Morgunblaðið - 11.07.1995, Side 1
Plíir0iwttMíi&tííi
1995
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ
BLAÐ
FRJALSIÞROTTIR
KNATTSPYRNA
Enn ein / B3
Úrslit / B10
KNATTSPYRNA: DAVID PLATT FRÁ SAMPDORIA TIL ARSENAL / B12
Davíö áfram í Val með
stuðningi leikmanna
VALSMBNN ákváðu í gær-
kvöldi, eftir fund meðai leik-
manna 1. deildar liðs félagsins að
Davíð Garðarsson leiki áfram með
liðinu. Stjórnarmenn úr knatt-
spyrnudeildinni funduðu í gær-
kvöldi með Davíð vegna atviks í
leik liðsins gegn Grindavík fyrir
helgi þar sem Davíð reif boltann
af samheija við innkast og einnig
vegna hegðunar hans í búnings-
klefa að leik loknum. Síðar í gær-
kvöldi var síðan fundur með leik-
mönnum en þar fékk Davíð mikinn
stuðning frá leikmönnum og var
mikil samstaða þeirra á meðal.
„Við erum búnir að setjast niður
með Davíð og snerist fundurinn um
samskiptamál og var rætt opin-
skátt. Atvikið frá því á fimmtudag-
inn var rætt en Davíð var ekki
rekinn frá félaginu enda slíkt ekki
til í okkar orðaforða og aldrei inni
í myndinni,“ sagði Theódór S. Hall-
dórsson formaður knattspyrnu-
deildar félagsins í gærkvöldi.
„Við eigum eftir að skoða fram-
haldið en þetta er líka spurning
um hvort Davíð þurfi ekki að bæta
sig en menn verða að fara eftir
almennum siðareglum eins og hjá
öðru fólki. Ég vona að deilurnar
verði settar niður og held að það
sé gagnkvæmur vilji fyrir því. Dav-
íð er samningsbundinn Val fram á
haust og fer ekki nema til komi
samkomulag," bætti Theódór við.
Strax eftir fund stjórnarmanna
og Davíðs í gærkvöldi, hélt Davíð
á brott og tók ekki þátt í æfíngu
liðsins. „Ég vil vera áfram hjá Val
og vil koma á framfæri afsökunar-
beiðni vegna atviksins í leiknum
gegn Grindavík. Ég legg það við
drengskap minn að þetta komi ekki
fyrir aftur,“ sagði Davíð. Hann
spilaði með varaliði og: áhuga-
mannaliði Hamburger S.V. í Þýska-
landi í vetur en afþakkaði áhuga-
mannasamning við Þjóðveijana og
spiiaði með Val í 5. umferð.
Skv. heimildum blaðsins hafa
FH-ingar verið í sambandi við Dav-
íð en hann spilaði með liðinu fyrir
fjórum árum, þá í framlínunni og
skoraði mikið. Hafnfirðingar gætu
vel hugsað sér að fá Davíð aftur í
sínar raðir og segja að hann geti
með krafti sínum og ákafa kveikt
neistann hjá lánlausu FH-liðinu.
Morgunblaðið/Sverrir
Kyrr
DAVIÐ Garðarsson eftir
fund með stjórn knatt-
spyrnudelldar Vals að
Hlíðarenda í gærdag.
Góð byrjun á
HM í keilu
VALGEIR Guðbjartsson byrjaði mjög vel í ein-
staklingskeppninni á Heimsmeistarakeppnin í
keilu sem hófst í Reno í Nevada i Bandaríkjunum
í gær. Valgeir og Ásgrímur Helgi Einarsson voru
i fyrsta hópi af fjórum í gær og höfðu lokið keppni
er blaðið fór í prentun. Valgeir fékk 1.247 eða
207 að meðaltali sem er hans besta meðalskor
hans. Hann byrjaði mjög vel með leik uppá 236
og náði síðan þriðja leik í 224. Ásgrímur lék einn-
ig ágætlega þegar hann hafði náð úr sér byrjunar-
hrollinum, en hann lék tvo fyrstu leikina illa en
fékk síðan 230,200 og 221, alls 1.147 sem gerir
191 í meðaltal.
Gífurlegur fjöldi keppenda er á mótinu, 359
karlar og 253 konur frá 59 löndúm, og er keppt
í höll þar sem 80 brautir eru,e n aðeins 78 þeirra
eru notaðar. í fyrsta hópnum í gær voru 92 kepp-
endur. I örðum hópi voru meðal annars Islending-
arnar Ásgeir Þórðarson og Halldór Ragnar Hall-
dórsson. Þeir höfðu lokið fjórum leikjum af sex
er blaðið fór í prentun og hafði Ásgeir fengið
814, eða 204 að meðaltali.
Strákamir
standa sig
ÞRÍR íslenskir snókerspilarar taka þátt í sterkum
atvinnumannamótum sem fram fara í Blackpool í
Englandi. Mótin eru með þeim hætti að hver rnn-
ferð er útsláttarkeppi þannig að menn eru úr leik
tapi þeir. Kristján Helgason vann Stephen Waldr-
on frá Englandi 5-0 í gær og á að Ieika við Adr-
ian Gunnell í dag. Sigri hann er hann kominn
áfram i því móti ogþriðja umferðin verður leikin
29. júlí. Krislján hefur þegar tryggt sér áframhald-
andi keppni í Opna enska meistaramótinu, en þar
sat hann hjá í fyrstu umferð, vann síðan þá Mark
Ganderton og Jonathan Bagley 5-4. „Það var nóg
komið af 5-4 sigrum og hann tók þetta bara létt
í dag,“ sagði Jóhannes R. Jóhannesson sem hefur
keppni á laugardaginn.
Jóhannes B. Jóhannesson er kominn áfram í
tveimur mótum en datt úr þvi þriðja í gær.
Naumt tap
ÍSLENSKA karlalandsliðið í golfi Iék mjög vel
gegn Portúgölmn á Evrópumóti áhugamanna, sem
fram fór í Antwerpen í Belgíu um helgiua, en
tapaði samt 3:2.
Fyrst léku Örn Arnarson og Þorkell S. Sigurð-
arson fjórmenning við Portúgalana Jose Correia
og Alfredo Castilho Cunha og unnu á síðustu hol-
unni. í holukeppniuni vann Birgir Leifur Hafþórs-
son fyrsta leikinn á 16. holu en Sigurpáll Sveins-
son tapaði á 17. holu og Björgvin Sigurbergsson
á þeirri sextándu. Björn Knútsson átti því síðasta
leik og þar réðust úrslit ekki fyrr en á síðustu
holunni, þar sem hann tapaði, og úrslit því 3:2
fyrir Portúgala.
Ný hlaupa-
stjarna
frá Kenýa
NY hlaupasljarna frá Kenýa, 1
Christopher Kosgei, birtist á
stigamóti alþjóða fijálsíþrótta-
sambandsins í Stokkhólmi í gær-
kvöldi og hljóp 3.000 metra
hindrunarhlaup á 8.06,86 sek-
úndum. Það er besti tími sem
náðst hefur I greininni í ár og
nærri 18 sekúndum betri tími en
Kosgei hafði áður náð. Kosgei,
sem er tvítugur, var í gær að
hlaupa í fyrsta skipti í Evrópu
og sigraði meðal annnars heims-
methafann í greininni, landa sinn
Moses Kiptanui. Kosgei kemur
fagnandi í mark á myndinni að
ofan, en þess má geta að eins og
oft áður voru Kenýamenn í sér-
flokki í hlaupinu og hrepptu fjög-
ur fyrstu sætin.
Reuter