Morgunblaðið - 31.08.1995, Side 1
CiC A IHVi Jí.JION
: ífUC/.H'JTOM
SAMKEPPWI
Heildsalar á dag-
vörumarkaöi/4
HggglP ípj SAMRUNI NÝHERJI
Chemical og Chase Skjáauglýsingar í lálí
Manhattan/6 stórmörkuðum/8 ÍÉÍIÍLtJ Æ
3H«tpnU«^
VIÐSKIFn AIVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
FIMMTUDAGUR 31. AGUST 1995
BLAÐ
B
Flotkví
Ekki hefur enn skýrst hvar
flotkví vélsmiðju Orms og Víg-
lundar verður. Að sögn Eiríks
Orms Víglundssonar, fram-
kvæmdastjóra, er málið enn til
umfjöllunar hjá Hafnarfjarð-
arbæ. Fyrir liggi tilboð frá öðr-
um bæjarfélögum um aðstöðu
fyrir flotkvxna en hann vill ekki
segja hvaða bæjarfélög það eru.
Ríkisvíxlar
Meðalávöxtun samþykktra til-
boða í ríkisvíxla hækkaði í útboði
í gær. Heildarfjárhæð tekinna
tilboða var 3.688 millj. Meðal-
ávöxtun 3ja mán. víxla var 6,98%
en 6,94% um miðjan ágúst, ávöxt-
un 6 mán. víxla var 7,43% en var
7,35% í byrjun ágúst og ávöxtun
12 mán. ríkisvíxla var 7,92% en
var 7,89% í ágústbyijun.
Hnappar
Umsagnarfrestur fyrir frumvarp
vegna íslenskra hnappaborðs-
staðla er til 15. sept. nk. Frum-
varpið er að ÍSTISO 9995-3 og
nær yfir öll tákn í hópi 2 á grunn-
lyklaborði. Það er með íslenskum
fræðsluauka sem sýnir hvar öll
tákn í Latin-1 og Latin 2 stafa-
töflunum eru á hnappaborðum
sem fylgja íslenskum stöðlum.
SÖLUGENGi DOLLARS
Eitt hundrað milljóna króna
hlutaff árútboð hjá Granda hf.
Hlutafé
aukið um 9%
HLUTAFJARÚTBOÐ í Granda hf.
hefst á morgun, föstudaginn 1.
september, og verða boðin til sölu
hlutabréf að nafnverði 100 milljónir
króna. Fyrir aukninguna var hluta-
fé í Granda 1.094,5 milljónir þann-
ig að hér er um að ræða rúmlega
9% hækkun hlutafjár.
Hlutabréfin verða seld á genginu
2,08 og að sögn Davíðs Björnsson-
ar, deildarstjóra hjá Landsbréfum
sem sjá um sölu bréfanna, gildir
það gengi bæði fyrir forkaupsrétt-
arhafa og sölu á almennum mark-
aði. Til hennar kemur þó því aðeins
að hlutabréfín seljist ekki öll á for-
kaupsréttartímabilinu sem stendur
frá 1.-21. september. Allir hluthafar
sem hyggjast nýta sér forkaupsrétt
sinn verða að hafa tilkynnt kaup
fyrir lok þess tímabils. Bréfin þarf
síðan að greiða fyrir 5. október.
Að sögn Davíðs er sölugengi
Grandabréfanna, 2,08, nálægt því
gengi sem hlutabréf Granda hf.
hafa verið að seljast á á markaðnum
undanfarnar vikur. Hæst hefur
gengið farið í 2,30 undanfarið.
Markmiðin
Kristín Guðmundsdóttir, fjár-
málastjóri Granda hf., segir að
markmiðið með útgáfu nýs hluta-
fjár sé að viðhalda sterkri eiginfjár-
stöðu félagsins. Þá hafi Grandi fjár-
fest töluvert undanfarið, bæði inn-
anlands og erlendis, í þeim tilgangi
að styrkja stöðu sína í veiðum og
vinnslu. Hlutafjáraukningúnni sé
einnig ætlað að mæta þessum fjár-
festingum. „Af innlendum fjárfest-
ingum má nefna endurbætur á tog-
urunum Snorra Sturlusyni og Eng-
ey. Þá hefur Grandi keypt eignar-
hluti í Þormóði ramma hf., Arnesi
hf. og Bakkavör hf. auk þess að
kaupa töluverðan aflakvóta," sagði
Kristín. „Meðal erlendra fjárfest-
inga er um að ræða fyrirhugaða
fjárfestingu í rækjuútgerð í Mexíkó
sem Grandi áætlar að fara út í
ásamt Þormóði ramma.“
Áætlaður hagnaður
200 milljónir
Grandi hf. gerir út átta togara,
þar af þrjá frystitogara og fimm
ísfisktogara. Úthlutaðar aflaheim-
ildir fyrir fískveiðiárið 1. september
1995 til 31. ágúst 1996 eru áætlað-
ar 18.992 tonn, eða sem nemur
15.511 þorskígildum. Helstu mark-
aðssvæði fyrir útflutning fyrirtæk-
isins eru Evrópa með 53%, þar af
40% í Þýskalandi, Asía með 35%
og Bandaríkin með 10%.
Hagnaður Granda á síðasta ári
var 153 milljónir króna. Fyrstu sex
mánuði þessa árs var hagnaðurinn
141 milljón og að sögn Kristínar
gerir rekstraráætlun félagsins ráð
fyrir 200 milljóna króna hagnaði á
árinu 1995.
Hvað varðar áherslur í rekstri
nefndi Kristín þær breytingar frá
fyrra ári að útflutningur á ísuðum
karfaflökum yrði aukinn, dregið úr
sölu á heilum karfa á uppboðsmörk-
uðum í Þýskalandi og afkastageta
í sjófrystingu aukin.