Morgunblaðið - 04.11.1995, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.11.1995, Blaðsíða 2
2 C LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ Útflutningur á íslenskum hæfileikum Söngleikurinn Hárið í leikstjóm Baltasars Kormáks verður frumsýndur í Barcelona í næsta mánuði. Orri Páll Ormarsson hitti leikstjórann að máli á dögunum þegar hann skaust heim til að taka þátt í talsetningu kvikmyndarinnar Agnesar. HUGMYNDIN var nógu fáránleg til að hrinda henni í framkvæmd. Fáránlegar hugmyndir eru nefnilega oft líklegastar tii að verða að veruleika,“ segir Baltasar Kormákur sem leikstýrir um þessar mundir söngleiknum Hárinu í Barc- elona. Verður verkið frumsýnt í desember. Hugmyndin að ævintýrinu kviknaði kvöld eitt í kjallara óper- unnar. „Ég var 'nýbúinn að setja upp Hárið hér heima og við Mar- grét Vilhjálmsdóttir leikkona vor- um að velta því fyrir okkur hvað ég ætti að taka mér næst fyrir hendur. Hvers vegna ekki að setja Hárið upp í Barcelona," segir Balt- asar. Hálfum mánuði síðar fór hann á stúfana. Baltasar Kormákur á ættir að rekja til Spánar en faðir hans, Baltasar myndlistarmaður, er bor- inn og barnfæddur Katalóníumað- ur. Baltasar Kormákur hefur á hinn bóginn aldrei búið í Barcelona en nokkrum sinnum sótt borgina heim. Fyrir ári komst leikstjórinn í kynni við framleiðanda leikhúss ytra í gegnum kunningja föður síns. Féllst sá á að veita Islendingnum unga áheyrn. „Ég fór með mynd- bandsspólu og Ijósmyndir frá sýn- ingunni hér heima á hans fund og byrjaði bara að belgja mig. Honum leist vel á hugihyndina og þar með fóru hjólin að snúast." Síðan kom babb í bátinn: Maður þessi færði sig um set á milli fyrir- tækja. Taldi þá Baltasar að hug- myndin væri úr sögunni. Nýja fyrir- tækið, Only Spectacle, ákvað hins vegar að taka Hárið upp á sína arma og síðastliðið vor var endan- lega ákveðið að láta slag standa. Samningur var undirritaður í ágúst og er Only Spectacle aðalframleið- andi en Flugfélagið Loftur með- framleiðandi. Getur gert betur Síðan kom röðin að því að velja leikara. Fimm hundruð manns fengu að spreyta sig og að hálfum mánuði liðnum var búið áð ráða í öll hlutverk. Hófust þá æfingar. Teflir Baltasar eingöngu fram fag- fólki, söngvurum og leikurum. „Þetta er mjög góð blanda sem hæfir þessari sýningu vel.“ Baltasar segir að sýningin ytra verði í ýmsu frábrugðin sýningunni sern sló svo eftirminnilega í gegn á íslandi. „Ég tel mig ekki hafa skilað fullkominni vinnu síðast enda myndi ég ekki setja Hárið upp aft- ur nema ég væri viss um að ég gæti gert betur. Það er tilgangs- laust að endurtaka sig.“ Baltasar segir að uppfærslan ytra sé jafnframt mun stærri í snið- um. Leikhúsið, Theatre Goya, taki til að mynda 900 manns í sæti. „Það er mikil sál í þessu húsi enda eitt frægasta leikhúsið í Barce- lona,“ segir Baltasar sem fetar meðal annars í fótspor Federicos García Lorca, sem starfaði sem leikstjóri við húsið á sínum tíma. Andrúmsloftið hefur verið gott á æfingum, að sögn leikstjórans, en hann kveðst beita áþekkum vinnubrögðum og hér heima. „Grunnurinn í leikhúsi er alltaf sá sami, leikarar, leiksvið og áhorf- endur, síðan aðlagast maður bara smáatriðunum." Hann hefur þó í auknum mæli þurft að treysta á eðlisávísunina ytra. „Á íslandi þekkir maður alla í faginu en þarna veit maður ekk- ert um fólkið. Það hlýtur líka að vera skrítin tilfinning fyrir leikar- ana að taka við skipunum frá en- skumælandi Katalóníumanni frá Islandi.“ Baltasar segir að leiksýningar séu markaðssettar með sama hætti og kvikmyndir á Spáni sem sé ólíkt því sem tíðkist á Islandi. „Við hjá Flugfélaginu Lofti höfum reyndar lagt áherslu á óhefðbundna mark- aðssetningu. Fyrir vikið virðist sumarið vera orðið „heitasti" tíminn fyrir leiksýningar hér á landi. Þannig að þetta gæti verið að breytast." Auk Baltasars, taka þrír íslend- ingar þátt í uppfærslunni á Hárinu í Barcelona: Ástrós Gunnarsdóttir danshöfundur sem jafnframt mun dansa í sýningunni, Björn Berg- steinn Guðmundsson ljósahönnuður og Finnur Arnarsson leikmynda- hönnuður. „Það má eiginlega segja að Flugfélagið Loftur hafi hafið útflutning á íslenskum hæfileik- um,“ segir Baltasar. Hann bætir við að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið hafi gert íslensku listafólki mun hægara um vik að leita hófanna um vinnu erlendis. „Heimur leikhússins er mjög lítill og lokaður hér á landi, þannig að íslenskt leikhúsfólk hefur mjög gott af því að fara utan, kynnast nýju fólki og ólíkum vinnubrögð- um.“ Baltasar segir að Spánn sé heill- andi starfsvettvangur og falli Hárið í ftjóa jörð gætu fleiri tækifæri gefist. Meðal annars er hugsanlegt að honum verði boðið að setja verk- ið upp í Madrid. Á þessu stigi þyk- ir Baltasar hins vegar of snemmt að spá í framhaldið. „Maður veit aldrei hvar hlutirnir enda. Ef lítil hugmynd sem varð til í kjallara óperunnar getur orðið að stórri leiksýningu erlendis veit maður ekki til hvers hún getur leitt.“ Þegar frumsýning Hársins er að baki snýr Baltasar heim en hann þreytir frumraun sína sem leik- stjóri í Þjóðleikhúsinu þegar leikrit- ið Leitt hún skyldi vera skækja eftir John Ford verður sett upp á Smíðaverkstæðinu. Fer hann einn- ig með aðalhlutverkið í kvikmynd Friðriks Þórs Friðrikssonar Þar sem Djöflaeyjan rís og heflast tök- ur i janúar. „Þá langar mig að leggja rækt við Loftkastalann [leikhús Flugfél- agsins Lofts] þegar tími vinnst til. Annars tek ég þetta allt á bera bringuna." Kristileg spenna Náttúrulífsfræðingurinn Steve Benson er einn og óvopnaður í fjallshlíð í tunglsljósi. Hann er hundeltur. Skepna sem helst minnir á eðlu og er á stærð við hval, leyn- ist skammt frá. Hún er sólgin í mannaket. Söguþráðurinn minnir helst á bók úr smiðju Michaels Chrichtons, nema hvað Benson leggst á bæn. Þetta brot er úr „Eiðnum“, skáld- sögu eftir Frank E. Peretti, sem er fyrrverandi klerkur hvítasunnu- safnaðarins, en hún heyrir til þess flokks bóka sem kalla má kristileg- ar spennusögur, þar sem ihaldss- amri guðfræði er fléttað saman við spennuna, að því er segir í The International Herald Tribune í kristilegu spennusögunum segir frá einstaklingum fullum réttlætis- kenndar sem standa frammi fyrir spilltum stofnunum á borð við ríkis- valdið, fjölmiðla eða löggæsluna. Oft er í bókunum lítt dulbúin gagn- rýni á fóstureyðingar og presta frjálslyndari kirkjudeilda. í öllum bókunum eru aðalpersónurnar heit- trúaðar. Frá því í ágúst hafa tveir prestar úr mótmælendakirkjunni gefið út Fyrrverandi klerkur sendir frá sér skáldsögu sögur. Annar þeirra er Charles Colson, sem þekktur varð fyrir þátt sinn í Watergate-hneykslinu en hann er nú fangaprestur, en hinn Pat Robertson, stofnandi Kristilegu útvarpssamsteypunnar. Bók Col- sons „Kyndill Gídeons“, sem hann skrifaði með Ellen Vaughn, segir frá harkalegum aðgerðum lögregl- unnar gegn andstæðingum fóstur- eyðinga en lögreglan fer að fyrir- mælum tækifærissinnaðs forseta sem svífst einskis. Friðsamur prest- ur lendir í hringiðu atburðanna og einnig kemur við sögu dómsmála- ráðherra sem ekki- tilheyrir neinum trúflokki og á í miklu sálarstríði. Bók Robertsons „Aldarlok" fjallar um atburði sem leiða til endurkomu Krists. Eftir að loftsteinn lendir á Los Angeles flýja auðug hjón út í eyðimörkina, ganga í biblíuhóp og gerast trúuð. Hins vegar kemst Andkristur til valda í Hvíta húsinu. „Þeir sem skrifa kristilegar spennusögur verða að átta sig á fyrir hveija þeir eru að skrifa," segir Peretti en hann er talinn bera höfuð og herðar yfir aðra í þessum hópi. Tvær bóka Pirettis hafa kom- ið út á íslensku: „Baráttan við heimsdrottna myrkursins“ og „Ut úr myrkrinu". „I bókum mínum er aldrei blótað,“ segir Piretti. Op- inskáar kynlífslýsingar koma ekki til greina og ofbeldinu er haldið í algjöru lágmarki. Eitt af lykilatrið- unum er hins vegar andleg átök, trútöku er ævinlega að finna í bók- unum, segir Piretti, jafnvel þótt látið sé nægja að ýja að henni. Sú staðreynd að spennusögur eru skrifaðar fyrir þennan markað er til marks um þær breytingar sem orðið hafa á viðhorfinu til þess hvernig hvítasunnumenn veija frí- tíma sínum, segir Grant Wacker, prófessor í trúfræði við Duke- háskólann. „Það er erfitt að ímynda sér gömlu hvítasunnumennina lesa bækur sér til dægrastyttingar. Bók- lestur er til marks um það hvernig trúarhópar hafa aðlagast æ meir dægurmenningunni.“ William Lloyd Webb- er loksins vinsæll RÁTT fyrir að nafnLloyds Web- bers sé nánast ávís- un á velgengni í heimi söngleikjanna er tónlist Lloyd Webbers óþekkt. Utgefendur hafa nú tekið við sér og slást um útgáfurétt á sónöt- um, óratóríum, söngv- um og sinfóníum Will- iams Lloyd Webbers . William átti ekki sömu velgengni að fagna í tónlistarheimin- um og synir hans; Andrew Lloyd Webber, söngleikjahöfundur, og sellóleikar- inn Julian. William lést fyrir 13 árum, fullur vonbrigða yfir því að honum hafði ekki tekist að ávinna sér sess sem tónskáld. En fyrir átta mánuðum voru nokkur verka hans leikin á kammer- hátíð i London og vöktu þau athygli tónlistargagnrýnenda, sem vildu fá meira að heyra. Til stendur að flytja kammerverk hans á sex tónleikum í London á næstu fimm vikum. Tóna- Ijóð hans, „Aurora", sem sagt er „eins tilfinningaríkt og nokkurt breskt verk getur verið“, var ný- lega hljóðritað og stýrði Lorin Maazel Fíl- harmóníusveit Lund- úna við það tækifæri, að því er segir í The European. Að minnsta kosti eitt verk til við- bótar verður gefið út á næsta ári. „Þetta gerist of seint til þess að fað- ir minn geti notið þess, en ég veit að hann hefði orðið ánægður,“ segir Julian. William Lloyd Webber var þekktur organisti og virtur fræðimaður í tón- list. En verk hans náðu ekki eyrum annarra, enda löttu sumir fjölskyldu- meðlimir hann til þess að koma þeim á framfæri. Eftir að hann lést, 68 ára árið 1982, stóð ekkja hans vörð um verk hans. Það var ekki fyrr en hún lést árið 1993 að sonurinn Jul- ian hófst handa við að hafa upp á handritum föðursíns.„Mér finnst hann eiga það inni hjá mér að ég komi henni áframfæri," segir Julian. Lloyd Webber eldri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.