Morgunblaðið - 04.11.1995, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1995 C 7
A hættubrún alvogunar
TONLIST
lláskólabíó
SINFÓNÍUTÓNLEIKAR
Flutt voru verk eftir Haydn, Mozart,
Þorkel Sigurbjörnsson og Bartók.
Einleikari: Ib Lanzky-Otto. Stjóm-
andi: Gunnsteinn Ólafsson. Finuntu-
dagurinn 2. nóvember, 1995.
ÞAÐ verða að teljast nokkur tíð-
indi, að ungur íslenskur hljómsveit-
arstjóri kveður sér hljóðs og stjóm-
ar áskriftartónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands. Við höfum
ekki enn eignast þann hljómsveitar-
stjóra, að honum verði óskorað trú-
að fyrir Sinfóníunni okkar. Hjá
nágrannaþjóðunum, jafnvel þar sem
tónlistariðkun stendur með miklum
blóma eru þeir tiltölulega fáir, sem
ná því að gefa stjórnun sinni það
listræna innihald, sem stendur ofar
kunnáttu og þjálfun. Hljómsveitar-
stjóri er verkstjóri yfir stórum hópi
kunnáttumanna og hann þarf, auk
þess að vera fær um að leiðbeina
þessum kunnáttumönnum, að hafa
yfirburða þekkingu á hverju við-
fangsefni og síðast en ekki síst, að
búa yfir listfengi og persónutöfrum,
er fær hvern hljómsveitarleikara tií
að leik af snilld.
Gunnsteinn Olafsson lauk námi
í hljómsvéitarstjórn fyrir þremur
árum og hefur að undanförnu
stjórnað ýmsum uppfærslum og
sérstaklega lagt sig eftir að kynna
tónlist eftir Monteverdi. Þetta eru
fyrstu eiginlegu sinfóníutónleikarn-
ir sem hann stjórnar og með þeim
hefur hann sýnt að hann kann
ýmislegt fyrir sér og mótaði sum
verkin af töluverðri nákvæmni. Það
sem vantaði helst var eldurinn, sem
brennur innra með mönnum og er
það skapandi afl listarinnar, er fær
alla til að staldra við og hlusta um
stund.
Fyrsta verk tónleikanna, „Pauk-
enwirbel" sinfónían eftir Haydn var
hreint og blátt áfram leikin en það
vantaði í hana þá hrynskerpu er
hæfir svo vel liðlegu tónmáli meist-
arans. Stjóm Gunnsteins var einum
of hlutlaus. Hann rak ekki á eftir
hljómsveitinni, krafði hana ekki um
annað en að skila sínu nettlega.
Þetta hlutleysi var sérstaklega
áberandi í fyrsta kaflanum en ann-
ar þátturinn og menúettinn voru
best mótuðu þættirnir. Annar þátt-
urinn er í tilbrigðaformi og í einu
tilbrigðanna lék Guðný Guðmunds-
dóttir konsertmeistari einleik af
glæsibrag.
Annað vifangsefni tónleikanna
var hornkonsert nr. 2 eftir Mozart
og þar fór með einleikinn hornsnill-
ingurinn Ib Lanzky-Otto. Leikur
hans var framfærður af öryggi snill-
ingsins, tónninn afburða fagur, sem
kom hvað best fram í hæga þættin-
um. Hljómsveitin stóð vakt sína
með prýði. Seinna verkið sem Ib
Lansky-Otto lék var „Rúnir“, horn-
konsert eftir Þorkel Sigurbjörnsson,
er hann samdi sérstaklega fyrir Ib
Lansky-Otto og Fílharmonísku
hljómsveitina í Stokkhólmi. Verkið
er markað í þrjá mishraða þætti,
sem eru í raun níu tilbrigði um
stutta tónhugmynd, sett fram i
upphafi verksins í þrumandi horn-
hljómi. Skemmtilegustu þættir
verksins eru fyrir hljómsveitina, en
þrátt fyrir afburða fallegan flutning
einleikarans, eins og t.d. í miðþætt-
inum, var aldrei virkilega mikið að
gerast hjá einleikshorninu. Það eru
margar góðar hugmyndir í verkinu
en í heild vantar meiri hreyfingu í
tónmálið, sem líklega tengist mik-
illi endurtekningu upphafstón-
myndarinnar. Tónleikunum lauk
með Danssvítu, eftir Béla Bartók,
Þetta er fyrst og fremst dansverk,
þar sem Bartók leikur sér með eitt
af sterkustu einkennum ungverskr-
ar danstónlistar, nefnilega hryndvö-
lina (rubato). í þessum hraðabreyt-
ingum þarf að vera spenna, bæði
þegar hraðinn minnkar og ekki síð-
ur í vaxandi hraða og þegar hraðinn
verður mestur, þarf hann að bera
í sér eiginleika hömluleysis. Þrátt
fyrir ágætan og yfivegaðan leik og
töluvert öryggi í stjórnun, vantaði
að Gunnsteinn sleppti fram af sér
beislinu og stefndi leik hljómsveit-
arinnar á hættubrún aívogunar.
Þrátt fyrir þetta er óhætt að full-
yrða að Gunnsteinn Ólafsson er
efnilegur hljómsveitarstjóri, ágæt-
lega kunnandi, en vogar ekki nægi-
lega miklu í túlkun tilfinninga og
nálgun þess skáldskapar, sem er
undirstaða allrar listsköpunar.
Jón Ásgeirsson
Leikfélag Húsavíkur
frumsýnir Gauragang
LEIKFÉLAG Húsavíkur frumsýnir
Gauragang eftir Ólaf Hauk Símon-
arson í dag, laugardaginn 4. nóvem-
ber kl. 16.00. Leikstjóri er Sigrún
Valbergsdóttir sem einnig semur
alla dansa í leikritinu. Valmar Valja-
ots stjórnar tónlistinni og Ástralinn
David Walters er ljósahönnuður, en
þetta er í fyrsta skipti sem sérstak-
ur ljósahönnuður er fenginn til að
vinna að sýningu hjá félaginu og
væntir leikfélagsfólk mikils af sam-
starfinu við hann.
Þetta er í annað skipti sem Gaura-
gangur er settur upp, en verkið var
sýnt í Þjóðleikhúsinu fyrir tveimur
árum og sáu um 40 þúsund manns
þá sýningu.
Mikil áhersla hefur verið lögð á
að tæknimál sýningarinnar væru
sem best úr garði gerð og hafa sjald-
an eða aldrei verið jafnmikil ljósa-
og hljóðtækni notuð í Samkomuhús-
inu á Húsavík. í sýningunni er not-
uð tónlist hljómsveitarinnar Ný-dan-
skrar, sem samin var við verkið þeg-
ar það var leikið í Þjóðleikhúsinu.
Um 50 manns hafa unnið sleitu-
laust við að koma upp sýningunni,
en æfingar hófust fyrir 6 vikum.
Alls taka 26 leikarar þátt í sýning-
unni og eru þeir á öllum aldri, frá
11 ára til 64 ára, bæði gamalreynd-
ir leikarar hjá Leikfélaginu og nýlið-
ar og einnig taka félagar úr Pira-
mus og Þispu, leikklúbbi Framhalds-
skólans á Húsavík, þátt í uppfærsl-
unni.
^ Keltar og Jónas
Árnason á Akranesi
JÓNAS Árnason og Keltar halda
tónleika í Rein á Akranesi sunnu-
dagskvöldið 5. nóvember kl. 20.30.
Á efnisskránni eru írsk þjóðlög og
kvæði Jónasar við þau en einnig
munu Keltar leika írska dansa.
Jónas og Keltarnir hafa að und-
anförnu unnið að upptöku á efnis-
skránni á tónleikum í Borgarleikhús-
inu. Þeir flytja þekkt kvæði meðal
annars úr leikritinu „Þið munið hann
Jörund" en jafnframt kvæði sem
sjaldnar hafa heyrst opinberlega.
Húsið verður opnað kl. 20.
Nýjar bækur
Leiðin um djúpið
Sibba, Sigurbjörg
Jóhannesdóttir.
Sibba opnar
sýningu
SIBBA, Sigurbjörg Jóhannesdótt-
ir, opnar sýningu í Gallerí Fold í
dag laugardag kl. 15. Röng mynd
birtist með frétt um sýninguna í
gær og er beðist velvirðingar á
því.
EIN myndanna á sýningunni.
Þjóðminjasafnið
Sýningu á
mannamynd-
n m að ljúka
SÝNINGU Þjóðminjasafns íslands
í Bogasal, Mannamyndir íslenskra
listamanna frá 17.-19. aldar, lýkur
á morgun sunnudag.
Á sýningunni getur að líta úrval
mannamynda eftir nafngreinda ís-
lenska listamenn og eru þær helstu
frá 17. öld.
Myndirnar eru ýmist málverk eða
teikningar og gefst á þessari sýn-
ingu að sjá samankomið úrval af
því sem til er af mannamyndum
eftir íslenska listamenn frá fyrri tíð.
Myndirnar eru flestar í eigu Þjóð-
minjasafnsins, en nokkrar eru í eign
Listasafns íslands.
Sýningin er opin laugardag og
sunnudag kl. 12-17.
♦ ♦ ♦
Hallgrímskirkja
Nýr safnaðar-
salur tekinn
í notkun
NÝR safnaðarsalur í Hallgríms-
kirkju verður tekinn í notkun un
helgina eftir miklar umbætur. Safn-
aðarsalurinn er í suðurálmu, þar
sem áður var kapella. Miklar
steypuskemmdir voru í veggjum og
þaki og hafa þær nú verið lagfærð-
ar. Nýjar loftplötur hafa verið sett-
ar í salinn og voru þær valdar sér-
staklega með tilliti til hljóðdreifing-
ar þannig að allt tal á að heyrast
vel, segir í kynningu.
Á sunnudagskvöldið verður sýnt
í salnum leikrit Steinunnar Jóhann-
esdóttur, Heimur Guðríðar, síðasta
heimsókn Guðríðar Símonardóttur
í kirkju Hallgríms.
Eldhús kirkjunnar verður flutt í
suðurendann við hlið nýja safnaðar-
salarins og verður hafist handa við
uppsetningu þess næstu daga.
ÚT er komin Hljóð
nóta, söguljóð eftir
Steinar Vilhjálm.
í kynningu segir:
„Hafir þú þolgæði og
ímyndunarafl, áttu eft-
ir að lesa þessa bók
oft. Hvað gerist þegar
ævintýraþráin leiðir
fólk á villustigu þeirra
sem gefast upp í rangl-
átum heimi? Hver er
Prinsinn sem öllu ræð-
ur þar? Leiðin um djúp-
ið er hættuleg, vörðuð
gylltum hillingum
framavonanna. Leiðin
Steinar Vilhjálmur
til baka er lífsreynsl-
an.“
Hljóð nóta er fjórða
bók Steinars Vil-
hjálms. Fyrri bækur
hans eru: Lýsingar-
háttur nútíðar (1988),
Skrítin blóm ljótar
myndir og önnur ljóð
(1990) og Bítlar
(1994).
Útgefandi er Skák-
prent sem einnig
prentaði. Káputeikn-
ing er eftir Þór Ludwig
Stiefel. Bókin er 228
bls. og kostar 1710 kr.
Nýjar bækur
Kyijálaeiði
Hannesar
ÚT er komin ljóðabók-
in Kyijálaeiði eftir
Hannes Sigfússon.
„Bókin hefur að geyma
margbreytileg og djúp-
hugsuð ljóð eftir eitt
okkar helsta núlifandi
skáld,“ segir í kynn-
ingu.
Hannes kvaddi sér
fyrst hljóðs með ljóða-
flokknum Dymbilvöku
árið 1949. Síðan hefur
hann sent frá sér fjölda
verka, meðal þeirra
ljóðabækurnar Imbru-
dagar (1951), Sprek'á
Hannes Sigfússon
eldinn (1961) og Jarteikn (1966).
Síðast kom út eftir hann skáldsag-
an Ljósin blakta árið
1993, en skáldsga
hans Strandið (1955)
vakti mikla athygli og
var nýlega flutt í út-
varpi.
Hannes Sigfússon
hefur þýtt margar
skáldsögur eftir höf-
unda frá Suður-Amer-
íku og hann er einnig
afkastamikill ljóða-
þýðandi.
Útgefandi er Mál
og menning. Bókin er
57 bls., prentuð í G.
Ben. prentstofu hf.
Kápu hannaði Robert Guillemette.
Verð 1.680 kr.
MENNING/LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaðir
Kjarval - mótunarár 1885-1930.
Sýn. Einskonar hversdagsleg
rómantík og sýn. Einars Sveinss. arki-
tekts til 9. des.
Listasafn Islands
Haustsýn. safris Ásgríms Jónss. til 26.
nóv.
Nýlistasafnið
vesturleið" og „um akkadíska
tungu" til 5. nóv.
Gallerí Fold
Sigurbjörg Jóhannesdóttir og Adam
Nichols sýna til 19. nóv.
Ásmundarsalur
Ásdís Kalman sýnir til 19. nóv.
Galleri Stöðlakot
Helga Jóhannesdóttir sýnir til 5. nóv.
Gallcrí Greip
Birgir Snæbjörn sýnir til 5. nóv.
Norræna húsið
Ljósmyndasýn. Tove Kurtzweill til
12. nóv., Grafíksýn. til 3. des. í
anddyri; 6 gullsmiðir frá Gautaborg
til 5. nóv., Berta Moltke frá Danm.
sýnir grafíkverk til 31. des. og Lína
Langsokkur/jólasýn. til 31. des.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Sýning á völdum andlitsmyndum
eftir Siguijón Ólafsson stendur í all-
an vetur.
Gallerí Ríkey
Sýning á^verkum Ríkeyjar.
Gallerí Úmbra
Lára K. Samúelsd. sýnir leirv. til 15.
nóv.
Gallerí Sólon Islandus
Steph. sýnir ljósmyndir til 16. nóv.
Mokka
Ásmundur Ásmundsson sýnir.
Við Hamarinn
Karl Jóhann Jónsson sýnir til 12.
nóv.
Þjóðminjasafnið
Mannamyndir í Bogasal til 5. nóv.
Listhúsið, Laugardal
Eva Benjamínsdóttir sýnir til ára-
móta.
Vinnustofan, Hallveigarstíg 7
Asta G. Eyvindard. Opið milli 14 og 15.
TONLIST
Laugardagur 4. nóvember
Skólahljómsveit Mosfellsbæjar í Hlé-
garði kl. 17. Leikskólakór Reykja-
víkur og nemendur Tónskóla Sigur-
sveins í Háskólabiói kl. 11. f.h.
Sunnudagur 5. nóvember
Keltar og Jónas Ámason í Rein,
Akranesi, kl. 20.30.
Þriðjudagur 7. nóvember
Tónleikaröð LR á Stóra sviðinu,
Caput hópurinn.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Þrek og tár lau. 4. nóv.
Taktu lagið, Lóa lau. 4. nóv., sun.
Stakkaskipti lau. 11. nóv.
Sannur karlmaður lau. 11. nóv.
Kardemommubærinn lau. 4. nóv., sun.,
lau.
Glerbrot frums. fös. 10. nóv.
Borgarleikhúsið
Lína Langsokkur lau. 4. nóv., sun., lau.
Súperstar lau. 11. nóv.
Tvískinnungsóperan lau. 4. nóv.
Hvað dreymdi þig, Valentína? lau. 4.
nóv., fós.
BarPar frums. lau. 4. nóv., fim., fös.
íslenski dansflokkurinn: Sex ballettverk
frums. fim. 9. nóv.
Önnur starfsemi: Hamingjupakkið á
Litia sviðinu.
Dagui’, söng-, dans- og'leikverk sun.
5. nóv., þri.
Möguleildiúsið
Ævintýrabókin lau. 4. nóv., sun., lau.
Loftkastalinn
Rocky Horror lau. 4. nóv., fós.
Hafnarflarðarleikhúsið
Hermóður og Háðvör sýnir Himnaríki,
lau. 4. nóv., sun., mið., fos., lau.
Isienska ópcran
Carmina Burana iau. 4. nóv., lau.
Madame Butterfly frums. flis. 10. nóv.
Kaffileikhúsið
Sápa þtjú og hálft lau. 4. nóv.
Lögin úr leikhúsinu mið. 8. nóv.
Leikfélag Akureyrar
Drakúla lau. 4. nóv., lau.
Listvinafélag Hallgrímskii'kju
Heitnur Guðríðar, eftir Steinunni Jó-
hannesdóttur í safnaðarsal Hallgríms-
kirlgu sun. 5. nóv. kl. 20 og tnið. 8.
nóv. kl. 20.
Furðulcikhúsið
„Bétveirt í Tjamarbíó sun. 5. nóv.
Kópavogsleikiiúsið
Galdrakarlinn í Oz lau. 4. nóv., sun.
KVIKMYNDIR
MIR
„Ef heimilið er þér kært“ sun. kl. 16
Norræna húsið
Nils Karlsson Pyssling kvikm. fyrir
börn sun, 5. nóv. kl. 14,
LISTAKLUBBUR
Leikhúskjallarinn
Dagskrá um Seamus Heaney mán.
6. nóv. kl. 21.