Morgunblaðið - 31.10.1995, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.10.1995, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1995 ■ ÞRIÐJUDAGUR 31. OKTÓBER BLAO KORFUKNATTLEIKUR KOLBEINN Pálsson, formaður KKÍ, og Jón Kr. Gíslasop, landsllðsþjálfarl. Morgunblaðið/Þorkell / < Teitur skrifar undirtveggja ára samning „ÉG HEF rætt mikið við forráðamenn Flora Tallinn og eistlenska knattspyrnusambandið og óskað eftir smá breyt- ingum á samningi, sem þeir tóku vel í, enda kom ekki upp neinn ágreining- ur,“ sagði Teitur Þórðar- son, sem mun skrifa und- ir tveggja ára samning sem landsliðsþjálfari Eistlands og þjálfari meistaraliðs Flora Tall- inn í dag í Tallinn. „Ég mun hefja þjálfun strax, leikmenn eru að koma úr fríi nú í vik- unni. Ég kann vel við mig hér og það er mjög áhugavert að sjá hve hröð uppbygging hefur orðið hér í knattspymunni. AIl- ir leikmenn Flora eru atvinnumenn, en landsl- ið Eistlands byggist upp á leikmönnum liðs- ins,“ sagði Teitur. Bjarki fer hugsanlega til Frakklands BJARKI Gunnlaugsson, knattspyrnumaður frá Akranesi, gæti fetað í fótspor Arnars tvíbura- bróður sins á næstunni og farið að leika í Frakklandi. Bjarki sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að það myndi skýrast í vikunni hvort hann færi til franska liðsins Gueugnon. „Umboðsmaður minn er að athuga málin og á von á að málið skýrist í vikunni, en þetta gæti tekið einhvern tíma eins og þjá Amari,“ sagði Bjarki í gær. Gueugnon leikur í 1. deildinni og er í fimmta neðsta sæti með 12 stig um þessar mundir. Arnar lék ekki í frönsku 2. deildinni um helgina, var á meðal áhorfenda þegar Sochaux vann ViUefranche 2:0. Jón Kr. tekur við landsliðinu JÓN Kr. Gíslason, þjálfari og leikmaður Keflvíkinga, var ígær ráðinn landsliðsþjálfari íslands í körfuknattleik karía og gildir samningur hans til 31. maí á næsta ári, eða fram yfir undan- keppni Evrópumóts landsliða. „Þetta er spennandi verkefni en jafnframt krefjandi. Ég er metnaðarfullur og ég tæki þetta ekki að mér nema ég teldi mig geta náð árangri og komið liðinu upp úr forkeppni Evrópumótsins," sagði Jón Kr. Gíslason. Jón Kr. er næst leikjahæsti landsl- iðsmaður íslands frá upphafi á eftir Vali Ingimundarsyni með 158 landsleiki og síðustu fimm árin hef- ur hann verið fyrirliði landsliðsins. Hann hefur verið þjálfari frá því 1982 og síðustu fímm árin með Keflavíkurliðið og náð góðum ár- angri. Hann hefur því mikla reynslu bæði sem leikmaður og þjálfari. „Við fögnum því að hafa fengið Jón Kr. til starfa. Hann nýtur mikils trausts hjá landsliðsmönnum og öðrum og þekkir vel til í öllu sem snýr að landsliðinu," sagði Kolbeinn Pálsson, formaður KKI. Jón Kr. sagði að auðvitað væru það ákveðin forréttindi að fá að halda áfram í landsliðjnu þó svo áð hann væri hættur sem leikmaður. „Nú er ég kominn hinu méginn við borðið og hlakka til að takast á við þetta verkefni. Fyrsta verkefni mitt verður að velja 18 til 20 manna landsliðshóp sem kemur saman til æfínga milli jóla og nýárs. Síðan er það Evrópukeppnin í maí og ég vonast til að fá hálfan mánuð til að undirbúa liðið fyrir hana. Við höfum sótt um að fá Evrópuriðilinn hingað heim og ef það tekst yrðu möguleikar okkar á að komast áfram mun meiri,“ sagði Jón Kr. í riðli með Islendingum eru Lúxem- borg, Danmörk, Albanía, Kýpur og Irland, en tvær efstu þjóðirnar kom- ast áfram. Jón sagðist helst óttast Dani og íra. Landsliðsþjálfarinn sagðist koma til með að byggja landslið sitt upp á þeim kjarna sem verið hefur í lið- inu síðustu árin. „Ég mun líka velja unga og efnilega og þá sérstaklega hávaxna leikmenn enda tel ég það mjög brýnt að fá þá inn í hópinn sem fýrst. Svo má einnig nefna leik- mann eins og Davið Grissom, sem verður löglegur með íslenska lands- liðinu í desember," sagði hann. Sigurður með tilboð fra Lilleström LANDSLIÐSMAÐURINN í knattspyrnu, Sigurður Jónsson, hefur fengið tilboð frá norska liðinu Lilleström og er að hugsa málið. Sigurður skaust til Nor- egs um helgina til að líta á að- stæður hjá félaginu og ætlar að athuga það í rólegheitunum. „Þetta kom snöggt uppá því forráðamenn Lilleström hringdu í mig í síðustu viku og buðu mér að koma út til við- ræðna og til að skoða aðstæður þjá þeim. Það eru fínar aðtsæð- ur hjá klúbbnum og nú ætla ég að skoða tilboðið í rólegheitun- um,“ sagði Sigurður í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi. Hann sagði ekkert ákveðið enn- þá, hvort hann tæki tilboðinu eða hvort hann léki áfram með Skagamönnum. Sigurður sagðist hafa skotist á þjálfaranámskeið í leiðinni og einnig hefði hann verið á meðal áhorfenda á bikarúrslitaleikn- um þar sem Agúst Gylfason og félagar í Brann náðu 1:1 jafn- tefli gegn Rosenborg. „Þetta var skemmtilegt og mikil stemmning. Ágúst stóð sig vel, en þetta voru mikil hlaup hjá Brann, enda einum færri lengi vel,“ sagði Sigurður. ÍSLENDINGAR MED BRONSVERÐLAUN Á NM í KLIFRIOG KARATE / B3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.