Morgunblaðið - 24.08.1995, Síða 2
2 C FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1995
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR VIKUNNAR
SJÓNVARPIÐ Stöð tvö
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST MÁNUDAGUR 28. ÁGÚST
Kl. 22.15'
.Brostnar vonir
(Shattered Dreams)
Bandarísk bíómynd sem segir frá
stormasömu sambandi hjóna.
LAUGARDAGUR 26. AGUST
Mn 1 flC y Draumaprinsinn
■ L I.Uu (Mr. Wonderful)
Bandarísk bíómynd frá 1994 í léttum
dúr um ungan mann sem leitar að
mannsefni handa fyrrverandi eigin-
konu sinni.
VI 00 IC ►Valkyrjur (All the
l»l. LLmnv Marbles) Bandarísk
bíómynd frá 1981 sem segir frá tveim-
ur konum sem leggja hart að sér til
að ná árangri í fjölbragðaglímu og
þjálfara þeirra sem má muna fífil sinn
fegurri.
SUNNUDAGUR 27. ÁGÚST
VI 99 1 n árin (Coming of
1*1. fct.lU Age) Bandarísk bíó-
mjmd frá 1993. Upp á hvað hefur líf-
ið að bjóða þegar aldurinn færist yfir
og maki er fallinn frá?
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST
Kl. 21.05'
y Hafnaboltahetjan
(Babe Ruth) Banda-
rísk sjónvarpsmynd frá 1991 sem seg-
ir sögu þekkts hafnaboltaleikara.
Stöð tvö
FÖSTUDAGUR 25. ÁGÚST
VI 9I flC ►Bleika eldingin
III. L I.Uu (Pink Lightning) Árið
1962 var ár sakleysis og yfírgengilegr-
ar bjartsýni í Bandaríkjunum. Lífsstíll
unga fólksins var við það að breytast
og ævintýrin, sem biðu þess, voru villt-
ari en nokkurn hefði órað fyrir.
M99 Ifl ►Síðasti tangó í Par-
■ LL.'rU ís (The Last Tango in
Paris) Umdeild mynd með Marlon
Brando í aðalhlutverki. Sagan hefst á
því að Jeanne, sem ér að fara að gifta
sig, leitar að góðri íbúð í París og
rekst inn á heimili dularfulls Banda-
ríkjamanns sem heitir Paul. Er ekki
að orðlengja það að hann tekur stúlk-
una með valdi og kemur fram vilja
sínum. Stranglega bönnuð börnum.
K| 91 9fl 1
Itl. L 1.4,11 hattan (Manhattan
Murder Mistery) Ótímabært dauðsfall
virðulegrar, eldri konu á Manhattan
setur nokkra bókhneigða New York
búa í spæjarastellingar. Grunur leikur
á að þama hafi verið brögð í tafli og
hafin er leit að morðingjanum. Fyrir
flokknum fer Carol Lipton, fyrrver-
andi auglýsingastjóri, sem er gift
bókaútgefandanum Larry Lipton. Car-
ol fómaði starfsframa sínum fyrir
heimilið og hefur talsverðan tíma af-
lögu til að pæla í andláti nágrannakon-
unnar.
M90 1 fl ►Vélabrögð II (Circle
• 4u. IU of Deceit II) Dennis
Waterman er mættur aftur í hlutverki
breska leyniþjónustumannsins Johns
Neil sem missti eiginkonu sína og
dóttur í sprengjutilræði Irska lýðveld-
ishersins. Að þessu sinni rannsakar
hann morðið á Robert Turner, majór
hjá leyniþjónustu hersins. Stranglega
bönnuð bömum.
SUNNUDAGUR 27. AGUST
W9fl Cfl ►Dakota vegurinn
■ ZU.UU (Dakota Road) Mynd-
in gerist á Englandi og ijallar um Jen
Cross, unga og ráðvillta dóttur land-
búnaðarverkamanns, drauma hennar
og vonir. Jen er uppreisnargjörn og
þráir að komast burt úr dreifbýlinu. I
nágrenninu er bandarísk herstöð og
þotur Kananna eru henni óþijótandi
uppspretta draumóra og spennu. Jen
virðist fyrirlíta sveitunga sína en und-
ir grámuskulegu yfirborðinu búa ljót
leyndarmál sem kalla fram sektar-
kennd í huga stúlkunnar. Kynlífið vek-
ur forvitni en fyrstu tilraunir á því
sviði valda aðeins vonbrigðum.
M9O 1 fl ►! fylgsnum hugans
■ 40. IU (Dying to Remember)
Lynn Matthews er farsæll fatahönnuð-
ur sem starfar á Manhattan í New
York. Hún er sjúklega hrædd við lyft-
ur og ákveður að leita sér hjálpar.
Lynn er dáleidd en hverfur þá aftur
til sjöunda áratugarins og verður vitni
að því þegar ung kona í San Franc-
isco bíður bana eftir að hafa verið
hrint niður lyftustokk af ókunnum
árásarmanni. Eftir þessa reynslu getur
Lynn ómögulega einbeitt sér að vinn-
unni og finnur sig knúna til að grennsl-
ast fyrir um örlög konunnar sem hún
sá í dáleiðslunni. Stranglega bönnuð
börnum.
|#| 90 9C ►Mýs og menn (Of
l»l. 4u.4u Mice and Men) Þessi
sígilda skáldsaga eftir John Steinbeck
fjallar um tvo farandverkamenn,
George Milton og Lennie Small, vin-
áttu þeirra, vonir og drauma. I upp-
hafi sögunnar koma þeir saman á
Tyler-búgarðinn, blankir og þreyttir.
Þar fá þeir vinnu en kjörin eru kröpp
og sonur eigandans, Curley, gerir allt
til að íþyngja verkamönnunum. Bönn-
uð börnum.
ÞRIÐJUDAGUR 29. ÁGÚST
Kl. 23.20 MST1"
fjölskyldu-
(Crooked
Hearts) Warren-fjölskyldan gengur í
gegnum gleði og sorg á degi hveijum,
rétt eins og milijónir annarra fjöl-
skyldna. En þegar Warren-hjónin
verða svo upptekin af lífi barna sinna
að börnin hafa ekki möguleika á því
að lifa eigin lífl, reynir það svo mikið
á fjölskylduna að hún er í hættu að
flosna upp.
MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST
|f| 9Q 9fl ►Meðleigjandi ósk-
nl. 4u.4U ast (Single White Fe-
male) Mögnuð og vel gerð spennu-
mynd með Bridget Fonda og Jennifer
Jason Leigh í aðalhlutverkum. Myndin
er gerð eftir metsölubók Johns Lutz,
SWF Seeks Same. Ung kona auglýsir
eftir ungri konu sem meðleigjanda.
Eftir skamma viðveru þeirrar síðar-
nefndu gerast undarlegir atburðir.
Stranglega bönnuð börnum.
FIMMTUDAGUR 31. ÁGÚST
|f| 91 QC ► Allt fyrir ekkert
l»l. 4 I.UU (Dead Heat on a
Merry-Go-Round) Gamansöm spennu-
mynd um glæpamanninn Eli Kotch.
Hann situr í steininum þegar myndin
hefst en fær fangelsissáKræðinginn
til að mæla með reynslulausn. Og Eli
veit hvað hann á að gera við nýfengið
frelsi. Hann ætlar sér að ræna banka
á alþjóðaflugvellinum í Los Angeles,
þegar háttsettur ráðamaður Sovétríkj-
anna kemur í opinbera heimsókn.
Bönnuð börnum.
|f| 9Q Cfl ►Veðmálið (Dogfight)
m. 40.UU Árið er 1963. Nokkrir
landgönguliðar fara í ljótan leik sem
hefur óvæntar afleiðingar. Strákamir
reyna allir að finna sér stelpu og sá
sigrar sem kemst á stefnumót með
þeirri ljótustu. Þetta er hrífandi saga
um einmanaleika og mannleg sam-
skipti. Bönnuð börnum.
BIOIN í BORGINNI
Arnaldur Indriðason/Sæbjörn Valdimarsson
BÍÓBORGIN
Tveir með öllu k k'A
Líklega besta svertingjahasarmynd
sem komið hefur hingað i langan tíma.
Formúluafþreying að sönnu en
skemmtigildið er ósvikið.
Meðan þú svafst kk
Ósköp sæt gamanmynd um óvenjuleg
ástarmál piparmeyjar. Einkennist
fullmikið af almennu dáðleysi til að
komast uppúr meðalmennskunni.
BÍÓHÖLLIN
Tveir með öllu (sjá Bíóborgina)
Skriðdrekaskvísan 'A
Vita vonlaus framtíðargamantryllir
um unga stúlku og skriðdrekann henn-
ar.
Konungur Ijónanna k k *
Frábærlega gerð Disneyteiknimynd
um ljónsunga á hrakningi. Gamal-
kunnir Disneytöfrarnir sjá um að
skemmta ungum sem öldnum.
HÁSKÓLABÍÓ
Franskur koss k k'A
Kaflaskipt rómantísk gamanmynd þar
sem Kevin Kiine heldur hlutunum á
floti. Aðrir fá bragðminni texta í þess-
, ari nýjustu mynd Lawrence Kasdans,
sem örugglega gerir meiri lukku hjá
konum en körlum.
Jack og Sara k k
Bretum gengur ekki hótinu skár en
Bandaríkjamönnum að endurskapa
sorgir og gleði mannlífsins á raun-
sannan hátt. Myndin snertir áhorfand-
ann furðu lítið þrátt fyrir hádrama-
tískt efnið.
Perezfjölskyldan k
Misheppnuð rómantísk gamanmynd
um kúbverska innflytjendur í Miami
árið 1980. Marisa Tomei ofleikur og
betri leikaramir tala flestir eins og
Gógó Gómez. Útkoman er eftir því.
Tommy kallinn k k
Tilþrifalítil gamanmynd sem gerir út
á heimskupör í anda Veraldar Waynes.
Brúðkaup Muriel kk-k
Oft sprenghlægileg áströlsk gaman-
mynd um stelpu sem vill giftast og
telur lykilinn að lífsgátunni felast í
Abbasöngvum. Góða skemmtun.
Skógardýrið Húgó k k
Lítil og meinlaus teiknimynd frá Dön-
um, elskulegum frændum vorum og
vinum, um Húgó hinn hressa sem
syngur og dansar og hoppar og hlær
smáfólkinu til ánægju og yndisauka
en hinum fullorðnu mest tii angurs og
armæðu.
LAUGARASBÍÓ
Johnny Mnemonic k k
Sendlar framtíðarinnar nota á sér
heilabúið eins og harðan disk í þess-
ari vísindaskáldskaparmynd sem
byggð er á góðri hugmynd en er lang-
dregin og innantóm. Grafíkin vel unn-
in.
Don Juan DeMarco k k'A
Johnny Depp fer á kostum í hlutverki
elskhugans mikla Don Juan í smellinni
og grátbroslegri mynd um ástina.
Marlon Brandb kryddar myndina en
þáttur hans og Faye Dunaway er held-
ur til baga.
Heimskur heimskari kkk
Vellukkuð aulafyndni um tvo glópa á
langferð. Sniðin fyrir Jim Carrey og
Jeff Daniels. Hláturinn lengir lífið.
REGNBOGINN
Dolores Claiborne kkk
Kathy Bates fer á kostum í spennu-
mynd byggðri á sögu Stephen Kings
um móður sem sökuð er um morð.
Leikstjórinn, Taylor Hackford, leggur
ekki síst áherslu á feminíska þætti
sögunnar af konum í karlrembusamfé-
lagi. Veikasti hlekkurinn er Jennifer
Jason Leigh í hlutverki dótturinnar.
Gleymum París kk'A
Skemmtileg rómantísk gamanmynd
um raunir hjónalífsins í nútímanum.
Ófáir brandarar stytta manni stundir
og efnistökin eru alltaf geðþekk.
Geggjun Georgs konungs kkk
Nigel Hawthome fer á kostum sem
Georg III í skemmtilega kaldhæðnis-
legri úttekt á erfiðu tímabili bresku
konungsfjölskyldunnar fyrr á tímum.
Merkilagt hvað lítið hefur í raun breyst
í þessum dularfulla konungsgarði.
Raunir einstæðra feðra k
Þrír fráskildir feður gera upp sín mál
í amerískri fjölskylduvellu.
Eitt sinn stríðsmenn kkk'A
Raunsæ og vægðarlaus lýsing á fjöl-
skyldulífi í fátækrahverfi á Nýja-Sjá-
landi. Ofbeldi, óregla og aðrir lestir
eru ekki teknir neinum vettlingatök-
um, björtu hliðarnar gleymast heldur
ekki.
SAGABÍÓ
Að eilífu Batman kkk
Dökk en ekki drungaleg og mun
hressilegri en forverarnir. Auðgleymd
en bráðfjömg á meðan á henni stend-
ur.
„Die Hard 3“ kkk
Hörkugóður hasartryllir sem segir í
þriðja sinn af Bruce Willis í gengdar-
lausum eltingarleik við illmenni.
Samuel L. Jackson ómetanlegur sem
félagi hans og Jeremy Irons er höfuð-
óþokkinn. Fínasta sumarbíó.
STJÖRNUBÍÓ
Einkalíf kk
Þráinn Bertelsson gerir unglinga-
menningunni, kynslóðabilinu og gam-
ansögum af Islendingum skil í brota-
kenndri gamanmynd, sem á að höfða
mest til unglinga.
Fremstur riddara kkk
Ævintýrið um konungshjónin í Came-
lot fært í glæsilegan Hollywoodbúning
þar sem afþreyingargildið er sett ofar
öllu. Sean Connery og Julia Ormond
frábær í hlutverkum sínum. Lífleg
skemmtun.
Æðri menntun k'A
John Singleton lýsir lífinu í fjölþjóðleg-
um háskóla en hefur ekki erindi sem
erfiði því myndin er klisjukennd og
óspennandi.
Litlar konur k k k'A
Einstaklega vel gerð, falslaus og falleg
mynd um fjölskyldulíf á Nýja-Eng-
landi á öldinni sem leið. Winona Ryder
fer fremst í flokki afburðaleikara.