Morgunblaðið - 31.10.1995, Side 8
FIMLEIKAR
GOLF
KNATTSPYRNA
Schumac-
herjafn-
aði met
Mansells
MICHAEL Schumacher frá
Þýskalandi, sem þegar er orð-
inn heimsmeistari í Formula
1 kappakstri, sigraði i jap-
anska kappakstrinum í
Suzuka á sunnudaginn og
tryggði Benetton-liðinu sigur
í keppni framleiðenda i fyrsta
sinn. Hann jafnaði einnig met
Bretans Niegels Mansells frá
þvi 1992 með því að sigra í
niundu keppninni á sama
timabili og getur bætt það
með sigri i siðustu keppninni
á árinu sem fram fer í Astral-
íu 12. nóvember.
Schumacher hafði forystu
i kappakstrinum í Japan frá
byijun og hann kom 19,3 sek-
úndum á undan Mika Hakkin-
en frá Finnlandi i mark. Jo-
hnny Herber frá Bretlandi,
sem einnig er í Benetton-lið-
inu, varð þriðji. Bretarnir
Damon Hill og David Coult-
hart féllu úr keppni eftir að
hafa misst bOa sína út af und-
ir lok keppninnar. Schumarc-
her hefur hlotið 102 stig, Hill
er í öðru sæti með 59 og Co-
ulthard i þriðja með 49 stig.
„Þetta er góð tilfinning,“
sagði hinn 26 ára gamli
Schumarcher sem einnig náði
besta brautartimanunm,
1.42,976 mín. og var meðal-
hraði hans þann hring
205,003 kra á klst. „Ég var
búinn að lofa þvi fyrir timabil-
ið að vinna báða titlana fyrír
Benetton. Ég trúði því að við
verðskulduðum sigur og það ' |
var gaman að fagna sigri hér
í Japan. Þetta timabU hefur
verið eins og draumur fyrir
mig. Ég vona að ég geti end-
urtekið það í framtíðinni, en
ég held þó að það geti orðið
erfitt.“
Montgom-
erie efstur
þriðja árið
jt ■ ■
i roð
COLIN Montgomerie frá Skotlandi
varð á sunnudaginn fyrsti kylfíng-
urinn til að ná efsta sætinu í evr-
ópsku mótaröðinni þriðja árið í röð
síðan Spánveijinn Severino Ball-
esteros gerði það 1978. Montgo-
merie varð annar í lokamótinu á
Spáni um helgina, tveimur höggum
á eftir Þjóðverjanum Alexander
Cejka.
Sam Torrance, sem var með for-
ystuna á Evrópulistanum fyrir loka-
mótið, lék mjög vel síðasta daginn
og kom inn á 68 höggum og sam-
tals 285, eða einu höggi meira en
Montgomerie, sem lék á 72 höggum
síðasta hringinn. Þannig að mun-
urinn gat ekki verið minni því ef
Montgomerie hefði mistekist síð-
asta púttið hefði Torrance fagnað
sigri. Bernhard Langer, sem átti
einnig möguleika á efsta sætinu
fyrir keppnina, var ekki inní mynd-
inni á sunnudaginn því hann lék á
73 höggum og samtals 286 högg-
um.
„Ég get ekki annað en óskað Sam
[Torrance] til hamingju með
frammistöðuna því hann hefur leik-
MONTGOMERIE fagnaðl
sigri um helglna.
ið mjög vel alit árið,“ sagði Montgo-
merie, sem er 32ja ára. Hann fékk
83.400 pund (8,5 milljónir króna) í
verðlaun fyrir annað sætið og hefur
því fengið samtals 72 milljónir í
vasann fyrir árangur sinn á Evrópu-
mótunum í ár. Torrance varð annar
í mótaröðinni með 86 miiljónir
króna.
Sigurvegarinn á sunnudaginn,
Alexander Cejka, lék á 70 höggum
síðasta daginn og kom inn á fjórum
höggum undir pari, eða 282 högg-
um. „Þetta er frábært. Ég á varla
til orð til að lýsa árangri mínum á
árinu. Ég trúi þessu varla,“ sagði
Cejka, sem flúði til Þýskalands frá
fyrrum Tékkóslóvakíu þegar hann
var níu ára gamall.
Ágúst og félagar náðu
jafntefli einum færri
Ruslan
vann
alR
Haustmót Fimleikasambandsins
fór fram í Laugardalshöll á
sunnudaginn. Tæplega sjötíu fim-
leikamenn tóku þátt
fvar að þessu sinni. Veitt
Benediktsson voru verðlaun fyrir
skrifar keppni á einstökum
áhöldum en ekki í
samanlagðri keppni.
í keppni kvenna sigraði Nína B.
Magnúsdóttir, Björk, í tveimur grein-
um, í gólfæfingum og stökki. „Ég
var mjög ánægð með gólfæfíngamar
og stökkið, en það olli mér vonbrigð-
um að geta ekki lokið keppni á tvislá
vegna meiðsla,“ sagði Nína.
Jóhanna Sigmundsdóttir, Ár-
manni, sigraði í æfíngum á tvíslá.
Auk þess hlaut hún silfur í gólfæfíng-
um. „Þetta mót var skemmtilegt og
erfitt og það var mikil keppni. Mér
tókst hins vegar illa upp á slánni,"
sagði Jóhanna.
Ruslan Ovtisinnikov, Gerplu, sigr-
aði í öllum greinum. Dýri Kristjáns-
son, Gerplu, hlaut þrenn silfurverð-
laun og ein bronsverðlaun. „Keppni
á svona móti er alltaf erfíð og mik-
ill léttir þegar henni er lokið. Ég er
ánægður með árangur minn,“ sagði
Dýri.
■ Ruslan / B2
■ Úrslit / B7
TINNA Þórðardóttlr, Björk, í gólfœfingum sínum ð mótlnu um helgina.
Brann og Rosenborg gerðu 1:1
jafntefli í framlengdum úr-
slitaleik norsku bikarkeppninnar í
knattspyrnu í Ósló á
Eriingur sunnudag og verða
Jóhannsson liðin því að leika aft-
skrifár ur um næstu helgi.
frá Ösló Ágúst Gylfason,
sem verið hefur í stöðu bakvarðar
í sumar, spilaði í fyrsta sinn á miðj-
unni hjá Brann í úrslitaleiknum og
stóð sig með mikilli prýði. Hann var
einn af bestu mönnum liðsins í leik
þar sem Brann átti í vök að veijast
mestallan tímann. Dómarinn var í
aðalhlutverki og dæmdi oft á tíðum
afspyrnu illa. Meðal annars var ein-
um félaga Ágústar vikið af velli um
miðjan fyrri hálfleik og þótti það
strangur dómur.
Rosenborg skoraði um miðjan
seinni hálfleik en Brann jafnaði úr
vítaspyrnu stundarfjórðungi fyrir
leikslok. Ágúst gaf boltann inn fyr-
ir vörn Rosenborg en þar var sam-
heiji hans felldur af markverðinum
innan teigs og vítaspyrna dæmd.
Dómurinn þótti vafasamur — fannst
mörgum sem dómarinn væri að
borga fyrir áður gerð mistök.
Agústi líst mjög vel á aukaleikinn
ÁGÚST Gylfason var elnn
besti lelkmaður Brann í blk-
arúrslltalelknum.
og sagði að fyrst liðið hefði náð
jafntefli einum færri ætti það góða
möguleik á sigri með fullskipuðu
liði.
Brann með
sorgarbönd
vegna slyss-
ins á Flateyri
LEIKMENN Brann frá Ber^-
en léku með sorgarbönd í bik-
arúrslitaleiknum á sunnudag,
til minningar um þá sem lét-
ust í snjóHóðinn á Flateyri.
Forráðamenn Brann sögðu
fyrir leikinn að alltaf hefði
verið gott samband milli fé-
lagsins og íslands en fimm
íslendingar hafa verið 1 her-
búðum félagsins á undanförn-
um árum; landsliðsmennirnir
Bjarni Sigurðsson, Sævar
Jónsson og Ólafur Þórðarson,
þjálfarinn Teitur Þórðarson
og nú Ágúst Gylfason, sem
leikur með Björgviiyarliðinu.