Morgunblaðið - 06.07.1995, Page 2
2 C FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYIMDIR VIKUIMIMAR
Sjónvarpið ■ Stöð tvö
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ
VI qq IIC ►Við Marilyn (Marilyn
l»l" “.Uil and Me) Bandarísk
sjónvarpsmynd frá 1991 um leikkon-
una og þokkagyðjuna Marilyn Monroe
á árunum áður en hún varð fræg.
LAUGARDAGUR 8. JULI
Kl.21.15 to Freedom: The Und-
erground Railroad) Kanadísk sjón-
varpsmynd frá 1993. Myndin gerist
um miðja síðustu öld og segir frá
háskalegum flótta fjögurra svartra
þræla frá bómullarekrunum í Suður-
ríkjunum til fyrirheitna landsins í
Kanada.
VI QO CC ►Kraftaverk (Miracle)
1*1- LLmvU Bresk bíómynd frá
1991. Ungur maður fellur flatur fyrir
leyndardómsfullri konu sem kemur í
smábæ nokkurn, en hann veit ekki
hvað er í vændum.
SUIMIMUDAGUR 9. JULI
VI 99 1 C ►Himnasending
lll. LL. lu (Caidos del cielo)
Spænsk/perúsk bíómynd frá 1990.
Þetta er gráglettnisleg harmsaga sem
gerist í Líma á 9. áratugnum og seg-
ir frá lífi fólks af þremur kynslóðum
og af ólíkri þjóðfélagsstétt.
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ
VI 91 1C ►Óskabarnið (And
1*1. £ I • I il Then There Was One)
Bandarísk sjónvarpsmynd frá 1993.
Ung hjón hafa um árabil reynt að eign-
ast bam. Þegar bamið loks fæðist
kemur f'ljós að það er með eyðni og
að foreldramir voru smitberarnir.
STÖÐ tvö
FÖSTUDAGUR 7. JÚLÍ
VI 91 10 ►Fótafimi (Footloose)
III. £ I. III Fyrsta þemamynd
mánaðarins er Fótafími með Kevin
Bacon í aðalhlutverki. Það er ekki
laust við að það fari skjáifti um
smábæinn Bomont þegar Ren Mac-
Cormack flytur þangað frá Chicago
ásamt móður sinni. Myndin var til-
nefnd til tvennra Óskarsverðlauna fyr-
ir bestu lög ársins 1984.
VI 99 « ► Frilla konungs (The
III. LL.UU Kings Whore) Magn-
þrangin örlaga- og ástarsaga sem
gerist seint á sautjándu öld í litlu kon-
ungsríki á Ítalíu. 'Þangað kemur Je-
anne, fögur greifynja af frönskum
ættum, ásamt greifanum sem hún
hefur nýverið gifst, og þau setjast að
við hirð konungs. Bönnuð börnum.
VI II qn ►Öngstræti ástar-
m. U.ðU lifsins (Are You Lo-
nesome Tonight) Adrienne Welles er
gift efnuðum kaupsýslumanni en
hjónabandið fer í rúst þegar hún upp-
götvar að hann er heltekinn af síma-
vændisstúlkunni Lauru. Kvöld eitt,
þegar hún kemur heim, uppgötvar hún
að eiginmaðurinn er horfinn sporlaust
en á símsvaranum er síðasta samtal
hans við Lauru. Bönnuð börnum.
LAUG ARDAGU R 8. JÚLÍ
f t í p 1 fM 1 t n I
ríswtefcw
í
VI 91 9n ►Nýlifti ársins
III. 4 l.£U (Rookje of the Year)
Stórskemmtileg mynd um guttann
Henry Rowengartner sem verður fyrir
því óláni að handleggsbrotna en það
er þó ekki með öllu illt því þegar sár-
ið grær hefur hann öðlast ótrúlegan
kraft sem kemur sér vel í hafnaboltan-
um. Köstin hjá stráksa era þvílík að
það er litið fram hjá því að hann er
aðeins tólf ára þegar hann er ráðinn
kastari fyrir Chicago Cubs.
W9Q nn ►Nlorð f Malibu
• £u.UU (Murder in Malibu)
Þekktur ástarsagnarithöfundur, Ter-
esa Goern, hefur verið myrtur og rann-
sóknarlögregluþjónninn Columbo er
viss um hver framdi glæpinn. Nú er
það bara spurning hvort honum tekst
að fá morðingjann til að játa.
VI n CC ►Fjöiskylduerjur (To
Hl. U.UU Sleep with Anger)
Áhrifamikil og dramatísk kvikmynd
um svarta íjölskyldu sem býr í Los
Angeles. Bönnuð börnum.
SUNNUDAGUR 9. JÚLÍ
Kl. 20.50
ástarinnar
Love Kills)
Fyrri hluti sannsögulegrar, bandar-
ískrar framhaldsmyndar um vörabíl-
stjóra og fyrrverandi stríðshetju sem
auglýsti í tímaritinu „Soldier of Fort-
une“ í þeirra von að það myndi færa
honum og syni hans einhvern smá
aukapening. Hann óraði ekki fyrir því
hvaða eftirmála og áhrif á líf hans
þessi auglýsing átti eftir að hafa. Sjá
nánari umflöllun annars staðar í blað-
inu.
VI 99 111 ►Varnarlaus (De-
III. £0. IU fenseless) T.K. er ung
og glæsileg kona. Hún er lögfræðing-
ur og heldur við Steven Seldes, skjól-
stæðing sinn. Þegar hann er myrtur
á dularfullan hátt kemur ýmislegt
óvænt upp á yfirborðið. Stranglega
bönnuð börnum.
MÁNUDAGUR 10. JÚLÍ
VI 91 CC ►Vald ástarinnar
III. £ I .tlll (When Love Kills) Nú
verður sýndur seinni hluti þessarar
sannsögulegu bandarísku framhalds-
myndar um vörabílstjórann og fyrrver-
andi stríðshetjuna sem var svo blinduð
af ást að hann myrti fólk til að þókn-
ast ástkonu sinni.
VI ^q q» ►Barnfóstran (The
Hl. £u.uU Hand that Rocks the
Cradle) Peyton Flanders ræður sig
sem húshjálp hjá Claire og Michael
Bartel og verður strax trúnaðarvinur
allra á heimilinu. Stranglega bönnuð
börnum.
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ
V| 99 9fl ►lr°ns'de snýr aftur
m. £ú.£U (The Retum of Ir-
onside) Lögregluforinginn Robert T.
Ironside ætlar að setjast í helgan stein
eftir farsælt starf í San Francisco en
er kallaður aftur til starfa þegar lög-
reglustjórinn í Denver er myrtur á
hrottalegan hátt. Bönnuð börnum.
MIÐVIKUDAGUR 12. JÚLÍ
VI 99 AC ►Boomerang Eddie
Hl. £u.Ull Murphy leikur Marc-
us Graham, óforbetranlegan kvenna-
bósa sem hittir oijarl sinn í þessari
skemmtilegu gamanmynd. Hann verð-
ur yfir sig ástfanginn af konu sem
tekur vinnuna fram yfir rómantíkina
og kemur fram við Marcus eins og
hann hefur komið fram við konur fram
að þessu.
FIMMTUDAGUR 13. JÚLÍ
«99 y|C ►Konur í kröppum
. £u.4(l dansi (Lady Against
the Odds) Dol Bonner og Sylvia
Raffray era einkaspæjarár í banda-
rískri stórborg á upplausnartímum í
síðari heimsstyijöldinni. Fj'árgæslu-
maður Sylviu, P.L. Storrs, kemur á
kontórinn til einkaspæjaranna og fer
þess á leit við Dol að hún grennslist
fyrir um Thomas nokkum King.
BÍÓIIM í BORGINIMI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BfÓBORGIIM
„D/e Hard 3“ ir + ir
HÖRKUGÓÐUR hasartryllir sem seg-
ir í þriðja sinn af Brace Willis í gegnd-
arlausum eltingarleik við illmenni.
Samuel L. Jackson ómetanlegur sem
félagi hans og Jeremy Irons er höfuð-
óþokkinn. Fínasta sumarbíó.
Ungur í anda + +
Gamanmynd sem tekur sig alltof al-
varlega um brokkgenga sambúð aldr-
aðs manns og sonarsonar hans. Peter
Falk leikur öldunginn af sannfæring-
arkrafti en D.B. Sweeney er slakur.
Ed Wood + + +
Ed Wood var lélegasti kvikmyndaleik-
stjóri aldarinnar og einn af aðdáendum
hans, Tim Burton, hefur reist honum
skemmtilegan minnisvarða með
svart/hvítri kómedíu um geggjaða
veröld B-myndanna. Martin Landau
er einfaldlega stórkostlegur sem Bela
Lugosi.
Strákar til vara + +
Þrjár vinkonur hafa hver sinn djöful
að draga en Hollywood fer offari enn
eina ferðina í tilfinningamálunum.
Leikkonurnar bjarga nokkru í mis-
jafnri mynd.
BfÓHÖLLIIM
„Die Hard 3“ (sjá Bíóborgina)
Fylgsnið * +
Spennumynd byggð á sögu eftir Dean
Koontz. Lengst af prýðileg skemmtun
en íj'ölskylduvæmnin í lokin er fullmik-
ið af því góða.
Hinir aðkomnu ++Zz
Skemmtileg og spennandi geiminnrás-
armynd sem líður nokkuð fyrir auka-
endi. Blanda af Innrásinni frá Mars
og Innrás líkamsþjófanna með Donaid
Sutherland í toppformi.
/ bráðri hættu + + +
Flaustursleg en hröð og fagmannlega
gerð spennumynd um bráðdrepandi
vítisveira og baráttuna við að stöðva
útbreiðslu hennar.
Þyrnirós + +'A
Falleg Disneyteiknimynd frá 1959 sem
byggir á ævintýrinu um Þyrnirós.
Fyrri hlutinn hægur en lokaátökin hin
skemmtilegustu.
Fjör í Flórída + +
Nokkrar framhjáhaldssögur eru aðal-
inntakið í þessari rómantísku gaman-
mynd sem minnir svolítið á Woody
Allen. Hressileg samtöl en frekar
óspennandi efni.
HÁSKÓLABÍÓ
Brúðkaup Muriel + + +
Oft sprenghlægileg áströlsk gaman-
mynd um stelpu sem vill giftast og
telur lykilinn að lífsgátunni felast í
Abbasöngvum. Góða skemmtun.
Exotica +
Ómerkilegur strippbúllublús sem reyn-
ir án árangurs að vera eitthvað annað
og meira en leiðindin.
Vélin +
Gerard Depardieu leikur geðlækni,
kvennamorðingja og 12 ára strák í
franskri B-mynd og verður á endanum
hlægilegur.
Rob Roy ++Vi
Sverðaglamur, ættardeilur og ástamál
á skosku hálöndunum á 18. öld. Mynd-
in lítur vel út og fagmannlega en hand-
ritið misjafnt og lengdin óhófleg.
Star Trek: Kynslóðir ++'A
Sjöunda myndin í Trekkabálknum
markar kaflaskil því nú tekur nýr
kapteinn við stjóm. Sami gamli góði
hasarinn í útgeimi.
Skógardýrið Húgó + +
Lítil og meinlaus teiknimynd frá Dön-
um, elskulegum frændum vorum og
vinum, um Húgó hinn hressa sem
syngur og dansar og hoppar og hlær
smáfólkinu til ánægju og yndisauka
en hinum fullorðnu mest til angurs og
armæðu.
LAUGARÁSBÍÓ
Eftirförin +'A
Christopher Lambert er á hröðum
flótta í Japan undan leigumorðingjan-
um og samúræjanum John Lone. Ekta
mynd fyrir Chuck Norris.
Dauðinn og stúlkan + +'/?
Roman Polanski gerir leikriti Ariel
Dorfmans ágæt skil og nær góðum
leik úr þremenningunum í aðalhlut-
verkunum.
Heimskur heimskari + + +
Vellukkuð aulafyndni um tvo glópa á
langferð. Sniðin fyrir Jim Carrey og
Jeff Daniels. Hláturinn lengir lífið.
REGIMBOGINIM
Jónsmessunótt + + +
Óvenju vei skrifuð og ieikin mynd sem
tekst furðu vel að lýsa því hversu
gaman það er að vera ungur og ást-
fanginn.
Eitt sinn stríðsmenn * + +'A
Raunsæ og vægðarlaus lýsing á fjöl-
skyldulífí í fátækrahverfi á Nýja-Sjá-
iandi. Ofbeldi, óregla og aðrir lestir
era ekki teknir neinum vettlingatök-
um, björtu hliðamar gleymast heldur
ekki.
Kúlnahríð á Broadway + + +'A
Frábærlega gamansamur farsi frá
Woody Allen sem kominn er aftur í
sitt gamla form. Fyndið handrit, skop-
leg persónusköpun og unaðslegur leik-
hópur gera Kúlnahríðina að bestu
gamanmynd í bænum. Ekki missa af
þessari.
SAGABÍÓ
Kynlifsklúbbur í Paradís O
Kanar að kljást við kynlífskómedíu og
útkoman steingeld og náttúrulaus
þrátt fyrir að Dana Delaney sé kona
íturvaxin og hæfileikarík.
Húsbóndinn á heimilinu +
Nauðaómerkileg amerísk fjölskyldu-
saga sem löðrar af væmni.
Bradyfjölskyldan O
Allt lagt upp úr hallærisbragnum og
það sýnir sig. Óþolandi í leiðinni.
STJÖRNUBÍÓ
/ grunnri gröf + +'h
Breskur tryllir í anda Tarantinos tekst
nokkuð sæmilega að halda áhorfand-
anum við efnið. Gráglettin og skondn-
ar persónurnar vel leiknar.
Exotica +
Ómerkilegur strippbúllublús sem reyn-
ir án árangurs að vera annað og meira
en leiðindin.
Litlar konur + + +/,
Einstaklega vel gerð, falslaus og falleg
mynd um flölskyldulíf á Nýja-Eng-
landi á öldinni sem leið. Winona Ryder
fer fremst í flokki afburðaleikara.
Ódauðleg ást + + +
Svipmikil mynd um snillinginn Beet-
hoven fer hægt í gang en sækir í sig
veðrið. Tónlistin stórkostleg og útlitið
óaðfinnanlegt.
Vindar fortíðar +ir +
Skemmtilegt og glæsilega kvikmynd-
að fjölskyldudrama. Verður ekki sú
sögulega stórmynd sem að er stefnt
en virkar frábærlega sem Bonanza
fyrir þá sem eru lengra komnir.