Morgunblaðið - 08.09.1995, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1995 B 7
níu ára mann er ekki hægt að
staldra lengi við hverja mynd. Mað-
ur verður að láta sér nægja að líta
fljótlega yfir dýrðina.
Næsti áfangastaður var neðar í
hæðinni: vettvangur Olympíuleik-
anna í 1992. Þar skoðuðum við
aðalfþróttaleikvanginn og sund-
laugina. Verið var að gera leikvang-
inn kláran fyrir tónleika með hljóm-
sveitinni Bon Jovi. Loks enduðum
við í öðrum skemmtigarði, Poble
Espanyol. Þar hafa verið reistar
eftirlíkingar af húsum, kirkjum og
höllum með'torgum og gosbrunnum
sem eru einkennandi fyrir hin ýmsu
héruð Spánar. Þama koma fram
skemmtikraftar og hægt að kaupa
ýmis konar handiðnað. Þessi dagur
endaði á Spænska torginu fyrir
framan Þjóðarhöllina en þar er eitt
besta safn miðaldarlistar í heimin-
um. Fyrir framan höllina eru til-
komumiklir gosbrunnar. Þeir eru
lýstir upp á kvöldin og „dansa“ við
tónlist, eins og minn maður orðaði
það, en aðeins á laugardags- og
sunnudagskvöldum.
Strandbæir skoðaðir
Fjórða daginn tókum við okkur
bílaleigubíl og ókum eftir ströndinni
Costa Dorada og skoðunum
strandbæina en því miður rigndi.
Veðrið var skrítið miðað við árs-
tíma, dumbungur og hálf kalt. Við
sem erum vön því að þurfa að hafa
með okkur bæði stuttbuxur og vetr-
argalla þegar við förum í sumarfrí
hér á landi kipptum okkur svo sem
ekkert upp við það. Við ókum til
Figueres sem er fæðingarbær
Salvadors Dalí. Þetta er víðfrægt
safn og alveg einstakt. Hafði strák-
urinn ekki síður gaman af uppá-
tækjum meistarans en við sem eldri
erum.
Loks ókum við inn í landið og
hátt upp í fjöllin þar sem er klaustr-
ið Montserrat sem er þjóðarhelg-
isstaður Katalóna. Það er í ægi-
fögru umhverfi um 70 km norðvest-
ur af Barselóna. Klaustrinu má
enginn sleppa sem fer á þessar slóð-
ir. Við vorum þar við messu og
hlustuðum á guðdómlegan drengja-
kór. Áður en við yfirgáfum staðinn
keyptum við líkjör sem munkarnir
vinna úr kryddjurtum. Eftir klaust-
urferðina fórum við á Tapas bar í
litlu þorpi fyrir neðan klaustrið.
Mér er sagt að tapas þýði tappi,
það er að segja menn fara á barinn
og fá sér í glas en ofan á það fá
þeir sér líka að borða. Það er hægt
að fá mjög góðan og ódýran
spænskan mat á tapasbörunum
þó hann sé ekkert sérlega vin-
sæll hjá yngstu kynslóð Islend-
inga.
Strandfötin tekin fram
Dagurinn næsti var tekinn
rólega, farið í búðir og litið inn
á safn með verkum frá fyrstu
árum Picasso. Næst síðasta
daginn var himininn loksins
heiður og blár. Þá voru strand-
fötin tekin fram og skundað í
lestina sem flutti okkur til
strandbæjarins Sitges sem er
um 35 kílómetra suðvestur frá
Barselóna. Sitges þykir einn
af þeim strandbæjum á austur-
strönd Spánar sem best hefur
tekist að varðveita upprunalegt
yfirbragð, byggingastíl og um-
hverfi þrátt fyrir mikla aðsókn.
Þarna undum við okkur við
leik á ströndinni, fórum í hjóla-
bát og lágum í sólbaði. Við hefðum
gjarnan viljað fara á ströndina
næsta dag en þá hafði dregið fyrir
sólu. Við létum okkur nægja að
skoða sólbaðsströnd sem er í sjálfri
Barselónu rétt hjá Ólympíuhverf-
inu. Þar er ágætis aðstaða til sól-
baða.
Það sem mér og syni mínum
fannst „alveg æðislegt" við þetta
ferðalag var að það var hægt að
sameina það að skoða spennandi
hluti sem aðeins stórborgir bjóða
upp á og um leið kynnast landi og
þjóð... og svo var líka hægt að fara
á ströndina og leika sér í sólinni.
■
Hildur Einars
Á Spænska torginu fyrir framan
Þjóðarhöllina í Barselona er eitt
besta safn miðaldarlistar í heim-
inum.
í BÆNUM Mawsynram á
Indlandi er meðalársúrkoma
11,87 metrar.
Heitasta og kaldasta
byggð á jarðríki
Heitasta byggð á jarðríki er lík-
lega Dalol í Eþíópíu. Venjulega
er þar 45° hiti og getur farið upp
í 52° hita.
Sumir íbúanna segja að veðrið
þar sé frekar gott, en það geti
verið vel heitt á sumrin.
Kaldasta byggð í heimi er hins
vegar í Tom-Tor í Oymyakon hér-
aði í Síberíu. Þar getur orðið allt
að 60° frost. Nadya Krivos-
hapkova, bankagjaldkeri í bænum,
segir að það sé vel hægt að venj-
ast kuldanum. í tíu stiga frosti
finnist sér hlýtt. ■
ÞHY
I-
SVONA niðurröðun á þvotta-
snúru samræmist ekki lögum
Minnesotafyikis.
VISSIR ÞÚ • • .
► •.. að í Minnesota í Bandaríkj-
unum er ólöglegt að hengja fatnað
af konum og körlum saman á
þvottasnúru.
►... að í Indiana varðar við lög
að ferðast í strætisvagni innan
fjögurra tíma frá því að hafa borð-
að hvítlauk.
► ... að í Bretlandi er bannað
að veiða á tvær stangir í einu á
Bournemouth-bryggju.
►■.. að þar í landi er refsivert
athæfi að valda hávaða við niður-
rif húsa og hjalla.
Þessar og fleiri undarlegar stað-
reyndir má finna í bók Steve
Wright’s Book of the Amazing hut
True (útgefandi Simon & Schust-
er), sem er nýkomin út í Bret-
landi. Bókin er sögð einkar hentug
fyrir þá sem vilja halda uppi
skemmtilegum samræðum á
mannamótum. ■
Morgunblaðið/Hildur
LITSTERK blóm setja svip sinn á garðinn umhverfis Pollok-húsið.
AUK eins besta safns spænskra
málverka í Bretlandi er fjöldi
bóka í Pollok-húsinu.
LISTAMENN spiluðu fyrir gesti
í Burrel-safninu, en þar má finna
um 8.000 listmuni.
GLASGOW og nágrenni býður ýmis:
legt annað en verslanir, þó að á
hveiju hausti sé mikið lagt upp úr
verslunarferðum þangað. Meðal þess
sem vert er að vekja athygli á eru
tvenns konar bílferðir undir heitinu
„Discovering Glasgow". Þær hefjast
báðar frá George Square
og liggur önnur leiðin um
sjálfa borgina en hin um
víðáttumeira svæði, meðal
annars að Burrel-safninu,
sem er til umræðu hér.
Þessi ferðamáti hefur
þann kost að vera ódýr og
miðinn gildir allan daginn,
þannig að hægt er að hoppa
af á þeim stöðum sem vekja
áhuga og taka síðan vagn-
inn aftur í næstu hringferð. Að mínu
mati er gott að taka einn dag í bæjar-
ferð og annan í „Parks Loop“ sem
kallað er, en miðinn gildir þó fyrir
báðar ferðimar ef þær eru farnar
samdægurs.
Gamlir listmunir
Á góðviðrisdegi er hægt að fara
út hjá Pollok-húsi sem er í Pollok
Country Park og ganga yfir í Burrel-
safnið skammt frá. Borgarysinn er
fjarri og engu er líkara en komið sé
langt út í sveit þó svo að aðeins
hafi verið ekið í 15-20 mínútur.
Pollok-húsið var ættarsetur Max-
well-fjölskyldunnar allt frá því á 14.
öld, að talið er, þrátt fyrir að núver-
andi hús hafí ekki verið byggt fyrr
en upp úr 1740. í húsinu er fjöldi list-
muna og nokkur ósnert herbergi, eins
og ijölskyldan bjó við á sínum tíma.
Árið 1966 gaf Anne Maxwell Mac-
donald Glasgow-borg húsið og 150
hektara lystigarð. Fjölskyldan átti
meðal annars eitt besta safn
spænskra málverka í Bretlandi, auk
flölda annarra merkra muna, sem eru
til sýnis.
Hægt er að ganga um garðinn
næst húsinu, þar sem fjölskrúðug
blóm mynda fallegt mynstur, en ef
tími er til er tilvalið að ganga eftir
stígum um stærra svæði lystigarðs-
ins.
Burrel-safnið
Á leið yfir í Burrel-safnið kom ég
auga á hina undarlegustu nautgripi
á beit, sem ég komst að síðar að
voru hálandanautgripir. Það kom á
óvart að þegar komið var að safninu
var það lokað því ég gekk út frá því
að samræmi væri á milli opnunartíma
þess og ferða vagsins. Biðin var á
hinn bóginn ekki löng, eða hálftími
og veðrið notalegt, svo ég beið róleg
fyrir utan ásamt nokkrum Japönum
og Bretum.
Forríkur skipaeigandi, Sir William
Burrel (1861-1958) og lafði Const-
ance Burrel gáfu Glasgowborg safn-
ið árið 1944. Listhúsið er mjög stórt
og má þar sjá rúmlega 8.000 list-
muni frá ýmsum tímabilum. Ótrúlegt
er að nánast einn maður hafi safnað
þeim öllum.
Sir William hóf ungur að kaupa
merk listaverk. Eyddi hann mestum
fjármunum í gríðarstór myndskreytt
veggteppi, sem unnin eru úr ull og
silki og segir hvert sína sögu. Að
auki eyddi hann háum fjár-
hæðum í málverk. Enn er
verið að kaupa muni á safn-
ið, til dæmis er skammt síð-
an merkileg skál frá Aust-
urlöndum bættist í safnið.
Listasafnið skiptist í hin-
ar ýmsu deildir og eiginlega
er nauðsynlegt að nýta sér
ferðir leiðsögumanna til
þess að fá söguna með.
Væri ráðlegt að kynna sér
fyrirfram á hvaða tímum leiðsögn er.
Listfyrir biinda
Athygli mína vöktu rauðir deplar
við sumar höggmyndir og fleiri list-
muni. Kom í ljós að blindir geta feng-
ið lánaðar segulbandsspólur sem
segja frá viðkomandi hlut. Er hinum
blinda leyft að snerta hlutina til að
skynja þá betur.
Það sem mér fannst setja punktinn
yfir i-ið við heimsókn í safnið var,
að þrír listamenn héldu tónleika í
anddyri hússins, þar sem þeir spiluðu
á hin ýmsu gömlu hljóðfæri. Þegar
þeir höfðu lokið tónleikunum tóku
aðrir listamenn við. Þarna var hægt
að sitja tímunum saman og hlusta á
tónlistina milli þess sem gengið var
um safnið.
Þess má geta að enginn aðgangs-
eyrir er hvorki að Burrel-safninu né
Pollok-húsinu. ■
Hildur Friðriksdóttir
r.r.i.i
iiiiMMMílMiö !»...>#
UM miðjan september gefst list-
áhugafólki kostur á ferð til Kaup-
mannahafnar með Samvinnuferð-
um-Landsýu þar sem áhersla
verður lögð á að njóta þeirra fjöl-
mörgu list- og menningarvið-
burða sem boðið er upp á helgina
15.-18. september.
Meðal þess sem um ræðir er
kvikmyndahátíðin Copenhagen
Film Festival Sam Francis sýning-
in í Louisiana og forsýning verka
vegna uppboðs á alþjóðlegri nú-
tímalist í Kunsthallen við Goth-
ersgade. Uppboðið fer fram dag-
ana 20. og 21. september og mun
Gaiierí Borg sjá um að bjóða í
Listáhuga-
ferð til
Kaupmanna-
hafnar
verk fyrir þátttakendur í ferð-
inni. í ferðinni verður ýmislegt
fleira á dagskrá, svo sem göngu-
ferð um Islendingaslóðir í Kaup-
mannahöfn. Þá mun gefast nægur
tími til þess að skoða hinar ýmsu
listsýningar í borginni.
I frétt frá Samvinnuferðum-
Landsýn kemur fram að verð á
mann í-tvíbýli er 37.810 krónur
auk flugvallarskattar sem er
2.100. Hér er miðað við stað-
greiðsluverð, alls 39.910 krónur,
en almennt verð er 41.900 með
flugvallarskatti. Aukagjald
vegna einbýlis er 6.650 staðgreitt,
en ella 7.000 krónur. Innifalið í
verði er flug, gisting með morg-
unverði, akstur til og frá
flugvelli og skattar, en ekki skoð-
unarferðir og sameiginlegur
kvöldverður sem er áætlaður eitt
kvöldið.