Morgunblaðið - 10.06.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 10. JÚNÍ 1995 C 3
Munkurinn
hækkar
ítign
CHICHESTER Festival-leikhúsið.
Listræn stjóm Chichester Festival-leik-
hússins er nú í höndum stórleikarans Dereks
Jacobis. Sveinn Haraldsson heldur hér
áfram umfiöllun sinni um breskt leikhús-
líf og lýsir því hvemig hann heillaðist
af leik Jacobis í Hadrian YII.
TÓRLEIKARINN Derek
Jacobi hefur nú tekið að
sér listræna stjóm á Chic-
hester Festival-leikhúsinu
og sýnir þar stjömuleik í aðalhlut-
verkinu í leikritinu Hadrian VII.
Það er gaman að sjá tilþrifm hjá
þessum stórleikara eftir rislítinn
leik hans í sjónvarpsþáttunum um
munkinn Cadfael í vetur sem leið.
Meðal listamanna sem munu
vinna við leikhúsið undir hans
stjóm á þessu leikári era
Lauren Bacall, Ian Ric-
hardson, og leikskáldin
Alan Ayckbourn og Harold
Pinter. Ayckbourn mun
leikstýra eigin verki og
Pinter mun hvort tveggja
leika og leikstýra, auk þess
sem leikrit eftir hann verð-
ur sett á svið.
Chichester er smábær á
enska vísu, með milli tutt-
ugu og þrjátíu þúsund
íbúa, þó hún teljist „city“
samkvæmt enskri mál-
venju (aðsetur biskups). Leikhúsið
þjónar þó miklu stærra svæði og
borgirnar Southampton, Portsmo-
uth og Brighton era allar í innan
við klukkustundar akstur frá Chi-
chester.
Leikhúsið í Chichester er hugar-
fóstur Leslie Evershed-Martins
sem varð til á köldum vetrardegi
árið 1959 þegar hann var að horfa
á sjónvarpsþátt um Shakespeare
Memorial-leikhúsið í Stratford í
Ontario í Kanada. Hann lagði á
það áherslu frá byijun að aðalleik-
sviðið yrði einhverskonar nú-
tímaútgáfa af fom-grísku leik-
rými, þar sem áhorfendur um-
kringdu lítillega upphækkað sviðið
á þijá vegu. Evershed-Martin taldi
að leikskáldum og öðra leikhús-
fólki ætti að gefast kostur á að
setja upp verk við þessar aðstæður
í að minnsta kosti einu leikhúsi í
Englandi. Við þessa grann-
hugmynd bætti hann einu
mikilvægu atriði; að í aðal-
salnum ættu að vera sæti
fyrir a.m.k. 1.400 áhorf-
endur, nóg til að hægt
væri að greiða leikurum í
hæsta gæðaflokki.
Fyrsta framsýningin var
5. júlí 1962, þremur og
hálfu ári eftir að hugmynd-
inni skaut upp í kolli braut-
ryðjandans. Fjögur fyrstu
árin var leikhúsið undir
stjórn leikarans og leik-
stjórans Laurence Oliviers. Leik-
hópurinn sem myndaðist í kringum
hann varð kjarninn að Enska þjóð-
leikhúsinu (National Theatre).
Undir stjóm Oliviers voru mörg ný
verk sett á svið en smám saman
hallaði undan fæti og svo var kom-
ið áður en Jacobi tók við taumunum
að flestar sýningar vora endurapp-
færslur verka sem höfðu gengið vel
annarsstaðar.
Jacobi sem
Frederick
Rolfe.
Stundum gekk hann enn lengra,
sæmdi sjálfan sig aðalstitli og kall-
aði sig Frederick Baron Corvo.
ímyndun og veruleiki
DEREK Jacobi og James Maxwell í hlutverkum sínum.
Árið 1989 var vígt minna leik-
svið í húsnæði rétt við aðalleikhús-
ið sem tekur um 250 manns í
sæti og er nefnt Minerva Studio-
leikhúsið. Þar hefur verið rekið
sjálfstætt leikhús meðan leikárið
stendur í aðalleikhúsinu og hýstar
farandsýningar á veturna.
Dýrðarljómi
Þegar fréttist um ráðningu Der-
eks Jacobis í stöðu listræns stjóm-
anda bæði á stóra og litla sviðinu
tók áhugafólk um leiklist að vona
að leikhúsið í Chichester myndi
rétta úr kútnum. Þeim virðist ætla
að verða að von sinni því að gagn-
rýnendur era himinlifandi og tala
um að af verkefnaskrá Jacobis
stafi dýrðarljómi! Verkin era talin
upp í hér að neðan
Túlkun Jacobis á aðalhlutverk-
inu, Fr. William Rolfe, í Hadrian
VII hefur einnig hlotið mikið lof
gagnrýnenda. Öll sterkustu lýsing-
arorð enskrar tungu eru notuð um
hana, terrific, sparkling, breath-
taking, utterly absorbing (frábært,
leiftrandi, hrífandi, gersamlega
heillandi), og því spáð að uppfærsl-
an verði færð til „West End“ í
London áður en langt um líður og
leikritið sett upp aftur í New York.
Leikritið Hadrian VII eftir Peter
Luke er byggt á veruleika og
ímyndun sama manns.
Réttu nafni hét hann „Slíkir
Frederick William Rolfe areru
og var fæddur í austur- hveriu
hluta Lundúnaborgar ________
árið 1860. Veraleiki hans
var að mörgu leyti skapaður af
honum sjálfum í mun ríkari mæli
en flest okkar ná að móta okkar
eigin heim. Sem dæmi má nefna
að hann skrifaði nafn sitt iðulega
Fr Rolfe í því augnamiði að þeir
sem það læsu drægju þá ályktun
að styttingin Fr á Frederick væri
titill hans sem kaþólsks prests
(Father), en hann hafði verið rek-
inn úr fleiri en einum prestaskóla.
Peter Luke tvinnar saman
ímyndun og veraleika og semur
verk sem fjallar um sjálfsmynd
mannsins ög ímynd hans út á við.
Að hve miklu léyti getum við skap-
að okkar eigið sjálf? Að hve miklu
leyti taka aðrir sköpun okkar trú-
anlega?
Frederick Rolfe, sem var mikil-
virkur rithöfundur, samdi skáld-
sögu sem kom út 1904. Skáldsag-
an Hadrian the Seventh er að mikl-
um hluta sjálfsævisaga hans nema
hvað þar sem draumar hans
steyttu á skeri í raunveraleikanum
rætast þeir farsællega í sögunni.
Peter Luke leikur sér að þessum
staðreyndum, leikritið hefst þar
sem Frederick Rolfe býr við örbirgð
í leiguhjalli í London, eins og sögu-
persóna hans sjálfs, en röð tilvilj-
ana veldur því að hann rís undra-
skjótt til metorða innan kaþólsku
kirkjunnar og endar líf sitt sem
píslarvottur eftir stuttan en árang-
ursríkan feril sem páfí.
Uppfærslan á verkinu í Chich- '
ester ýtir undir skynjun áhorfand-
ans á þeim þáttum verksins sem
gerast í veruleikanum sem gráum
hversdagsleika annarsvegar og
hinsvegar Rómaborgarhlutanum
sem draumkenndri ímyndun. Ýtt
er undir þetta með gífurlega
áhrifamikilli notkun á gylltri
sviðsmynd og rauðum búningum
kardínálanna í háborg kaþóls-
kunnar í mótvægi við berangurs-
lega kytra einstæðingsins. í upp-
hafí verksins má segja að sé á
sviðinu einn stóll og Derek Jacobi.
En hann fyllir gersamlega upp í
rýmið þegar hann hefur upp raust
sína. Hvílíkur framburður, hvílík
framsögn - hvílíkt úthald. Áhorf-
andinn trúir því ekki eitt augna-
blik að atburðirnir á sviðinu eigi
sér stað í raun og vera. Þessi leik-
ur er langt yfir slíkar kröfur haf-
inn.
Gagnrýnendur hafa haldið því
fram að verkið hafi verið vanrækt
frá því að það var fyrst sett upp
árið 1967. En þetta er ekki verk
sem er auðvelt í uppsetningu. Aðal-
hlutverkið krefst stjömuleiks, leik-
ara sem megnar að halda gervallri
sýningunni uppi, enda stendur hún
eða fellur með honum. I skemmstu
máli sagt stendur Jacobi vel undir
væntingunum, en slíkir leikarar
--------- era ekki á hverju strái.
leikar- Hlutverk aukaper-
ekkiá sóna er að aðstoða við
strái.“ skapa heildarmynd
’ af persónunni Frederick
Rolfe. Leikaramir
standa sig allir vel í stykkinu nema
hvað John Savident skýtur aðeins
yfír markið í túlkun sinni á Ragna
kardínála. Túlkun Dereks Jacobis
stendur þó upp úr og er gaman
að sjá jafn stórkostlegan leikara
kljást við jafn veigamikið hlutverk
sem spannar allan tilfínningaskal-
ann frá örvæntingu biturðarinnar
til alltumfaðmandi kærleika al-
valdsins.
I
)
I
Verkefnaskrá Chichester
e Hadrian VII eftir Peter
Luke í leikstjórn Terry Hands
er sýnt 26. apríl-29. júní.
Aðalhlutverkið er að sjálf-
sögðu leikið af Derek Jacobi.
e Hobson’s Choice eftir Har-
old Brighouse undir stjórn
Frank Hauser er sýnt 3. maí-
20. júlí. Verkið var fyrst sett
upp 1916 og er eina verk höf-
undar sem staðist hefur
tímans tönn.
• The School for Scandal eft-
ir Richard Brinsley Sheridan.
Leikritið er gamanleikur sem
var fyrst settur á svið 1777
og er löngu orðinn klassík í
Englandi. Richard Cottrell
stýrir þessari uppfærslu og
meðal leikenda eru Honor
Blackman og Ian Carmichael.
Sýningar munu standa 5. júlí-
14. september.
• Aurasálin (The Miser) eftir
Moliére er sýnd 26. júlí-16.
september. Leikstjóri er Nich-
olas Broadhurst og með aðal-
hlutverkið fer Ian Richard-
son.
• Heimsóknin (The Visit) eft-
ir Diirrenmatt er sýnd 21.
september-7. október. Með
aðalhlutverkið fer hin aldna
Hollywood-stjarna Lauren
Bacall.
Ofangreind verk eru öll
sýnd á aðalsviðinu en eftirtal-
in á því litla:
• Nýlokið er sýningum á Tak-
ing Sides eftir Ronald Har-
wood í leikstjórn Harold Pint-
er. Sjá umfjöllun í menningar-
blaði Mbl. sl. laugardag (bls.
4 C).
• A Word from Our Sponsor
eftir Alan Ayckbourn og í
leikstjórn höfundar verður
sýnt 7. júní- 8. júlí. Ayckbo-
urn er eitt þekktasta leikskáld
Breta í dag.
• Playing the Wife eftir Ron-
ald Hayman undir stjórn Ric-
hard Clifford fjallar um upp-
setningu Strindbergs á eigin
leikriti um fyrsta hjónaband
hans. Derek Jacobi verður
þarna í aðalhlutverki og má
vænta tilþrifa í túlkun hans á
hinu sveiflukennda leikskáldi.
• Rúsínan í pylsuendanum er
ný uppsetning á The Hot
House eftir Harold Pinter í
leikstjórn David Jones. Pinter
er einnig einn af leikendun-
um. Leikritið verður sýnt 17.
ágúst- 9 .september.
• Lestina rekur svo Monsieur
Amilcar eftir Yves Jamiaque
í leikstjórn Tim Luscombe.
Aðalkvenhlutverkið er í hönd-
um Penelope Keith.
Miðar kosta frá 6,50 pund-
um upp í 22,50 pund. Sýningar
eru alla daga nema sunnu-
daga og hægt að panta miða
í síma (0)1243 781312. Hægt
er að panta gistingu og miða
saman í síma (0)1243 539435.
Chichester er 70 mílur frá
London og er auðveldast að
komast þangað með lest
(skipti nauðsynleg).
Heimildir:
Leikskrá með Hadrian VII;
Leikdómar í Financial Times, The Times;
Evershed-Martin, Leslie, How the Chichester
Festival Theatre Began, 1987;
Luke, Peter, Hadrian the Seventh (fæst t.d. í
Bókabúð Sigfúsar Eymundsonar);
Rolfe, Fr. (FV. Baron Corvo), Hadrian the VII.