Morgunblaðið - 19.09.1995, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ
,8 B ÞRIÐJUDAGUR 19. SEPTEMBER 1995
KNATTSPYRNA
Morgunblaðið/Ásdís
MARGRÉT Ólafsdóttir fallur við í baráttu vlð Rússa. Hún
skoraðl mark íslands.
Stúlkurnar
fengu skell
FRAMMISTAÐA íslenska kvennalandsliðsins gegn Rússum á
Laugardalsvelli á sunnudaginn var hreint út sagt döpur og þó
að rússnesku stúlkurnar væru ekki að gera neina góða hluti
dugöi það til 1:4 sigurs. íslensku leikmennirnir voru margir
að spila stöður sem þeir leika ekki í með félagsliðum sínum
og voru eins og villuráfandi sauðir oft á tiðum.
Spilin verða
stokkuð upp
„VIÐ bytjum illa og þó að við
séum með vindinn i bakið fáum
við á okkur mark strax og kom-
umst aldrei almennilega inn i
leikinn eftir það,“ sagði Krist-
inn Bjðrnsson þjálfari eftir
leikinn. „Við spiluðum illa i
vðrninni og tókst illa að gœta
þeirra og þó að við værum að
skapa okkur færi, nýttust þau
ekki og í heild áttum við slakan
dag.“
Kristinn sagði að undirbún-
ingurinn hefði hvorki verið
verri né betri en veqjulega en
liðið hefði þurft fleiri leiki:
' „Við hefðum þurft einhverja
leiki til að slípa liðið en ég er
ekki ánægður með leikinn, upp-
stiUingin gekk heldur ekki upp,
ég átti ekki góðan dag og stelp-
urnar ekki heldur þó að ein-
staka hafi verið góð, svo sem
Ásthildur Helgadóttir og Mar-
grét Ólafsdóttir. Það er yóst
að riðiilinn er sterkur og fram-
haldið verður erfítt en spilin
verða stokkuð upp á nýtt, það
er 8r uggt. Það má einnig vera
að of mikillar bjartsýni hafí
gætt þjá okkur,“ sagði Kristinn
að lokum.
Alls ekki okk-
ar besta
„ÞETTA var mjög svekkjandi
og við náðum alls ekki að sýna
okkar besta,“ sagði Ásthildur
Helgadóttir. „Við ætluðum að
spila vel saman en vorum bara
stressaðar og alltaf að flýta
okkur svo að boltinn gekk ekki
vel á miili og við misstum bolt-
ann alltof mikið á hættusvæð-
unum. Við þorðum ekki að gera
það sem við erum að gera hér
heima í knattspymunniog við
þurfum að laga mikið. Ég hef
verið að spila frammi með tutt-
ugu ára og yngri iandsliðinu,
svo að það hefði ekki átt að
* breyta neinu. Nú verðum við
að taka okkur saman í andlit-
inu.“
Verðum að
rífa okkur upp
„VIÐ byijum leikinn nyög illa
og staðan orðin tvö mörk gegn
engu áður en við náum að
blikka augunum,“ sagði Vanda
Sigurgeirsdóttir fyrirliði lands-
liðsins. „Að vísu náðum við að
komast aðeins inn í ieikinn en
þetta var samt alls ekki nógu
gott og við verðum allar að rífa
okkur upp úr þessu, allar sem
ein. Við erum með gott lið, það
vitum við, en við verðum að
bæta okkur mikið frá þessu.
Það spilar inn í að þær voru
að vfsu heppnar f sóknum sín-
um þó að það sé engin afsökun
' á frammistöðu okkar.“
Fyrsta markið kom eftir eina
mínútu og 45 sekúndur og
íslendingamir, sem höfðu
byijað með stórsókn, voru alger-
_■■■■ lega slegnir út af
Stefán laginu. Eftir það
Stefánsson varð lítið um spil,
skrifár boltinn náði þó
stundum að ganga skemmtilega
á milli manna en það stóð stutt
yfir í hvert sinn. Svo kom annað
markið framhjá opinni vörninni
en eftir þokkalegan kafla er leið
að leikhléi náðu Islendingar að
minnka muninn.
Síðari hálfleikur byrjaði ágæt-
lega en fljótlega dofnaði baráttu-
neistinn og Rússar bættu við
marki. Eftir það varð sama logn-
mollan og andleysið og það kom
ekkert á óvart að Rússar bættu
við auðveldu marki, sem auðvelt
hefði verið að koma S veg fyrir.
Það var ótrúlegt að horfa upp
á algerlega andlausan og klaufa-
legan leikinn, því að stúlkurnar
hafa oft sýnt og sannað, bæði í
landsleikjum og deildarleikjum,
að þær geta miklu betur en þær
sýndu á sunnudaginn. Það er
spuming um hvort sú aðferð, að
láta leikmennina spila aðrar en
sínar venjulegu stöður í félagslið-
um sínum, hafi á.tt við.
Til dæmis var Ásthildur Helga-
dóttir, sem venjulega drífur áfram
miðjuspilið hjá Breiðabliki, sett
fremst á völlinn en var fljótlega
komin aftur til að ná í boltann
og þá var enginn frammi. Það
verður líka að skrifa tvö mörk
alfarið á Sigríði markvörð og
varla veijandi að gefa öðmm
markvörðum ekki tækifæri nú.
Margrét Ólafsdóttir, Ásthildur,
Helga Ósk Hannesdóttir og Sig-
rún Óttarsdóttir áttu þokkalega
kafla en í heild var liðið að spila
langt undir getu. Ef næstu Evr-
ópuleikir verða eitthvað í líkingu
við þetta, er svartnætti framund-
an.
Um rússneska liðið má segja
að það hafi komist skammlaust
frá leiknum, náði að spila saman
og gera það sem til þurfti en á
sæmilegum degi hefði það orðið
íslendingum auðveld bráð.
Oa 4 EFTIR tæpar tvær mínútur fengu Rússar boltann rétt utan
■ I vítateigs Íslendinga, sóknarmaður þeirra iék auðveldlega á
Sigríði F. Pálsdóttur sem var komin langt út úr markinu og renndi
boltanum síðan fyrir markið þar sem Rezeda Khalimdarova skoraði
í autt markið, enda Sigríður enn ekki komin úr „skógarferð" sinni.
0B^Á 27. mínútu léku rússnesku stúlkurnar í gegnuni flata
mmm'föm íslands og Natalía Barbachina skoraði auðveldlega
framhjá Sigríði markverði.
Ip^^Rétt fyrir leikhlé, á 44. mínútu, fengu íslendingar auka-
■ ■aspyrnu rétt utan vítateigs vinstra megin, nokkrum metrum
frá endalínu Rússanna. Sigrún Óttarsdóttir tók spymuna og sendi
boltann að nærstönginni þar sem Margrét Ólafsdóttir skallaði í
mark úr markteig.
1« 60< mínútu fékk Alexandra Svetlitskaja stungusendingu
■ Oupp vinstri kantinn, hún rakti boltann áfram inn í vítateig
og renndi síðan boltanum í fjærhomið rétt utan seilingar fyrir Sigríði
markvörð, sem lagðist niður.
Á 77. mínútu renndi Nadejda Bossikova sér léttilegá í
■ ■frgegnum vöm íslands. Vamarmennimir teygðu sig aðeins
að boltanum en ekki nóg og Bossikova skoraði auðveldlega.
Vfldngar
sluppu
fyrirhom
VÍKINGAR sýndu mikinn styrk
er þeir náðu að bjarga sér frá
falli á elleftu stundu gegn
Þrótti. Víkingar þurftu eitt stig
úr viðureigninni til að halda
sæti sfnu og það tókst og
lokatölurnar urðu 4:4. Þróttur
hafði yfirhöndina í leiknum
lengst af og komst í 2:4 þegar
um hálftími var eftir. En með
miklum viljastyrk náðu Víking-
ar að jafna þó svo að þeir
væru orðnir einum færri í lok-
in.
Leikurinn var mjög hraður og
fjörugur þrátt fyrir frekar
leiðinlegt knattspymuveður.
Þróttarar náðu forystunni á upp-
^■■■■i hafsmínútum leiks
ValurB. með marki fyrirlið-
Jónatansson ans óskars Oskars-
sknfar . , ,, „
son af stuttu fæn.
Víkingar jöfnuðu með skalla-
marki Marteins Guðgeirssonar,
fyrirliða, eftir hornspyrnu Sigurð-
ar Ómarssonar. Á næstu átta
mínútum bættu Þróttarar við
tveimur mörkum. Fyrst skoraði
Heiðar Bjamason með þrumu-
skoti frá vítateig eftir homspymu
og síðan Óskar sitt annað mark
eftir hræðileg mistök markvarðar
Víkings sem sendi beint á hann
úr útsparki. En Víkingar náðu að
klóra í bakkann fyrir hálfleik og
var það algjör endurtekning á
fyrra markinu þeirra — horn-
spyrna frá Sigurði sem Marteinn
skallaði í markið.
Það blés ekki byrlega fyrir Vík-
ingum í upphafi síðari hálfleiks
því Heiðar Siguijónsson kom
Þrótti í 2:4 eftir laglegan undir-
búning Óskars þegar hálftími var
til leiksloka. Á þessum tíma-
punkti voru flestir farnir að af-
skrifa Víkinga því fréttir bámst
af því að HK væri yfir gegn Víði
í Garðinum.
Víkingar neituðu að gefast upp
og náðu að minnka muninn í 3:4
þegar 27 mínútur voru til leiks-
loka og var þar að verki Arnar
Hrafn Jóhannsson sem hafði kom-
ið inn á sem varamaður aðeins
tveimur mínútum áður. Markið
kom eftir homspyumu og mikinn
darraðardans í vítateig Þróttar.
Nokkrum mínútum síðar fékk
Víkingurinn Þrándur Sigurðsson
að líta rauða spjaldið fyrir að
hindra Heiðar Sigurjónsson sem
var kominn einn innfyrir vörnina.
Víkingar efldust við mótlætið og
uppskám jöfnunarmarkið er fimm
mínútur vom til leiksloka. Brotið
var klaufalega á Siguijóni Kristj-
ánssyni innan vítateigs og dæmd
vítaspyrna. Úr henni skoraði Mar-
teinn Guðgeirsson af öryggi og
innsiglaði þrennu sína í leiknum
og áframhaldandi veru Víkinga í
2. deild.
Eins og áður segir var leikurinn
bráðskemmtilegur og hraður.
Marteinn Guðgeirsson og Sigurð-
ur Ómarsson vom bestu leikmenn
Víkings, en hjá Þrótti vom Óskar
og Sigfús Kárason sprækastir.
Pétur Pétursson, þjálfari Vík-
ings, var ánægður í leikslok.
„Þetta var þvílík spenna að ég
gat varla haldið aftur af mér,
enda var ég nokkrum sinnum
kominn inn á völlinn án þess að
gera mér grein fyrir því. Ég er
stoltur af strákunum. Þeir sýndu
mikinn styrk og áttu þetta svo
sannarlega skilið miðað við allt
sem á undan er gengið í sumar,“
sagði Pétur.
Marteinn Guðgeirsson, fyrirliði
og hetja Víkinga, sagði að liðið
hafi sýnt það í þessum leik að það
búi yfir miklum „karakter". Það
var hreint frábært að koma alltaf
til baka og jafnvel þótt við værum
einum færri braut það okkur ekki
niður, heldur þjappaði okkur enn
meira saman. Við ætluðum okkur
annað stigið og það tókst. En ég
var orðinn svolítið hræddur í stöð-
unni 2:4,“ sagði fyrirliðinn.
Kveðjuleikur
Lið HK sigraði Víði 2-1 á Garðs-
velli í lokaumferð annarrar
deildar karla í knattspymu á laugar-
dag. Það dugði félag-
Gunnar eWd til áfram-
Guðmundsson haldandi vem í ann-
skrífar arri deild og þar með
lauk stuttri viðvera
beggja liðanna í deildinni, Víðir
komst upp á síðasta tímabili en HK
ári áður. Leikurinn var því kveðju-
leikur þeirra að sinni.
„Ég er ánægður með mína menn,
þeir gerðu það sem gera þurfti og
áttu skilið að vinna í þessum leik“,
sagði Ómar Jóhannsson þjálfari HK
eftir leikinn. Hann gat hins vegar
ekki leynt vonbrigðum sínum með
fallið: „Við byijuðum skelfilega, vor-
um ekki komnir með stig eftir fjórar
umferðir og það er það sem við eram
að súpa seyðið af núna. Við höfum
verið sjálfum okkur verstir í þessu,
verið að tapa leikjum á síðustu mín-
útunum og gefa þetta frá okkur“.
Leikurinn í Garðinum var ekki
mikið fyrir augað, enda vallar- og
veðurskilyrði ekki til þess fallin að
leika knattspyrnu. HK-ingar fengu
óskabyijun er þeir skoruðu fyrsta
mark leiksins eftir aðeins þijár mín-
útur. Þar var á ferðinni markahrókur
þeirra HK manna, Sindri Grétarsson,
sem renndi knettinum í netið af
stuttu færi eftir fyrirgjöf Orra Bald-
urssonar. Eftir markið var HK sterk-
ari aðilinn, án þess þó að skapa sér
umtalsverð tækifæri.
Víðismenn náðu hinsvegar að
jafna leikinn á 22 mín., þegar Ólafur
Jónsson skallaði knöttinn í netið eft-
ir hornspymu Daníels Einarssonar.
Tíu mínútum fyrir leikhlé náði HK
aftur yfirhöndinni þegar Orri Bald-
ursson þramaði knettinum í netið af
markteig eftir aukaspymu Huga
Sævarssonar.
Fátt markvert gerðist í seinni hálf-
leik, gestimir spiluðu sterka vöm og
gáfu heimamönnum fá tækifæri á
að jafna leikinn, en það fór lítið fyr-
ir þeirri baráttu sem jafnan hefur
einkennt Víðisliðið. „Það era náttúr-
lega mikil vonbrigði að fara niður
aftur. Við erum búnir að fá sjö leiki
til að bjarga okkur, en eram einfald-
lega ekki nógu góðir. Þegar menn
ná ekki í fleiri stig á liðið ekkert
annað skilið en að falla", sagði Njáll
Eiðsson þjálfari Víðis að leik loknum.