Morgunblaðið - 10.06.1995, Page 1
JMtargmtlrlfifeift
• Munkurinn hækkar í tign/3
• Málverk af hetjum/5
• Maðurinn sem tengdi gítarinn/8
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
MENNING
USTIR
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 BLAÐ{
SIGRÚN Iljálmtýsdóltir og
Barnakór Grensáskirkju sam-
eina kraftana á tónleikum í
Grensáskirkju á mánudags-
kvöld kl. 20.30. Á efnisskránni
er sígild íslensk tónlist, gospel-
og kirkjutónlist auk laga úr
söngleikjum. Stjórnandi kórs-
ins er Margrét Pálmadóttir.
Barnakór Grensáskirkju er
ekki óvanur því að starfa með
Diddú og
Bamakór
Grensás-
kirkju
Morgunblaðið/Sverrir
landskunnum listamönnum en á
liðnu ári kom hann fram á tón-
leikum með Kristjáni Jóhanns-
syni á Ítalíu.
Tónleikarnir leggjast vel í
Diddú enda segir hún að það
sé alltaf jafn gaman að syngja
með börnum. „Það er svo mikil
einlægni og tærleiki sem ein-
kennir þau. Ég vona bara að
ég spilli engu!“
Feneyjartvíæringurinn 100 ára:
Línudansinn
í Junga
Feneyjar. Morgunblaðið
Feneyjartvíæringurinn opnar á
morgun í 100. skipti. 134 myndlyst-
armenn frá 51 landi sýna. Líkt og
svo oft áður hefur undirbúningur
og skipulag ekki gengið átakalaust
fyrir sig og á síðustu stundu var
reynt að fresta opnuninni um mán-
uð _en allt gekk upp á endanum.
íslenski skálinn lýsir að þessu
sinni Birgi Andrésson nýlistamann
verk Birgis Andréssonar ný-
listamanns sem byggir sýn-
ingu sína í kringum íslenska
menningararfleifð verk nátt-
úrunnar og mannanna verk.
En það er ekki aðeins mynd-
list sem Feneyjar eru barma-
fullar af þá mánuði sem sýn-
ingin stendur yfir, heldur eru
um leið haldnar ýmisskonar
aðrar listahátíðir m.a. leiklist-
ar og balletthátíð auk málþinga.
Einnig koma hingað margir frægir
og friðgestir. Sá sem mesta athygli
vakti í gær var Díana prinsessa sem
heimsótti m.a. breska skálann og
sýningu ungra breskra listamanna.
Aðalsýningarsvæðið er í stórum
garði sem stendur við lónið, þar eru
margir sýningarskálar einstakra
landa auk þess sem haldnar eru
fleiri sýningar víðsvegar um Fe-
neyjar. Á vappinu fyrir framan
garðinn fljóta listaverk sem strax
leiða gestinn inn í heim myndlistar-
innar. Á besta stað fyrir miðjum
garðinum er ítalski skálinn og rétt
fyrir framan hann er sá íslenski.
Staðsetning íslenska skálans gæti
ekki verið betri.
íslenski skálinn er teiknaður af
fínnska arkitektinum Alvar Aldo,
óregluleg bygging úr tré sem nú er
hvít og blámáluð. Um tíma var talað
um að rífa skálann en nú hefur
hann verið friðaður og gerður upp.
Að sögn Beru Norðdal, forstöðu-
manns Listasafns íslands og for-
manns íslensku sýninganefndarinn-
ar hefur ísland haft skálann á leigu
í rúm 10 ár og skapast hefur stöðug-
leiki í kringum íslensku þát-
tökuna. Danir eru með eigin
skála en Svíar, Norðmenn og
Finnar eru saman um skála.
Bera sagði engan vafa á að
það kæmi mun betur út fyrir
Islendinga að vera með eigin
skála því það hefur sýnt sig
að með örðum væri erfítt að
ná fram nægilega sterkum
svip og íslenska framlagið.
Auðvitað keppti ísland ekki við stóru
löndin en með því að vanda valið á
íslenska framlaginu og sýna þá fyöl-
breytni sem væri í íslenskri myndlist
næðist góður árangur.
Bera undirstrikaði að árangurinn
skilaði sér ekki með einni sýningu
heldur fælist í að skapa athygli með
því að vera með ólíkar sýningar frá
ári til árs. Listamenn eins og Erró
og bræðumir Kristján og Sigurður
Guðmundssynir hefðu dregið að sér
athygli og um leið að íslenskri mynd-
list. Smám saman væri farið að taka
íslendinga alvarlega sem myndlist-
arþjóð. Meðal sérfræðinga um
myndlist, einkum á meginlandinu
væri áhugi á íslenskri myndlist og
hann væri árangur margra ára
kynningarstarfsemi.
Bandaríski skemmtanaiðnaðurinn harkalega gagnrýndur fyrir að ala á ofbeldi og óhugnaði
Markaðssetning
hins illa
MARGIR hafa orðið til að gagnrýna
skemmtanaiðnaðinn í Bandaríkjunum fyr-
ir að ala á ofbeldi og óhugnaði í verkum
sínum. í Herald Tribune segir að Bob
Dole, sem hyggur á forsetaframboð fyrir
Repúblikanaflokkinn, hafi gert það að
meginbaráttumáli sínu í framboðsslagnum
að vinna gegn þessari „markaðssetningu
hins illa“ eins og hann tók sjálfur til orða
í ræðu á bandaríska þinginu.
Herferð gegn Time Warner
Raunar hefur fyrrverandi menntamála-
ráðherra Bandaríkjanna, William J. Ben-
nett, sett af stað herferð gegn útgáfufyrir-
tækinu Time Warner, sem einkum gefur
út kvikmyndir og tónlist og margir telja
eiga mesta sök á því hvemig ástatt er í
skemmtanaiðnaðinum. Það var Time
Wamer sem stóð á bak við rapphljómsveit-
ina, 2 Live Crew, sem voru sýknaðir af
dómi sem þeir hlutu fyrir ósæmilega texta-
gerð árið 1990. Það var Time Warner sem
gaf út lag rapparans Ice-T, „Cop Killer“,
sem olli miklu uppþoti í bandarísku þjóð-
lífi. Það var Time Wamer sem gaf út
myndabók Madonnu, „Sex“. Það var Time
Warner sem stóð fyrir þættinum, „The
Jenny Jones Show“, sem var harðlega
gagnrýndur fyrir að leiða einn gesta sinna
saman við samkynhneigðan aðdáanda sinn
sem hann hefur verið ákærður fyrir að
reyna að myrða.
Fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Time,
John Leo, segir Time Warner vera helsta
spellvirkjan í bandarískri menningu, „eng-
inn vill koma á ritskoðun en þetta snýst
um að fyrirtækin viðhafi ábyrg vinnu-
brögð.“ Nokkrir blaðamenn hjá fyrirtæk-
inu segja þetta allt saman snúast um
peninga og að þeir blygðist sín fyrir það.
Stjómarformaður tónlistardeildar Time
Warner, Michael Fuchs, sakar hins vegar
Dole um að hafa gert menninguna að
pólitísku þrætuepli og mála ástandið í of
sterkum litum. Hann segir að dónaskapur
og ýmis hroði í bandarískri textagerð sé
einungis ávöxtur málfrelsis sem menn
verði að læra að sætta sig við. Dole hefur
einkum veist að myndum eins og „Natur-
al Born Killers" og „True Romance“ og
hljómsveitum á borð við Cannibal Corpse,
Geto Boys og áðumefnda 2 Live Crew.
Starfslið hans hefur hins vegar viðurkennt
að hann hafi hvorki séð myndirnar né
heyrt tónlist tiltekinna hljómsveita.
Hámark hræsninnar
Viðbrögð kvikmynda- og tónlistar-
manna hafa verið hörð við gagnrýni Dole.
Stjómarformaður Warner Bros. Records,
Danny Goldberg, spyr hvers vegna fyrir-
tækið ætti að taka mark á miðaldra fólki
sem hefur ekki áhuga á þessari tegund
tónlistar, hefur aldrei hlustað á hana og
neitar auk þess að taka skoðanir þeirra
sem hafa áhugann og hafa hlustað, til
greina. „Þótti miðaldra fólki gaman að
tónlistinni sem þú hlustaðir á þegar þú
varst unglingur?“
Oliver Stone, leikstjóri kvikmyndarinn-
ar „Natural Born Killers", segir það há-
mark hræsninnar hjá Dole að kenna Holly-
wood um allt ofbeldið í Bandaríkjunum
um leið og hann hefur sjálfur talað fyrir
því á þinginu að aflétta banni við vopna-
eign almennings sem nýlega hefur verið
komið á þar.
Clive Barker, sem gert hefur bíómyndir
eftir sögum sínum, „Hellraiser", segist
ekki ætla að veija ýmsan þann ósóma sem
er framleiddur í Bandaríkjunum og er
greinilega einungis framleiddur með
gróðasjónarmið í huga. „En við getum
bara ekkert gert við þessu því það er
hveijum listamanni heimilt að fjalla um
ofbeldi og aðrar dökkar hliðar mannlífsins
ef honum sýnist svo.“