Morgunblaðið - 24.08.1995, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 1995 C 5
LAUGARDAGUR 26/8
IVIYNDBÖND
Sæbjörn Valdimarsson
SVAMLAÐí
SYIMDAFENI
DRAMA
Postulínsmáni (China Moon) k k
Leikstjóri og handritshöfund-
ur John Bailey. Aðalleikendur
Ed Harris, Madeleine Stowe,
Benicio Del Toro, Charles Dance,
Pruitt Taylor Vince. Bandarísk.
1994. Skífan 1995.96 mín. Ald-
urstakmark 12 ára.
Heiðarlegur lögreglumaður (Ed
Harris) flækist í
svikavef fagurr-
ar konu (Madel-
eine Stowe) sem
býr í óhamingju-
sömu hjónabandi
með vellauðug-
um bankastjóra
sem hún vill feig-
an. Ástin kemur
til sögunnar og
atburðarásin
tekur allt aðra stefnu en ætlað var.
Snyrtilega gerð film no/rþar sem
gæðaleikarinn Harris hjálpar uppá
götótt handrit með styrkum og trú-
verðugum leik og Stowe er mikið
augnayndi. Úkoman er í meðallagi.
Myndin var gerð ’91, rykféll um
árabil uns hún var frumsýnd á
myndbandi og varð ein af banabit-
um Orion kvikmyndaversins sem
leið undir lok fyrir nokkru síðan.
DAUÐSFÖLL
í FJÖL-
SKYLDUNNI
DRAMA
Litla Odessa (Little Odessa)
■k •kVi
Leikstjóri og handritshöfund-
ur James Gray. Aðalleikendur
Tim Roth, Vanessa Redgrave,
Edward Furlong, Moira Kelly,
Maximillian Schell. Bandarísk.
New Line Cinema 1995. Mynd-
form 1995.90 mín. Aldurstak-
mark 16 ára.
Josh Saphiro
(Tim Roth),
brottrækur son-
ur rússneskra
innflytjenda í
Litlu Odessa í
Brooklyn, er
kominn aftur á
heimaslóðir.
Hann er leigu- ,
morðingi og
skotmarkið er demantakaupmaður
í gamla hverfinu.
Josh verður að fara með gát,
útskúfaður af föður sínum (Maxi-
millian Schell) og gömlum óvinum
sem vilja hann feigan. Móðirin
(Vanessa Redgrave) liggur fyrir
dauðanum en í uppgjörinu við óvild-
armennina og demantakaupmann-
inn verður hann að tefla á tvær
hættur og hætta lífi þeirra sem
honum þykir vænst um - ungan
bróðir sinn (Edward Furlong) og
kærustuna (Moira Kelly).
Myndin hlaut ekki brautargengi
á tjaldinu hérlendis þrátt fyrir at-
hyglisvert efni og áhugaverðan leik-
hóp. Sjálfsagt er hún full þungbúin
og sorgleg til að hægt sé að reikna
með miklu brautargengi. Fram-
vinda flýtur líka í lausu lofti, Josh
í fortíð og nútíð er óskýr persóna
líkt og framvindan á löngum köfl-
um. Roth er réttur maður í morð-
ingjahlutverkinu, ískaldur á yfir-
borðinu en grunnt á hlýrri tilfinn-
ingum í garð móður hans, bróður
og vinkonu. Furlong kemst vel frá
sínu í lykilhlutverki, þá er gaman
að sjá til hins sjaldséða Schells,
þótt hlutverkið sé ekki burðugt.
Átakanleg, „öðruvísi" mynd en for-
vitnileg og á sín augnablik í bland
við vonleysi, depurð og ljótleika
jaskaðs mannlífs.
SAFARÍK
STÓRMYND
DRAMA
Arabíu Lawrence (Lawrence of
Arabia) kkkrk
Leiksljóri David Lean. Handrits-
höfundur Robert Bolt. Kvik-
myndatökusljóri Frederick A.
Young. Tónlist Maurice
Jarre.Aðalleikendur Peter O’
Toole, Omar Sharif, Arthur
Kennedy, Jack Hawkins, Donald
Wolfit, Claude Rains, Anthony
Quayle, Alec Guinness, Anthony
Quinn. Bandarísk. Columbia
1962. Skífan 1995.217 mín. Ald-
urstakmark 12 ára.
Stórmynd er eina orðið yfir Arab-
íu Lawrence, og
myndin er líka
eitt af afrekum
leikstjórans
Davids Lean sem
var manna
snjallastur í gerð
slíkra mynda.
Útgáfan sem hér
er á boðstólum
inniheldur atriði
sem klippt voru
úr frumútgáfunni, önnur minni
háttar hafa hinsvegar verið látin
flakka. Arabíu Lawrence var bresk-
ur herforingi sem leiddi Araba til
sigurs á Tyrkjum í Palestínu á tím-
um fyrri heimsstyijaldarinnar.
Myndin segir skilmerkilega frá
þessum atburðum og varpar ljósi á
hinn leyndardómsfulla og flókna
persónuleika sem Peter 0’ Toole
leikur eftirminnilega vel. Eyðimörk-
in og maðurinn eru eitt. Handrit
Bolts er nákvæmt og safaríkt, leik-
ur allur í hæsta gæðaflokki, kvik-
myndatakan og leikstjórnin skipa
myndinni í hóp sígildra verka. Hlaut
sjö Óskarsverðlaun, m.a. sem besta
mynd ársins, leikstjórn, kvikmynda-
töku (Freddie Young) og tónlist
(Maurice Jarre).
BÍÓMYIMDBÖIMD
Sæbjörn Valdimarsson
Enginn er fullkominn (Nobod-
y’s Fooi)kkVi
Sully (Paul Newman), sextugur
verkamaður, er
litríkasta per-
sónan í annars
talsvert skraut-
legri mannlífs-
fióru smábæjar í
New York ríki.
Af öðrum ein-
staklingum má
nefna kennslu-
konuna hans
gömlu og núver-
andi leigusala (Jessica Tandy),
blómarósina sem gefur honum ós-
part undir fótinn (Melanie Griffith),
þótt hún sé í sambúð með vinnuveit-
anda Sullys (Bruce Willis). Hand-
ritshöfundurinn og leikstjórinn Ro-
bert Benton fer með okkur á lítt
troðnar slóðir, smáborgararnir
heldur óvenjulegar persónur og
umfjöllunarefnið frískleg tilbreyt-
ing frá því umhverfi sem við eigum-
að venjast í bandarískum stórmynd-
um. Það geislar af Jessicu Tandy,
hér fór þessi töfrandi leikkona með
sitt síðasta hlutverk, og aðrir auka-
leikarar standa fyrir sínu.
Það flökrar þó að manni að Holly-
wood hafi verið að gefa uppáhald-
stöffaranum sínum enn eitt tæki-
færi til að viðra kunnuglegan, kald-
hæðinn harðjaxlinn, kvennagullið
sem kvikmyndahúsgestir hafa dáð
í tæp 40 ár (Somebody Up There
Likes Me ’56). Megi þessi ótrúlega
bláu augu skína sem lengst! Með
Philip Bosco, Gene Saks, Dylan
Walsh. 99 mín. Öllum leyfð.
Lélegur lygari
— að eigin sögn
ALAN Bates var ein skærasta
stjama í breskri kvikmyndagerð á
7. áratuginum og máttarstólpi í
myndum á borð við „A Kind of
Loving", „The Go-Beetween“ og
„Women in Love“. Hann leikur
aðalhlutverkið í nýjum breskum
sakamálamyndaflokki, Ferðum
Olivers, sem hóf göngu sína í Sjón-
varpinu seinasta þriðjudag, auk
þess sem tilþrifa kappans er að
vænta í spennumyndinni „The
Grotesque“ sem nýlokið er við, og
hefur einnig popparann Sting inn-
anborðs.
„Það er ómögulegt að spá um
velgengni og því hefur maður
ekki efni á að hræðast mistök og
verður að fylgja eigin hyggjuviti.
En maður verður að
vera fullkomlega búinn
undir að eitthvað fari
úrskeiðið, að það fái
ekki viðurkenningu og
hrós. Og maður verður
að jafna sig tii fulls,“ segir Alan
Bates í nýlegu viðtali þar sem
hann var krafinn sagna um per-
sónuleg málefni, m.a. hvort hann
sé hræddur um að sér mistakist í
starfi.
Erfði þijósku föðurins
Bates segist hafa viljað vera
leikari frá unga aldri, eða frá því
að hann var um 11 ára gamall.
Hann hafi verið afar feiminn í
skóla og haldið sig til hlés þegar
leikrit voru sett á svið eða efnt
var til samkeppni meðal nemenda. .
Hlédrægnin hafi hins vegar
skyndilega bráð af honum og hann
stillti sér upp í fremstu röð leik-
hópsins. „Mér tókst vel að sleppa
út úr sjálfum mér,“ segir hann.
Fyrir utan fáein sumarstörf
meðan á námi stóð hefur Bates
eingöngu fengist við leiklist um
ævina og kveðst ekki sýta fortíð
sína og feril mjög. Hann telji sig
ekki lifa í sjálfsblekkingu og grípi
sjaldan til ósannsögli. Hann haldi
þó að fólk ljúgi á stundum til að
komast á þægilegri hátt í gegnum
lífið. „Ég er lélegur lygari og lýg
þvi ekki mjög rnikið," segir Bates.
Hann segist hafa erft þrjósku
fóður síns og mikla ást á görðum
og garðyrkju, þótt hann
rækti sjálfur ekki garð-
inn sinn. Frá móður
sinni hafi hann hins
vegar fengið það við-
horf að njóta eigi lífsins
af fremsta megni, auk þess sem
hann telur að tónlistaráhugi þeirra
hafi beint sér inn á leiklistarbraut-
ina.
Hann segist hafa áhuga á að
glíma við nokkur sígild hlutverk
leikbókmenntanna sem henti leik-
ara á hans aldri, en annars sé
hann sáttur við sitt. „Ég hef verið
heppinn og mér hafa verið boðin
hlutverk sem mér fannst skemmti-
legt að leika og ég vonast eftir
meira af svo góðu, áður en við
hverfum öll . . .“
Hef ekki efni á
að hræðast
mistök
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
6.45 Veðurfregnir.
6.50 Bæn: Sigrún Óskarsdóttir
flytur. Snemma á laugardags-
morgni. Þulur velur og kynnir
tónlist.
8.07 Snemma á laugardags-
morgni heldur áfram. 8.55
Fréttir á ensku.
9.03 Út um græna grundu. Þátt-
ur um náttúruna, umhverfið og
ferðamál. Umsjón: Steinunn
Harðardóttir. (Endurfluttur
annað kvöld kl. 21.00).
10.03 Veðurfregnir.
10.15 „Já, einmitt". Óskalög og
æskuminningar. Umsjón: Anna
Pálína Árnadóttir. (Endurflutt
nk. föstudag kl. 19.40).
11.00 I vikulokin. Umsjón: Logi
Bergmann Eiðsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dag-
skrá laugardagsins.
12.45 Veðurfregnir og auglýsing-
ar.
14.00 Stef. Umsjón: Bergþóra
Jónsdóttir.
14.30 Innan seilingar. Útvarps-
menn skreppa í laugardagsbíltúr
í Garðabæ. Umsjón: Ævar
Kjartansson.
16.05 Sagnaskemmtan. Fjallað
um sögu og einkenni munnlegs
sagnaflutnings og fluttar sögur
með (slenskum sagnaþulum.
Umsjón: Ragnheiður Gyða Jóns-
dóttir. (Áður á dagskrá 14. ág-
úst).
16.30 Ný tónlistarhljóðrit Ríkisút-
varpsins Sinfóniuhljómsveit ís-
lands flytur þrjú hljómsveitar-
verk eftir Þorkel Sigurbjörns-
son: Filigree, Hljómsveitartröll
og Díafónía. Stjórnandi er Anth-
ony Hose. Umsjón: Dr. Guð-
mundur Emilsson.
17.10 Tilbrigði. Svífur að haustið
Haustijóð og haustþankar og
tónlist tengd haustinu. Umsjón:
Trausti Olafsson. (Endurflutt
nk. þriðjudagskvöld kl. 23.00).
18.00 Heimur harmóníkunnar
Umsjón: Reynir Jónasson. (End-
urflutt nk. föstudagskvöld kl.
21.15).
18.48 Ðánarfregnir og auglýsing-
ar.
19.30 Auglýsingar og veðurfregn-
ir.
19.40 Óperuspjall.
— Rætt við Garðar Cortes um
Otello eftir Giuseppe Verdi og
leikin atriði úr óperunni. Um-
sjón: Ingveldur G. Ólafsdóttir.
21.00 „Gatan mín“. Hafnarstræti
á Flateyri Jökull Jakobsson
gengur það með Hirti Iljálmars-
syni. (Áður á dagskrá 1971).
22.10 Veðurfregnir. Orð kvölds-
ins: Eirný Ásgeirsdóttir flytur.
22.30 Langt yfir skammt. Gluggað
í gamlar bækur og annað góss.
Umsjón: Jón Hallur Stefánsson.
23.00 Dustað af dansskónum.
0.10 Um lágnættið. Verk eftir
Franz Schubert.
— Sónata ( A-dúr ópus 120 fyrir
píanó. Alfred Brendel leikur.
— Hirðirinn á hamrinum Felicity
Lott sópran syngur, Ian Brown
leikur á píanó og Michael Collins
á klarinett.
— Lög við ljóð eftir Heinrich
Heine. Hermann Prey bariton
syngur; Philippe Bianconi leikur
á píanó.
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns. Veðurspá
Frétfir ó RÁS 1 og RÁS 2 kl. 7, 8,
9, 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.07 Morguntónar fyrir yngstu
börnin. 9.03 Með bros á vör, í för.
Umsjón: Hrafnhildur Halldórsdótt-
ir. 13.00 Helgarútvarp Rásar 2.
14.30 Georg og félagar. Umsjón:
Georg Magnússon og Hjálmar
Hjálmarsson. 16.05 Létt músik á
síðdegi. Ásgeir Tómasson. 17.00
Með grátt í vöngum. Umsjón: Gest-
ur Einar Jónasson. 19.30 Veður-
fréttir. 19.40 Vinsældalisti götunn-
ar. Umsjón: Ólafur Páll Gunnars-
son. 20.30 Á hljómleikum með
Bryan Ferry. 22.10 Veðurfregnir.
22.15 Næturvakt Rásar 2. Umsjón:
Guðni Már Henningsson. Næturút-
varp á samtengdum rásum til
morguns. Veðurspá kl. 1.
NÆTIIRÚTVARPIB
1.05 Næturvakt Rásar 2. 2.00
Fréttir. 2.05 Rokk. 3.00 Næturtón-
ar. 4.30 Veðurfréttir. 4.40 Nætur-
tónar. 5.00 Fréttir. 5.05 Stund með
Wilson Pickett. 6.00 Fréttir, veður
færð og flugsamgöngur. 6.03 Ég
man þá tíð. Hermann Ragnar Stef-
ánsson. (Veðurfregnir kl. 6.45 og
7.30). Morguntónar.
ADALSTÖDIN
90,9/ 103,2
9.00 Sigvaldi Búi. 13.00 Halli
Gísla. 16.00 Gylfi Þór. 19.00
Magnús Þórsson. 21.00 Næturvakt
Aðalstöðvarinnar.
BYLGJAN
FM 98,9
9.00 Morgunútvarp. Eirikur Jóns-
son. 12.10 Jón Axei Ólafsson og
Valdís Gunnarsdóttir. 16.05 Erla
Friðgeirsdóttir. 19.00 GuUmolar.
20.00 Laugardagskvöld. 3.00 Næt-
urvaktin.
Fréttir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30.
BYLGJAN, ÍSAFIRÐI
FM 97,9
9.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9.
20.00 Tveir tæpir. Víðir Arnarson
og Rúnar Rafnsson. 23.00 Gunnar
Atli með næturvakt. Stminn í hljóð-
stofu 93-5211. 2.00 Samtengt
Bylgjunni FM 98.9.
BROSID
FM 96,7
3.00 Ókynntir tónar. 13.00-17.00
Léttur laugardagur. 20.00 Upphit-
un á laugardagskvöldi. 23.00 Næt-
urvaktin.
FM 957
FM 95,7
10.00 Sportpakkinn. Hafþór Svein-
jónsson og Jóhann Jóhannsson.
13.00 Björn Þór, Ragnar Már,
Axel og Valgeir. 16.00 Helga Sig-
rún. 19.00 Björn Markús. 21.00
Mixið. 23.00 Pétur Rúnar Guðna-
son.
LINDIN
FM 102,9
8.00 Morguntónar. 11.00 Á laugar-
dagsmorgni. 13.00 Ókynnt tónlist.
16.00 íslenski kristilegi listinn
(endurfluttur). 18.00 Ókynnt tón-
list. 20.00 Laugardags vaktin.
23.00 Næturvaktin.
SÍGILT-FM
FM 94,3
8.00 Ljúfir tónar. 12.00 Kvik-
myndatónlist. 13.00 Á léttum nót-
um. 17.00 Sígildir tónar. 19.00 Við
kvöldverðarborðið. 21.00 Á danss-
kónum. 24.00 Næturtónar.
TOP-BYLGJAN
FM 100,9
7.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM
98,9. 10.00 Svæðisútvarp TOP-
Bylgjan. 11.00 Samtengt Bylgj-
unni FM 98,9.
X-ID
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
12.00 Með sitt að aftan. 14.00
X-Dómínóslistinn. l7.00Þossi.
19.00 Party Zone. 22.00 Nætur-
vakt.3.00 Næturdagskrá.