Morgunblaðið - 01.08.1995, Side 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1995 B 5
200. bikarmark
KR-inga
SIGURMARK KR-inga í Keflavík í gær
var 200. mark félagsins í bikarkeppni
Knattspymusambandsins. Mihajlo Bi-
bercic gerði það úr vítaspymu. Það var
Sveinn Jónsson, síðar formaður KR, sem
gerði fyrsta mark félagsins í keppninni —
í 3:0 sigri gegn Hafnfirðingum 1960.
Sögulegt mark
ÞAÐ gerðist í fyrsta skipti í gær i sögu
bikarkeppni KSI að sigurmark í venjuleg-
um leiktíma undanúrslitaleiks er gert úr
vítaspyrnu. Mark Bibercic er þvi sögulegt
í tvennum skilningi.
Vítakeppni sker
úr í þriðja sinn
ÞAÐ gerðist í gær í þriðja skipti að iið
kemst í úrslit bikarkeppninnar eftir víta-
spyrnukeppni; Valur gerði það fyrst 1991
með því að vinna Þór 4:3 á Akureyri og
Grindavík lék sama leik í fyrra með því
að vinna Stjörnuna 4:2 í Garðabæ.
Fimmta fram-
lenging Grind-
víkinga
AF síðustu níu bikarleikjum Grindvíkinga
hafa fimm farið í framlengingu, fjórum
sinnum hafa þeir lent í vítaspyrnukeppni
en flóram sinnum í vítaspyrnukeppni og
töpuðu slíkri í fyrsta skipti í gær.
Haukur varði vel
ífyrra
HAUKUR Bragason var illa fjarri góðu
gamni í gær. I fyrra varði hann fimm
spyrnur í vítaspymukeppni, á leið Grind-
víkinga í úrslitaleikinn. Tvær í 16-liða
úrslitum gegn FH (5:4), eina í 8-liða úrslit-
um gegn ÍBV (6:5) og tvær í undanúrslit-
um gegn Stjömunni (4:2).
Sex eftir
ÞETTA verður 10. bikarúrslitaleikur
Framara á 18 áram eða síðan 1977. Síð-
asti úrslitaleikur þeirra var 1989 er þeir
sigruðu KR-inga 3:1. Til gamans má geta
að aðeins fjórir Framarar era eftir í liðinu
sem spilaði þann leik; Birkir Kristinsson,
Kristján Jónsson, Steinar Guðgeirsson og
Ríkharður Daðason. Tveir þeir síðamefndu
komu þá inná sem varamenn. Hjá KR eru
aðeins tveir eftir, Þormóður Egilsson og
Heimir Guðjónsson, sem kom inná sem
varamaður.
Hvað sögðu
þeir í Keflavík?
„ÉG er sáttur við sigurinn, það stendur
upp úr eftir svona bikarleik," sagði Guð-
jón Þórðarson, þjálfari KR-inga eftir
leikinn. „Það var vitað mál að mikið var
í húfí og þess vegna var aðalmálið að vinna
leikinn, burtséð frá því hvort maður er
sáttur við leik sinna manna.“ Guðjón vildi
ekki ræða um brottvikningu Ólafs Gott-
skálkssonar og sagði annarra að fjaila um
störf dómara.
„Þetta voru alis ekki sanngjörn úrslit,“
sagði Þorsteinn Bjarnason, þjálfari
Keflavíkur. „Þeir fengu eiginlega bara
þetta eina færi þegar vítið var dæmt. Ég
skal ekki segja til um það hvort útafrekst-
urinn var réttur dómur en eitt er víst að
það er slæmt að detta út úr bikarnum á
svona marki.“
„Ég er sáttur við að komast áfram en
alls ekki við leik okkar,“ sagði Þormóður
Egilsson, fyrirliði KR. „Eftir að þeir
misstu mann út af fór allt í vitleysu hjá
okkur. Við hefðum betur átt að klára
þetta endanlega í lokin. Sigurinn yar sann-
gjam þegar á heildina er litið. Ég tel að
sigurinn hafi átt að lenda okkar megin í
nokkuð jöfnum leik.“
BIKARKEPPNIN I KNATTSPYRNU
BIKARKEPPNIN I KNATTSPYRNU
KR fær tækífæri
til að veija bikar-
meistaratitilinn
Mihajlo Bibercic er búinn að
gera góða ferð með félögum
sínum í KR til Keflavíkur í síðustu
tveimur leikjum.
Hann endurtók leik-
óiafsson inn frá Því 1 deildar-
skrifar keppninni 20. júli
þegar hann skoraði
sigurmark KR í leiknum en mark
hans í gærkvöldi kom bikarmeistur-
um KR í úrslit bikarkeppninnar
annað árið í röð og heldur von þeirra
um að vinna bikar á þessari leiktíð.
Markið kom úr umdeildri víta-
spyrnu eftir að Ólafur Gottskálks-
son, markvörður og fyrirliði Kefl-
víkinga, hafði slegið til Izudin Daða
Dervic í markteignum. Hár bolti
hafði borist inn í vítateig Keflvík-
inga og Ólafur sem stökk hærra
en Daði greip boltann. Ólafur lét
aðgangshörku Daða fara í taugarn-
ar á sér og sló til hans. Daði féil
við og Eyjólfur Ólafsson dómari sem
var mjög vel staðsettur dæmdi
umsvifalaust vítaspyrnu og sýndi
Ólafi rauða spjaldið. Nokkur ólæti
urðu á áhorfendapöllunum og létu
Keflvíkingar í ljós óánægju með því
að kasta gosflöskum inn á völlinn.
Leikurinn var lítt fyrir augað í
byijun og það virtist svo sem hvor-
ugt liðið tæki áhættu í vörninni því
varnarmenn beggja liða voru mest
áberandi. Leikmönnum beggja liða
gekk illa að ná upp spili á miðjunni
og boltinn gekk lengstummilli mót-
heija. Fyrsta hornspyrnan kom ekki
fyrr en á 31. mínútu og er til marks
um hve fá marktækifæri liðin
fengu. Úr homspymunni átti Mi-
hajlo Bibercic skalla yfir mark Kefl-
víkinga og skömmu seinna átti
Salih Heimir Porca hörkuskot að
marki en Ólafur varði mjög vel í
hom. KR náði hættulegri upphlaup-
um þegar á leið hálfleikinn en náðu
Om tM Vítaspyrna dæmd
■ I Keflvíkinga á 67.
mínútu eftir brot Ölafs Gott-
skálkssonar. Mihajlo Bibercic
tók spymuna og skaut með jörð-
inni hægra megin við Ragnar
Má Ragnarsson sem kom við
knöttinn en náði ekki að halda
honum.
ekki að stilla strengi sína uppi við
mark Keflvíkinga.
Fjörugri seinni hálfleikur
Leikmenn virðast hafa fengið
þau skilaboð frá þjálfurum sínum í
hálfleik að til þess að vinna leiki
þarf að skora mörk. Keflvíkingar
unnu boltann strax í byijun og
fengu hornspyrnu á upphafsmínút-
unni og Kristinn Guðbrandsson átti
skot yfir mark KR. Á 53. mínútu
fékk Hilmar Björnsson upplagt
tækifæri til að skora þegar hann
fékk boltann aleinn í- vítateignum
en Ólafur Gottskálksson kom út á
móti honum og í stað þess að lyfta
yfir Ólaf reyndi Hilmar að skjóta
framhjá honum og Ólafur varði.
'Sigurður Örn Jónsson átti síðan
sendingu fyrir mark Kefivíkinga
skömmu seinna en sendingin varð
að hörkuskoti sem fór framhjá
markinu. Sigðurður var aftur á
ferðinni á 66. mínútu með hörku-
skot sem Ólafur varði í horn. Hilm-
ar Björnsson fékk boltann aftur
einn fyrir framan mark Keflvíkinga
á 69. mínútu en lét í þetta sinn
verja í horn. Hann fær sjálfsagt
ekki mörg slík opin tækifæri sem
hann fékk í þessum leik.
Keflvíkingar sem fram að mark-
inu höfðu verið aðgerðalitlir í sókn-
inni færðust í aukana eftir að vera
orðnir einum færri og gerðu hvað
Orð gegn orði um atvikið sem
leiddi til brottrekstrar Ólafs
„Daði sló í
punginn á mér“
„Gerði ekki neitt," segir Daði
Þegar ég stökk upp til að grípa
boltann eftir fyrirgjöf sló Daði
Dervic viljandi í punginn á mér og
truflaði mig,“ sagði Ólafur Gott-
skálksson, markvörður og fyrirliði
Keflavíkur, um aðdraganda þess
að hann var rekinn útaf um miðbik
seinni hálfleiks. „Um leið og ég
lendi slæ ég í bijóstið á honum. I
því sama grípur hann um barka
sinn eins og óður væri. Því miður
sér dómarinn bara það sem ég gerði
en lét annað lönd og leið.“
Ólafur segir að réttast hefði ver-
ið að refsa bæði sér og Daða með
einhveijum hætti. „Þetta var mjög
ósanngjarn dómur miðað við upphaf
málsins. Dómarinn hefði átt að ráð-
færa sig við línuvörðinn." Hann
segir að sínir menn hafi verið sterk-
ir eftir brottreksturinn og telur sig-
urinn ósanngjarnan. „Ég vona að
KR-ingar séu ekki stoltir af þessum
sigri,“ sagði Ólafur.
„Kom ekki við hann“
„Ég gerði ekki neitt, ég kom
ekki einu sinni við hann,“ sagði
Daði Dervic, leikmaður KR, eftir
leikinn. „Hann kemur á fullri ferð
upp í fyrirgjöfina og grípur boltann
en ég gerði ekki neitt. Ég vona að
menn sjái hið sanna í málinu með
því að skoða myndir frá leiknum í
sjónvarpinu,“ sagði hann.
Daði sagðist ekki vera ánægður
með leikinn í gær en ekki sé alltaf
við því að búast að leikinn sé frá-
bær fótbolti þegar jafn mikið er í
húfi. „Mér fannst þetta sanngjarn
sigur þrátt fyrir að Keflvíkingar
pressuðu okkur í lokin. Nú gefum
við allt í bikarinn þar sem við eigum
orðið lítinn möguleika á sigri í ís-
landsmótinu.“
Þormóður Egilsson, fyrirliði KR,
segir að dómarinn hafi verið í mjög
góðri aðstöðu þegar hann gaf Ólafi
rauða spjaldið. „Ég veit ekki hvort
Daði truflaði Ólaf í loftinu en mað-
ur með hans reynslu á ekki láta
það henda sig að slá leikmann.
Dómarinn gerði því ekki mistök,
Ólafur gerði þau.“
þeir gátu til að jafna leikinn. Óli
Þór Magnússon kom inn á í seinni
hálfleik og átti upplagt færi á 75.
mínútu eftir að Jóhann Guðmunds-
son hafði sent til hans á inarkteig.
Kristján Finnbogason varði skot
Óla vel. Óli var á ferðinni skömmu
seinna með gott skot sem Kristján
varði í horn en í millitíðinn hafði
Hilmar fengið enn eitt færi sitt við
Keflavíkurmarkið með skot sem var
varið í horn. Síðasta færi leiksins
áttu síðan Keflvíkingar á lokamín-
útunni þegar Óli Þór skaut framhjá
úr þröngu færi.
Meiðsl há
v Keflvíkingum
Keflvíkingar gátu ekki stillt upp
sínu sterkasta liði þar sem Ragnar
Margeirsson á enn í meiðslum og
Marko Tanasic gat ekki leikið af
fullum krafti í leiknum í gær. Vörn
þeirra var traust. í leiknum með þá
Helga Björgvinsson, Karl Finn-
bogason og Kristinn Guðbrandsson.
Sverrir Þór Sverrisson og Georg
Birgisson áttu ágætis spretti á miðj-
unni en Kjartan Einarsson náði sér
ekki'á strik. Hjá KR er hægt að
segja sömu sögu. Þormóður Egils-
son og Sigurður Örn Jónsson léku
vel í vörninni ásamt Daða Dervic
sem er stórhættulegur þegar hann
tekur á rás upp vinstri kantinn.
Heimir Guðjónsson tapar varla í
návígjum en skilaði boltanum ekki
nógu vel inn í spilið. Einar Þór
Daníelsson náði ekki að sýna hvers
hann er megnugur á kantinum enda
í strangri gæslu.
MorgunDiaoio/ivnsunn
BIRKIR Kristinsson stóð sig með stakri prýði gegn Grindvíkingum. Hann varði m.a. tvær spyrnur þeirra í vítaspyrnukeppninni og fær hér flugferð að launum.
FOLK
■ RAGNAR MÁR Ragnarsson
varamarkvörður tók við stöðu Ólafs
Gottskálkssonar, markvarðar og
fyrirliða Keflavíkur, eftir brott-
rekstur hans. Ragnar sem er að-
eins átján ára gamall lék sinn fyrsta
leik með aðalliði Keflavíkur í deild
eða bikar i gær. Óhætt er að segja
að eplið hafi ekki fallið langt frá
eikinni þar sem faðir hans er Ragn-
ar Orn Pétursson, útvarpsmaður
og fyrrum markvörður í Val og
Gróttu. Svo__ skemmtilega vildi til
að Ragnar Örn lýsti bikarleiknum
beint á Rás 2.
■ BRYNJAR Gunnarsson, hinn
ungi bakvörður KR, gat ekki leikið
með liði sínu í gærkvöldi vegna
eymsla í vöðva. Guðjón Þórðarson,
þjálfari KR-inga, sagði vel koma
til greina að Brynjar leiki með fé-
lögum sínum í 11. umferð íslands-
mótsins gegn Leiftri í Frostaskjóli
á fimmtudaginn kemur.
■ ÞORBJÖRN ATLI Sveinsson,
leikmaður Fram, sagðist hafa
blendnar tilfinningar útaf úrslitun-
um. Hann var alinn upp í Grinda- v
vík til sjö ára aldur og skírður í’
höfuðið á ijallinu Þorbirni við
Grindavík.
■ ÁRMANN Harðarson vara-
markvörður Grindvíkinga átti 19
ára afmæli í gær og fékk ekki þá
afmælisgjöf sem hann hefði óskað
sér.
■ BOLTARNIR voru það eina
sem gaf eftir í leik Fram og
Grindavík í gær því tveir boltar
voru dæmdir úr leik af Braga
Bergmann dómara áður en stund-.
arfjórðungur var liðinn af leiknum.
■ STUÐNINGSMENN Grindvík-
inga fjölmenntu á Laugardalsvöll-
inn og voru um helmingur áhorf-
enda. Ekki var um skipulagðar ferð-
ir að ræða, heldu mætti fólk á
einkabílum til að sjá sína menn.
Birkir helja Framara
í vrtaspymukeppni
Meiríháttar stemmning
EFTIR eitthundrað og tuttugu
mínútna leik og vítaspyrnu-
keppni þá stóðu Framarar uppi
sem sigurvegarar í baráttuleik
við Grindvíkinga og það var
landsliðsmarkvörðurinn Birkir
Kristinsson sem var hetja
þeirra, varði tvær vítaspyrnur
og tryggði sæti í urslitleik Bik-
arkeppninnar gegn KR sunnu-
daginn 27. ágúst.
Framarar mættu mjög grimmir til
leiks og voru greinilega stað-
ráðnir í því að gefa Grindvíkingum
ekkert eftir. Þeir
börðust um hvem
bolta og náðu oft að
leika lipurlega sam-
an úti á vellinum.
Þeim gekk hins vegar illa að gera
sér meiri mat úr því sem þeir voru
að skapa sér. Ríkharður Daðason
fékk fyrsta færi leiksins á 5. mínútu
þegar hann átti skalla fyrir eftir
sendingu frá Þorbirni Atla Sveins-
syni. Grindvíkingar sóttu í sig veðrið
þegar á leið og á 15. mínútu fengu
þeir besta færi hálfleiksins. Zoran
Ljubecic einlék upp hægri vænginn
og sendi inn í markteig frá endalínu
þar sem Björn Skúlason kom aðvíf-
andi og skaut rétt framhjá. En leik-
menn Fram voru mikið líflegri, gerðu
oft usla í vörn Grindvíkinga og Al-
bert Sævarsson varði nokkru sinnum
Ivar
Benediktsson
skrifar
mjög vel í marki Grindavíkur. Fram-
arar voru sterkari aðilinn í hálfleikn-
um en meira bit vantaði í sóknar-
menn Grindavíkur þar sem Ólafur
Ingólfsson og Tómas Ingi Tómasson
voru á varamannabekknum í fyrri
hálfleik. Lúkas Kostic þjálfari Grind-
víkinga sá að við svo búið mátti ekki
standa og skipti Ólafi og Tómasi inn
á hálfleik i stað Jóns Freys Halldórs-
sonar og Vignis Helgasonar. Við þá
skiptingu hljóp mikið fjör í sóknar-
leik suður-
nesjamanna
og, þeir áttu
hvert færið
á fætur öðra
á fyrstu tíu
mínútunum.
Leikmenn
Fram voru
ekki eins
ákafir að
pressa gest-
ina eins og
í þeim fyrri.
En þrátt
fyrir þetta
tókst leik- _____________________
mönnum
ekki að skora. Meðal annars varði
Birkir í tvígang frá Grindvíkingum
af stuttu færi eftir að Tómas Ingi
hafði gert usla í vörn Fram.
Eftir fimmtán flörugar mínútur í
síðari hálfleik féll leikurinn niður á
Vítaspyrnukeppnin
Grétar Einarsson.............0:1
Ríkharður Daðason............1:1
Milan Jankovic..........Birkir ver
Krislján Jónsson.............2:1
Ólafur Ingólfsson............2:2
Þorbjörn Atli Sveinsson...framhjá
Albert Sævarsson.............2:3
Atli Einarsson...............3:3
Zoran Ljúbecic...............3:4
Steinar Guðgeirsson..........4:4
Tómas Ingi Tómasson.....Birkir ver
Pétur Marteinsson............5:4
baráttuplan og það var ekki fyrr en
að Magnús Jónsson, þjálfari Fram,
skipti Atla Einarssyni inn á 71. mín-
útu fyrir Hólmstein Jónasson að aft-
ur lifnaði yfir leiknum. Atli var mjög
hreyfanlegur og reyndist varnar-
mönnum Grindavíkur erfiður en þeir
voru nokkuð farnir að þreytast þegar
þarna var komið við sögu. Leikurinn
opnaðist og bæði lið fengu færi. Á
81 mínútu fengu Grindvíkingar
ákjósanlegt tækifæri þegar Ljubicic
tók horn-
. spyrnu,
Tómas Ingi
skaut af
stuttu færi,
Birkir
varði en
knötturinn
barst að
nýju útí
teiginn þar
sem Ólafur
Ingólfsson
spyrnti
firnaföstu
skoti frá
vítapunkti,
en Þórhall-
bjargaði á elleftu
ur Víkingsson
stundu á línu.
En það voru Framarar sem voru
nær því að skora á síðustu fimm
mínútunum leiksins. Þeir voru sterk-
ari og þar fór Atli Einarsson fremst-
ur í flokki. En það var þó Þorbjörn
Atli Sveinsson sem fékk besta tæki-
færi Framrara til að gera út um leik-
inn þegar 37 sekúndur voru eftir.
Hann fekk boltann rétt utan vítateigs
Grindavíkur, stakk sér inn fyrir en
Albert Sævarsson varði glæsilega
skot hans af stuttu færi.
I framlenginunni var nokkuð farið
að draga af mönnum og nokkrum
sinnum hafði það nærri kostað mark-
tækifæri. Bæði lið fengu möguleika
en markverðir beggja liða sýndu góð
tilþrif og létu ekkert framhjá sér
fara. Það hlaut því að fara svo að
vítaspyrnukeppni var ekki umflúin
og þar höfðu Framarar betur.
Grindvíkingar voru nærri því að
endurtaka ævintýri sitt frá því í fyrra
og leika annað árið í röð gegn KR—
ingum í úrslitum bikarsins. Eftir
daufan fyrri hálfleik þá komu þeir
af auknum krafti inn í síðari hálf-
leik. Náðu betri tökum á miðjunni
framan af og gerðu usla, en það
nægði ekki. Framarar gáfu hvergi
eftir í fyrri hálfleik og komu greini-
lega vel fyrirkallaðir til leiks. Þeir
bökkuðu nokkuð eftir breytingarnar
á Grindavíkurliðinu í leikhléinu og á
tímabili virtist sem þeim tækist ekki
að snúa leiknum við að nýju en það
tókst með m.a. með innákomu Átla
Einarssonar og það verður að segj-
ast eins og er að þeir voru nær því
að skora þegar allt kom til alls.
„VIÐ vorum betra liðið í dag og
áttum fleiri færi þó að þeir hafi líka
átt sín færi en úrslitum réði dómar-
inn því dómgæslan var ómöguleg
og þetta er í annað sinn sem hann
er að eyðiieggja vinnuna fyrir okk-
ur,“ sagði Lúkas Kostic þjálfari
Grindvíkinga, sem var einnig á
skýrslu sem leikmaður en kom ekki
inná. „ Við áttum skilið að sigra
og höfum verið að sýna í hveijum
leik að við getum spilað vel og
hlaupið. Nú er að snúa sér að deild-
inni og þar tekur nú við leikur gegn
FH en ég er ekki sammála þeim
sem segja að gott sé að vera laus
úr bikarnum því við ætlum að vinna
alla leiki. Við höfum verið óheppnir
í mörgum leikjum og þetta var einn
af þeim nú í dag en ég óska Fram
til hamingju með sigurinn,“ sagði
Lúkas eftir leikinn.
„Þetta var svolítið erfitt en við
áttum að klára þetta á níutíu mínút-
um og vorum algerir aular,“ sagði
markvörðurinn hjá Grindavík, Al-
bert Sævarsson, sem tekið hefur
við markvarðarstöðunni af Hauki
Bragasyni og bætir sig stöðugt.
„Mér gekk ágætlega nema hvað ég
átti að veija síðustu vítaspyrnuna
en það er bara þannig í vítum að
það er alger heppni og ekkert ann-
að.“ „Það er alltaf meiriháttar
stemmning að lenda í framlenginu
og vítaspyrnukeppni í bikarkeppni
og vinna síðan, þó að það sé jafn
svekkjandi fyrir hina,“ sagði Birkir
Kristinsson markvörður sem varði
tvö víti.
„Ég hef aldrei lagt mikið uppúr
að veija víti og fór eftir því að rétt
fættur maður skjóti hægra megin
og reyndi að hugsa bara um það en
í síðari vítunum þeirra lagði ég
uppúr því að sjá hvernig leikmenn
hlupu að boltanum. Mér fannst
hann Tómas [Ingi Tómasson]
hlaupa beint á boltann og ætla að
leggja vinstra megin við mig og það
heppnaðist,“ sagði Birkir um síð-
ustu vítaspyrnuna sem hann varði.
„Annars var þetta erfiður baráttu-
leikur en við hefðum getað klárað
hann fyrir framlengingu. Það var
alltaf spenna í gangi og spurning
um hvort liðið myndi skora fyrst
og ég hafði það á tilfinningunni að
það lið myndi vinna leikinn því þeir
myndu bakka en að auki eru Tómas
Ingi og Ólafur skeinuhættir í framl-
ínunni og ef við hefðum sótt gætum
við lent í vandræðum því þeir hefðu
getað sótt hart að okkur og komist
í gegn. Engu að síður fannst mér
við sýna góða baráttu, betur en við
höfum verið að sýna deildinni en.
þar þurfum við stigin. Það gefur
góðan plús fyrir að komast í bikar-
úrslit því þá þurfa menn að sýna
sig og menn á varamannabekknum
vilja komast inn. Sterk lið eiga ekki
að þurfa að lenda í vandræðum
með deild og bikar en okkur hefur
ekki gengið vel í deildinni en von-
andi að þetta rífi okkur upp - ann-
ars hefði ég ekki verið að verja!“
sagði Birkir.
Endurtökum stemmninguna frá
leiknum við Svíþjóð!
ísland - Sviss á Laugardalsvelli 16. ágúst