Morgunblaðið - 21.10.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.10.1995, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Tónlistarhátíðin Norðurljós hefst á morgun Ný endurreisn Tónlistarhátíðin Norðurljós hefst með tónleikum í Háteigs- kirkju á morgun kl. 17. Þar koma fram Camilla Söderberg blokkflautuleikari, Sarah Buck- ley víóluleikari og Martial Nardeau þverflautuleikari. Það er tónlistarhópurinn Musica Antiqua sem stendur fyrir há- tíðinni í samvinnu við Ríkisút- varpið en á henni verður lögð áhersla á tónlist frá miðöldum fram að klassískum tíma. Sverrir Guðjónsson söngvari er einn meðlima tónlistarhóps- ins. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að undirbúning- ur hátíðarinnar hefði staðið lengi en stefnt er að því að hún verði fastur viðburður á þess- um árstíma. Á tónleikunum núna erum við einkum með verk frá bar- okktímanum og endurreisn," sagði Sverrir. Hann sagði að töluvert væri gert af því í dag að flytja gamla tónlist með upp- runalegum hljóðfærum og það myndu þau einnig kappkosta að gera. Musica Antiqua hópurinn hefur hingað til einbeitt sér að tónlist frá endurreisn og bar- okktímanum en er að færa út kvíarnar með þessari hátíð þar sem teygt verður á tímanum í báðar áttir, að sögn Sverris. Fleira til en Mozart Mikill áhugi hefur vaknað á gamalli tóniist á undanförnum árum og hafa þá sumartónleik- arnir í Skálholti skipað stóran sess með áhersiu á barokktón- list. „Það virðist vera einhver vakning í gangi og það virkar þannig á mig að það sé ákveðin endurskoðun á döfinni. Við erum að færast inn í nýja öld og þá er fólki tamt að líta um öxl. Mér finnst eins og það sem er að gerast í tónlistarheimin- um í dag sé einskon- ar ný endurreisn og fólk lítur bæði aftur fyrir sig og fram á veginn í sama mund.“ Aðspurður um hvort hann haldi að fólki finnist kominn tími til að hvíla Mozart, Beethoven og fleiri, sem hafa verið mikið leiknir á þessari öld, sagð- ist hann halda að fólk væri að vakna til vitundar um að það sé svo margt annað til. „Klass- íska tímanum hefur verið haldið mjög á lofti og mikið er til af upptökum af efni frá þeim tíma, en af því ráðast vinsældir oft. Nú er sí- fellt að aukast framboð á gam- alli tónlist á geisladiskum og það hefur sitt að segja,“ sagði Sverrir. Munkasöngur hefur verið vinsæll upp á síðkastið og blaðamaður spyr hvort hópur- inn hafi hug á að flytja slíkt efni. „Á þessari hátíð munum við flytja það sem við höfum verið að fást við og erum að fást við en í framtíðinni sjáum við fyrir okkur að fitja upp á ýmsum hlutum sem ekki hafa verið mikið fluttir hér.“ Hátíðin er haldin í samvinnu við Ríkisútvarpið sem mun styðja við bakið á hátíðinni og hljóðrita tónleikana. Fyrstu tónleikarnir verða eins og áður sagði í Háteigs- kirkju á morgun, aðrir tónleik- arnir í Kristskirkju 29. október og þriðju og síðustu tónleikarn- ir 30. október í Þjóðminjasafn- inu en þar mun Sverrir koma fram ásamt Guðrúnu Óskars- dóttur semballeikara og Snorra Erni Snorrasyni lútuleikara. Sverrir Snorri Guðjónsson Örn Snorrason Nýr bókmennta- gagnrýnandi ÞRÖSTUR Helga- son hefur verið ráðinn nýr bókmenntagagn- rýnandi Morgunblaðs- ins. Þröstur er fæddur 1967. Hann lauk B.A- prófi í íslensku frá Háskóla íslands 1991 og MA-prófi í íslensk- um bókmenntum frá sama skóla 1994. Rit- gerð hans nefnist Til- urð höfundarins. Efl- ing sjálfsverunnar á 18. og 19. öld í ljósi íslenskrar skáldskaparfræði. Hann starfaði á Bókmennta- fræðistofnun Háskóla íslands árið 1993, vann þar við nýtt uppfletti- rit um íslenskar bókmenntir. Þröstur hefur ijallað um bók- menntir í blöðum og útvarpi. Hann hefur einnig haldið fyrir- lestra um íslenskar bókmenntir hér heima og erlendis. Hann var gagnrýnandi Dags- ljóss RÚV veturinn 1994-95. Þröstur hefur verið blaðamaður á Morg- unblaðinu frá því í maí á þessu ári. Sambýlis- kona hans er Eygló Björk Ólafsdóttir við- skiptafræðingur. Þröstur hefur starf sitt sem bókmenntagagnrýnandi blaðsins með því að skrifa um skáldsöguna Hraunfólkið eftir Björn Th. Björnsson. Ritdómurinn birtist á bls 7 í menningarblaðinu í dag. Bókastefnan í Frankfurt Peter Hoeg Jostein Gaarder Halldór Guðmundsson Ólafur Ragnarsson Leitin að þriðja manninum Abókastefnunni í Frankfurt, þeirri 47. í röð- inni, var mikið talað um norræna bylgju eða norræna inn- rás. Norðurlandahöfundar vöktu töluverða athygli. Tveir þeirra eru nú metsöluhöfundar í Þýskalandi, þeir Peter Hoeg frá Danmörku, höfundur Lesið í snjóinn, og Norð- maðurinn Jostein Gaarder með Veröld Soffíu. Gaarder var á stefn- unni jafnan umkringdur blaða- mönnum og sjónvarpsmönnum. Norræna bylgjan Halldór Guðmundsson útgáfu- stjóri Máls og menningar sagði norrænu bylgjuna staðreynd og nú væri verulegur áhugi hjá þýskum útgefendum á bókmenntum Norð- urlandaþjóða. Hann þakkaði þetta ekki síst framgangi Heegs og Ga- arders. Fyrir sjö til átta árum sagði hann að áhuginn hefði aðeins ver- ið fyrir hendi hjá fáeimgn hug- sjónamönnum. Nú spyrðu stóru forlögin tíðinda frá íslandi. Vegna mikils áhuga, sérstak- lega í Þýskalandi (sá áhugi byggir reyndar á gömlum grunni eins og Halldór benti á), kvaðst Halldór telja það klúður og skammsýni ef Norðurlandaráð léti það tækifæri glutrast niður að norrænar þjóðir yrðu í brennidepli á bókastefn- unni, eins og þær eiga kost á og mikið var rætt um í fyrra. M væri hreyfing í þessum efnum og greinileg markaðssveifla sem þyrfti að nýta. Meðal þjóða sem telja sig hafa grætt á „brennideplinum" eru Hol- lendingar sem voru í önd- vegi í hittifyrra. Næst verða það írar. Gulleyjan eftir Einar Kára- son kom út í Þýskalandi í sumar og hlaut mjög lofsamlega dóma. Meðal höfunda sem Mál og menn- ing gefur út og eru væntanlegir á þýsku á næsta ári eru Einar Már Guðmundsson (Englar alheimsins) og Gyrðir Elíasson (Svefnhjólið). Halldór Guðmundsson sagðist hafa orðið var við að Bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs hefðu áhrif út fyrir Norðurlönd. íslenskir höfundar væru orðnir vel kunnir á Norðurlöndum, en nú færðist áhugi á þeim sunnar í álfuna. Hann nefndi Frakkland og Spán í því sambandi, gerður hefði verið samningur á bókastefnunni um útgáfu Engla alheimsins í Frakk- landi og vel horfði með útgáfu á Spáni. Halldór Guðmundsson gat að lokum sérstaklega áhuga Hol- lendinga á íslenskum bókmennt- um. Hollenska forlagið, De bezige bis, gefur út á næsta ári verk eft- ir Einar Kárason og Einar Má Guðmundsson. Sama forlag gengst fyrir norrænni bókmenntahátíð á Hollandi á næsta ári og býður þangað tveim höfundum frá hveiju Norðurlanda. Að mati Halldórs Bókastefnunni miklu í Frankfurt lauk á mánudaginn. Jóhann Hjálmarsson var á stefnunni og fylgdist með norrænni innrás í Þýskaland og ræddi við höfunda, útgefendur og gagnrýnendur. Guðmundssonar hefur orðstír Bók- menntahátíðinnnar á íslandi borist víða og hún hefur átt þátt í vel- gengni íslenskra rithöfunda. „Við erum ekki utanveltu," sagði Halldór. BÆKUR komast með ýmsum hætti inn á Bókastefnuna í Frankfurt. Þriðji maðurinn í sama streng og Halldór tók Ólafur Ragnarsson, forstjóri Vöku- Helgafells. Hann sagði að útgef- endur á stefnunni væru bjartsýnir og töluðu um uppsveiflu. Eftir að áhugi hefði minnkað á bókmennt- um frá Suður-Ameríku væri aug- ljóst að athyglin beindist að Norð- urlöndum og menn biðu í ofvæni eftir þriðja manninum, norrænum höfundi sem gæti fyllt flokk ílaegs og Gaarders. Ólafur sagði að áhugi á skáld- sögum og fagurbókmenntum yfir- leitt næði líka til barna- og ungl- ingabóka. Sjálfur legði hann áhersiu á verk barnabókahöfunda með því að kynna Guðrúnu Helga- dóttur og höfunda sem fengið hafa íslensku barnabókaverðlaunin. Hann væri með átak um að koma þeim á framfæri. Halldór Laxness og Ólafur Jó- hann Ólafsson voru sem áður í forystu hjá Vöku-Helgafelli. Ólaf- ur Ragnarsson orðaði þetta þannig að annars vegar væru bókmenntir fyrir börn og fullorðna, hins vegar flokkur matreiðslubóka sem mælst hefði afar vel fyrir, enda væru js- lenskar uppskriftir alþjóðlegar. ís- land væri deigla sem ynni úr al- þjóðlegri matargerð og sama mætti að vissu marki segja um fagurbókmenntirnar. Endurskoðaðar og nýjar þýðing- ar á verkum eftir Halldór Laxness halda áfram að koma út í Þýska- landi. Fyrirgefning syndanna eftir Ólaf Jóhann Ólafsson kom út í þýskri þýðingu í sumar, en dómar hafa enn ekki birst. Á Englandi var skáldsögunni vel tekið, en þar heitir höfundurinn Olaf Ólafson. Útgáfuréttur á Benjamín dúfu, skáldsögu Friðriks Erlingssonar, hefur verið seldur til Dan- merkur, Finnlands, Svíþjóðar og Ítalíu. Gegnum þyrni- gerðið eftir Iðunni Steins- dóttur hefur komið út í Þýskalandi. Ólafur sagðist hafa orð- ið var við áhuga á bókum Elíasar Snælands Jónssonar hjá útgefendum, hið ævintýralega í bókum hans og íslensk náttúra höfðaði meðal annars til Þjóðveija. Athyglisvert var það sem kom fram hjá Ólafi Ragnarssyni að sí- vaxandi margmiðlun sem setti svip á bókastefnuna væri ekki ógn held- ur viðbót. Ólafur sagði að bóka- stefnan speglaði breytingar í margmiðlun og fjölmiðlun yfirleitt, en hefðbundnar bækur væru ekki látnar gjalda þess, gróskan væri mikil í bókaútgáfu. Sagan Norski gagnrýnandinn, Kjell Olaf Jensen, sagðist finna norræna bylgju á bókastefn- unni. Hann nefndi höfunda eins og Svíana Torgny Lindgren og Per Olav Enquist og landa sinn Kjell Askildsen sem væru ekki síður merkir og að sínum dómi meiri höfundar en þeir sem mest er hald- ið fram. „Kjell Askildsen kemur út í Frakklandi bráðlega og vegur hans vex“, sagði Jensen, „en hann verður aldrei metsöluhöfundur." (Því má bæta við að nýlega er komið út eftir hann smásagnasafn hér heima: Síðustu minnisblöð Tómasar F. fyrir almennings sjón- ir). Torgny Lindgren er mjög mik- ils metinn í Þýskalandi og víðar og gæti hafnað á tindinum með þeim Hoeg og Gaarder því að, eins og Kjell Olaf Jensen orðar það, „hefur hann hið epíska sem fólk sækist eftir, SÖGUNA.“ Kjell Olaf Jensen er ekki jafn hrifinn af landa sínum, Erik Fos- nes Hansen, sem lét sig ekki vanta á bókastefnuna enda kunnur í Þýskalandi og hefur verið á met- sölulistum þar. Bók hans um nokkra félaga í hljómsveit skipsins Titanics, Sálmur að leiðarlokum, var mjög rómuð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.