Morgunblaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.08.1995, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR MEISTARINN ÞAU FOTFRAUSTU ÞRÓUN HEIMSMETSINS í 100 METRA HLAUPI Linford Christie frá Bretlandi er 35 ára. Hann er eini spretthlauparinn sem hefur veriö handhafi ólympíu-, heims- og Evrópumeistaratitils samtímis. Christie er, enn sem komið er, eini Evrópubúinn sem hlaupiö hefur100_ metrana undir 10sekúndum, en besti tími hans er 9,87 sek. KARLAR T(mi Nafn og þjóöerni Ár 1 10.60 Donald Lippincott, Bandar.1912 2 10.40 Charles Paddock, Bandar. 1921 3 10.30 Percy Williams, Karrada 1930 4 10.20 Jesse Owens, Bandar. 1936 5 10.10 Willie Williams, Bandar. 1956 6 10.00 Armin Hary, V-Þýskaland 19S0 7 9.95 Jim Hines, Bandarikin 1968 8 9.93 Calvin Smith, Bandaríkin 1983 9 9.92 Carl Lewls, Bandaríkin 1988 10 9.90 Leroy Burrell, Bandaríkin 1991 11 9.86 Carl Lewis, Bandaríkin 1991 k12 9.85 Leroy Burrell, Bandaríkin 1994 Nafn og þjóöerni Ár Wyomia Tyus, Bandarikin 1968 Renale Stecher, A-Þýskaland 1972 Inge Helten, V-Þýskaland 1976 Annegret Richter, V-Þýskaland 1976 Marlíes Oelsner, A-Þýskaland 1977 Marlies Goehr, A-Þýskaland 1983 Evelyn Ashlord, Bandarikin 1983 Evelyn Ashford, Bandaríkin 1984 Florence Grittith Joyner, Bandar. 1988 100 METRARNIRAHM Lau.5.ág. Ka.I.umferð Ka. 2, umferð Sun. 6. ág. Ko. 1. umferð Ka.Undanúrslit Ka. Úrslit Mán 7. ág. Ko.Undanúrslit Ko. Úrslit REUTER M RÚNAR Kristinsson og félagar í Orgryte sigruðu hitt íslendingalið- ið. Orebro, 1:0 á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspymu um helgina. Markið kom á síðustu mín- útunni. ■ RÚNAR þótti leika mjög, eins og reyndar allir leikmenn liðsins, í síð- ari hálfleik en fyrir hlé höfðu Arnór Guðjohnsen, Hlynur Stefánsson og félagar í Orebro leikinn í hendi sér. Þá átti Hlynur m.a. skalla yfir úr dauðafæri. ■ ANDREAS Thom, þýski knatt- spymumaðurinn sem leikið hefur með Bayer Leverkusen síðustu ár, er kominn til Glasgow Celtic. Skoska félagið keypti hann fyrir 2,2 milljónir punda — um 220 milljónir króna. ■ MARK McKoy, ólympíumeistari í 110 m grindahlaupi, verður ekki með á heimsmeistaramótinu í Gauta- borg sem hefst um helgina. McKoy, sem er frá Kanada en er nú austur- rískur ríkisborgari, er meiddur í mjöðm og hásin. ■ ÓVÍST er hvort þýsku stúlkurnar Heike Henkel og Sabine Braun verði með á HM. Henkel er ólymp- íumeistari í hástökki og Braun silf- urhafí í sjöþraut frá síðasta heims- FOLK meistaramóti. Báðar hafa átt við meiðsli að stríða. ■ TREVOR Francis, sem var rek- inn úr starfi framkvæmdastjóra Sheffield Wednesday sl. vetur, hef- ur verið boðið að leika með hinu liði borgarinnar, Sheffield United, í vetur. Francis, sem er 41 árs og margreyndur landsliðsmaður á árum áður, segist ætla að íhuga tilboðs Daves Bassetts, framkvæmdastjóra, vel áður en hann gefur svar. ■ TAMAS Darnuy, ungverski sundkappinn frábæri, sem hætti keppni í fyrra, hefur tekið keppnis- skýluna fram aftur. Darnyi, sem vann tvenn gullverðlaun á tvennum Ólympíuleikum og tveimur heims- meistaramótum, var valinn í landslið- ið eftir ungverska meistaramótið á dögunum. ■ COLIN McRae á Subaru sigraði í ný-sjálenska rallinu um helgina, en það er fimmta rallið sem gildi í stiga- keppninni um heimsmeistaratitilinn. McRae og aðstoðarmaður hans, Derek Ringer, sem eru báðir frá Bretlandi, fengu 44 sek. betri tíma en Frakkamir Didier Auriol og Denis Giraudet á Toyota Celica. ■ AURIOL er efstur í keppninni um heimsmeistaratitilinn með 50 stig, finnski heimsmeistarinn Juha Kankkunen — sem varð þriðji um helgina — og Carlos Sainz frá Spáni, koma næstir með 50 stig og McRae hefur 40. ■ FORRÁÐAMENN enska knatt- spymusambandsins eru ekki ánægðir með að Eric Cantona, franski landsl- iðsmaðurinn hjá Manchester United, tók þátt í æfíngaleik með félaginu gegn 3. deildarliði Rochdale í síðustu viku. Hafa þeir farið fram á skýringa frá félaginu, vegna þess að Cantona sé í banni þar til í október. ■ CARL Lewis, spretthlauparinn og langstökkvarinn kunni, tognaði í hné í langstökkskeppni í Bandaríkj- unum á laugardag, en er á batavegi og keppir að öllum líkindum á HM í Gautaborg. VONIR Heimsmeistarakeppnin í ftjáls- íþróttum hefst í Gautaborg í Svíþjóð um næstu helgi og Ijóst að þar verður um að ræða mikla veislu fyrir þá sem áhuga hafa á þeim fögm íþróttum sem boðið verður upp á. Fijálsíþróttamenn hafa hitað vel upp undanfarið, nokkur heimsmet hafa fallið og öruggt að hátt verður stokkið og langt, hratt hlaupið og langt kast- að þá tíu daga sem mótið stendur. Mikið verður um stórstjömur á Ullevi- leikvanginum i Gauta- borg. Þangað halda nokkrir ís- lendingar, sem reyndar teljast ekki tii þeirra stóru — ekki ennþá í það minnsta — en þó bera menn nokkra von í bijósti um góðan árangur þeirra, e.t.v. sérstaklega Jóns Arnar Magnússonar, tug- þrautarkappa. Jón Amar, sem hefur tekið við af kösturunum sem helsti fijáls- íþróttamaður landsins, hefur sýnt undanfarið hvers hann er megn- ugur. Hann fórtvívegis yfír 8.000 stig í tugþrautinni fyrr í sumar, fyrstur íslendinga, og sagðist þó enn geta bætt sig töiuvert í flest- um greinum. Snemma varð ljóst að hæfi- leikar Jóns Amars vom óvenju- legir. Hann er enn ekki nema hálf þrítugur, en í viðtali við Jón Amar hér í blaðinu fyrr í sumar kom fram að hann telur kjörald- ur tugþrautarmanna vera í kringum þrítugt. Ljóst er að hann getur staðið sig með prýði á Ólympíuleikunum í Atlanta á næsta ári, ef allt fer sem horfir, og hefur alla burði til að vera á um í Ástralíu árið 2000. íþróttamenn ná ekki langt í dag nema vel sé stutt við bakið á þeim. Efni sem Jón Arnar koma því miður ekki oft fram á íslandi og því deginum ljósara að nauð- synlegt er að hlúa vel að slíkum efniviði — hafi menn á annað borð áhuga á að því að eiga fram- Spennandi verður að sjá hvernig Jóni Arnari gengur í Gautaborg urskarandi íþróttamenn. Slíkt á auðvitað ekki að vera álitamál því það er þjóðinni hollt. Nefna má spjótkastarana tvo, Einar Vilhjálmsson og Sigurður Einars- son, sem hafa borið hróður ís- lands viða; Sigurður varð fímmti á Ólympíuleikunum í Barcelona og Einar gerði garðinn frægan um árabil þar til meiðsli settu strik í reikninginn. Aftur að Jóni Amari. Hann er einn besti íþróttamaður landsins og athyglivert er að hann hefur alfarið stundað íþrótt sína hér- lendis. Hann hefur sett stefnuna á Norðurlandamet og nái hann því markmiði er ekki gott að segja hvert stefnan verður sett næst. Jón Amar er fyrsti íslenski tug- þrautarmaðurinn, síðan Öm Clausen var upp á sitt besta á sjötta áratugnum, sem skipar sér á bekk með þeim bestu í heimin- um. Því er óskandi að allt verði gert, til að hann geti náð eins langt og hæfileikamir bjóða. toppi ferilsins á Ólympíuleikun- Skapti Hallgrímsson Ætlarkylfingurinn ÁSGEIR SIGURVINSSOM að ná jafn langt og fótbdtamaðurinn? Hef trassað golfið of lengi ÁSGEIR Sigurvinsson, besti og þekktasti knattspyrnumaður sinnar kynslóðar á íslandi, er fæddur 8. maí 1955 og stendur því á fertugu. Nú er hann hættur að keppa í knattspyrnu og tekur þátt í sínu fyrsta landsmóti í golfi, keppir þar í þriðja flokki og stendur sig vel. Hann segist stefna að því að fá eigin- konu sína, Ástu Guðmundsdóttur, og börn þeirra tvö sem eru 12 og 9 ára, með sér í þessa skemmtiiegu íþrótt. Asgeir kom til landsins á fimmtudaginn og keppir nú í fyrsta sinn á landsmóti í golfi. „Ég ætlaði ekkert að koma heim í ,, sumar, en Eyjólfur SvernssT Bergþórsson Framari hnngdi í mig og spurði hvers vegna ég kæmi ekki og tæki landsmótið og skellti mér síðan á Þjóðhátíð. Krakkarnir mínir voru að fara í sumarfrí í skólanum, mér fannst þetta mjög góð hugmynd og við ákváðum að skella okkur. Svo er það Þjóðhátíðin eftir landsmótið — alveg eins og þetta á að vera.“ Etiu að snúa þér að golfinu? „Það má eiginlega segja það. Það er kominn tími til að maður reyni að koma sér í almennilegt form í golfinu því ég er búinn að trassa það í svo langan tíma og þetta er íþrótt sem mér þykir mjög skemmtileg." Hvenær byrjaðirðu í golfí? „Ég byijaði sem peyji heima í Eyjum þegar ég var þrettán eða fjórtán ára og spilaði alveg þar til ég fór út í atvinnumennskuna í knattspyrnunni. Síðan hef ég lítið snert kylfurnar, eða í ein fimmtán ár, en er að byija aftur núna.“ Eru ekki hæg heimatökin, stutt á góða veiii og alltaf gott veður? „Nei, það er eiginlega eina ves- enið við þetta í Þýskalandi að það er svo langt á golfvöll þannig að þetta tekur allt of langan tíma, en ég hef reynt að leika einu sinni í viku yfir sumarmánuðina. Það tekst þó ekki alltaf, en aðstaðan stendur til bóta því það er verið að byggja nýjan golfvöll skammt frá Stuttgart og hann verður tilbú- inn 1997. Þá getur maður farið að stunda þetta af alvöru." Hvað með fjölskylduna, er hún byijuð í golfinu? „Nei, ekki ennþá en ég ætla að Morgunblaðið/Skúli Unnar Sveinsson ÁSGEIR Sigurvinsson meö golfbolta, sem er heldur minni en þeir boltar sem hann er þekktastur fyrir aö lelka meö. reyna að koma henni í golfið þegar nýji völlurinn opnar í nágrenni við okkur. Strákurinn er að vísu eitt- hvað í fótboltanum, en það kemur bara í ljós hvernig til tekst að koma þeim í golfið. Þegar aðstaðan kem- ur svona nærri okkur verður hægt að fara að iðka þetta með allri fjöl- skyldunni af einhverri alvöru." Hefur þú leikið golf með ein- hverjum heimsfrægum mönnum? „Nei, en ég spila stundum á góðgerðarmótum sem „Eagles“ heldur, en það er klúbbur í Þýska: landi sem er góðgerðarklúbbur. í honum eru „gamlir“ menn sem hafa verið framarlega í sportinu, til dæmis [Franz] Beckenbauer, ýmsir frægir leikarar og skíða- menn og fleiri. Klúbburinn heldur tíu til fimmtán góðgerðarmót á ári og ég hef stundum leikið með og er búinn að vera með í þremur í sumar. Svo fer ég á mót með Sepp Maier [fyrrum landsliðsmarkverði Þýskalands í knattspyrnu] þann tólfta ágúst, en hann heldur góð- gerðarmót í klúbbnum sínum.“ Hvað heillar í golfinu? „Þetta er skemmtileg íþrótt sem krefst mikillar einbeitingar. Menn eru aldrei öruggir um hvernig muni ganga, leika mjög vel einn daginn og hitta varla boltann næsta dag. Félagsskapurinn er góður og þægilegt að stunda þetta. Maður er að berjast við sjálfan sig og getur ekki kennt neinum öðrum um ef illa gengur." Ekki einu sinni verkfærunum? „Jú að sjálfsögðu er þeim kennt um, en það tekur því ekki. Það er alltaf maðurinn á bak við þau sem ræður hvernig gengur."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.