Morgunblaðið - 08.09.1995, Side 1
LÆQSTA-VE RÐ
ABYRGÐ
Á BÍLALEIGUBÍLUM
FLORIDA 7.590
BRETLAND 13.020
KANARÍ 11.690
TÚNIS 29.900
MAROKKÓ 24.700
MALAGA 9.980
BAHAMAS 21.060
Innifalið i verðl er: kaskotryqging, laekkun s|alfsóbyraðar,
trygging g. stuldi og allir staðbunanir skattar. 011 verð eru i
Islonskum kronum og eru vikuverð.Florida: ótakmarkaður
aíutur og kaskó.
588 35 35
Oplð món-fós 9-18 lou 10-14
Morgunblaðið/Kristinn
BLOMAMYNSTRUÐ húsgagnaáklæði og gluggatjaldaefni eftir bandaríska listamanninn Gary
Bukovni skipa stóran sess á sýningunni í Epal.
Ný hönnun í Epal
í TILEFNI tuttugu ára afmælis
Epals hf. hefst sýning í verslun-
inni í dag 8. september. Á sýning-
unni eru húsgögn, lampar,
gluggatjaldaefni og áklæði.
Að sögn Eyjólfs Pálssonar,
frarnkvæmdastjóra Epals, eru
ýmsar nýjungar í hönnun til sýnis
í fyrsta sinn hérlendis. Til dæmis
blómamynstruð húsgagnaáklæði
og gluggatjaldaefni, sem danska
vefnaðarfyrirtækið Kvadrat hefur
nýverið hafið framleiðslu á.
Mynstrin eru eftir bandaríska
listamanninn Gary Bukovnik, sem
einkum er frægur fyrir blóma-
myndir. Myndir Bukovniks prýða
veggi safna víðsvegar í Bandaríkj-
unum, m.a. The Metropolitan
Museum of Artí New York og
The Smithsonian Institution.
í tengslum við sýninguna í Ep-
al, sem er samstarfsverkefni
verslunarinnar, danska sendiráðs-
ins, Norræna hússins og Dansk-
íslenska félagsins heldur Katte
Bonlykke Andersen, lektor við
háskólann í Árósum, fyrirlestur
um danska húsgagnahönnun í
Norræna húsinu, laugardaginn 9.
september kl. 16. Að fyrirlestrin-
um loknum verður sýnd kvik-
myndin „Den Magiske orden“, sem
fjallar um danska hönnun.
Sýningunni í Epal lýkur 30.
september.
Jólastjarna
sem er með níu líf
JÓLASTJÖRNUR eru sjaldnast í fullum
blóma hjá fólki á sumrin. Reyndar er venj-
an sú að þessi blóm skreyti híbýli fólks
yfir jólatímann, en lifi víðast hvar ekki
mikið fram yfir áramót.
Jólastjarna Guðmundu Ólafsdóttur á
Akranesi slær líklega flest met. Guðmunda
fékk jólastjörnuna að gjöf í nóvember 1992.
Hún segir að í upphafi hafi þar virst vera
ósköp venjuleg planta á ferð, en fljótlega
hafi farið að bera á fádæma lífsvilja. Eftir
jól hafi rauðu blöðin nefnilega ekki fallið
af eins og venjulegt er, heldur orðið fallega
dökkgræn og jurtin stækkað óðum. Síðan
gerðist það í marsmánuði 1993 að blöðin
tóku að roðna aftur og um páskaleytið var
„jóla“stjarnan öll orðin rauð.
Guðmunda segir að sama ferlið hafi síð-
an endurtekið sig, blöðin grænka og roðna
á víxl. Nú er stjarnan blóðrauð og bústin,
orðin um einn metri á hæð og annað eins
í þvermál. Guðmunda segist ekki eiga neina
leyniuppskrift, plantan sé staðsett í sólstofu
þar sem er mjög heitt og bjart á sumrin,
en kalt yfir vetrartímann. Þá vöknar hún
plöntuna vel. ■
UM FIMMTÁN þúsund íslending-
ar eiga bókað sæti í helgarferðir
til stórborga í Evrópu í haust og
fram að jólum. Rúmlega fimmtán
hundruð manns bókuðu sæti til
Baltimore í Bandaríkjunum á
mánudag og þriðjudag í þessari
viku en Flugleiðir bjóða nú tvö
sæti á verði eins farseðils til
borgarinnar.
Rúmlega 7.000 sæti hafa selst
í helgarferðir til áfangastaða Flug-
leiða í Evrópu og Bandaríkjunum.
Glasgow er þeirra vinsælastur en
þangað hafa selst um 3.000 sæti.
Flugleiðir bjóða 10 þúsund króna
afslátt af öllum pakkaferðum til
London í október og nóvember en
síðasti söludagur er 12. septem-
ber. Rúmlega 1.400 sæti hafa selst
á tilboðinu. Um 1.500 sæti hafa
selst til Amsterdam.
Dublln mjög vlnsæl
Dublin á írlandi er borga vin-
sælust^ en þangað hafa rúmlega
4.000 íslendingar bókað far. Sam-
vinnuferðir-Landsýn bjóða beint
leiguflug og hafa bókanirnar
þangað aukist um 60-70% frá í
fyrra. Að sögn Helga Péturssonar,
upplýsingafulltrúa Samvinnu-
ferða-Landsýnar, er meira um að
stórir hópar fólks taki sig saman
og bóki í ferðir en áður og jafnvel
Æ
Fimmtan Þusund Islendingar
halda utan í haust
með töluverðum fyrirvara. Þá
segir hann að greinilegt sé að
ferðamynstur Islendinga sé að
breytast. Fólk fari nú í styttri
sólarlanda-
ferðir en var og helgarferðir
verði sífellt vinsælli.
Ekkl bara verslunarferðlr
í sama steng tekur Guðrún
Sigurgeirsdóttir, framleiðslu-
stjóri Urvals-Utsýnar, en
ferðaskrifstofan býður beint
flug til Edinborgar. Liðlega
2000 manns eiga bókað sæti
þangað og er t.d. fullbókað í
allar þijár vélarnar sem fljúga
beint frá Akureyri. Guðrún
segir að fólk sé ekki eingöngu að
fara í verslunarferðir heldur einnig
í skoðunarferðir t.d. um skosku
hálöndin og í viskíverksmiðjur.
Fólk þreytt á rlgnlngunn!
Ferðaskrifstofan Alís býður
beint leiguferð til Newcastle fjórða
árið í röð. Laufey Jóhannsdóttir,
sölustjóri Alís, segir að ferðirnar
verði æ vinsælli og að nú þegar
séu um 1.400 sæti bókuð. Hún
segir að fólk sé orðið þreytt á
endalausum rigningum og vilji því
fara utan þar sem veður er betra.
Hún segist sjá að áherslur fólks
séu að breytast og að helgarferð-
irnar séu ekki lengur einungis
verslunarferðir þó vissulega sé
gott að versla í Newcastle. Fólk
fari nú í lengri ferðir en áður og
noti tímann m.a. til skoðanaferða.
Laufey nefndi sem dæmi að al-
gengt væri að fólk færi í skoðunar-
ferðir til Duram sem er háskóla-
bær ekki langt frá Newcastle.
Dómkirkjan í Durham er ein elsta
kirkja á Englandi, um níu hundruð
ára gömul.
Heimsferðir bjóða beint leigu-
flug til London tvisvar í viku í
október og nóvember og segir
Guðbjörg Sandholt, sölustjóri
Heimsferða að um 1.250 manns
eigi bókað far þangað. g
ss