Morgunblaðið - 27.06.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. JÚNÍ 1995 B 11
ALDURSFLOKKAMÓT ÍSLANDS í SUNDI
Morgunblaðið/Frosti
Vinkonur og keppinautar
JÓHANNA Ýr Jóhannsdóttir og Vilborg Magnúsdóttir eru vinkonur
en jafnframt miklir keppinautar. Báðar eru þær í stúlknaflokki, æfa
með Ungmennafélaginu Selfossi og þeirra sterkasta grein er bak-
sundið. Rúmri sekúndu munaði á þeim í 100 m baksundi og það var
Jóhanna, á myndinni fyrir ofan, sem hafði betur. „Við höfum báðar
verið að bæta okkur mikið og það er mikil keppni á milli okkar.
Segja má að við vinnum til skiptis, Ég held að ég sé aðeins betri
en Vilborg í 200 metrunum en hún hefur mig í fimmtíu metra sundi,“
sagði Jóhanna. „Það er stundum sagt að áhugi og árangur fari sam-
an og það er örugglega eitthvað til í því. Að minnsta kosti finnst
okkur báðum skemmtilegast í baksundinu," sagði Vilborg, mynd til
hliðar. Vinkonurnar sagði að aðstæður til æfinga væru ekki góðar
á Selfossi þar sem sundlaugin væri í lélegu ásigkomulagi.
SIGIIRSVEIT Keflavíkur í 4X100 m fjórsundl. Frá vlnstrhRúnar
Már Sigurvinsson, Sævar Sigurjónsson, Steinar Örn Stelnars-
son og Eyjólfur Alexanderson.
Ætla að gera enn
betur á næsta móti
DRENGJASVEIT Keflavíkur
gerði sér lítið fyrir og sigraði í
4 X100 m fjórsundi þar sem
sveitin var fjórum sekúndum
frá metinu í þeirri grein.
Sveitin var skipuð þeim Rúnari
Má Sigurvinssyni, Sævari
Sigutjónssyni, Steinari Erni
Steinarssyni og og Eyjólfi Alex-
anderssyni.
„Mesta keppnin við Ægi og SH
en við höfðum betur á lokasprettin-
um,“ sagði Eyjólfur. „Þetta er í
fyrsta skipti sem við vinnum mót
fjórir saman en við erum ákveðnir
í að keppa saman á Sundmeistara-
mótinu eftir hálfan mánuð og ætl-
um þá að gera enn betur,“ sagði
Rúnar Már. Þrír drengjanna voru
einnig í sigursveitinni í 4 X 100
metra skriðsundi en í því sundi
synti Halldór Halldórsson í stað
Sævars.
Eyjólfur er elstur af þeim félög-
um en hinir verða enn löglegir í
drengjaflokki á næsta ári. „Ég
gæti trúað að sveitin verði mjög
sigursæl á næsta ári, það kemur
bara annar góður í minn stað,“
sagði Eyjólfur.
Steinar kom við á rakarastofu
fyrir mótið og lét fjarlæga allt hár
af höfðinu nema hvað hann skyldi
eftir K til að undirstrika að hann
synti fyrir Keflavík. „Ég ákvað að
gera þetta til að breyta til, í stað
þess að raka okkur alveg ákváðu
ég og Eyjólfur að hafa merki fé-
lagsins á höfðinu.“
Om með fimm gull
Orn Arnarson frá Sundfélagi
Hafnarfjarðar setti drengja-
met í 400 metra skriðsundi á
fyrsta keppnisdaginn á aldurs-
flokkamótinu. Hann synti á
1:06,76 og bætti fyrra met um
rúmar tvær sekúndur.
„Þetta var fyrsta tilraunin við
metið í þessu sundi og ég var orð-
inn býsna þreyttur eftir fyrri 200
metrana.
Ég mundi segja að 200 metra
baksund væri mín besta keppnis-
grein en á þessu móti gekk mér
vel og mun betur en ég þorði að
vona fyrirfram,“ sagði Orn sem
hlaut gullverðlaun í fimm einstakl-
ingsgreinum.
Hann sagðist vera ákveðinn í
að halda áfram á sömu braut og
stefna að því að ná sem bestum
árangri í sundinu.
SH fékk
flestu gull-
peningana
SUNDFÉLAG Hafnarfjarðar
hreppti flest guUverðlaun á
Aldursflokkamótinu á Akur-
eyri. Félagar í SH unnu til tíu
gullverðlauna og munaði mest
um árangur þeirra Arnar Arn-
arsonar og Omars Snævars
Friðrikssonar sem voru mjög
sigursælir á mótinu. ÍA fékk
átta guUverðlaun og UMFN og
Ægir sex hvort. Ungmennafé-
lag Njarðvlkur gat hins vegar
státað af flestum verðlaunum,
22 taisins.
Verðlaun af-
hent í skól-
anum
FLESTIR keppendur bjuggu í
Gagnfræðaskóla Akureyrar
sem er rétt hjá sundlauginni.
Á kvöldin fóru fram kvöldvök-
ur og að henni lokinni voru
verðlaun veitt fyrir greinar
dagsins.
Frumsamið
lag
KEPPENDUR og þjálfarar
gerðu sér ýmislegt til skemmt-
unar á kvöldvökunum og með-
al annars var flutt frumsamið
lag. Höfundar lagsins voru
þeir Auðunn Eiríksson sund-
þjálfari þjá Óðni og Karl Frí-
mannsson. Lagið mæltist ágæt-
lega fyrir en margir áttu erfitt
með að skiþ'a textann sem var
á torkennilegu máli að sögn
sumra sem á hann hlýddu. Af
öðrum skemmtiatriðum má
nefna látbragðsleik þjálfara
sem naut mikilla vinsælda.
Gjöldin fóru
til SSÍ
SUNDFÉLAGIÐ Óðinn sem
hélt mótið fékk ekki skráning-
argjöld keppenda í sinn hlut
heldur Sundsambandið og
reyndar þurfti Óðinn að greiða
sambandinu 150 þúsund krón-
ur til þess að fá að halda mót-
ið. Óðinn fékk hins vegar
ágóða af veitingasölu í sinn
hlut. Keppendur greiddu fimm
þúsund krónur fyrir gistingu
og fæði frá fhnmtudagskvöldi
til mánudagsmorguns og þótti
það vel sloppið.
Bolur með
nöfnum
keppenda
SÉRSTAKUR mótsbolur var
útbúinn og var haun með um
360 nöfnum, fomöfnum allra
keppenda á mótinu. Bolurinn
seldist mjög vel og aðeins örfá-
ir bolir voru eftir í stórri stærð
slðasta daginn.
Önnur
stigagjöf
STIGAGJÖF vai' með öðrum
hætti en tíðkast hefur á Ald-
ursflokkamótum fyrri ára. Yf-
irleitt hafa stig aðeins verið
veitt fyrir átta efstu sæti í
hverju sundi en nú fengu allir
sundmenn stig. Stigagjöfin
gerði það að verkum að fjöl-
mennarí félögin áttu óneitan-
lega betri möguleika. Sumir
sögðu að heimamenn hefðu átt
að sena nokkra bekki úr Gagn-
fræðaskólanum til leiks og það
hefði fleytt þeim langt til að
vinna mótið.