Morgunblaðið - 04.11.1995, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 C 5
^ «. Morgunblaðið/Kristinn
iar framandi menningarheims.
ég get ekki neitað því að eftir sum-
ar æfingarnar hef ég verið búin að
tæma allt sem ég bý yfir.“
Ólöf segir að tónlistin í Madame
Butterfly sé stórbrotin og ástríðu-
þrungin. „Þessi ópera er mjög
dramatísk og í henni eru hlutir sem
nísta inn að hjartanu. Puceini var
mjög skýr í sinni óperuskrift og
notaði alla mögulega þætti til að
lita tilfinningar persónanna skýrum
litum. Það er mikilvægt að leggja
nákvæma vinnu í tónlistina enda
liggur allt í henni. Ef maður skilur
ekki tónlistina kemst boðskapurinn
ekki til skila.“
Ólafur Árni Bjarnason, sem
_syngur Pinkerton, segir að um sé
að ræða dæmigert tenórhlutverk
frá hendi Puccinis. Það sé í þyngri
kantinum — sérstaklega dúettinn —
og síst auðveldara en Cavaradossi
í Tosca eða Rodolfo í La Boheme.
„Þetta verður mjög falleg sýning
með hefðbundnu sniði,“ segir Ólaf-
ur ennfremur. „Það er mikiil heiður
að fá að syngja með Ólöfu Kol-
brúnu. Þegar ég sat úti í sal fyrir
tíu árum óraði mig ekki fyrir því
að ég ætti eftir að syngja með henni
í óperusýningu.“
ðlafur segir að Madame Butt-
erfly sé magnþrungið verk en hann
hefur tekið þátt í tveimur öðrum
uppfærslum á óperunni — í Köln
og Gelsenkirchen. „Ég hef aldrei
tekið þátt í sýningu án þess að tár-
ast í lokaþættinum; hann er svo
stórkostlegur.“
Ólafi þykir ánægjulegt að unnt
sé að færa upp sýningar á borð við
Madame Butterfly hér á landi. „Það
vantar ekki efniviðinn og viljann
og það er spurning hvað hægt
væri að gera ef meira væri til af
þessu með stóra pé-inu.“
Margt hefur hvílt á Ólafi síðustu
mánuði. Hefur hann verið að syngja
í Don Carlos eftir Verdi í Karlsru-
her og í Madame Butterfly í Köln,
auk þess að taka þátt í æfingum
hér heima. Sennilega gefur æfinga-
taflan í íslensku óperunni glögga
mynd af önnum tenórsöngvarans:
„Öli kemur, Óli fer, Óli kemur...“
Með önnur helstu hlutverk í
Madame Butterfly fara Bergþór
Pálsson sem syngur Sharpless,
Rannveig Fríða Bragadóttir sem
syngur Suzuki og Sigurður Björns-
son sem syngur Goro. Ásrún Dav-
íðsdóttir túlkar Kate Pinkerton,
Loftur Erlingsson er prins Yamad-
ori og Sigurður Skagfjörð Stein-
grímsson Bonze. Aðrir sem taka
þátt í sýningunni eru Valdimar
Másson, Eiður Á. Gunnarsson, Sva-
var Berg Pálsson, Soffía Bjarnleifs-
dóttir, Þórdís Þórhallsdóttir, Ág-
ústa Sigrún Ágústsdóttir, Árni
Freyr Gunnarsson og Hörður Freyr
Brynjarsson. Að ógleymdum kór
og hljómsveit íslensku óperunnar
undir stjórn Garðars Cortes og
Robins Stapletons. Leikmynd er
eftir Sarah G. Conley og John Mich-
ael Deegan sem einnig hannar lýs-
ingu.
Erfitt að afla
upplýsinga
Hulda Kristín Magnúsdóttir, sem
hannar búningana sem söngvararn-
ir skarta, segir verkefnið hafa verið
mikla áskorun. Hins vegar hafi
verið ákaflega erfitt að afla upplýs-
inga um japanskt útlit. „Það er
varla til ein einasta bók um Japan
á íslandi." Þurfti hún að fá nær
allt efni og fylgihluti erlendis frá.
Hulda Kristín segir að fegurðar-
skyn Japana sé ólíkt fegurðarskyni
Vesturlandabúa. Klæðnaðurinn og
útlitið séu ekki einungis frábrugðin
heldur jafnframt þættir á borð við
hreyfingar. Kostaði hún því kapps
um að kynna sér japanska menn-
ingu og leitaði meðal annars á náð-
ir prestanna Miyako Þórðarson og
Helgu Soffíu Konráðsdóttur sem
eru flestum hnútum kunnugir í
þeim efnum. Þá mun skrifstofa jap-
anska ræðismannsins á íslandi hafa
lagt hönd á plóginn. Friðþór Eydal,
upplýsingafulltrúi varnarliðsins,
var henni síðan innan handar varð-
andi þá búninga sem snerú að
bandaríska sjóhernum.
„Ég vann úr öllum þessum upp-
lýsingum og blandaði þeim síðan
saman við eigin hugmyndir. Án efa
er hægt að finna einhveija hnökra
á útfærslu búninganna en það kem-
ur ekki að sök þar sem um er að
ræða óperusýningu en ekki heim-
ildamynd," segir Hulda Kristín.
Islenska óperan ræðst ekki á
garðinn þar sem hann er lægstur
að þessu sinni en Ólöf Kolbrún
kveðst hafa það á tilfinningunni að
sýningin verði vel heppnuð. „Það
stendur mjög fært fólk að þessari
sýningu sem hefur hvatt okkur
söngvarana óspart til dáða. Fólk
hefur lagt mikið á sig og vonandi
verður uppskeran í samræmi við
það.“
Ljósmyndasýning og bók
Norðurslóðir
IJÓSMYNDASÝNING Ragn-
ars Th. Sigurðssonar, „Norð-
I urljós“, opnar í Gerðar-
safni, Listasafni Kópa-
vogs, í dag kl. 16. Einnig kemur
bókin Jökulheimar út í dag en hún
er samstarfsverkefni Ragnars og
Ara Trausta Guðmundssonar jarð-
eðlisfræðings en saman hafa þeir
farið víðá um norðurslóðir og geng-
ið jökla og fjöll. Það er bókaútgáfan
Ormstunga sem géfur bókina út en
hún hefur að geyma myndir og
fróðleik' um alla helstu jökla ís-
lands. Ari Trausti ritar texta bókar-
innar en Ragnar tók myndirnar,
alls 77 að tölu. Bókin verður kynnt
í Gerðarsafni í dag. v
Myndabók
og fræðibók
„Meirihluti myndanna á sýning-
unni er einnig í bókinni. Þetta er
myndabók og fræðibók til helminga
og við látum þetta tvennt vinna
saman,“ sagði Ragnar Th. í sam-
tali við Morgunblaðið. Hann sagði
að á sýningunni yrðu annars vegar
þessar íslensku jöklamyndir og hins
vegar myndir frá Grænlandi og
norður Kanada. „Meginþema sýn-
ingarinnar er jöklar á Islandi, jöklar
á Grænlandi og myndir af Inúítum
á Grænlandi," sagði Ragnar.
Myndirnar eru allar tölvuunnar
og tölvuprentaðar. Þær eru mjög
stórar að sögn Ragnars en þær
stærstu eru allt að þriggja metra
breiðar. Við þær eru birt ljóð eftir
Ara Trausta Guðmundsson. „Það
er mikil upplifun fyrir mig að sjá
myndirnar svona stórar,“ sagði
Ragnar.
Alveg steinhissa
„Þegar ég stend fyrir framan
þær núna finnst mér ég, í mörgum
tilfellum, upplifa aftur stemmning-
una sem var þegar ég tók mynd-
ina. Það skapast allt annað and-
rúmsloft í myndunum þ'egar þær
eru prentaðar svona stórar. Maður
verður alveg steinhissa," sagði
Ragnar að lokum.
Sýningin er opin frá kl. 12-18
alla daga nema mánudaga og
stendur til 19. nóvember.
RAGNAR Th. Sigurðsson
LÓósmynd/Ragnar Th. Sigurðsson.
MYND úr bókinni Jökulheimar.
Styrkveiting úr
Söngvarasjóði FÍL
ÞRÍR söngnemendur hlutu styrk
úr Söngvarasjóði Óperudeildar
FÍL. Þeir nemendur sem hlutu styrk
eru eftirtaldir.
Finnur Bjarnason, bariton. Hann
lauk burtfararprófi frá Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar síðast-
liðið vor. Kennari hans var John
Speight. Finnur hefur nú hafið
söngnám við Guildhall tónlistarhá-
skólann í London. Styrkur kr.
150.000.
Bjarni Thor Kristinsson, bassi.
Hann lauk 8. stigi í söng frá Söng-
skólanum í Reykjavík vorið 1995.
Þar stundaði hann söngnám hjá
Ragnheiði Guðmundsdóttur og
Garðari Cortes. Bjarni nemur nú
við óperudeild Tónlistarháskólans í
Vínarborg og er aðalkennari hans
Helena Karusso. Styrkur kr.
100.000.
Sigríður Aðalsteinsdóttir, mezzó-
sópran. Hún lauk burtfararprófi frá
Söngskólanum í Reykjavík síðast-
liðið vor. Kennarar Sigríðar voru
Elísabet F. Eiríksdóttir og Þuríður
Pálsdóttir. Sigríður stundar nú nám
við Tónlistarskólann í Vínarborg.
Finnur
Bjarnason
bariton
Styrkur kr. 100.000.
í stjórn Söngvarasjóðs óperu-
deildar FÍL eru Elísabet Erlings-
dóttir, Sigurður Björnsson og Stef-
án Arngrímsson. Sjóðurinn styrkir
efnilega söngnema til náms og
starfandi söngvara til frekari
menntunar í listgrein sinni. Skilyrði
Sigríður
Aðalsteinsdóttir
mezzósópran
styrkveitinga til söngnema er að
umsækjandi hafi lokið 8. stigi eða
sambærilegri menntun í söng og
hyggi á frekara nám erlendis.
Styrkur til einsöngvara er ætlaður
sem fararstyrkur til endurmenntun-
ar utanlands. Að þessu sinni sóttu
9 manns um styrk.
Bjariii Thor
Kristinsson
bassi