Morgunblaðið - 27.06.1995, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995 B 3
ÍÞRÓTTIR
GOLF / MEISTARAMÓT
ÍSHOKKÝ / STANLEYBIKARINN
Morgunblaðið/Golli
BJÖRGVIN Sigurbergsson slær af átjánda teignum lokadaginn. Hann lék frábærlega
síðari níu holumar á laugardag.
Glæsitilþrif
í Hvaleyrinni
Góðir lokahringir hjá Björgvini og Ólöfu Maríu
BJÖRGVIN Sigurbergsson og
Ólöf María Jónsdóttir, tryggðu
sér meistaratitlana hjá Keili á
laugardaginn með því að leika
frábærlega lokahringinn.
Björgvin var sex höggum á eft-
ir Ásgeiri Guðbjartssyni fyrir
hringinn en náði að vinna upp
forskot hans og gott betur með
því að leika á 64 höggum, átta
færra en Ásgeir sem varð að
sætta sig við annað sætið.
að var ekkert sem leit út fyrir
sigur Björgvins framan af
hringnum. Hann var í síðasta rás-
hópi með Ásgeiri og
Guðmundi Svein-
Etös'son björnssyni og mun-
skrifar urinn á þeim var
orðinn sjö högg eftir
tvær holur og eftir fyrri níu holurn-
ar var Björgvin farinn að búa sig
undir baráttu við Guðmund um
annað sætið því þá munaði enn
fimm höggum á þeim. Ásgeir átti
ekkert svar við frábærri spila-
mennsku Björgvins á síðari niu
holunum sem hann lék á fimm und-
ir pari. Björgvin lék fyrstu fjórar
holurnar á þremur undir pari með
því að fá „fugl“ á 10., 11. og þrett-
ándu holunni og þá hafði Björgvin
náð að minnka forskot Ásgeirs nið-
ur í eitt högg, úr sex höggum, á
Morgunblaðið/Frosti
ÓLÖF María Jónsdóttlr bættl
vallarmetið um tvö högg.
aðeins fjórum holum. Ásgeir fékk
„skolla" - einn yfir par á 16. hol-
unni sem er par þrjú og þá stóðu
þeir jafnir þegar tvær holur voru
eftir. Úrslitin réðust á lokaholunni
sem er par fjórir. Björgvin sló inná-
höggið á. flötina en Ásgeir lenti í
þykku grasi hægra megin við hana
og notaði þriðja högg sitt til að slá
inná flötina. Björgvin setti niður sjö
metra pútt upp í hallann og tryggði
sér þannig sigurinn en Ásgeir end-
aði holuna á fimm höggum eftir
að hafa misst púttið fyrir pari.
Björgvin endaði samtals á 211
höggum og Ásgeir tveimur fleira.
Ólöf setti vallarmet
Ólöf María Jónsdóttir setti vallar-
met á Hvaleyrarvellinum á laugar-
dag þegar hún lék á 69 höggum,
sem er einu höggi yfir pari og
höggi undir erfiðleikastuðli vallar-
ins af bláum teigum. Fyrra vallar-
metið átti Ragnhildur Sigurðar-
dóttir GR, 71 högg. Aðeins tveir
voru skráðir til leiks í kvennaflokki
og átti Ólöf þijú högg á Þórdísi
Geirsdóttir eftir fyrri tvo hringina
sem hún gerði sig aldrei líklega til
að láta af hendi.
Ólöf var komin tvö högg undir
parið eftir átta holur en lék síðan
níundu holuna á fimm höggum,
tveimur höggum yfir pari. Það sama
henti á tólftu holunni, par fjögur
holu sem hún lék á sex höggum.
Hún náði fugli á þrettándu holunni
og fékk par á fimm síðustu holurn-
ar og endaði á 221 höggi samtals.
■ Úrslit / B14
Yfirburðir
NewJersey
algjörir
Lagði Detroit ífjórum leikjum í röð
LEIKMENN New Jersey Devils
léku við hvern sinn fingur og
sigruðu Detroid, 5:2, ífjórða
leiknum í röð gegn Dertroit í
úrslitakeppninni um Stanley-
bikarinn í íshokký. Þar með
sigruðu þeir i einvíginu með
miklum yfirburðum eða með
fjórum vinningum gegn eng-
um og hömpuðu bikarnum í
fyrsta skipti í sögu félagsins.
Neal Broten og Shawn Cham-
bers skoruðu í tvígang, hvor
um sig og Martin Brodeur gerði
eitt mark í öruggum sigri liðsins
á laugardaginn í leik þar sem þeir
höfðu töglin og haldirnar nær allan
leiktímann. „Liðið lék saman sem
heild alla úrslitakeppnina og
uppskar ríkulega,“ sagði Claude
Lemieux, leikmaður New Jerseys,
en hann gerði þrettán mörk í úrsli-
takeppninnni og var valinn besti
maður hennar að leikslokum. „Ég
lék vel, en samheijar mínir voru
enn betri,“ bætti hann við. Hann
hefur einu sinni áður verið í sigurl-
iði í keppninni, það var þegar hann
lék með Montreal Canadien fyrir
níu árum síðan. Neal Broten sem
skoraði tvö mörk í leiknum, þar á
meðal það fyrsta, var leikmaður í
gullliði Bandaríkjana í íshokký á
Ölympíuleiknum í Lake Palcid árið
1980. Þetta var í fyrsta skipti sem
hann er í sigurliði í NHL deildinni
og það sem meira er, hann er ein-
ungis annar maðurinn úr því liði
sem sigrar í keppninni um Stanley-
bikarinn.
„Óheppni okkar var sú að lenda
á góðu liði þegar það var í topp-
formi,“ sagði Scotty Bowman,
þjálfari Detroit, að leik loknum.
Eftir jafna tvo fyrstu leikina þá
áttu hans menn ekkert svar við
sterkum sóknarleik New Jersey
manna í tveimur hinum síðari við-
ureignum þar sem þeir skoruðu
tíu mörk og fengu einungis á sig
fjögur.
Það var ekki liðin nema 1,08
mín. af leiknum á laugardaginn
þegar Neal Broten hafði gert
fyrsta mark New Jersey. Segei
Fedrov jafnaði fyrir Dertoid aðeins
55 sek. síðar eftir sendingu frá
Martin Lapointe. Sergei Fedorov
átti líka þátt í öðru marki Detroit
þegar þeir náðu forystu 1:2 á 13
mín. en þá hóf hann sókn sem
endaði á því að Paul Coffey skor-
aði. En Adam var ekki lengi í
Paradís og Shawn Cahmbers jafn-
aði skömmu síðar og eftir það
réðu leikmenn New Jersey lögum
og lofum og sigruðu örugglega
5:2.
Fyrsta titlinum fagnað
Reuter
SCOTT Stevens, fyrirliAi New Jersey, hampar hér Stanleybík-
arnum eftirsótta en félagið vann hann í fyrsta skipti um
helgina, eftir fjóra slgurleiki í röð á Detrot Red Wings.