Morgunblaðið - 22.08.1995, Síða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • F
R •
oripiinMaMti
Garðar og lóð-
ir í Firðinum
Fallegir garðar og lóðir eru
ekki aðeins augnayndi, heldur
eiga sinn þátt í að auka verð-
gildi fasteignanna. Fyrir
skömmu veitti fegrunarnefnd
Hafnarfjarðar árlegar viður-
kenningar sínar fyrir fallega
garða og fegrun./ 22 ►
Húsin og
skólasagan
Fyrr á þessari öld fór barna-
kennsla í Reykjavík oft fram í
einkahúsum. I þættinum
Smiðjan rekur Bjarni Ólafsson
þá sögu og sögu nokkurra
húsa, sem kennt var í. Þessi
saga má ekki týnast./ 27 ►
Ú T T E K T
Ný byggð við
Elliðavatn
yggðin við Elliðavatn
hefur á sér sérstakt yf-
irbragð. Sérbýlið er þar
alls ráðandi en fjölbýlishús
engin. Verð á húsum þar er
auðvitað mjög mismunandi,
enda húsin misstór og ólík að
allri gerð og afar misjafnt,
hvað í þau er borið. Oft selj-
ast þau á ívið lægra verði en
sambærileg hús annars staðar
á höfuðborgarsvæðinu. Þetta
er samt síður en svo einhlít
regla. Góðar húseignir á stór-
um lóðum við EUiðavatn eru
jafnvel dýrari en sambærileg-
ar eignir annars staðar.
Byggðin er hluti af Kópavogi
en er að langmestu leyti í landi
jarðarinnar Vatnsenda vestan
megin við Elliðavatn og neðan
Heiðmerkur. Nú hefur nýtt
hverfi fyrir um fjörutíu íbúðar-
hús verið skipulagt í Vatns-
endalandi og þar eni húsin tek-
'it'iU, , r. _ | |
í
I..HB
in að rísa hvert af öðru. Mörg
þessara húsa eru stór og glæsi-
leg og byggð á stórum lóðum.
f viðtali við Magnús Hjalte-
sted, bónda á Vatnsenda, er
fjallað um byggðina við Elliða-
vatn og hið nýja hverfi, sem
hlotið hefur heitið Hvarfa-
hverfi. Lóðir eru þar gjaman
mjög stórar. Minnsta lóðin er
1.250 ferm. og sú stærsta 2.800
ferm. Skipulagsskilmálar eru
mjög frjálsir, þannig að hægt
er nánast að byggja þarna eins
og hver vill innan venjulegra
skynsemismarka. Þó er miðað
við, að hámarkshæð húsa verði
tvær hæðir. Engin skilyrði eru
sett varðandi útlit húsa og fólki
í sjálfsvald sett, hvaða bygging-
arefni er notað. Á stærstu lóð-
unum verður hægt að hafa
hesthús./ 16 ►
Minni húsbréfa-
útgáfa en í fyrra
HÚSBRÉFAÚTGÁFAN er mik-
il vísbending um hrevfinguna á
fasteignamarkaðnum. A fyrstu sjö
mánuðum þessa árs hefur hús-
bréfaútgáfan verið mun minni en
þó jafnari en á sama tímabili í
fyiTa, eins og teikningin hér til
hliðar ber með sér. Mest var hús-
bréfaútgáfan í júní og júlí sl., enda
eru sumarmánuðirnir aðalfram-
kvæmdatíminn og það kemur fram
í meiri húsbréfaútgáfu vegna ný-
bygginga.
Á síðasta ári var húsbréfaútgáf-
an mjög mikil og mun meiri en árið
á undan. f janúar í fyrra var hún
þó miklu minni en í sama mánuði
árin á undan og má eflaust rekja
það til breytinga, sem þá urðu á
húsbréfakerfinu. Húsbréfaútgáf-
an jókst svo aftur á ný og varð mun
meiri en gert var ráð fyrir með
þeim afleiðingum, að ný húsbréf
þraut og gefa varð út nýjan hús-
bréfaflokk.
Biðin eftir þessum húsbréfum
olli því, að mikil töf varð á af-
greiðslu þeirra í október. Að sama
skapi jókst svo húsbréfaútgáfan
aftur í nóvember og varð þá meiri
en í nokkrum mánuði öðrum í
fyrra. í desember var hún einnig
mikil. Þetta sýnir, að töluverð
hreyfing var á fasteignamarkaðin-
um sl. haust.
Enda þótt húsbréfaútgáfan hafi
dregizt saman í ár, er þó ekki hægt
að líta á það alfarið sem merki um
samdrátt á fasteignamarkaðnum.
Þeim húsum og íbúðum fer stöðugt
fjölgandi, sem búið er að taka hús-
bréfalán út á og þegar svo er, þarf
ekki að gefa út ný húsbréf, þegar
þessar eignir eru seldar á ný nema
kannski að litlu leyti, því að kaup-
andinn yfirtekur þau húsbréfalán,
sem þegar hvíla á eigninni.
EnBtt er að gera sér grein fyrir
því, hve stór þáttur yfirtaka á eldri
húsbréfalánum er orðin, en víst er,
að hún er orðin umtalsverð.
1,8milljarðar. kr.
Afgreidd húsbréf 1994-95
Á reiknuðu meðalverði hvers mánaðar
1994, allt árið 14,9 milljarðar. kr.
1994, jan.-júlí 9,5
1995, jan.-júlí 6,7
HVÍB
EITT FJÖLMENNASTA ALMENNINGSHLUTAFÉLAGIÐ
Á INNLENDUM HLUTABRÉFAMARKAÐI
FERÐ
TIL
í tilefni af því að
Hlutabréfavísitala VÍB
hefur nú náð hæsta gildi
Trá upphafi býður VIB
tveimur heppnum hluta-
bréfakaupendum til
New York. Nöfn þeirra
sem kaupa hlutabréf
hjá VÍB á tímabilinu 28. júli - 31. desember 1995
fara í pott. Dregin verða út tvö nöfn, en
vinningurinn er ferð til New York.
Þeir sem keyptu hlutabréf í HVÍB árið 1994 fá nú
tfjidujcgtg-iðjsht-■M-ikAtfinum eða lækkun á tekjuskatti.
Greiðsian nemur um 84.000 kr. fyrir hjón sem nýttu sér
fulla heimild til hlutabréfakaupa vegna skattafrádráttar. f
júlí sl. fengu hluthafar auk þess greiddan 5% arð af
nafnverði bréfanna. Á þessu ári er heimilt að nýta að
hámarki um 260.000 kr. kaup á hlutabréfum til lækkunar
á tekjuskatti íyrir hjón.
FORYSTA í FJÁRMÁLUM!
VlB
VERÐBRÉFAMARKAÐUR lSLANDSBANKA HF.
• Aðili ad Verðbréfaþíngi íslands •
Ármúla 13a, 155 Reykjavík. Sími 360-8900.