Morgunblaðið - 23.08.1995, Page 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sverrir
GUÐBJARTUR Halldórsson og Snæbjörn Ingvarsson með þijár stærðir Cyclops-radarsvarans.
Stríðstæki til öryggis
í íslenska smábáta
CYCLOPS-umboðið á ís-
landi hefur hafið sölu á
nýju öryggistæki fyrir smá-
báta, Cyclops-radarsvara.
Notkun tækisins gerir smá-
báta sýnilega með ratsjám annarra skipa í allt að 15 sjómílna fjarlægð.
Sú tækni sem radarsvarinn byggist á var upphaflega þróuð sem varnar-
tækni í hemaði og var notuð í þyrlum í Falklandseyjastríðinu til að beina
ratsjárstýrðum Exocet-eldflaugum frá breskum herskipum.
Cyclops-radarsvari
gerir báta „sýnilega“
Kaupa
hlut
Einksi
Básafelli
• ísafirði - Samningavið-
ræður um kaup tveggja eig-
enda rækjuverksmiðjunnar
Básafells hf. á ísafirði á hlut
meðeiganda síns, Eiríks Böð-
varssonar, eru vel á veg
komnar. Samkvæmt heim-
iidum Morgunblaðsins er
ráðgert að skrifað verði und-
ir samning um kaupin um
næstu helgi. Eigendur Bása-
fells eru með áform um að
tvöfalda hlutafé félagsins og
hafa viðræður átt sér stað
við nokkra fjárfesta vegna
þess.
Búlð að handsala
samkomulag
Eiríkur, Arnar Kristins-
son og Hinrik Matthíasson
eiga jafnan hlut í Básafelli
og í dótturfélögum Ásafelli
hf. sem á rækjuskipið Hafra-
fell, Sandeyri hf. sem á
rækjuskipið Guðmund Pét-
urs, Kögurfelli hf. og Ski-
peyri hf.
„Þeir kaupa mig út félag-
amir og við höfum handsal-
að samning þess efnis,“
sagði Eiríkur en vísaði
spumingum um efni samn-
ingsins á kaupendur hluta-
bréfanna. Hann lét af fram-
kvæmdastjóm Básafells í
vor eftir að hann keypti
eignir þrotabús Fiskvinnsl-
unnar hf. í Bfldudal og hóf
rekstur þar í bæ með stofnun
einkahlutafélagsins Trostan
ehf.
Tallð að málln skýrist
um helglna
Hinrik Matthiasson sagði
að enn hefði ekki verið geng-
ið frá neinum samningum
en ætlunin væri að hann og
Arnar keyptu hlut Eiríks í
fyrirtælyunum. „Við kaup-
um hlutinn til að byija með
sem einstaklingar án þess
að við höfum rætt það neitt
sérstaklega. Það er verið að
tala um að reyna að ganga
frá þessum málum í vikunni
og því ættu þau að skýrast
um helgina." Hann viidi ekki
gefa upp kaupverði á hlut
Eirík en sló því fram að það
væri allt of hátt.
Stefnt að tvöföldun
hlutafjár félagslns
Hinrik sagði að unnið
væri að því að tvöfalda Iilut-
afé Básafells en það er nú
27 miiyónir kr. „Það hefur
oft komið til tals að auka
hlutafé Básafells og það er
kominn aðeins meiri skriður
á málin en verið hefur og
viss bjartsýni með gang
mála,“ sagði hann.
Sölumenn Cyclops-radarsvarans,
Guðbjartur Halldórsson og Snæbjöm
Ingvarsson, segja að litlir trébátar
eða trefjaplastbátar framkalli veika
og skammvinna svörum á ratsjá sem
erfítt geti verið að fylgjast með.
Mikilvægt sé að sjást í ratsjá. Skip
haldi fullum siglingarhraða, jafnvel
í slæmu skyggni, og of seint geti
verið að bregðast við þegar bátur
sést með berum augum.
Arnar Barðason á Suðureyri fékk
fyrsta radarsvarann og hefur sett
hann í bát sinn.
Björn Sverrisson var háseti á
Sunnu. Hann segir að þegar skipið
byijaði veiðar með tveimur trollum
hafi verið fjölgað um fjóra í áhöfn-
inni en skiptaprósentan verið nánast
óbreytt, eða 33%. Samkvæmt kjara-
Fyrir neta- og
Innsiglingabaujur
Sölumennimir segja að tækið nýt-
ist víðar en sem öryggistæki um
borð í smábátum. Nefna þeir sem
dæmi að sjómenn eigi stundum erfítt
með að fínna línu- og netabaujur og
gæti notkun radarsvarans bætt úr
því. Einnig myndi öryggi í höfnum
landsins aukast ef alls staðar yrðu
radarsvarar á innsiglingarbaujum.
Tæki frá þeim eru til reynslu um
borð í varðskipi og togara, einkum
samningum hefði skiptaprósentan
átt að hækka í 37% við ijölgun um
fjóra í áhöfninni. Segir Björn að
gert hafi verið samkomulag við
áhöfnina um lægri prósentu og mik-
ill þrýstingur á menn að skrifa und-
ir. Sjálfur segist hann hafa unnið
samkvæmt samkomulaginu og ekki
skrifað úndir það fyrr en í október
1993 enda nær útilokað að vera um
borð án þess. Hann segir að nú sé
öllum ljóst að samkomulagið um
borð hafi verið ólöglegt þar sem það
hafi ekki verið staðfest af verkalýðs-
félagi, en verkalýðsforystan hafí
ekki sagt áhöfninni frá því á sínum
tíma. Hann segist hafa verið
óánægður vegna þessa og að lokum
ákveðið að leita réttar síns og hætt
á skipinu.
Krafðist Bjöm þess að fá uppgert
samkvæmt gildandi kjarasamningi
fyrir þá 20 mánuði sem hann var á
skipinu, alls um 700 þúsund til við-
bótar fyrri hlut. Það þýddi 16 millj-
ónir fyrir alla áhöfnina. Landssam-
band íslenskra útvegsmanna hefur
í þeim tilgangi að athuga hvort notk-
un þess hentar í léttabátum sem eru
í förum milii skipa úti á sjó.
Og þeir eru með fleira í huga.
„Okkur langar að prófa tækið í gúm-
björgunarbátum. Þeir sjást ekki á
ratsjá og ef hægt væri að koma rad-
arsvara fyrir í bátunum gætu flug-
vélar leitað miklu stærra svæði og í
dimmviðri," segir Snæbjöm. Þeir fé-
lagar viðurkenna jafnframt að ýmis
vandamál séu við þetta sem þurfi
að finna lausn á áður en þetta mál
kæmist til framkvæmda.
Cyclops-radarsvarinn var kynntur
á stjómarfundi Landssambands smá-
bátaeigenda og segja sölumennimir
að þeim hafí verið tekið fagnandi. Á
boðstólum emm þijár stærðir af
tækinu. Kynningarverð þeirra er á
bilinu 35 til 49 þúsund með virðis-
aukaskatti. Við þetta bætist kostnað-
ur við uppsetningu en hann er mis-
munandi eftir aðstæðum um borð í
bátunum.
hafnað þessari kröfu fyrir hönd út-
gerðarinnar, Þormóðs ramma. Bjöm
er ákveðinn í að láta reyna á málið
fyrir dómstólum. Hann gagnrýnir
hins vegar viðbrögð verkalýðsfélags-
ins á Siglufirði og Sjómannasam-
bands íslands, sem ekki vilji styðja
við bakið á honum í málarekstrinum.
Gagnkvæmur hagur
af samkomulaginu
LÍÚ lítur svo á að enginn samn-
ingur hafí verið um skiptaprósentu
við veiðar með tveimur trollum.
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ,
segir að með notkun tveggja trolla
aukist afköstin um 50-80% og því
augljóst að sami mannskapur af-
kasti því ekki. Leitað hafí verið eftir
samningum við sjómenn um samn-
ing fyrir þessar veiðar en þeir hafi
ekki tekist, deilt hafi verið um frem-
ur smávægileg atriði. Við þessar
aðstæður hafi útgerð Sunnu og
áhöfn gert sérstakan samning, eins
og oft tíðkist, og átti sá samningur
að gilda þar til heildarsamningur
næðist. Gagnkvæmur hagur hefði
verið af samkomulaginu, aflinn hefði
aukist mikið og þar með tekjur
áhafnarinnar. „Okkur finnst þess
vegna ómerkilegt að hann skuli
reyna að ómerkja eigin þátttöku í
þessum samningi,“ segir Kristján.
Hann segir að málið hafí síðan verið
leyst með kjarasamningi á svipaðri
línu og unnið var eftir um borð í
Sunnu.
• NÝR framkvæmdasljóri
tekur við íshúsfélagi ísfirð-
inga hf. á næstunni og sam-
kvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru líkur á því að
það verði Björgvin Bjarna-
son, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Ósvarar hf. í
Bolungarvík.
Jóhannes G. Jónsson, sem
lengi hefur verið fram-
kvæmdasljóri íshúsfélags
ísfirðinga, hefur samkvæmt
upplýsingum blaðsins óskað
eftir leyfí frá störfum vegna
veikinda, Stjórn félagsins
hefur þegar hafist handa við
að fínna mann til að fylla
það skarð. Rætt hefur verið
við Björgvin Bjarnason og
eru líkur á að hann komi til
starfa hjá íshúsfélaginu á
næstu vikum.
1 útgerð
rækjubáta í
Mexíkó
• ÞORMÓÐUR rammi hf. á
Siglufirði og Grandi hf. í
Reykjavík eiga helming hlut-
afjár í útgerðarfélaginu
Pesquera Siglo í Guyamas i
Mexíkó en það hyggur á út-
gerð tíu rækjubáta í Kalifor-
niuflóanum.
Mexikóskur útgerðarmað-
ur á helming hlutafjár á
móti íslensku fyrirtælgun-
um. Þormóður rammi leggur
fram 28% hlutafjár og
Grandi 22%. Róbert Guð-
finnsson, framkvæmdastjóri
Þormóðs ramma, segir að
verkefni þetta hafi verið
lengi í undirbúningi. ís-
lensku fyrirtækin leggi fram
þekkingu og hlutafé í fyrir-
tækið, en vill ekki upplýsa
verðmæti þess.
Kaliforníuflóinn er þekkt
rækjuveiðisvæði og talar
Róbert um að þar séu þús-
und rækjubátar að veiðum.
Mexíkaninn sem þeir eru í
samvinnu við, áþar 40 báta.
Gestír frá
Mósambik
•FORSTÖÐUMAÐUR Ha-
frannsóknarstofnunar Mós-
ambik, dr. Imelda Sousa,
kom tii landsins í gærkvöldi
og verður fram á helgina.
Með henni í fór er Raoul
Dias, skipaskoðunarsljóri
landsins.
Þróunarsamvinnustofnun
íslands skipuleggur heim-
sóknina en hún hefur ákveð-
ið að leggja Hafrannsóknar-
stofnuninni f Mósambik til
skip sitt Feng. Skipið verður
notað til tilraunaveiða og
rannsókna á grunnslóð við
strendur Mósambik. Nor-
ræni þróunarsjóðurinn mun
fjármagna útgerð skipsins í
tvö ár til að byija með. Björn
Dagbjartsson, forstjóri Þró-
unarsamvinnustofnunar,
segir að endanlega verði
gengið frá þessum málum í
heimsókninni.
í dag ræða gestirnir frá
Mósambik við Björn og
skoða Feng. Á morgun fara
þeir vestur í Súðavik til að
skoða rækjuvinnslu Frosta
hf. og á föstudag munu þeir
skoða Hafrannsóknarstofn-
un og Rannsóknarstofnun
fiskiðnaðarins og ræða
áfram við fulltrúa Þróun-
arsam vinnustofnunar.
vlfal c*
af ýsu- og þorskanetum
Bjóðum 30% afslátt af ýmsum
gerðum af ýsu- og þorskanetum
af lager á meðan birgðir endast.
Marco útgerðarvörur,
Langholtsvegi III* Sími 533 3500.
Vefengir gildi sér-
samnings við áhöfn
Sjómaður krefur útgerð
Sunnu um viðbótarlaun
FYRRVERANDI
skipverji á rækju-
frystiskipinu Sunnu
frá Siglufírði hefur
krafíst launa sem
hann telur sig eiga inni hjá útgerðinni. Gert var upp við hann sam-
kvæmt samningi útgerðar og áhafnar en sjómaðurinn telur að sá samn-
ingur hafi verið ólöglegur. LÍÚ hefur, fyrir hönd útgerðarinnar, hafnað
kröfum sjómannsins og ætlar að veija málið fyrir dómstólum.