Morgunblaðið - 27.06.1995, Síða 1
fHwgtntÞfaMto
1995
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ
BLAÐ
B
HANDKNATTLEIKUR
lón þjálfar Valsliðið
Jón Kristjánsson handknattleiks-
kappi var um helgina ráðinn
þjálfari íslandsmeistara Vals í
handknattleik til eins ár. Jón hefur
verið leikmaður með Val sl. sjö ár
og á þeim tíma fimm sinnum orðið
íslandsmeistari. Þetta er í fyrsta
skipti sem Jón þjálfar hjá Vals-
mönnum.
„Með þessari ráðningu höldum
við áfram þeirri stefnu sem unnið
hefur verið eftir síðustu ár, það
er að ráða innanfélagsmann í
þjálfarastöðuna. En það getdr ver-
ið erfiður kostur að ráða spilandi
þjálfara, séu menn með erfiðan hóp
i höndunum. En við erum með
metnaðarfulla stráka sem vita
hvað þeir vilja og við berum fyllsta
traust til Jóns Kristjánssonar og
vitum að hann mun fylgja því starfi
eftir sem unnið hefur verið að sl.
ár,“ sagði Brynjar Harðarson, for-
maður handknattleiksdeildar Vals
í gær.
Að sögn Brynjars hefur ráðning
Jóns átt sér nokkurn aðdraganda
en frá henni var endanlega gengið
um helgina og er einn þátturinn í
að halda hópnum saman. Geir
Sveinsson og Finnur Jóhannsson
hafa reyndar yfirgefíð herbúðir fé-
lagsins frá sl. keppnistímabili og
spurning er hvað Júlíus Gunnarsson
gerir, eins og kemur fram hér til
hliðar. „Þrátt fyrir þetta verðum
við með firnasterkt lið næsta vet-
ur,“ bætti Brynjar við.
Ekki hefur enn verið gengið frá
ráðningu aðstoðarmanns Jóns en
frá því verður gengið á næstu dög-
FRJALSIÞROTTIR
Veðrið setti
svip sinn á
Meistaramótið
VEÐRIÐ setti svip á Meistaramót íslands í
frjálsíþróttum sem fram fór í Laugardalnum
um helgina. Búist hafði verið við ágætum ár-
angri í spretthlaupunum, en mótvindur kom í
veg fyrir slíkt. Guðrún Sunna Gestdóttir frá
Blönduósi kom fyrst í mark í einvígi hennar
við hlaupadrottninguna Guðrúnu Arnardóttur
úr Ármanni og Geirlaugu Geirlaugsdóttur í 200
metra hlaupi. Geirlaug hafði hins vegar betur
i 100 metra hlaupinu, skaust fram úr Sunnu á
endasprettinum. Vésteinn Hafsteinsson kastaði
yfir 60 metra í kringlukasti, sem verður að
teljast góður árangur.
■ Meistaramótið / B4, B5
Lengstu þrí-
stökk sögunnar
JONATHAN Edwards frá Bretlandi náði þeim árangri um helgina að
stökkva lengra en nokkur annar hefur gert. Hann stökk tvívegis lengra
en sögur herma að menn hafí gert áður, en þetta gerði Edwards í þrí-
stökkskeppni Evrópubikarkeppninnar í Frakklandi. Risastökkinu náði
hann í annarri tilraun, stökk þá 18,43 metra og í fjórðu tilraun náði
hann einnig frábæru stökki, stökk 18,39 metra en meðvindur var hins
vegar aðeins of mikili í báðum stökkunum og því verður árangur hans
ekki skráður sem met. Heimsmet- Willie Banks í þrístökki er 17,97
metrar, sett árið 1985.
Reuter
• V ' “ TS''' í
’ í lV Lmtk
———
Júlíus
Gunnarsson
fer ekki utan
„ÞAÐ er orðið Ijóst að ég verð
hér heima næsta vetur,“ sagði
Júlíus Gunnarsson, handknatt-
leiksmaður úr Val, en á tímabili i
vor leit út fyrir að hann færi utan
til náms og handknattleiksiðkun-
ar. „Ég útiloka það ekki að ég
verði annarsstaðar en hjá Val á
komandi tímabili. Það hafa félög
úr ýmsum áttum hér innanlands
haft samband við mig og ég er
núna að skoða möguleikana."
Júlíus sagði ennfremur að hann
hefði verið i sambandi við sænska
félagið Ystad en verið of seinn að
ganga í það mál vegna heimsókn-
ar sinnar til Rostock í Þýska-
landi, fyrr í þessum mánuði.
Sænska markaðnum hefði verið
lokað 15. júní og því enginn mögu-
leika á því að komast þar inn, auk
þess sem félagið hafi náð til sín
örvhentum sænskum leikmanni til
að fylla það skarð sem til staðar
var. Eftir að það lokaðist fyrir
Svíþjóð var hann í viðræðum við
Aftureldingu, en þeim viðræðum
væri nú slitið og hann færi ekki
þangað.
Birgir Guð-
björnsson
með Blika
BIRGIR Guðbjörnsson, fyrrum
landsliðsmaður úr KR, hefur verið
ráðinn þjálfari nýliða Breiðabliks
í úrvalsdeildarkeppninni í körfu-
knattleik. Birgir, sem er ekki
ókunnugur þjálfun, tekur við
starfi Pálmars Sigurðssonar, sem
þjálfaði og lék með Blikum síðasta
vetur. Pálmar mun áfram leika
með liðinu.
Þá hefur Sigurður Hjörleifsson
verið endurráðinn þjálfari Is-
landsmeistara Breiðabliks í 1.
deild kvenna.
Blikar fara
á Skagann
í bikarnum
DREGIÐ var í átta liða úrslitum
Mjólkurbikarkeppni kvenna í
gær. Þar ber hæst að Skagastúlk-
ur fá íslands- og bikarmeistara
Breiðabliks í heimsókn og Sljarn-
an úr Garðbæ tekur á móti KR-
ingum. Valsstúlkur, sem eru
ósigraðar í fyrstu deildinni það
sem af er sumri, hafa hlotið 10
stig, fá Hauka í heimsókn, en
Hafnarfjarðarliðið hefur eitt stig
í deildinni. Allir þessi leikir fara
fram föstudaginn 7. júlí. Lið ÍBA
getur einnig hrósað happi því 2.
deildarlið Sindra frá Hornafirði
kemur í heimsókn norður daginn
eftir, laugardaginn 8. júlí.
SUND: ALDURSFLOKKAMÓTIÐ Á AKUREYRI / B10, B11