Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 C 5
LAUGARDAGUR 7/10
MYIMDBÖND
Sæbjörn Valdlmarsson
CLAIMCY OG
KJARIMORKU-
VOPIMIIM
SPENNUMYND
OP stöðin (OP Centre) k -k
Leikstjóri Lewis Teague. Hand-
rit byggt á skáldsögu Toms
Clancy. Aðaileikendur Harry
Hamlin, Carl Weathers, Kim
Cattrall, Lindsey Frost, David
Garrison, Bo Hopkins, John
Savage, Rod Steiger, Wilford
Brimley. Bandarisk kapalmynd.
New World 1995.114 mín. Ald-
urstakmark 12 ára.
fÉEM m IISI5EUISÍ WKM SF 'StUí tSÍ FtESEIT 8*1«
'Kni cÍSS'm iií im fit tii liijiií'
%
immima.
t WlíiaBIi!) ,K't£!
Tom Clancy gerir það gott, allt sem
maðurinn skrifar breytist í gull. OP
Centre virðist þó skorta talsvert
uppá töfrana. Eins og gaman er
að sjá hin óvæntustu andlit „dúkka
upp“ í aukahlutverkunum, menn
einsog John Savage, Wilford Briml-
ey og Bo Hopkins (mann var farið
að gruna að þeir væru allir komnir
yfir móðuna). Þetta er nú ekki mik-
ið meira en forvitnilegar væntingar.
Bókin er að öllum líkindum ein sú
slakasta frá Clancy-verksmiðjunni
og Harry Hamlin ætti að vera nafn
sem allir siðavandir leikstjórar ætu
að forðast einsog pestina. OP stöðin
er bandarískt hernaðarleýndarmál
sem blandast inní átök stórveld-
anna.
Hvernig í ósköpunum má það
vera að Clancy, sem skrifaði þann
ágæta þriller The Hunt For Red
October og uppáhaldið mitt, Clear
and Present Danger, er orðaður við
þessa engan veginn meðalsögu sem
aukinheldur er slælega gerð, sem
kemur á óvart því leikstjórinn er
flinkur og á að baki Cujo, eina best
gerðu mynd byggða á sögu eftir
Stephen King frá upphafi. Brimley,
Savage og Steiger eru menn sem
ég hélt að enginn óbijálaður maður
mundi setja saman á kreditlista.
Sjón er sögu ríkari. Og Hamlin á
toppnum. Otrúlegt en satt.
VÍTI FORTÍÐAR
DRAMA
Dauðinn ogstúlkan (Death and
theMaiden) kkk
Leikstjóri Roman Polanski. Aðal-
leikendur Sigorney Waeaver,
Ben Kingsley, Stuart Wilson.
Bandarísk. Capitol Films 1994.
100 mín. Aiaurstakmark lö ára.
Mörgum árum eftir að Sigourney
Weaver sló eftirminnilega í gergn
í Aliens kemur hún svona eldsterk
í einni bestu mynd Polanskis um
árabil. Dauðinn og stúlkan vakti
mikla athygli þegar verkið var sett
upp á Broadway með stórkostlegu
leikaravali. Bakgrunnurinn er ríki
í Suður-Ameríku. Örlögin haga því
svo til að böðull lendir í höndum
konu sem hann misþyrmti á árum
áður.
Hvað er rétt, hvað er rangt?
Myndin vekur erfiðar spurningar
sem koma beint framan í áhorfand-
ann. Hver er sekur, hver er sektin?
Aðstæðurnar verða seint dregnar
fyrir dóm. Það er ekki á hvers
manns valdi að gera bíómynd um
lokað leikhúsverk einsog Dauðinn
og stúlkan, hér er Polanski réttur
maður sem gerir flest rétt.'ef undan
er skilinn Stuart Wilson sem tekst
ekki að skapa þriðju hliðina á sög-
unni. Weaver og Kingsley standa
sig því betur. Reyndar gewtur
Kingsley skotið öllum Hollywood-
leikurum ref fyrir ras. Ef hann fær
tækifæri tl þess
IMOKKUÐ
SKONDIÐ
SKÓGARDÝR
FJÖLSKYLDUEFNI
Skógardýrið Húgó kk
Leikstjóri (íslenskrar útgáfu Ág-
úst Guðmundsson. Leikraddir
Edda Heiðrún Backman, Jó-
hanna Jónas, Magnús Ólafsson,
o. fl. gott fólk. Dönsk. Háskóla-
bíó 1994. 71 mín. Öllum leyfð.
Zik og Zak eru, einsog skógar-
dýrið Húgó, Skandínavískt að upp-
runa, sem telst ekki góður kostur
meðal teiknifígúra kvikmynda-
heimsins. Ungmennum þarf þó ekki
að leiðast yfir sýningunni (maður
tali nú ekki um ef þau eru óvitar).
Teikningarnar standa undir sínu en
tónlistin er veikasti hlekurinn í sí-
gildri sögu af þessum fjárans illu
öflum - og þeim góðu.
Svellkaldur í 65 ár
BÍÓMYNDBÖND
Sæbjörn Valdlmarsson
Höfuð uppúr vatni (En haus over
sjöen) k.
Ef þetta er framtíð skandínavískrar
kvikyndagerðar þá hjálpi oss allir
heilagir... Jafnvel Krummi.
Það var búið að lofa þessa norsku
mynd í hástert svo væntingar voru
miklar. Leikstjórnin er á köflum
ágæt, söguþráðurinn lengst af góð-
ur, úthaldið vantar og þegar upp
er staðið er þetta engan veginn
eftirminnilegt.
EGYPTINN Omar Sharif
fékk margt góðra gjafa á
fimmtán ára afmæli sínu,
bæði sportbíl og heilmikið af
hollráðum, sem hann hefur
reynt að fylgja af fremsta
megni síðastliðin fimmtíu ár.
Mælti karl faðir Sharifs með-
al annars með því á afmælis-
daginn að drengurinn, þá
þekktari sem Michael Shalo-
ub, drykki sem mest og eltist
við sem flestar konur. Sharif
lét ekki segja sér það tvisvar
enda yrði engin Ian Fleming
sögupersóna svikin af lífs-
hlaupi hans.
Frægðin náði hámarki á
sjöunda áratugnum og þótti
Sharif í engu gefa Rudolf
Valentino eftir með hátterni
sínu og vinsældum hjá kven-
þjóðinni. Mjúki maðurinn svo-
kallaði hefur ekki freistað
hans til eftirbreytni að ráði
enda á Sharif að hafa sagt
að konur væru ágætar til ásta
en dygðu skammt sem bæri-
legur félagsskapur.
Einnig er hermt að lionum
hafi næstum tekist að egna
ísraela til styrjaldar við
araba öðru sinni þegar hann
kyssti Barböru Streisand í
kvikmyndinni Funny Girl á
sínum tíma.
Sharif hefur sýnt á sér
margar hliðar, nærtæk dæmi
eru Zhivago læknir og Che
Guevara en eftirminnilegast-
ur er hann þó í Arabíu Lawr-
ence Davids Lean, einkum
þar sem hann birtist úti við
sjónarrönd, svartklæddur,
ógreinilegur í tíbránni en
svellkaldasti sheik tjaldsins
til þessa. Omar Sharif verður
í einu aðalhlutverkanna í
sjónvarpsmynd um Katrínu
miklu af Rússlandi sem Sjón-
varpið sýnir um helgina.
UTVARP
RÁS 1
FM 92,4/93,5
6.45 V*6urfr«gnir.
6.45 Veðurfregnir.
6.50 Bæn. Snemma á laugar-
dagsmorgni Þulur velur og
kynnir tónlist.
9.03 Út um græna grundu. Þátt-
ur um náttúruna, umhverfið og
ferðamál. Umsjón: Steinunn
Harðardóttir.
10.03 Veðurfregnir.
10.15 Með morgunkaffinu.
— Leikfangabúðin ævintýralega
eftir Rossini i útsetningu Ottor-
inos Respighis. Saint Martin in
the Fields sveitin leikur; Sir
Neville Marriner stjórnar
— Barnalög frá ýmsum löndum.
Hilde Giiden syngur með hljóm-
sveit Þjóðaróperunnar í Vín;
Georg Fisher stjórnar
— Nótt á nornagnípu eftir Modest
Mussorgskij Fílharmoníusveitin
í Ósló leikur; Mariss Jansons
stjórnar
11.00 í vikulokin. Umsjón: Þröstur
Haraldsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dag-
skrá laugardagsins.
12.45 Veðurfregnir og auglýsingar.
13.00 Fréttaauki á laugardegi.
14.00 NordSol 1995. Tónlistar-
keppni Norðurlanda Bein út-
sending frá úrslitakeppninni í
Háskólabfói. Sinfóníuhljómsveit
íslands leikur undir stjórn Osmo
Vánská, ásamt tveim einleikur-
um sem keppa til úrslita. Um-
Rás 1 kl. 11.00. í vikulokln.
Umijón: Þröstur Haraldssan.
sjón: Guðmundur Emilsson.
16.05 Björn á Reynivöllum. Þór-
bergur Þórðarson rithöfundur
segir frá.
16.35 Ný tónlistárhljóðrit Rfkisút-
varpsins. Hátíðarbrot frá RúRek
95. Kynnir: Vernharður Linnet.
Umsjón: Guðmundur Emilsson.
17.10 „Velferð komandi kynslóða."
Frá málþingi samstarfshóps Jap-
ana og Islendinga um framtíðar-
rannsóknir. Umsjón: Ævar
Kjartansson.
18.00 Heimur harmóníkunnar Um-
sjón: Reynir Jónasson. (End-
urflutt nk. föstudagskvöld kl.
21.15)
18.48 Dánarfregnir og auglýsingar.
19.30 Auglýsingar og veðurfregnir.
19.40 Óperukvöld Útvarpsins. Bein
útsending frá Finnsku óperunni
í Helsinki. Á efnisskrá: Syngj-
andi tréð, ópera eftir Erik Berg-
man Kóngurinn: Peter Lindroos
Nornin: Eeva-Karina Vilke
Prinsessan: Kaisa Hannula Hatti
prins: Petteri Salomaa Fíflið:
Sauli Tiilikainen Fyrsta prins-
essa: Anna-Lisa Jacobson Onnur
prinsessa: Marianne Haiju Kór
og hljómsveit Finnsku óperunn-
ar; Ulf Söderblom stjórnar. Þessi
ópera hreppti Tónlistarverðlaun
Norðurlandaráðs i fyrra og var
frumflutt í Helsinki 3. september
stðastliðinn. Umsjón: Ingveldur
G. Ólafsdóttir.
22.10 Veðurfregnir. Orð kvöldsins:
Guðrún Edda Gunnarsdóttir flyt-
ur.
22.30 Langt yfir skammt. Jón Karl
Heigason gluggar í Bergþórs-
sögu Siguijóns Péturssonar á
Álafossi. Lesari: Sigurður Val-
geirsson. (Áður á dagskrá 1.
ágúst sl.)
23.00 Dustað af dansskónum.
0.10 Um lágnættið.
— Strengjakvartett í F-dúr eftir
Maurice Ravei. Talich kvartett-
inn leikur.
— Children’s Corner eftir Claude
Debussy útsett fyrir sinfóníu-
hljómsveit af André Caplet. Rfk-
ishljómsveitin í Reihnland-Pfalz
leikur; Leif Segerstam stjórnar.
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns Veðurspá.
Fréttir á Rús I og Rús 2 kl. 7, 8,
9, 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24.
RÁS 2
FM 90,1/99,9
8.07 Morguntónar fyrir yngstu
börnin. 9.03 Laugardagslíf. Úm-
sjón: Hrafnhildur Halldórsdóttir.
13.00 Á mörkunum. Hjörtur Hows-
er. 14.00 Heimsendir. Umsjón: Jón
Gnarr og Siguijón Kjartansson.
16.05 Rokkland. Umsjón: Ólafur
Páll Gunnarsson. 17.00 Með grátt
i vöngum. Umsjón: Gestur Einar
Jónasson. 19.30 Veðurfréttir.
19.40 Milli steins og sleggju 20.30
Vinsældalisti götunnar. Umsjón:
Ólafur Páll Gunnarsson. 22.10 Veð-
urfregnir. 22.15 Næturvakt Rásar
2. Umsjón: Guðni Már Hennings-
son. 0.10 Næturvakt Rásar 2 held-
ur áfram. 1.00 Næturútvarp á sam-
tengdum rásum til morguns. Veð-
urspá kl. 1.
NffTURÚTVARPIB
2.00 Fréttir. 4.30 Veðurfréttir.
5.00 og 6.00 Fréttir og fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum.
ADALSTÖDIN
90,9/ 103,2
9.00 Inga Rún. 12.00 Gurrf. 15.00
Enski boltinn. 17.00 Hipp og Bítl.
19.00 Daniel Freyr. 22.00 Nætur-
vaktin. 3.00 Tónlistardeild.
BYLGJAN
FM 98,9
9.00 Morgunútvarp. Eiríkur Jóns-
son og Sigurður Hall. 12.10 Laug-
ardagsfléttan. Erla Friðgeirs og
Halldór Backman. 16.00 íslenski
listinn. Jón Axel Ólafsson. 19.19
19:19. 20.00 Laugardagskvöld.
Ragnar Páll. 3.00 Næturvaktin.
Frittlr kl. 10, 12, 15, 17 ug 19.30.
BYLGJAN, ÍSAFIRDI
FM 97,9
9.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9.
20.00 Tveir tæpir. Víðir Arnarson
og Rúnar Rafnsson. 23.00 Gunnar
Atli með næturvakt. Síminn í hljóð-
stofu 93-5211. 2.00 Samtengt
Bylgjunni FM 98.9.
BROSID
FM 96,7
10.00 Þorleifur Ásgeirsson. 13.00
Ágúst Magnússon. 16.00 Lára
Yngvadóttir. 18.00 Baldur Guð-
munds8on. 20.00 Baldur Guð-
mundsson. 20.00 Ingólfur Arnar-
son. 23.00 Næturkvaktin. 3.00
Ókynnt tónlist.
FM 957
FM 95,7
10.00 Sportpakkinn. Hafþór Svein-
jónsson og Jóhann Jóhannsson.
13.00 Björn Róbertsson. 16.00 Pét-
ur Valgeirsson. 19.00 Jón Gunnar
Geirdal. 22.00 Pétur Rúnar, Björn
Markús. 23.00 Mixið. 1.00 Björn,
Pétur. 4.00 Næturdagskrá.
KLASSÍK
FM 106,8
12.00 Blönduð tónlist. 16.00
Óperukynning. Randver Þorláks-
son, Hinrik Ólafsson. 18.30 Blönd-
uð tónlist.
LINDIN
FM 102,9
8.00 Morguntónar. 11.00 Á laugar-
dagsmorgni. 13.00 Ókynnt tónlist.
16.00 íslenski kristilegi listinn
I (endurfluttur). 18.00 Ókynnt tón-
list. 20.00 Laugardags vaktin.
23.00 Næturvaktin.
SÍGILT-FM
FM 94,3
8.00 Ljúfir tónar. 12.00 Kvik-
myndatónlist. 13.00 Á léttum nót-
um. 17.00 Sígildir tónar. 19.00 Við
kvöldverðarborðið. 21.00 Á danss-
kónum. 24.00 Næturtónar.
TOP-BYLGJAN
FM 100,9
7.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM
98,9. 10.00 Svæðisútvarp TOP-
Bylgjan. 11.00 Samtengt Bylgjunni
FM 98,9.
X-ID
FM 97,7
10.00 Örvar Geir og Þórður Örn.
12.00 Með sítt að aftan. 14.00 X-
Dómlnóslistinn. 17.00Þossi. 19.00
Party Zone. 22.00 Næturvakt.3.00
Næturdagskrá.