Morgunblaðið - 21.10.1995, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.10.1995, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 C 3 MEÐ einlægri vinsemd má breyta öllu til betri vegar og meira að segja ræningjar geta orðið heiðarlegt fólk. Enginn er bara hetja og eng- inn er bara óþokki, og allir verða að fá að vera svolítið öðruvísi en aðr- ir . . . Umburðarlyndi í sinni einföldustu mynd.“ Þessi orð er að finna í formála rithöfundar- ins ástsæla Thorbjörns Egner að leikritinu Kardemommubænum sem verður frumsýnt í fímmta sinn á Stóra sviði Þjóðleikhússins í dag kl.13. Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri segir að boðskapur verksins felist í hnotskum í orðum Egners. Kardemommubærinn sé öðru fremur kærleiksrík sköpun. „Þessi heimur, Kar- demmommubærinn, er svo fullur af kærleika að það flóir yfír alla barma. Ræningjamir ræna ekki af illsku heldur af nauðsyn og þótt Soffía sé skapvond er ekki í henni slæmur þráður. í Kardemommubæ hafa allir kærleik- ann að leiðarljósi.“ Leikstjórinn segir ennfremur að Kar- demommubærinn sé dæmi um nánast fullkom- ið verk fyrir börn. „Það er allt í þessu upp- byggilega verki sem er að mínu mati mjög hollt veganesti fyrir börn. Færi betur ef allt barnaefni hefði jafnkærleiksríkan boðskap." Vinsæll höfundur Norðmanninn Thorbjöm Egner þarf vart að kynna en fáir rithöfundar hafa unnið hug og hjörtu íslenskra ungmenna með jafn afgerandi hætti. Hann sneri sér snemma að listum og eftir Egner liggja fjölmargar bamabækur sem hann myndskreytti sjálfur. Þeirra þekktastar em Dýrin í Hálsaskógi, Karíus og Baktus og Síglaðir söngvarar, auk Kardemommubæjarins. Gerði hann leikrit upp úr öllum þessum sögum, samdi tónlistina, teiknaði leikmyndir og búninga og sviðsetti oft sjálfur. Verk Egners hafa verið þýdd á 24 tungumál, þar á meðal rússnesku, kínversku og arabísku. Hann lést árið 1990. Kolbrún Halldórsdóttir sá Kardemommubæ- inn í Þjóðleikhúsinu ung að ámm — eins og fjölmargir landsmenn. „Verkið fór beint inn í hugarfylgsnin og það má eiginlega segja að maður hafí þetta í genunum,“ segir hún. „Sem leikstjóri sæki ég minn innblástur beint í þessa minningu enda trúi ég því að upplifunin í leik- húsinu sé ein sterkasta upplifun bernskuár- anna. Mig fýsir alltaf að endurvekja þessa til- fínningu hjá fullorðnu fólki en galdur ieikhúss- ins nýtur sín aldrei betur en þegar hann nær inn í bamssál hinnar fullorðnu manneskju." Samkvæmt hefð Kardemommubærinn hefur jafnan verið settur upp í Þjóðleikhúsinu samkvæmt hug- myndum höfundarins og em leikmynd og bún- ingar unnin með hliðsjón af fyrirmynd Egn- ers. Kveðst Kolbrún alltaf hafa verið staðráðin í að fara hina hefðbundnu leið. Nýju fólki fylgi hins vegar nýjar hugmyndir og útfærslur. Áratugur er síðan Kardemommubærinn var síðast á fjölunum hér á landi og Kolbrún seg- ir að óhjákvæmilegt hafi verið að skoða hvað hafi gerst í mannlífinu og tækni leikhússins síðan. „Við tækifæri sem þetta er nauðsynlegt að spyija sig hvemig leikhúsið geti komist fetinu lengra en síðast með uppsetningu sem þessa.“ Að sögn Kolbrúnar felst áherslubreytingin að þessu sinni einkum í áferð leikmyndarinnar sem er eftir Finn Amar Arnarsson. „Hún er teiknuð með mun sterkari hætti en áður, auk þess sem við bmgðum á það ráð að styrkja hið suðræna andrúmsloft bæjarins — sem Egner sótti til Marokkó — meðal annars með því að bæta við blómahafið.'" Bjöm Bergsteinn Guðmundsson gerir lýsingu í Kardemommubænum að þessu sinni, búningar em eftir Guðrúnu Auðunsdóttur, tónlistar- og hljómsveitarstjóri er Jóhann G. Jóhannsson og hljóðstjóm er í höndum Sveins Kjartanssonar. Dansstjóm er í höndum Agnesar Kristjónsdótt- ur og Katrín Þorvaldsdóttir sér um dýragervi. Það voru systurnar Hulda og Helga Valtýs- Morgunblaðið/Ásdís TOBÍ AS gamli hylltur á 75. afmælisdaginn. RÆNINGJANA þijá (Hjálmar Hjálm- arsson, Pálma Gestsson og Om Arna- son) vantar tilfinnanlega ráðskonu og í skjóli nætur ræna þeir Soffíu frænku. KAMILLA litla (Guðbjörg Helga Jó- hannsdóttir) fær að fara á Kar- demommuhátíðina í fylgd Soffíu frænku (Olafíu Hrannar Jónsdóttur) og Tobíasar gamla (Áma Tryggvasonar). HIN HEILAGA MINNING Þjóðleikhúsið frumsýnir Kardemommubæinn, hið sívinsæla bama- og fjölskylduleikrit Thorbjöms Egner, í fimmta sinn í dag. Orri Páll Ormarsson leit inn á æfíngu og upplifði umburðarlyndi í sinni einföldustu mynd. dætur sem fyrst kynntu Egner og verk hans fyrir íslendingum í barnatíma Ríkisútvarpsins á sjötta áratugnum. Öll eru verk hans þýdd af Huldu en Kristján frá Djúpalæk annaðist bundna málið. Algengt er að þýðingar á erlend- um leikhúsverkum séu teknar til endurskoðun- ar enda segir Kolbrún að þær séu almennt taldar eldast illa. Öðru máli gegni hins vegar um Kardemommubæinn. „Það þekkir hvert mannsbarn á íslandi þetta leikrit. Fyrsta uppfærsla Klemenzar Jónssonar og hans leikhóps var gefin út á plötu sem börn hafa hlustað á í þrjátíu ár. Þýðingarnar á söngtextunum falla að vísu ekki alltaf rétt inn í laglínuna en þjóðin þekkir lögin með þessum áherslum. Þetta er því í okkar huga „rétta leiðin" til að syngja þau. Við þýðingun- um verður því ekki hróflað." Máli sínu til stuðnings bendir Kolbrún á, að þótt Kardemommubærinn sé barnaleikrit sé leikhópurinn ekki síður að setja verkið upp fyrir fullorðna. „Við hefðum kannski ekki vald- ið börnunum svo miklum vonbrigðum ef við hefðum gert einhveijar róttækar breytingar á leikritinu. Við hefðum hins vegar hróflað við hinni heilögu minningu foreldranna." * Ovenju lengií embætti KARDEMOMMUBÆRINN er vinsælasta barnaleikritið i sögu Þjóðleikhússins en verkið hefur fjórum sinnum áður verið sett upp þar á bæ: 1959,1965,1974 og 1984. Hafa 128 þúsund gestir sótt sýning- arnar, sem er aðsóknarmet, en þær eru orðnar 233 talsins. Leikstjóri í fjórum fyrstu uppfærslun- um var Klemenz Jónsson og hann er ekki langt undan að þessu sinni þar sem nýi leikstjórinn, Kolbrún Halldórsdóttir, fékk hann til liðs við sýninguna sem listrænan ráðunaut. „Það er mjög mikilvægt að geta leitað til Klemenzar en hann átti stóran þátt í að skapa þennan heim á sín- um tíma, í mikilli þökk Thorbjörns Egn- er,“ segir Kolbrún. Fjölmargir leikarar hafa tekið þátt í leiknum í gegnum tíðina og margir oftar en einu sinni. Róbert Arnfinnsson slær þó öllum við en hann fer nú í föt Bastíans bæjarfógeta í fjórða sinn. Uppfærslan sem Róbert missti af var árið 1974 en þá var hann við störf erlendis. „Það er alltaf jafn gaman að ganga inn í gamla starfið enda er andrúmsloftið í Kardemommubæ alltaf eins. Það verður hins vegar að við- urkennast að menn sitja venjulega ekki svona lengi í embætti," segir Róbert. Emilía Jónasdóttir túlkaði Soffíu frænku á eftirminnilegan hátt í tveimur fyrstu uppfærslunum. Heillaði hún meðal annars höfundinn svo rækilega upp úr skónum, þegar Þjóðleikhúsið bauð honum á sýningu árið 1960, að hann breytti teikn- ingum sínum af persónunni litillega með hliðsjón af túlkun Emilíu. Guðrún Steph- ensen og Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir fet- uðu í fótspor Emilíu 1974 og 1984 og nú er röðin komin að Ólafíu Hrönn Jónsdótt- ur. Þrír leikið Tobías Þrír ástsælir leikarar hafa skipt hlut- verki Tobíasar gamla á milli sín. Jón Aðils reið á vaðið, Árni Tryggvason kom næstur, þá endurtók Jón leikinn, árið 1974 brá Baldvin Halldórsson sér upp í turninn og nú rifjar Árni upp gömul kynni af öldunginum geðþekka. Hlutverk ræningjanna þriggja voru í fyrstu tvö skiptin í höndum Ævars Kvar- ans (Kasper), Baldvins Halldórssonar (Je- sper) og Bessa Bjarnasonar (Jónatan). Bessi var einnig með í þriðju uppfærsl- unni en þá skipti hann um ham og varð Kasper. Randver Þorláksson brá sér þá í gervi Jespers og Þórhallur Sigurðsson var Jónatan. í siðustu uppfærslu hélt Randver sínu striki en Pálmi Gestsson var þá kominn í hlutverk Kaspers og Örn Árnason i hlutverk Jónatans. Að þessu sinni er Pálmi áfram Kasper, Örn spreyt- ir sig á Jesper og Hjálmar Hjálmarsson leikur Jónatan. Aðrir leikendur að þessu sinni eru Anna Kristín Arngrímsdóttir, Magnús Ragnars- son, Hinrik Olafsson, Krislján Franklín Magnús, Benedikt Erlingsson, Sveinn Þ. Geirsson, Bergur Þór Ingólfsson og Ag- nes Kristjónsdóttir. Ennfremur Guðbjörg Helga Jóhannsdóttir, Þorvaldur Krist- jánsson, Jónas Óskar Magnússon, Þorgeir Arason og fjöldi annarra barna, unglinga og hljóðfæraleikara. TONUST Langholtskirkja TÓNLEIKAR Flytjendur: Karlakór Reykjavíkur, Kór Langholtskirlqu, Diddú, Anna Guðný og fl. Þriðjudagur 17. otkóber. BAROKKORGEL í Langholts- kirkju, hvað skyldi það nú vera? Víst híjómar orðið vel, þótt óíslenskt sé, og víst geta raddir þessara org- ela hljómað fagurlega og saman geta þær einnig hljómað fagurlega en þó því aðeins að þeim sé af þekk- ingu og næmum smekk saman rað- að í hljóðfærinu, sem ákvarðast af hljómburði og stærð kirkjunnar, sem hýsa skal hljóðfærið. Eins og nafnið bendir til eiga barokkhljóðfæri nútímans að vera eftirlíking af hljóðfærunum sem smíðuð voru á tímum barokksins, þ.e. á tímum Bachs og fyrir hans tíð. Orgel þessi voru smíðuð með þá músík í huga sem skrifuð var á þessum tíma og lýkur með orgelbók- menntum Bachs. Rómantísk tónlist, í þeirri mynd sem við skilgreinum hana, þekktist ekki þá og orgelin því ekki hönnuð fyrir þann stíl. Með rómantíkinni byggðu menn önnur orgel sem skilað gátu rómantísku orgelbókmenntunum og komu þá til ýmis hjálpargögn sem fyrri tímar þekktu vel og voru rómantíkinni nauðsyn. Orgel og kirkja þurfa að fallast í faðma. Undirritaður minnist þess að á tónleikaferð um Þýskaland lék hann á eitt slíkt barokk-orgel í sér- lega fallegri gamalli kirkju og svo vel harmoneruðu saman bygging- arstíll þessarar gömlu kirkju og Sungið og spilað til orgel- kaupa orgelsins að undirritaður fékk á tilfinninguna að kirkjan hefði verið byggð utan um orgelið. Spilaborð barokk-orgelsins var minna en það sem ég átti að vunjast (þ.e. hafði færri nótur) og skapaði mér erfið- leika í þeirri efnisskrá sem ég flutti, auk þess að á efnisskránni voru, í bland, rómantísk og nútíma verk- efni sem flytja hefði átt á öðru vísi hljóðfæri. I annað sinn lék undirrit- aður á orgel, sem undir venjulegum kringumstæðum hefði ekki verið talið gott hljóðfæri, en var sett upp í nýlega steinkirkju, stóra, tóma og ferkantaða og hijómaði líkt og verið væri að róta í glerbrotum í glerkistu. Eigi að síður urðu þetta mér (og fleirum) eftirminnilegir tónleikar vegna umhverfis og hljóms. Svona eru orgel og því er áríðandi að velja þannig að í ljúfa löð falli. Undirrit- aður á svolítið erfítt með að sjá og heyra fyrir sér barokk-orgel í bygg- ingarstíl Langholtskirkju og einnig svolítið erfítt að sjá fyrir sér tónlist- ina og altarisþjónustuna við sama vegginn — austurhliðina. Einnig fínnst honum svolítil synd að eiga ekki von á að heyra rómantíska tónlist í sinni réttu mynd, í miklum og líklega ágætum orgelhljómi kirkjunnar, en þá væri einnig 32 radda orgel of lítið. En svona skulum við allir verða ánægðir í lokin; en væri þó ekki líkt Islendingum; en að minnsta kosti höfðu allir þeir ágætu listamenn, sem fram komu á tónleikunum til styrktar orgel- kaupunum, fallega trú á fyrirtæk- inu, svo ágætlega sungu þeir og léku. Stærstan hluta efnisskrárinnar báru þær stöllur Sigrún Hjálmtýs- dóttir og Anna Guðný Guðmunds- dóttir og báðar töfruðu þær áheyr- endur, Sigrún með sína óvenju hríf- andi söngrödd og Anna Guðný sem sýndi enn einu sinni hversu frábær kammermúsiker hún er. Með ósk um að sem flestir sam- eini sig um orgelkaupin. Ragnar Björnsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.