Morgunblaðið - 27.06.1995, Side 10

Morgunblaðið - 27.06.1995, Side 10
10 B ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ALDURSFLOKKAMÓT ÍSLANDS í SUNDI Getum ekki annað en verið ánægð - sagði Jón Már Héðinsson, formaður Óðins „ÞETTA mót er það lang- stærsta sem við höfum tekið að okkur. Aldursflokkamótið var síðast haldið á Akureyri fyrir tfu árum síðan en þetta er stærsta mótið frá upp- hafi. Við getum ekki annað en verið ánægð með móts- haldið. Við höfum fengið gott veður og keppendur hafa verið mjög jákvæðir," sagði Jón Már Héðinsson, formað- ur sunddeildar Óðins. Jón Már sagði að fjöldinn hefði verið heldur meiri en reiknað hafí verið með í upphafi. „Okkur var sagt að það væri gott að fá 200 - 250 keppendur en reyndin varð sú að keppendur voru á bilinu 350 - 360 talsins. Mót sem þetta er mikil lyftistöng fyrir okkar fé- laga. Við eigum efnilegt sundfólk bæði í A og B-landsiið, Þorgerði Benediktsdóttur og Ómar Þorstein Árnason í landsliðsflokki sem bæði kepptu á smáþjóðaleikunum, og af ekki stærra sundfélagi skil- um við góðum árangri á þessu móti En fyrst og fremst er þetta feykilega gama. Stemmingin hef- ur kannski ekki verið alveg sú sama hjá okkar krökkum. Hin fé- lögin eru öll saman í gagnfræða- skólanum og umhverfið er mjög þægilegt, það er allt á sama bletti og aðeins tveggja mínútna gangur í sundlaugina. Aðstæður koma til með að batria mikið hjá félaginu næsta sumar en þá rís 25 metra laug sunnan við laugina sem nú er. „Almenningur hefur verið mjög þolinmóður gagnvart okkur hing- að til og við höfum fengið að nota hluta laugarinnar undir æfíngar. Það á eftir að breytast mikið með tilkomu nýju laugarinnar, árekstr- ar verða færri á milli keppnisfólks- ins og þeirra sem synda einungis sér til heilsubótar," sagði formað- urinn. Þröngt á þingi í upphitun ÞAÐ var oft þröngt ð þlngi ( Sundlaug Akureyrar þegar keppendur á Aldursflokka- móti íslands hltuðu slg upp fyrlr keppnlsgrelnarnar. Keppendurvoru um 360 talsins og hafa ekki verlð fleiri á AMÍ frá upphafi. Morgunblaðið/Frosti Langar að bæta met Eydísar og Ragnheiðar Morgunblaðið/Frosti KOLBRÚN Ýr ásamt þjálfara sínum Slgrurlínu Þorgeirsdóttur. KOLBRÚN Ýr Kristjánsdóttir hjá ÍA gerði sér lítið fyrir og setti tvö meyjamet á Aldurs- flokkamóti Islands. Kolbrún setti metin í 50 og 100 metra baksundi og hreppti fjögur gullverðlaun íeinstaklings- greinum á mótinu. Eg er ákveðin að halda áfram að æfa sund af fullum krafti og vonast til þess að mér takist að bæta metin sem Ragnheiður [Runólfsdóttir] og Eydís [Konr- áðsdóttir] eiga í baksundunum,“ Þjálfari Kolbrúnar hjá ÍA er Sigurlín Þorbergsdóttir og hún sagði að árangur nemenda síns hefði ekki komið sér á óvart. „Mér fannst það einungis vera tíma- spursmál hvenær hún mundi bæta metin. Hún á meira inni og það kæmi mér ekki á óvart að hún setti fleiri met áður en hún gengur upp úr meyjaflokknum um ára- mótin.“ Kolbrún æfír allar sundtegundir eins og flestir krakkar á hennar aldri, enda segir Sigurlín að áherslan í unglingaþjálfuninni miðist við að kenna unglingunum rétta tækni í öllum sundgreinum og hjálpa þeim að byggja sig upp, þau sérhæfa sig ekki í einstökum greinum fyrr en síðar. 100 metra baksundið er besta grein Kolbrúnar að hennar sögn en mótið um helgina var hennar síðasta mót í bili, við tekur sum- arfrí, í mánuð. Hún bjóst þó við að skreppa í sund öðru hvoru. „Það eru mjög margir sem halda að sund snúist bara um að fara fram og til baka en það liggur miklu meira að baki. Það þarf að hafa gott skap og þrek og svo er félagskapurinn í kringum sundið mjög góður. Knattspyrnufjölskylda Kolbrún er frá fótboltabænum og afí hennar er enginn annar en Ríkharður Jónsson, knattspymu- kappi á árum áður og frændur hennar eru Sigurður Jónsson og Ríkharður Daðason. En hvarflaði ekki að henni að feta í fótspor þeirra og fara að æfa knattspymu? „Nei, aldrei.“ Um áttatíu börn og unglingar æfa sund hjá ÍA og sagði Sigurlín að áhuginn mætti vera meiri hjá strákum. Það kann að vera að það breytist á næstu árum. FYRIRLIÐAR Ægls, þau Sva- var Slgurmundsson og Elín Sveinbjörnsdóttir Ægir hlaut stiga- bikarinn Áttum von ámeiri keppni um stigin gir varð stigameistari félaga á Aldursflokkamótinu sjö- unda árið í röð. Liðið fékk rúm 60 þúsund stig en Ármann varð í öðru sæti með rúm 45 þúsund stig. „Við áttum von á harðari keppni um stigin sögðu þau Svavar Sigur- mundsson og Elín Sveinbjörnsdótt- ir, fyrirliðar Ægis í mótinu en þau hafa bæði mikla reynslu af ungl- ingamótum. Svavar sem er á sínu síðasta ári í unglingaflokki sagðist reyndar ekki hafa tölu á því hve oft hann hefði keppt á AMÍ en Elín taldi að mótið á Akureyri væri hennar tíunda í röðinni. „Það er miklu meiri fjöldi en verið hefur undanfarin ár og meira um yngri krakka. Mér finnst mót eins og þetta hafa mikið að segja, krakkamir hittast og kynnast hvort öðru og það hlýtur að vera af hinu góða,“ sagði Svavar. ■ Úrslit / B14 Ánægðar med mótið BIRNA Hallgrímsdóttir og Anna Bergljót Thorarens- en eru þrettán ára gamlar og æfa sund með Breiða- blik og keppa undir merkjum UMSK. Þær sögðust vera hæsta- ánægðar með mótið. „Okkur hefur gengið ágætlega og það er gam- an að koma hingað til að keppa. Við búum í Gagn- fræðaskólanum og þurf- um yfirleitt að vera komnar í háttinn um hál- fellefu því við þurfum að vakna klukkan hálfátta á morgnana.“ Birna og Anna hafa hug á því að keppa á Unglingalands- mótinu sem fram fer í næsta mánuði en keppt verður í sundi á Hvamms- tanga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.