Morgunblaðið - 22.08.1995, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 1995 C 27
)
!
I
:
I
I
J
!
I
I
LYNGVIK
FASTEIGNASALA - SÍÐUMÚLA 33 - SÍMI: 588-9490
Ármann H. Benediktsson lögg. fasteignasali - Geir Sigurösson lögg. fasteignasali
3
Eldri borgarar
Vesturgata. 2322. I einkasölu sérl.
vönduð og rúmg. 2ja herb. íb. á 3. hæð.
Stórar svalir. Mikil sameign. Þjónustusel
Reykjavíkurborgar á 1. hæð. Áhv. byggsj.
1,9 millj. Verð 7,4 millj.
Einbýli - raðhús
Fellás - Mos. 93B9. Ný-
komiö f sölu sérl. vandaö 282 fm
einb. m. innb. tvöf. bílsk. Mikiö út-
sýnl. Verð 14,9 mlllj. Elgnaskipti
mögul.
Kambsvegur. 9295. Eidra
einbhús á tveimur hæðum samtals
147 fm. Góður garður. Áhv.
(húsbr.) 5,2 millj. Verö 10,9 millj.
Æskil. eignaskipti á íb. i sama
hverfi.
Reykjafold. 8307. 114 fm nýl. timb-
urhús á einni hæð. Gólfefni m.a. parket
og flísar. Áhv. byggsj. ca 2,2 millj. Verð
10,3 millj. Æskil. eignask. á 3ja herb. íb.
Brekkutangi - Mos.
8382. Nýkomin í sölu 228 fm mjög
vandað raöh. á tveímur hæðum
ásamt 26 fm btlsk. Verö 12,8 millj.
Byggðarholt - Mos. 8371.
Gott endaraðh. 180 fm á tveimur hæðum.
Áhv. byggsj. (og húsbr. samt.) 6,8 millj.
Verð 9,9 millj.
Fagrihjalli. 83so. Nýkomið í söiu
221 fm nýl. raöh. með innb. bílsk. Áhv.
ca 5 millj. byggsj. Verð 12,9 millj. Eigna-
skipti mögul. é 3ja-4ra herb. íb.
Ásgarður. 8392. Nýkomið i
sölu fallegt 129 fm raðhús m. sérl.
skemmtil. verönd ásamt skjól-
veggjúm. Áhv. ca 1,5 millj. Verð
8,8 millj.
Álfhólsvegur. 8365. Mjög
gott 166 fm raðhús ásamt 38 fm
bílsk. 4 svefnherb. Parket á stofu.
Fallegur garður. Áhv. 6,5 millj.
(húsbr.). Verö 10,8 millj.
Foldasmári. 8329. Nýtt 192
fm endaraðh. Eldh. og baöherb.
1. fl. 5 stór svefnherb. Innb. bílsk.
Húsíð er vel staðsett v. opið svæði.
Áhv. ca 6,0 millj. (húsbr.). Verð 13
míllj.
Starengi. 8288.Nýttogfuiib.
152 fm raðhús. Lóð verður fullfrág.
Húsið ertil afh. strax. Verð aðeins
1 f ,5 millj.
Kambasel. 8304. Mjög gott 227 fm
endaraðhús á tveimur hæðum ásamt risi.
Parket. 6-7 svefnherb. Innb. bílsk. Stór
garður með sólverönd. Verð 12,9 millj.
Skipti mögul. á minni eign.
Búland. 8290. Fallegt 187 fm raðhús
á tveimur hæðum ásamt 26 fm bílsk.
Gegnheilt stafaparket á efri hæð. Verð
13,8 millj.
Sérhæðir - hæðir
Skipholt. 752. Rúmg. 131 fm efri
sérh. ásamt 30 fm bílsk. Mikið útsýni.
Áhv. byggsj. ca 3,4 millj. Verð 10,9 millj.
Blönduhlíð. 7342. Mjög
rúmg. 126 fm neðri sérhæð. 2
góðar stofur, 3 svefnh. Hús ný-
mál. að utan. Áhv. ca 5,5 millj.
Verð 9,4 millj. Æskil. eignaskipti á
3ja-4ra herb. íb.
Sigluvogur. 7348. Falleg
sérhæð. 3 svefnherb. Fráb. stað-
setn. í ról. hverfi. Áhv. ca 5,5
millj. Verð 8,5 millj. Skipti mögul.
á 2ja-3ja herb. íb. í sama hverfi.
Grænatunga - Kóp. 7209. góö
130 fm efri sérhæð í tvib. ásamt 31 fm
bílsk. 3-4 svefnherb., góðar stofur stórar
svalir. Verð 10,9 millj.
Huldubraut. 7309. Vorum að fá í
sölu fokh. ca 16Ö fm efri sérh. ásamt ca
35 fm bílsk. Glæsil. útsýni. Mjög áhugav.
eign. Verð 8,9 millj.
Tómasarhagi. 7306. sér-
lega falleg 118 fm efri hæð, 3
svefnherb., 2 stofur. Gólfefni m.a.
parket. Áhv. (húsbr.) ca 3,3 millj.
Verð 9,9 millj.
4ra-7 herb.
Hraunbær. 4388. Mjög
rúmg. 101 fm íb. á 1. hæð. Falleg-
ur garður. Stutt í verslun. V. 7,4 m.
Suðurhólar. 4379. Falleg 100 fm
íb. á 4. hæð. Mikið útsýni. Áhv. byggsj.
(og húsbr.) ca 4,4 millj. Verð 7,4 millj.
Stóragerði. 4349. Falleg og
rúmg. ca 120 fm (b. á neðstu hæð
í þríb. Áhv. ca 4,7 millj. (húsbr.).
Verð 8,6 millj.
Skipasund. 4259. Mjög falleg og
mikið endurn. 90 fm íb. í kj. Verð 6,5 millj.
Furugrund. 4331. góö 86 fm íb. á
1. hæð. Hús klætt að utan. Verð 7,4 millj.
Asparfell. 4311. Sðrl. rúmg.
og falleg 107 fm íb. á 5. hæð í
góðu lyftuh. Sérsvefnherb.álma,
gestasnyrting, góðar geymslur og
skápar. Útsýni. Tvennar svalir.
Verð aðeins 7,0 millj.
Hvassaleiti. 4130. Sérlega falleg
100 fm íb. á 3. hæö ásamt bílsk. Mikið
útsýni. Verð 8,2 millj.
Irabakki. 4286. Falleg 4ra herb. íb.
á 2. hæð. Áhv. byggsj. hagst. 4,1 millj.
Verð 6,6 millj.
3ja herb.
Vindás. 3391. Nýkomin í sölu
stórgl. 85 fm íb. á jarðh. ásamt
stæði í bílskýli. Góð verönd. Áhv.
ca 3,2 millj. byggsj. Verð 7,5 millj.
Skeiðarvogur. 3384. Nýkomin í
sölu góð 3ja herb. íb. í kj. Fallegur garð-
ur. Áhv. ca 2,2 millj. byggsj. Verð 6,2 millj.
Miðleiti. 3194. Sérl. falleg og vönduð
121 fm íb. á 4. hæð ásamt stæði í bíl-
húsi. Innang. í bílhús úr sameign. Verð
9,5 millj.
Kaplaskjólsvegur. 3369.
Sérl. björt og falleg 86 fm endaíb.
á 2. hæö. Nýtt í eldh. Gólfefni
parket og flísar. Tvö rúmg. svefn-
herb., stór stofa. Áhv. byggsj. 3,7
millj. Verð 7,2 millj.
Vesturbær. 3276. Sérl. falleg og
vönduð 83 fm íb. á 2. hæð v. Framnesveg
ásamt stæði í bílg. Innang. í bílgeymslu.
Áhv. 1,7 millj. Verð 7,4 millj.
Holtsgata. 3353. Mjög falleg og
mikið endurn. 3ja-4ra herb. íb. á 1. hæð
í þríb. ásamt aukaherb. í risi. Nýtt á baði
og í eldh. Verð 7,4 millj.
Laugavegur. 3247. Nýi. og faiieg
82 fm íb. á 3. hæð. Fallegur bakgarður.
Áhv. byggsj. 5,3 millj. Verð 7,2 millj.
Flyðrugrandi. 3292. Faiieg tm
íb. á 2. hæð. Stórar svalir. Mjög góð sam-
eign. Verð 6,8 millj.
Krummahólar. 3321. góö ca 70
fm íb. á 6. hæð í lyftuh. Verð 6,3 millj.
Langholtsvegur. 7284. góó ca
80 fm neðri hæð í tvíb. Verð 6,7 millj.
Jöklafold. 341. Nýl. 84 fm íb. á 3.
hæð ásamt bílsk. Áhv. byggsj. ca 3,6
millj. Verð 7,4 millj. Æskil. skipti á 2ja
herb. íb.
2ja herb.
Tjarnarból. 2390. vorum að fá í
sölu góða 56 fm íb. á jarðh. Parket og
flísar. Verð 5,2 millj.
Kambasel. 7293. Stór og glæsil.
96 fm neðri hæð m. sér garði. Sérinng.
Áhv. 3,6 millj. Verð 7,2 millj.
Vallarás. 2281. Sérl. góð 53 fm ió.
á 1. hæð. Gengiö beint út í garð. Áhv.
byggsj. 2,2 millj. Verð 4,9 millj.
Hraunbær. 2255. Virkilega góð íb.
á 2. hæð. Áhv. 2 millj. Laus fijótl. Verð
4,6 millj.
Mosgerði. 2339. Snotur risíb. í þrí-
býli. Nýl. þak. Nýl. gluggar og gler. Verð
3,8 millj.
Krummahólar. 2358. Mjög faiieg
íb. á 2. hæð ásamt stæði í bílhúsi. Parket
og flísar. Áhv. hagst. 2,6 millj. V. 4,4 m.
Laugarnesvegur. 2333. Nýkom-
in í sölu mjög skemmtil. 59 fm ib. á 2.
hæð ásamt aukaherb. í kj. Verð 4,9 millj.
Asparfell. 2323. Sérl. skemmtil. 65
fm íb. á 4. hæð í lyftuhúsi. Sérinng. af
svölum. Áhv. hagst. lán 3,1 millj. Verð
5,2 millj. Ath. mögul. skipti á einstaklíb.
Valshólar. 2296. i söiu mjög
góð 75 fm fb. á 1. hæð í litlu fjölb.
Sérþvottaherb. i ib. Verð 5,8 miltj.
Kríuhólar. 228. Góð 2ja herb. íb. á
4. hæð í lyftuh. Áhv. 2,5 millj. Verð 3,9 m.
Atvinnuhúsnæði
Tangarhöfði. Iðnaðarhúsn. ca 390
fm + 180 fm á millilofti. Áhv. 7 millj. Verð
14,2 millj.
Hamraborg. Sérl. vönduð 130 fm
skrifsthæö. Góð grkjör. Verð 7,0 millj.
I
j
Unglingsárin
Smiðjan
1 =
Skólasaga Reykjavíkur er afar merkileg. Fyrr á
1 öldinni fór kennslan stundum fram í stofu á einka-
heimilum. Hér rekur Bjarni Ólafsson þessa sögu,
en kennslan fór oft fram í húsum, sem líka eiga
sér merkilega sögu.
LAUGARNESVEGUR 52. Á jarðhæðinni hefur alla tíð verið versl-
un en íbúð uppi og var stofan þar leigð til skólahalds fyrr á öldinni.
1 Þegar ég lít yfir skólasögu Reykja-
J víkur og vaxtarsögu kemur mér í
t hug unglingur á gelgjuskeiði. Hrað-
* asta vaxtarskeið unglinga er stund-
um haft að gamanmáli. „Fötin
standa H beini“. Það getur verið
erfitt að vita hvernig maður á að
hafa hendur eða fætur þegar lík-
amsvöxturinn er hraðastur. Buxna-
skálmarnar eru orðnar alltof stuttar
svo að þær ná ekki nema niður
undir ökklana, að ég tali nú ekki
um úlnliði og hendur sem skaga
■1 langt út úr of stuttum ermum.
| I skólasögu Reykjavíkur endur-
tekur sú saga sig aftur og aftur
að nýtt skólahús verður of lítið inn-
an fárra ára, frá árinu 1882 og
alveg fram til ársins 1960 og rúm-
lega þó. Sá hluti úr vaxtarsögn
barnaskóla Reykjavíkur líktist að
mörgu leyti unglingsárum æskunn-
ar. Barn á aldrinum 10 til 12 ára
veit varla af því að útlimirnir skaga
Iút úr bolnum. Þetta eru limir sem
eru stöðugt þjálfaðir og hreyfðir.
I Jafnvægi bernskunnar næst fyrir
unglingsárin og þá er ekki til vanda-
málið hvernig eigi að hafa hendurn-
ar eða fæturna en síðar verður það
að vandamáli.
Hinn 28. apríl sl. birtist smiðju-
grein hér í blaðinu um byggingu
Laugarnesskólans. Bygging hans
hófst 1934. Þá var liðinn nokkur
hluti þeirra ára í sögu Reykjavíkur
| sem ég nefni hér unglingsárin.
IAusturbæjarskólinn var tekinn í
notkun 1930 en þangað til ríkti
vandræðaástand í Miðbæjarskólan-
um vegna þrengsla þar og þenslu
byggðar í Reykjavík.
Á heimilum
Þegar heimildir hvers tíma eru
skráðar er hætt við að sitthvað
gleymist sem erfitt verður að bæta
upp síðar. Þannig er því einmitt
farið um þetta árabil þegar börnum
var kennt í bráðabirgðahúsnæði,
sem fáir muna lengur, nema þá
helst börnin sjálf sem sóttu slíka
skóla. Hér á ég við kennslu sem
fram fór inni í stofu á einkaheimil-
um og þar sem bæði kennarinn og
bömin komu um langan veg í
kennslustundirnar. Guðjón Guð-
mundsson rekstrarstjóri, sem starf-
aði fyrir RARIK, hringdi til mín og
sagði mér frá barnaskólagöngu
sinni á ámnum 1922 til 1928. Hann
sagði mér frá þætti úr skólasögu
Reykjavíkur sem ekki má falla í
gleymsku fremur en aðrir þættir
úr skólasögunni.
Guðjón Guðmundsson er meðal
þeirra barna er ólust upp í útjaðri
Reykjavíkur, nánar staðfært í
Tungu, sem var býli er stóð innar-
iega norðanvert við Laugaveginn,
rétt hjá þar sem þáverandi Laugar-
nesvegur kom að Laugaveginum.
Nú er sá staður á móts við austur-
hluta stórhýsis Heklu og sést móta
fyrir lágvöxnum runnum er voru í
garði við húsið. Síðar flutti fjöl-
skylda Guðjóns í Austurhlíð sem
stóð austan við Reykjaveg, á móts
við hornið á skólalóð Laugarnes-
skólans þar sem hún kemur að
Hofteigi. Rétt er að geta þess hér
að Guðmundur Ólafsson faðir Guð-
jóns byggði fáum árum síðar býli
er hann nefndi Vogatungu og stóð
það austan við Kleppsmýrarveg
nokkuð norðan við Langholtsveg-
inn.
Skólagangan
Börnin sem sóttu skólanám í út-
jaðri Reykjavíkur á þessum árum
voru ekki mjög mörg, á að giska
12 til 15 böm. Þau kunna að hafa
verið fleiri stundum. Kennari þeirra
hét Elías Eyjólfsson, f. 25. nóvem-
ber 1887, dó 1. september 1975.
Hann var ráðinn kennari við Mið-
bæjarbarnaskólann en sendur það-
an til kennslu fyrir innan þéttbýlis-
svæðið.
Guðjón Guðmundsson sagðist
fyrst hafa sótt barnaskóla 1922 í
Múla, sem var býli er stóð norðan-
yert við Suðurlandsbraut en vest-
anvið Múlaveg. Múlavegur dró
sennilega nafn af þessu býli og lá
á milli Suðurlandsbrautar og
Laugarásvegar nokkuð austar en
Laugardalshöllin er nú. Næsta ár,
1922 - 23 fór kennslan fram á
Laugalandi. það býli stóð nálægt
þvottalaugunum, svolítið norðar og
ofar í hallanum.
Það var nokkuð styttri leið fyrir
lítinn dreng að fara í skólann en
hefur sennilega verið lengra fyrir
hin börnin. Rétt mun þó vera að
böm bjuggu einnig á þeim heimilum
sem leigðu húsnæði til kennslunn-
ar. Nú leið að því að Guðjóni var
ætlað að flytjast um set í kennslu-
stað á horni Sundlaugarvegar og
Laugarnessvegar. Það hús stendur
enn þar við hornið og hefur alla tíð
verið verslun á jarðhæð þess en
íbúð uppi og var stofan leigð til
skólahaldsins. Laugarnessvegur 52,
stundum nefnt Þorgrímsbúð.
Eins og títt er taka börn ást-
fóstri við kennara sinn og bekkinn
sinn. Það var annar kennari en El-
ías sem annaðist kennsluna við
Laugarnessveg. Guðjón undi ekki
þeim skiptum og fór fram á að
mega njóta áfram kennslu Elíasar,
sem þá var fluttur með sín börn inn
á Sjónarhól í Sogamýri. Það var
mun lengri leið fyrir Guðjón að
sælqa skóla inn í Sogamýri en hon-
um fannst það vera tilvinnandi.
Hann gat stundum notað reiðhjól,
ef færð var góð.
Sjónarhóll
Býlið Sjónarhóll stóð austanvið
Grensássveg og hefur líklega orðið
að víkja þegar Miklabrautin var
byggð því húsið mun hafa staðið
mjög nperri þar sem nú eru gatna-
mót Miklubrautar og Grensássveg-
ar. Sjónarhól byggði Páll trésmíða-
meistari og bjó hann þar ásamt
konu sinni og börnum. Kunnastur
barna þeirra var Lárus Pálsson leik-
ari. Þess verður að geta að Elías
kennari varð að beita sérstökum
kennsluaðferðum, eins og víða tíðk-
aðist í farskólum landsins. Nemend-
ur hans voru ekki allir á sama aldri
svo að þeir voru mislangt komnir á
námsbrautinni. Segir Guðjón mér
að Elías hafi verið góður kennari
og að hann hafi náð mjög góðum
árangri við kennsluna.
í tveimur greinum þurftu þessi
börn að sækja tíma alla leið niður
í Miðbæjarskólann, í handavinnu
sóttu drengirnir smíðatíma hjá Geir
Gígja og telpurnar handavinnu hjá
Elínu Andrésdóttur.
Leikfimitíma sóttu þau einnig í
Miðbæjarskólann. Kennari telpn-
anna þar var Ingibjörg Brands og
kennari drengjanna Valdimar
Sveinbjörnsson. Jafnvel þótt þessi
börn ættu langt að fara til skóla-
göngu var talið sjálfsagt að þau
hjálpuðu til við störf heima. Guðjón
var t.d. mjólkursendill. Hann færði
m.a. viðskiptafólki mjólk frá búi
föður síns.
Þriðji áratugurinn
Þriðji áratugur aldarinnar var að
þessu leyti sérstakur í sögu bama-
skólanna í Reykjavík. Mikil þrengsli
voru í Miðbæjarskólanum bg var
gripið til þeirra ráða að kenna í
heimahúsum eins og ég hefi sagt
frá í þessari grein. Börn sem ekki
var rúm fyrir hófu sum hver barna-
skólanám einu ári síðar, þ.e. átta
ára.
Sumir foreldrar keyptu kennslu
fyrir böm sín í einkaskólum. Þeir
voru nokkrir í Reykjavík á þessum
árum. Einnig mun hafa verið kennt
á fleiri stöðum í heimahúsum á
vegum barnaskóla Reykjavíkur,
mig vantar betri upplýsingar um
þetta til þess að geta um þá staði.
Ef einhver les þessa grein sem býr
yfir vitneskju um þennan þátt í
skólasögu barnaskóla í Reykjavík
væri ég þakklátur fyrir að heyra
um það.