Morgunblaðið - 27.06.1995, Side 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ
KNATTSPYRNA
FOLK
■ BLÖÐ í Englandi hafa sagt
frá því að Manchester United
hafi áhuga að fá Roberto Baggio
til liðs við sig og einnig hefur nafn
Búlgarans Hristo Stoichkov verið
nefnt. United seldi tvo leikmenn í
sl. viku — Paul Ince til Inter
Mílanó og síðan Mark Hughes til
Chelsea á 1,5 millj. punda.
■ BAGGIO, sem hefur ekki náð
áframhaldandi samningum við
Juventus, hefur einnig verið
orðaður við AC Milan, Inter,
Barcelona, Real Madrid og Yom-
iuri Verdy í Japan.
■ SPORTING Lissabon hefur
keypt innhetjann Jose Dominguez
frá Birmingham. Dominguez,
sem er 21 árs, skrifaði undir fjög-
urra ára samning. Birmingham
keypti hann frá Benfica fyrir ári.
■ FAUSTINO Asprilla, lands-
liðsmiðherji Kólumbíu, hefur til-
kynnt að hann ætli ekki að leika
með Parma næsta keppnistímabil.
Asprilla, sem er 25 ára, hefur átt
í útistöðum við þjálfarann Nevio
Scala. Hann var sektaður um 1,7
millj. kr. á dögunum, fyrir að segja
sitt álit á þjálfaranum í blaðavið-
tali. Borussia Dortmund er til-
búið að kaupa kappann.
■ RÚSSINN Dmitry Rad-
chenko, miðheiji Racing Sant-
ander, hefur gengið til liðs við
Deportivo La Coruna — gert
fjögurra ára samning. Radc-
henko, sem er 24 ára kostaði 247
millj. kr. ísl.
■ BARRY Venison, vamarleik-
maður hjá Newcastle, er nú í
Tyrklandi til að ræða við forráða-
menn Galatasaray, liðsins sem
Graeme Souness var ráðinn til á
dögunum, sem þjálfari. Forráða-
mennimir vonast til að Venison og
Mike Marsh, miðheiji Coventry,
gangi til liðs við liðið.
■ LAZÍÓ hefur tilkynnt Inter
Mílanó að Króatinn Alen Boksic
sé ekki til sölu, en Mílanóliðið falað-
ist eftir honum. „Það er enginn leik-
maður liðsins til sölu.“
■ ORÐRÓMUR hefur verið að
flórir af bestu leikmönnum Lazíó
væra á föram frá liðinu — Boksic,
Giuseppe Signori, Pierluigi Cas-
iraghi og Aron Winter.
■ DANSKI landsliðsmaðurinn Jes
Högh hefur gengið til liðs við tyrk-
neska liðið Fenerbahce. Högh,
sem lék með Álaborg, er 26 ára.
Skagamenn
halda sínu slriki
Sigurður Jónsson og Ólafur Þórðarson voru eins
og kóngará miðjunni í Grindavík
Frímann
Ólafsson
skrífar frá
Grindavik
SKAGAVÉLIN skilaði sínum
þremur stigum í hús í Grinda-
vík með sigri á Grindvíkingum.
Fyrri hálfleikur var leikinn á
innsoginu en íseinni hálfleik
fór hún að malla og skilaði því
sem þurfti. Heimamenn
hleyptu þó smá spennu íleik-
inn í lokin en sigur Skaga-
manna var sanngjarn. Lúkas
Luka Kostic þjálfari Grindvík-
inga sagði við Morgunblaðið
eftir leikinn að liðið minnti
hann á iiðið sem lék sumarið
1993 og var nánast ósigrandi.
Ahorfendur vora rétt að setjast
í sætin þegar Kári Steinn
Reynisson átti skot yfir þverslá
Grindavíkurmarks-
ins. Það vakti tölu-
verða athygli að
Grindvíkingar vora
með Albert Sæv-
arsson í markinu í
stað Hauks Bragasonar sem sat á
varamannabekknum en hann hef-
ur ekki fundið sig í sumar. Albert
lék af öryggi í leiknum og sýndi
að Grindvíkingar era ekki á flæði-
skeri staddir með markmenn. Har-
aldur Ingólfsson átti síðan fyrir-
gjöf á 11. mínútu sem stefndi í
markið og Albert gerði vel að slá
knöttinn yfir.
Ólafur Adolfsson hinn sterki
vamarmaður Skagamanna varð
fyrir höfuðhöggi á 12. mínútu eft-
ir að hafa lent í samstuði við Milan
Jankovic og nokkur töf varð á
leiknum meðan gert var að sári
sem hann hlaut á höfuðið. Hann
harkað þó af sér en þurfti skömmu
seinna að fara útaf til að fá frek-
ari aðhlynningu. Við þetta varð
vöm Skagamanna óöraggari og
Grindvíkingar áttu snarpari sókn-
ir. Zoran Ljubicic lék í gegnum
vömina á 31. mínútu en varnar-
mönnum Skagamanna tókst að
bjarga á síðustu stundu. Þetta var
nánast eina færi heimamanna í
1*^\Vítaspyrna var
■ %rdæmd eftir að knött-
urinn barst í hönd Þorsteins
Guðjónssonar á upphafsmínútu
seinni hálfleiks. Haraldur Ing-
ólfsson sendi Albert Sævarsson
markvörð Grindavíkur í vinstra
homið og skoraði með öruggu
skoti í hægra markhomið
2B ^%Ólafur Þórðarson
■ %rfékk boltann á víta-
teigshomi vinstra megin, sneri
sér skemmtilega til hægri og
sendi boltann með snúningi yfír
markmann og í markið á 60.
mínútu.
2m Þorsteinn Guðjóns-
■ I son vann knöttinn á
eigin vallarhelmíngi á 87. mín-
útu og sendi fram á Grétar Ein-
arsson sem lék inn að vítateigi
Akumesinga og gaf síðan á
Ólaf Ingólfsson sem var stadd-
ur inni í vítateig vinstra megin
og skaut framhjá Þórði Þórðar-
syni markverði Akurnesinga í
hægra markhorn.
fyrri hálfleiknum. Sigursteinn
Gíslason komst hinsvegar einna
næst því að ná forystunni fyrir
Skagamenn þegar hann átti gott
skot að marki Grindvíkinga og af
varnarmanni barst knötturinn í
þverslá og yfír.
Skagamenn fengu síðan víta-
spyrnu úr fyrstu sókn sinni eftir
aðeins 28 sekúndur í seinni hálf-
leik. Eftir markið fengu Grindvík-
ingar tvær homspyrnur sem voru
hættulausar. Þá var komið að
Skagavélinni sem hrökk í gang
og þeir nánast léku eins og eitt
lið væri á vellinum. Sigurður Jóns-
son og Ólafur Þórðarson vora eins
og kóngar á miðjunni vel studdir
af sterkri vörn og sprækum kant-
mönnum. Sóknarþungi þeirra
jókst hægt og bítandi. Vörn Grind-
víkinga með þá Þorstein Guðjóns-
son og Milan Jankovic í miðjunni
var þó föst fyrir en eitthvað varð
að láta undan og seinna markið
sló heimamenn út af laginu. Þeir
náðu þó að komast inn í leikinn í
lokin en höfðu aðeins 1 mark úr
krafsinu sem var aðeins annað
markið sem Skagamenn fá á sig.
Skagamenn áttu ekki endilega
sinn besta leik í sumar en það var
virkilega gaman að sjá til þeirra
þegar þeir komust í gang. Þá unnu
vömin, miðjan og fremstu menn
vel saman. í þannig liði er alltaf
erfitt að benda á hver er fremstur
meðal jafningja. Ólafur Þórðarson
og Sigurður Jónsson léku þó vel
á miðjunni með Harald stórhættu-
legan á kantinum. Ólafur Adolfs-
son skilaði sínu í vörninni en
meiðslin sem hann varð fyrir
snemma í leiknum háðu honum.
Þorsteinn Guðjónsson og Milan
Jankovic vora bestir heimamanna
ásamt Alberti í markinu.
„Við vissum að þetta yrði erfið-
ur leikur og við gerðum hann full-
erfiðan fyrir okkur í lokin sem var
alveg ástæðulaust. Við voram
seinir í gang en eftir að vera bún-
ir að skora strax í seinni hálfleik
fannst mér við vera með töluverða
yfirburði þangað til í lokin og sýndi
að það má aldrei slaka á,“ sagði
Logi Ólafsson þjálfari Skaga-
manna.
Kenny
Dalglish
hækkar
í tign
KENNY Dalglish, sem stýrði
Blackburn Rovers til Eng-
landsmeistaratignar í knatt-
spyrnu í vor, er hættur sem
þjálfari liðsins. Að eigin ósk
hefur hann verið hækkaður í
tign hjá félaginu — hættir
daglegum afskiptum af liðinu
sjálfu og kallast héðan í frá
yfirmaður knattspyrnumála.
Ray Harford, aðstoðar-
maður Dalglish síðustu ár,
tekur við þjálfarastarfinu og
verður titlaður framkvæmda-
stjóri liðsins, eins og tíðkast
í Englandi. Harford — sem
áður var stjóri Wimbledon —
var í sumar orðaður við fram-
kvæmdastjórastarf hjá
Sheffield Wednesday, Ars-
enal og Manchester City. Vit-
að var að hann hafði mikinn
áhuga á að fá slíkt starf aft-
ur, og nú hefur draumur hans
ræst. „Kenny [Dalglishj vildi
hægja svolítið á og Ray [Har-
ford] er æstur í að fara að
stjórna aftur,“ sagði talsmað-
ur Blackburn í gær, og bætti
við að allir ættu því að vera
ánægðir.
Dalglish var framkvæmda-
stjóri Liverpool en hætti í
febrúar 1991 og kenndi um
of miklu álagi. Talið er víst
að honum hafi þótt álagið
orðið of mikið nú aftur og
því viljað draga sig í hlé frá
daglegum störfum við þjálf-
unina.
Þrumuveður „flautaði"
bikarúrslitaleik af
ÞRUMUVEÐUR kom í veg fyrir að hægt að ljúka bikarúrslitaleik
Deportivo La Corana og Valencia, sem var flautaður af eftir 79 mín.
100 þús. áhorfendur voru á leiknum, sem fór fram Bernabeu, heima-
velli Real Madrid. Staðan var 1:1 þegar flautað var af ogþurfa liðin
að leika á ný í kvöld, þær ellefu mín. sem eftir era og framlengingu
ef með þarf. Javier Manjarin skoraði fyrir La Coruna á 35. mín., en
Pedrag Mijatovic jafnaði fyrir Valencia á 70. mín.
Bikarinnntil
„Gladbach"
BORUSSIA Mönchengladbach fagnaði sín-
um fyrsta titli í sextán ár, þegar leikmenn
liðsins lögðu 2. deilædarliðið Wolfsburg
að velli, 3:0,1 úrslitaleik bikarkeppninnar
þýsku á Ólympíuleikvanginum í Berlín á
laugardaginn. Það voru Svínn Martin
Dahlin, Stefan Effenberg og Heiko
Herrlich sem skoruðu mörk „Gladbach" á
14., 61. og 86. mín. Liðið fagnaði síðast
1979, þegar það varð sigurvegari I UEFA-
keppninni. Með þessum sigri tryggði
„Gladbach" sér rétt til að leika í Evrópu-
keppni bikarhafa, þannig að Bayern
Miinchen fær rétt til að leika í UEFA-
keppninni.
Mönchengladbach hefur tvisvar áður
bikarmeistari — 1960 og 1973, en fyrir
þremur árum tapaði liðið úrslitaleik í Berl-
ín, fyrir 2. deildarliðinu Hannover í víta-
spyrnukeppni. „Þetta hefur verið gott
keppnistimabil þjá okkur og enda það á
þennan hátt, er stórkostlegt," sagði Stefan
Effenberg, sem sést hér á myndinni til
hliðar, lyfta bikarnum og fagna.