta.“ Riley að hætta með New York ALLT bendir til þess að Pat Riley, þjálfari New York, hætti nú með liðið eftir fimm ára starf. Hann sagði að það væri kominn tími á breytingar hjá félaginu. „Það er Ijóst að það þarf að stokka spilin upp á nýtt. Það hefur sýnt sig að leikmenn liðsins eru ekki nægilega góðir til að vinna NBA-titilinn,“ sagði Riley. Hann sagðist sjálfur vera að hugsa um að hætta, en ætlaði að taka sér nokkurra daga umhugsunarfrest. Jordan ætl- ar að halda áfram MICHAEL Jordan sagðist reikna með því að leika áfram með Chicago Bulls næsta vet- ur. „Ég verði áfram ef Pippen og Kukoc verða hjá félaginu næsta vetur. Það var ótrúleg pressa á liðið eftir að ég kom til baka aftur og það var eins og ég væri einhver trúaiieið- togi. Við vorum ekki að spila eins vel og fyrir 19 mánuðum en við reyndum okkar besta,“ sagði Jordan. Adelmann þjálfar Golden State RICK Adelman hefur verið ráðinn þjálfari Golden State. Adelman var þjálfari hjá Portland í nokkur ár, eða þar til hann tók sér eins árs frí í fyrra. Hann náði góðum ár- angri með Portland og þykir góður þjálfari. Houston byrjaði vel heima ROBERT Horry skoraði þeg- ar 6,5 sekúndur voru til leiks- loka og tryggði Houston Roc- kets 94:93 sigur gegn San Antonio Spurs í fyrrinótt. Þetta var fyrsti leikur félag- anna í úrslitum Vesturdeildar NBA en liðin leika mest sjö Jeiki. Sean Elliott hitti ekki úr tveimur vítaskotum fyrir gestina þegar 26,6 sekúndur voru eftir og í kjölfarið tók Houston leikhlé til að skipu- leggja lokasóknina. Hakeem Olajuwon gaf út á vinstri kantinn á Horry sem þóttist ætla að gefa á Sam Cassell. Avery Johnson féll á bragð- inu, Horry fékk ráðrúm til að skjóta og skoraði. Olajuw'on var með 27 stig, 12 fráköst og átti sex stoð- sendingar fyrir Houston sem hefur sigrað í fjórum leikjum í röð í úrslitakeppninni en þetta var annar sigur liðsins í sjö leikjum gegn San An- tonio á tímabilinu. Elliott var með 24 stig fyrir gestina og David Robinson 21 stig. Torfi Magnússon landsliðsþjálfari um framhaldið Verður erfitt

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.